Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 60
UM FYRIRTÆKIÐ
Rannsóknaþjónustan Vestmannaeyjum ehf. (RÞV) er
með starfsemi í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
Núverandi rekstur RÞV hefur að stærstum hluta byggst á
þjónustumælingum, rannsóknum og ráðgjöf,
mestmegnis fyrir matvælafyrirtæki í Vestmannaeyjum.
Einn starfsmaður hefur starfað hjá félaginu frá stofnun en
nú stendur til að efla starfsemi félagsins með ráðningu
framkvæmdastjóra.
Fyrirtækið var stofnað árið 2004 en byggir á grunni eldri
starfsemi sem hófst árið 1971. Helstu viðskiptavinir eru
Vinnslustöðin (VSV) og Ísfélag Vestmannaeyja (ÍV), auk
félaga tengdum þeim fyrirtækjum.
VSV og ÍV eru stærstu eigendur RÞV, auk Sýni ehf.
Búseta í Vestmannaeyjum er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2021.
Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf og starfs-
ferilsskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skal senda á netfangið: 3h.hrafn@gmail.com
Áhugasömum aðilum um starfið er heitið fullum trúnaði.
Nánari upplýsingar veitir ráðgjafi á vegum RÞV:
Hrafn Sævaldsson í síma 8612961. (3h.hrafn@gmail.com)
Í Vestmannaeyjum er frábært að búa. Íbúar í Vestmanna-
eyjum eru ánægðastir allra á landinu með sín búsetu-
skilyrði og eru hamingjusamastir skv. íbúakönnun lands-
hlutanna 2020. Samkvæmt könnun Gallup á þjónustu
sveitarfélaga 2020 þá er best þjónusta við barnafjölskyld-
ur og fatlaða í Vestmannaeyjum og sveitarfélagið er ann-
að besta í þjónustu við eldri borgara, þjónustu leikskóla og
aðstöðu til íþróttaiðkunar.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. matvælafræði,
næringarfræði, sjávarútvegsfræði, líffræði, líftækni,
efnafræði, svo fátt eitt sé nefnt
- Starfsreynsla og þekking á starfi á rannsóknastofu
er mikill kostur
- Þekking á gæðahandbókum og mælingum er mikill kostur
- Frumkvæði, ábyrgð og samskiptalipurð
- Reynsla og þekking á fiskvinnslu er kostur
- Reynsla af gæðakerfum, umbótastarfi og ferlum er kostur
- Reynsla og eða áhugi á rekstri og verkefnisstjórn er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Framkvæmdastjórn félagsins og verkstjórn
- Áætlanagerð, skráningar og ferlagreiningar
- Þjónustumælingar og sýnatökur
- Aðstoð við gerð, ritstjórn og notkun gæðahandbóka
- Aðstoð við skipulagningu, umsjón og ráðgjöf með
innri og ytri úttektum, í samráði við viðskiptavini
- Aðstoð við eftirfylgni og umbætur gæðaferla
- Ráðgjöf tengd menntun og fræðslu fyrir starfsfólk
viðskiptavina í gæðamálum
- Ráðgjafi viðskiptavina gagnvart kaupendum og
opinberum aðilum
- Þjónustukaup innanlands og erlendis
- Þjálfun starfsfólks viðskiptavina
- Gerð kynningarefnis á gæðamálum fyrir viðskiptavini
- Þátttaka í rannsóknarverkefnum fyrir viðskiptavini
- Öflun nýrra verkefna
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Rannsóknaþjónustan Vestmannaeyjum ehf. leitar að öflugum og framsæknum
einstaklingi í stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Um fullt stöðugildi er að ræða.
Viðkomandi mun stýra starfsemi félagsins, sinna þjónustuþáttum og leiða uppbyggingu félagsins.
Í Vestmannaeyjum er vaxandi vísindasamfélag með mörgum öflugum matvælafyrirtækjum.
SALA OG RÁÐGJÖF
Vegna aukinna verkefni og umsvifa leitum við að
metnaðarfullum einstaklingi til stafa með okkar
sérfræðingum á sölu- og ráðgjafasviði.
Hæfniskröfur
• Þekking og reynsla úr byggingariðnaði og/eða
menntun sem nýtist í starfi.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
• Almenn tölvukunnátta
Áltak er leiðandi í sölu utanhússklæðninga, hljóðvistar-
lausna, steypumóta og sérlausna í byggingariðnaði.
Við erum með stór sem smá verkefni og bjóðum upp á
heildarlausnir til okkar viðskiptavina.
Áltak hefur verið kosið fyrirmyndarfyrirtæki síðan 2016
og leggur mikla áherslu á góðan starfsanda og að allir
séu virkir þátttakendur í framförum fyrirtækisins.
Áhugasamir sendi ferliskrá á starfasíðu alfred.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. September.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um.