Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 114
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
19.09.21
25.09.21
Þegar dóttir mín var í
Melaskóla þá héldu
margir bekkjarfélagar
hennar að mamma
hennar væri forsætis-
ráðherra.
Berglind Rán Ólafsdóttir,
framkvæmdastýra Orku
náttúrunnar, þykir sláandi lík
Katrínu Jakobsdóttur, enda
á fólk ítrekað erindi við hana
sem forsætisráðherra. Tví-
farinn hefur þó bara gaman
af og segir ekki leiðum að
líkjast.
toti@frettabladid.is
Berglindi Rán Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastýru Orku náttúrunnar,
svipar svo mjög til Katrínar Jakobs-
dóttur í útliti að hún verður ítrekað
fyrir því að fólk, sem telur sig eiga
sitthvað vantalað við forsætisráð-
herra, gefur sig á tal við hana.
„Já, já. Ég hef mikið tekið eftir
því og því meira sem hún er í fjöl-
miðlum þá er ég oftar spurð hvort
við séum systur eða frænkur,“ segir
Berglind, sem alltaf er kölluð Begga,
og hlær dátt þegar hún er spurð
hvort hún hafi orðið þess vör að fólk
sjái í henni tvífara Katrínar.
„Þetta er bara skemmtilegt og
mjög fyndið. Það koma alveg vikur
þar sem ég er oft spurð og þetta er
sérstaklega slæmt núna,“ segir hún
og kannski varla við öðru að búast
þegar kosningabaráttan er í hámæli
og framhaldslíf ríkisstjórnar Katr-
ínar er undir.
Misskilningur í Melabúðinni
„Núna erum við líka með svipað
hár og með svipuð gleraugu,“ segir
Begga og f lækjustigið hækkar
síðan enn frekar við það að báðar
búa þær í Vesturbænum, Kata og
Begga, þannig að slíkur misskiln-
ingur sprettur ekki síst upp í Mela-
búðinni, sem má teljast einn helsti
samkomustaður þeirra sem halda
til í póstnúmeri 107.
„Það hefur alveg komið fyrir að
fólk hefur alveg skammað mig fyrir
að svara ekki einhverjum málum,“
segir Begga og hlær. „Stundum í
Melabúðinni. Við erum báðar í
Vesturbænum og þegar dóttir mín
var í Melaskóla þá héldu margir
bekkjarfélagar hennar að mamma
hennar væri forsætisráðherra.“
Krafin um svör
Begga segist þó ekki vera orðin svo
öflugur tvífari að hún taki að sér að
svara fyrir pólitísk hitamál í stað
Katrínar, enda gangi misskilningur-
inn sjaldan svo langt. Mest sé um að
fólk staldri við og spyrji: „Bíddu er
þetta ekki Katrín?“
„Síðan fattar fólk nú að svo sé nú
ekki, en það hefur komið fyrir að ég
hef verið stoppuð í Melabúðinni og
svo hefst bara samtal um skattamál.
Ég man líka eftir tilviki þar sem
einhver vatt sér að mér: „Bíddu þú
hefur ekkert svarað erindinu mínu,“
segir Begga, sem dró þá ályktun að
ósvaraða erindinu hefði í raun verið
beint til hennar. Ekki forsætisráð-
herra.
„Þannig að ég spurði hvort það
varðaði hleðslustöð fyrir rafbíla, en
þá voru það skattamálin og ég fatt-
aði að hann hélt að ég væri Katrín.“
Bara skemmtilegt
Begga segir aðspurð að það sé henni
alveg að meinalausu að vera ítrekað
tekin í misgripum fyrir Katrínu.
„Mér finnst þetta bara skemmti-
legt sko og ekki leiðum að líkjast.
Ég er bara ánægð með þetta. Mér
finnst þetta bara krúttlegt og eins
og ég segi þá er ég bara ánægð með
að vera lík henni Katrínu Jakobs-
dóttur. Hún er bara frábær leið-
togi og f lott. Þetta gæti verið miklu
verra og böggar mig ekki neitt.“ n
Bíddu er þetta ekki Katrín?
Berglind Ósk
hefur lúmskt
gaman af því
þegar tekinn er
feill á henni og
Katrínu Jakobs-
dóttur.
Umhverfisráðherra ásamt Katrínu – og þó? Eða Berglindi. MYND/AÐSEND
Upplifun þolenda
Annalísa Hermannsdóttir gaf
nýlega út út mynd band við lagið Ég
er bara að ljúga er það ekki? Lagið
fjallar um upplifun þolenda af
kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi.
Bindingar ekki bara erótík
RIFF kynnti dagskrá sína þar sem
má meðal margs annars finna
heimildarmyndina Passion, sem
fjallar um BDSM. Reykjavík Ropes,
verður með bindikynningu að
lokinni sýningu í október.
Fallegur Missir
Freyr Eyjólfsson og Reynir Lyngdal
höfðu báðir upplifað sorg og missi
áður en þeir gerðu þættina Missi
fyrir Sjónvarp Símans, og byggja
á viðtölum við fólk sem segir frá
úrvinnslu þungra áfalla og sorgar.
Grínfrumraun
VHS-hópurinn dæmdi keppnina
um Fyndnasta háskólanemann.
Óskar Örn Bragason sigraði og
fékk loks að þreyta frumraun sína
á sviði í gærkvöld sem gestur sýn-
ingarinnar VHS krefst virðingar.
Aðeins 52.342 kr.
HOUSTON hornsófi
Sófinn fæst með hægri eða vinstri horni. Stærð sófa: B275 x D210 x H85 cm
fullt verð: 249.900 kr.
Aðeins 201.544 kr.
NEW MALMÖ hornsófi
GARDOLO hornsófi
Hornsófi með opnum enda. Fæst í þremur tónum og með
hægri eða vinstri tungu. B247 x D195 x H84 cm
fullt verð: 229.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Lýkur í dag
TAX FREE
veisla af öllum sófum, sófaborðum, teppum, mottum og púðum*
Slitgott áklæði. Svartir fætur.
L244 x D220 x H86 cm
fullt verð: 219.900 kr.
BOGGIE stóll
Nettur hægindastóll. Ýmsir litir.
B78 x D77 x H85 cm
fullt verð: 64.900 kr.
Aðeins 185.415 kr.
Aðeins 177.349 kr.
* Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum, teppum, mottum, sófaborðum og púðum,
nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður
virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma.
FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
64 Lífið 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ