Fréttablaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 58
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Verkefnastjóri Borgarlínu
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir eru beðnir
að sækja um starfið á
www.vegagerdin.is
Starf verkefnastjóra Borgarlínu er laust til
umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
Verkefnastjóri Borgarlínu ber ábyrgð á
verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni
í Garðabæ og þeim verkum sem eru unnin
þar. Verkefnastofa Borgarlínu heyrir undir
höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar.
Verkefnastjórinn ber ábyrgð á undirbúningi
og áætlanagerð vegna framkvæmda
tengdri Borgarlínu, samþættingu
verkefnisáætlana, yfirsýn og stýringu
mannafla. Einnig upplýsingagjöf til
stjórnenda og hagsmunaaðila.
Verkefni Borgarlínu falla undir
Samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga
og eru samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Betri
samgangna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur um færni viðkomandi til að
gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með
4. október 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólapróf sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun æskileg
→ Víðtæk og árangursrík reynsla af því að
stýra umfangsmiklum verkefnum með
ólíkum hagaðilum.
→ Farsæl reynsla af undirbúningi
framkvæmda og áætlanagerð
stórra verkefna
→ Framúrskarandi leiðtogi með góða
samskiptahæfileika og reynslu
í að stýra teymum.
→ Sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðuð nálgun
og færni til að sjá heildarmyndina.
→ Þekking á opinberri stjórnsýslu.
→ Reynsla í að koma fram og kynna
flókin verkefni
→ Góð íslensku- og enskukunnátta
í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri
höfuðborgarsvæðisins í síma 522 1000.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Heilsugæsluna á Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri auglýsir laust starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis á Heilsugæslunni á Akureyri.
Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Leitað er að áhugasömum einstaklingi til að taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu heilsugæsluþjónustu til framtíðar
í samræmi við stefnu HSN.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2021 eða eftir samkomulagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi. Umsókn fylgi jafnframt starfsferilskrá og upplýsingar um nám og
fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.
Nánari upplýsingar veita Guðný Friðriksdóttir - gudnyf@hsn.is - 860 7750 og Kristjana E Guðlaugsdóttir - kristjanag@hsn.is
Umsóknarfrestur er til og með 27.09.2021
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og einnig á starfatorg.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fagleg og stjórnunarleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt
er á heilsugæslustöðinni og stoðstarfsemi hennar, samkvæmt
skipuriti
• Þátttaka í klínísku starfi
• Staðarumsjón
• Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur og tryggir að rekstur
og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
• Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun þjónustu og stjórnun
verkefna á starfsstöðinni og þvert á stofnun
• Hefur umsjón með starfsemi heilsugæslustöðvarinnar sam-
kvæmt skipuriti ásamt yfirlæknum
• Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
• Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er æskileg
• Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði eða
stjórnunar kostur
• Farsæl stjórnunarreynsla og góð samskiptafærni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Góð tölvukunnátta
Embætti ríkislögmanns
Lögmaður
Staða lögmanns við embætti ríkislögmanns er laust til
umsóknar. Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi mun
aðallega sinna málflutningsstörfum fyrir hönd íslenska
ríkisins auk annarra verkefna samkvæmt lögum nr. 51/1985
um ríkislögmann.
Umsækjendur þurfa að hafa réttindi til málflutnings fyrir
héraðsdómi og gott vald á íslensku og ensku.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af málflutningi
eða störfum í stjórnsýslu. Góð kunnátta á sviði stjórnlaga,
stjórnsýsluréttar, skaðabótaréttar, kröfuréttar og mann-
réttinda er kostur.
Launakjör eru miðuð við kjarasamning Félags
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun og starfs-
feril, þarf að skila eigi síðar en 15. október næstkomandi
rafrænt á starfatorg.is eða póstfang embættisins:
postur@rlm.is, merkt „Umsókn 2021 “.
Miðað er við að ráðið verði í starfið frá og með 1. nóvem-
ber 2021. Skrifstofa embættisins veitir allar nánari upp-
lýsingar í síma 545 8490. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Prentmet er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar
að Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akureyri og Selfossi
Prentmet Oddi óskar eftir
tveimur starfsmönnum í 100% starf.
Vélamanni í umbúðadeild
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
á að stjórna vélum í framleiðslufyrirtæki.
Aðstoðarmanni í bókband og umbúðadeild
Starfið er aðalega fólgið í að aðstoða
við bókbandsvélar og umbúðavélar.
Við leitum eftir handlögnum, reyklausum og
heilsuhraustum einstaklingum. Kostur er að þeir
hafi unnið í prentsmiðju eða framleiðslufyrirtæki.
Vinnutíminn er frá 8:00-16:00 og til 15:30
á föstudögum. Möguleiki er á aukavinnu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri
mannauðsmála í isi@prentmetoddi.is, s. 856 0601 og
https://prentmetoddi.is/um-okkur/atvinnuumsokn/.
Umsóknarfrestur er til 30. september n.k.
Prentmet Oddi er stærsta og framsæknasta prentsmiðja
landsins sem býður upp á heildarlausnir og hágæða
prentun þar sem hraði, gæði og persónuleg þjónusta
fara vel saman í framleiðslunni. Fyrirtækið er Svansvottað og
framleiðir pappírsumbúðir, bækur og allt almennt prentverk.
Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað.
STARFSFÓLK
ÓSKAST