Fréttablaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 102
Annars vegar er þetta
rómantísk, harmræn
tregasaga og hins vegar
skálkasaga eða sam-
félagsleg satíra.
Ljóst er að Gubaidulina
stal senunni af Beet-
hoven um kvöldið.
Kristján opnaði fyrst
sýningu í Slunkaríki
á kosningadegi árið
1987.
Ljósgildran er fyrsta skáld-
saga Guðna Elíssonar, prófess-
ors í almennri bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands.
kolbrunb@frettabladid.is
Í þessari skáldsögu Guðna segir frá
því þegar tveir valdamestu menn
landsins, forsetinn og forsætisráð-
herrann, ákveða að næla sér í hirð-
skáld, en þessir miklu pótintátar
eiga í eilífum metingi. Skáldin tvö,
H. M. S. Hermann og Jakob, dragast
síðan inn í átökin.
„Það væri hægt að skilgreina
þessa bók sem tvær skáldsögur sem
eru fléttaðar saman svo þær mynda
að lokum órofa heild,“ segir Guðni.
„Annars vegar er þetta rómantísk,
harmræn tregasaga og hins vegar
skálkasaga eða samfélagsleg satíra.
Smám saman renna þessar sögur
saman með alvarlegum afleiðing-
um. Þessi aðferð gerir mér kleift að
draga fram hvernig einkarýmið og
opinbera rýmið verða illa aðskilin.
Jafnvel þegar maður kýs að draga sig
í skjól þá tekst það ekki vegna þess
að umheimurinn rekst á gluggana
og vill inn.“
Beitir alls kyns brögðum
Segja má að Guðni ráðist ekki á garð-
inn þar sem hann lægstur því þessi
fyrsta skáldsaga hans er 800 síður.
„Ég vissi strax að þetta yrði löng
bók, að ekki væri hægt að segja frá
því sem ég vildi segja í knöppu rými
og það fór mikill tími í að hugsa um
strúktúrinn. Eitt af því sem skiptir
máli í svona langri bók er að halda
lesandanum og passa að hann verði
ekki úti uppi á frásagnarheiðinni. Ég
þarf því að beita alls kyns brögðum
við að halda honum spenntum
fyrstu 200 síðurnar, á meðan ég er
að leggja upp plottið. Þegar þangað
er komið fara frásagnarþræðirnir
hægt og rólega að fléttast saman.
Það er svo nákvæmlega í miðju bókar
sem hinar tvær stóru karlpersónur
sögunnar mætast í sama rými og
þá sameinast þessar sögueiningar.
Sagan einkennist líka af einhverju
sem má kalla f ljótandi vitundar-
miðju. Hún eltir huga þeirrar per-
sónu sem stýrir frásögninni hverju
sinni og því lætur sagan ekki uppi
hver hin siðferðilega leiðarhnoða
hennar er. Það er lesandans að fella
siðferðilega dóma.“
Harmur og háð
Guðni var mörg ár að skrifa bók-
ina. Hann er spurður hvort hann
telji íslenska lesendur vera tilbúna
fyrir 800 blaðsíðna skáldsögu. „Er
ekki fimmta bókin um Harry Pot-
ter tæpar 750 síður? Og ég hef séð
krakka sem ekki eru orðnir tíu ára
gamlir gleypa hana í sig. Spurningin
er í raun aðeins hvort þú heldur les-
andanum. Mig langaði líka ekki til
þess að skrifa þríleik, sem er skáld-
saga sem er seld þrisvar og verður
því að strúktúrera öðruvísi, heldur
að skrifa bók sem væri ekki á neinn
hátt mótuð af markaðslögmálum.
Ég er í vinnu og þarf ekki að lifa af
þessu og útgefendurnir mínir hjá
Lesstofunni eru hugsjónafólk sem
eiga líklega ekki eftir að ríða feitum
hesti frá þessu verkefni.“
Bókin er sambland af harmi og
háði og á köflum mjög fyndin. Höf-
undur gerir grín að ýmsu í íslensku
samfélagi, þar á meðal stjórnmála-
og menningarlífi. „Hugsanlega eiga
einhverjir eftir að móðgast. En ég
geri jafnmikið grín að hugsjón-
unum sem ég sjálfur hleyp á eftir,
til dæmis loftslagsmálunum,“ segir
Guðni, sem er stofnandi loftslags-
verkefnisins Earth101.
Hann segir söguna ekki vera lykil-
sögu, þótt líklegt sé að lesendur telji
sig þekkja fyrirmyndir að nokkrum
persónum. Þarna er til dæmis hinn
róttæki Rauði-Gunnar, sem minnir
óneitanlega á Gunnar Smára Egils-
son. „Auðvitað er þetta ekki Gunnar
Smári heldur fyrst og fremst skáld-
sagnafígúra sem lýtur lögmálum
þessarar tilteknu sögu,“ segir Guðni.
„En ég leyfði ákveðnum tengingum
við Gunnar Smára að halda sér því
að sósíalistaleiðtoginn er svo stórt
samsettur einstaklingur að það væri
auðvelt að skrifa um hann einan
mikla skáldsögu. Annars forðaðist
ég allt slíkt eins og ég gat.“ n
Skiptir máli að halda lesandanum
Hugsanlega eiga einhverjir eftir að móðgast, segir Guðni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÓNLIST
Beethoven og Gubaidulina á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands
Stjórnandi: Eva Ollikainen
Fram komu: Hallveig Rúnarsdóttir,
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Elmar
Gilbertsson og Jóhann Kristinsson
Eldborg í Hörpu
Fimmtudaginn 16. september
Jónas Sen
Ég sá nýlega þátt með Barnaby
rannsóknarlögreglumanni. Þáttur-
inn heitir The Curse of the Ninth og
fjallar um mann, tónskáld, sem illa
fer fyrir. Hann er nýbúinn að semja
níundu sinfóníuna sína, en eins og
kunnugt er þá hafa mjög mörg tón-
skáld ekki samið f leiri sinfóníur.
Beethoven samdi níu, Bruckner
níu, Schubert níu og Dvorák níu.
Svo dóu þeir. Að vísu ekki voveif-
lega.
Níunda sinfónía Beethovens er sú
langþekktasta og er orðin að hálf-
gerðri klisju. Í rauninni er búið að
eyðileggja síðasta kaflann með því
að klína honum í alls konar óvið-
eigandi samhengi. Engu að síður
hljómaði hann nokkuð ferskur á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á fimmtudagskvöldið. Eva
Ollikainen stjórnaði og einkennd-
ist túlkunin af gríðarlegri innlifun.
Fyrsti kaflinn var nokkuð hraður,
en fyrir vikið var áfergja í leiknum
sem var smitandi. Sömu sögu er að
segja um snarpan annan þáttinn,
sem var fullur af krafti og ástríðu.
Hugleiðslukenndur þriðji kaflinn
var svo hástemmdur og þrunginn
andakt.
Tveir voldugir kórar
Lokakaflinn með stefinu fræga var
í heild flottur. Það var áhrifamikið
augnablik þegar tveir fjölmennir
kórar, Söngsveitin Fílharmónía og
Mótettukórinn, stóðu upp í loka-
þættinum og settu sig í stellingar.
Kórsöngurinn hefði samt mátt
vera fágaðri, hann var eilítið hrár
um tíma. Sömu sögu er að segja
um hljóðfæraleikinn sem var ögn
losaralegur.
Fjórir einsöngvarar sungu, hlut-
verk þeirra mismikilvæg. Karlarnir
eiga stærstu rullurnar, konurnar eru
meira til fyllingar. Jóhann Kristins-
son var frábær í upphafssólóinu.
Sömu sögu er að segja um Elmar
Gilbertsson, sem hljóp í skarðið
fyrir veikan Stuart Skelton. Gaman
hefði verið að heyra þann magnaða
hetjutenór í þessu hlutverki! Samt
stóð Elmar sig prýðilega.
Kvenraddirnar komu líka sérlega
vel út, Hallveig Rúnarsdóttir sópran
og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir voru
glæsilegar.
Sterkar andstæður
Hitt verkið á efnisskránni var Fach-
werk fyrir rússneska takkaharmó-
níku (bayan), slagverk og strengi,
eftir Sofiu Gubaidulinu. Einleikari
var Geir Draugsvoll. Gubaidulina
er tónskáld sem venst með tím-
anum. Kannski þarf maður að ná
ákveðnum aldri til að meta hana.
Tónlist hennar er mjög innhverf
og það er einhvern veginn ekkert
eins og sýnist. Tilfinningarnar eru
gefnar í skyn, yfir öllu er trúarleg
hugleiðslustemning, sem er samt
ekki augljós.
Hryssingslegur hljómurinn í
harmóníkunni og fíngerðar, dálítið
víraðar strengjahendingarnar,
ásamt spúkí slagverki, skapaði
sterkar andstæður. Mér er ómögu-
legt að lýsa tónlistinni að öðru leyti,
en tilþrifin hjá einleikaranum voru
eftirminnileg. Það var eins og heil
hljómsveit væri að spila einleikinn,
slík var breiddin í harmóníkuleikn-
um. Tónlistin var magnþrungin og
full af spennu, hvert einasta augna-
blik var heillandi og óvænt. Ljóst er
að Gubaidulina stal senunni af Beet-
hoven um kvöldið. n
NIÐURSTAÐA: Einsöngvararnir
stóðu sig vel, kórinn var dálítið
hrár, hljómsveitin góð nema í
lokakaflanum í Beethoven, og
Gubaidulina var mögnuð, enda
einleikarinn geggjaður.
Beethoven góður en Gubaidulina frábær
Elmar Gilbertsson stóð sig vel að vanda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kolbrunb@frettabladid.is
Í dag, laugardaginn 25. september
2021, sama dag og kosið verður
til Alþingis, opnar Kristján Guð-
mundsson sý ning u í Galler í
Úthverfu, í samvinnu við Slunka-
ríki á Ísafirði. Kristján opnaði fyrst
sýningu í Slunkaríki á kosningadegi
árið 1987 og síðan þá hefur skapast
hefð fyrir því að listamaðurinn
komi vestur með sýningu þegar
kosið er til Alþingis.
Kristján er í hópi virtustu lista-
manna þjóðarinnar, list hans hefur
verið lýst þannig að hún er bæði í
takti við þær hefðir sem ráðið hafa
ferðinni í vestrænni samtímalist
á seinni hluta síðustu aldar og er
jafnframt merkilegt innlegg í marg-
brotið tímabil abstrakt- og konsept-
listar eftirstríðsáranna hér á landi.
Hann var fulltrúi Íslands á Feneyja-
tvíæringnum 1993 og hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir list sína,
meðal annars sænsku Carnegie-
verðlaunin. n
Kristján sýnir
í Slunkaríki
Verk eftir Kristján á sýningunni.
52 Menning 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2021 LAUGARDAGUR