Fréttablaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 114

Fréttablaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 114
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 19.09.21 25.09.21 Þegar dóttir mín var í Melaskóla þá héldu margir bekkjarfélagar hennar að mamma hennar væri forsætis- ráðherra. Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, þykir sláandi lík Katrínu Jakobsdóttur, enda á fólk ítrekað erindi við hana sem forsætisráðherra. Tví- farinn hefur þó bara gaman af og segir ekki leiðum að líkjast. toti@frettabladid.is Berglindi Rán Ólafsdóttur, fram- kvæmdastýru Orku náttúrunnar, svipar svo mjög til Katrínar Jakobs- dóttur í útliti að hún verður ítrekað fyrir því að fólk, sem telur sig eiga sitthvað vantalað við forsætisráð- herra, gefur sig á tal við hana. „Já, já. Ég hef mikið tekið eftir því og því meira sem hún er í fjöl- miðlum þá er ég oftar spurð hvort við séum systur eða frænkur,“ segir Berglind, sem alltaf er kölluð Begga, og hlær dátt þegar hún er spurð hvort hún hafi orðið þess vör að fólk sjái í henni tvífara Katrínar. „Þetta er bara skemmtilegt og mjög fyndið. Það koma alveg vikur þar sem ég er oft spurð og þetta er sérstaklega slæmt núna,“ segir hún og kannski varla við öðru að búast þegar kosningabaráttan er í hámæli og framhaldslíf ríkisstjórnar Katr- ínar er undir. Misskilningur í Melabúðinni „Núna erum við líka með svipað hár og með svipuð gleraugu,“ segir Begga og f lækjustigið hækkar síðan enn frekar við það að báðar búa þær í Vesturbænum, Kata og Begga, þannig að slíkur misskiln- ingur sprettur ekki síst upp í Mela- búðinni, sem má teljast einn helsti samkomustaður þeirra sem halda til í póstnúmeri 107. „Það hefur alveg komið fyrir að fólk hefur alveg skammað mig fyrir að svara ekki einhverjum málum,“ segir Begga og hlær. „Stundum í Melabúðinni. Við erum báðar í Vesturbænum og þegar dóttir mín var í Melaskóla þá héldu margir bekkjarfélagar hennar að mamma hennar væri forsætisráðherra.“ Krafin um svör Begga segist þó ekki vera orðin svo öflugur tvífari að hún taki að sér að svara fyrir pólitísk hitamál í stað Katrínar, enda gangi misskilningur- inn sjaldan svo langt. Mest sé um að fólk staldri við og spyrji: „Bíddu er þetta ekki Katrín?“ „Síðan fattar fólk nú að svo sé nú ekki, en það hefur komið fyrir að ég hef verið stoppuð í Melabúðinni og svo hefst bara samtal um skattamál. Ég man líka eftir tilviki þar sem einhver vatt sér að mér: „Bíddu þú hefur ekkert svarað erindinu mínu,“ segir Begga, sem dró þá ályktun að ósvaraða erindinu hefði í raun verið beint til hennar. Ekki forsætisráð- herra. „Þannig að ég spurði hvort það varðaði hleðslustöð fyrir rafbíla, en þá voru það skattamálin og ég fatt- aði að hann hélt að ég væri Katrín.“ Bara skemmtilegt Begga segir aðspurð að það sé henni alveg að meinalausu að vera ítrekað tekin í misgripum fyrir Katrínu. „Mér finnst þetta bara skemmti- legt sko og ekki leiðum að líkjast. Ég er bara ánægð með þetta. Mér finnst þetta bara krúttlegt og eins og ég segi þá er ég bara ánægð með að vera lík henni Katrínu Jakobs- dóttur. Hún er bara frábær leið- togi og f lott. Þetta gæti verið miklu verra og böggar mig ekki neitt.“ n Bíddu er þetta ekki Katrín? Berglind Ósk hefur lúmskt gaman af því þegar tekinn er feill á henni og Katrínu Jakobs- dóttur. Umhverfisráðherra ásamt Katrínu – og þó? Eða Berglindi. MYND/AÐSEND Upplifun þolenda Annalísa Hermannsdóttir gaf nýlega út út mynd band við lagið Ég er bara að ljúga er það ekki? Lagið fjallar um upplifun þolenda af kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi. Bindingar ekki bara erótík RIFF kynnti dagskrá sína þar sem má meðal margs annars finna heimildarmyndina Passion, sem fjallar um BDSM. Reykjavík Ropes, verður með bindikynningu að lokinni sýningu í október. Fallegur Missir Freyr Eyjólfsson og Reynir Lyngdal höfðu báðir upplifað sorg og missi áður en þeir gerðu þættina Missi fyrir Sjónvarp Símans, og byggja á viðtölum við fólk sem segir frá úrvinnslu þungra áfalla og sorgar. Grínfrumraun VHS-hópurinn dæmdi keppnina um Fyndnasta háskólanemann. Óskar Örn Bragason sigraði og fékk loks að þreyta frumraun sína á sviði í gærkvöld sem gestur sýn- ingarinnar VHS krefst virðingar. Aðeins 52.342 kr. HOUSTON hornsófi Sófinn fæst með hægri eða vinstri horni. Stærð sófa: B275 x D210 x H85 cm fullt verð: 249.900 kr. Aðeins 201.544 kr. NEW MALMÖ hornsófi GARDOLO hornsófi Hornsófi með opnum enda. Fæst í þremur tónum og með hægri eða vinstri tungu. B247 x D195 x H84 cm fullt verð: 229.900 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Lýkur í dag TAX FREE veisla af öllum sófum, sófaborðum, teppum, mottum og púðum* Slitgott áklæði. Svartir fætur. L244 x D220 x H86 cm fullt verð: 219.900 kr. BOGGIE stóll Nettur hægindastóll. Ýmsir litir. B78 x D77 x H85 cm fullt verð: 64.900 kr. Aðeins 185.415 kr. Aðeins 177.349 kr. * Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum, teppum, mottum, sófaborðum og púðum, nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 64 Lífið 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.