Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 38
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Svanborgar
Sigmarsdóttur
n Bakþankar
Hið einstaka bláköfl ótta Hästens-áklæði er táknrænt fyrir heimspeki
okkar: að búa til svo fullkomið rúm að það haldi þér meira vakandi.
Tilfi nningin sem þú færð þegar gormar, hrosshár, ullartrefjar, bómull,
hör og viður vinna saman er í raun ávöxtur nærri 170 ára linnulausrar
vinnu. Því það er það sem þarf til að leggja grunn að betri degi.
ICONIC?
CHECK.
Hästens Blue Check
Since 1978
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
44%
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
Sími: 550 5050
soludeild@frettabladid.is
NÁÐU TIL
FJÖLDANS!
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Undanfarna viku hef ég reynt
að nota farsímann minn eins og
nafnið gefur til kynna – sem síma.
Auðvitað kemur það ekki til af
góðu. Mín kæra Samsung, sem
ég er vön að hafa samhangandi
við mig nótt sem nýtan dag, er í
viðgerð og því hef ég þennan láns-
síma.
Þessi lánssími er ekki með neitt
af símanúmerunum mínum og því
hringi ég ekki í neinn. Né sendi ég
sms, sem mér skilst að einhverjir
örfáir aðrir en stofnanir og fyrir-
tæki noti enn til samskipta.
Nýi síminn er ekki heldur með
Messenger, Facebook, Twitter,
Instagram, Whatsapp, TikTok,
Slack, Webex, Google Meet,
Zoom eða Snapchat til að eiga í
samskiptum. Hann er ekki með
Spotify, útvarpsöppin, Audible eða
podcast-öppin til að hlusta. Það
er ekkert Netflix, Prime eða Nova
til að horfa. Ekkert heilsuapp til
að segja mér hvað ég eigi að gera í
ræktinni.
Ég hef ekki Trello, Asane, Canva,
tölvupóst og Google Drive til að
segja mér hvað ég eigi að vera að
gera í vinnunni. Ég get ekki lagt
með Parka, keypt strætómiða,
hoppað eða stokkið á Wind. Ég
þarf að bíða í röð þegar í hringi á
leigubíl. Ég safna ekki punktum á
kaffihúsinu, panta ekki pítsu og
þurfti að hefja dauðaleit að öku-
skírteininu og greiðslukortunum.
Þetta gæti verið hátimbraður
pistill um hvað nútímalífið væri
miklu betra ef við værum ekki
bundin við þessa tækni. En það er
það ekki. Ég sakna símans míns.
Ég sakna allra appanna minna
sem gera lífið þægilegra. Ég sakna
þess að hafa allt við fingurgómana
þegar ég er ekki við tölvu. Kæra
Samsung, komdu aftur heim! n
Bundin í báða skó