Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 7
Enginn veit í raun hvert flug-
geirinn stefnir á komandi miss-
erum. Þar mun bólusetning
ráða miklu en einnig mikilvægar
ákvarðanir á vettvangi þeirra
flugfélaga sem enn tóra.
Moggans að leigusamningur á þremur A321neo-
flugvélum séu þannig úr garði gerðir að félagið
muni fyrstu misserin í rekstri aðeins greiða leigu
fyrir nýtta flugtíma. Verði lítið um flug verður
leigan lág, verði mikið að gera hækkar leigan í
hlutfalli við það. Það er því innbyggð áhættustýr-
ing í leigusamningunum en það er lúxus sem Ice-
landair býr ekki við. Félagið á margar vélar sem
flestar eru veðsettar fyrir lánum sem greiða þarf
af. Aðrar hafa verið seldar og endurleigðar og
byggja á hefðbundnum leigusamningum.
Vélarnar sem um ræðir eru einnig nýjar af nál-
inni og afar hagkvæmar í rekstri. Það mun ekki
síst hjálpa félaginu þegar eldsneytisverðið hækk-
ar og bensínhákar á við 757-200 vélarnar sem
verið hafa hryggjarstykkið í flota Icelandair
verða óhagkvæmari í rekstri en oftast áður.
Þeirri stöðu mun Icelandair svara með því að
beita MAX-vélunum nýju í samkeppninni. Þær
eru sömu kynslóðar og NEO-vélarnar frá Airbus
og eyða langtum minna eldsneyti en eldri CEO-
gerðir frá sama framleiðanda.
Eldfimir og tvíeggjaðir kjarasamningar
En það er annað sem valda mun Icelandair
miklum heilbrotum á komandi mánuðum. Það eru
kjarasamningarnir sem Play hefur gert við Ís-
lenska flugstéttafélagið. ViðskiptaMogginn hefur
heimildir fyrir því að samningar þeir sem Play
hefur gert við ÍF séu afar hagstæðir, bæði þegar
litið er til flugmanna og -stjóra og flugfreyja og
-þjóna. Einingakostnaður gagnvart síðarnefnda
hópnum ku vera langtum lægri og hagfelldari en
sá sem Icelandair vélaði í gegn með herkjum og
miklum fórnum í fyrrahaust. Hins vegar hvílir
mikil leynd yfir innihaldi þessara samninga. Með
þá er farið eins og hvert annað hernaðarleynd-
armál. Það er ekki aðeins vegna samkeppnissjón-
armiða heldur einnig vegna þess að forsvarsmenn
ÍF og Play vita að hagfelldir samningar fyrir Play
þýða lægri laun í samanburði við hálaunafólk á
vettvangi Icelandair. Það mun aftur kalla á reiði
og fordæmingu Eflingar, VR og ASÍ. Jafnvel þótt
forsvarsmenn Play gefi sennilega lítið fyrir af-
stöðu þess fólks í prinsippinu þá vita þeir að hat-
ursherferð úr þeim herbúðum getur auðveldlega
skaðað orðspor og dregið úr stemningunni í
kringum félag sem vill staðsetja sig á mark-
aðnum sem litla félagið sem vilji bæta kjör fólks
með hagstæðum flugfargjöldum.
Flugríkið Ísland er ekki eyland
Líkt og áður sagði býr Icelandair að því að hafa
náð farsælli lendingu í endurfjármögnun sinni í
september á síðasta ári. Flest önnur félög á
markaði hafa neyðst til þess að stafla upp lánum
sem munu reynast þeim kybbi við kverk á kom-
andi árum. En þessi félög munu ekki gefa sinn
hlut og þau munu sýna klærnar, bæði við þekkta
keppinauta og einnig nýjabrumið á markaðnum.
Ljóst er að Play stefnir á flug til Bandaríkj-
anna þó ekki liggi nákvæmlega fyrir á þessari
stundu hvenær af því verður. Almennt gera flug-
málayfirvöld í Bandaríkjunum kröfu á að ákveðin
reynsla sé komin á starfsemi evrópskra félaga áð-
ur en þau mega hefja innreið sína á bandaríska
markaðinn. Það kann þó að breytast eitthvað í
gjörbreyttum heimi þar sem flugvellina vest-
anhafs skortir súrefni og vilji er til þess að liðka
sem mest fyrir auknum samgöngum.
Play er hins vegar ekki stóri samkeppnisaðili
Icelandair á leiðinni sem tengir Evrópu og
Bandaríkin, ekkert frekar en WOW air sem aldr-
ei var verðmyndandi á þeim markaði. Stóru kepp-
endurnir þar eru stærri félög austanhafs og vest-
an. Reyndar virðist flest benda til þess að ný
nálgun Norwegian komi í veg fyrir að það félag
muni standa í ósjálfbærum undirboðum og vit-
leysisgangi á markaðnum á komandi misserum,
enda hafa einhverjir á þeim vettvangi lært sína
lexíu. Hún var reyndar dýrkeypt og skilur félagið
eftir laskað og skuldum vafið. En það eru gamlir
töffarar af þeim sama vettvangi sem nú hyggjast
beina Boeing 787-Dreamliner-vélum inn á þenn-
an markað með beinu flugi milli áfangastaða í
Evrópu og Bandaríkjunum. Verður það gert und-
ir merkjum Norse Atlantic Airways. Ef sama vit-
leysan tekur völdin þar og ríkti á vettvangi Nor-
wegian er hætt við að flugfélög á borð við
Icelandair og Play þurfi að þrýsta verði sínu nið-
ur fyrir það sem skynsamlegt getur talist. Þá
mun þurfa sterk bein innan þeirra vébanda til
þess að halda fremur að sér höndum en að elta
vitleysuna út í sortann. Það á við í fluggeiranum,
öðrum fremur, að oft er betur heima setið en af
stað farið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þegar mest lét fluttu Icelandair og WOW air u.þ.b. 7,6 milljónir farþega í vélum sínum á
einu ári. Verður það að teljast afrek af tveimur ástæðum. Ævintýralegum vexti WOW air
og þeirri staðreynd að farþegafjöldinn var tuttugufaldur íbúafjöldi Íslands. Það er hins
vegar fátt sem virðist koma í veg fyrir að íslensk flugfélög, eitt eða fleiri, geti byggt upp
mjög mikil umsvif þegar áhrifa kórónuveirunnar hættir að gæta. Því ræður mikil þekking
sem skapast hefur hér á landi, bæði á grundvelli farsæls reksturs en einnig biturrar
reynslu. En það sem þó ræður mestu er að Ísland liggur í alfaraleið þótt snöggt yfirlit yfir
landakort kunni að benda í aðra átt. Flugleiðin milli Evrópu og Bandaríkjanna liggur yfir
landið og þeir sem kjósa að velja hagkvæman ferðamáta, sem safnflugvellir standa
gjarnan fyrir, eru líklegir til þess að velja Ísland til millilendingar. Auk þess bendir margt
til þess að Ísland eigi bjarta framtíð fyrir höndum sem ferðamannaland. Landið hefur
aldrei verið eins þekkt meðal alþýðu manna í fjarlægum löndum og þá hafa verið byggðir
upp geysilega verðmætir innviðir á síðustu árum sem gera landinu betur kleift að taka
við miklum ferðamannastraumi. Nefna mætti mörg dæmi um fjárfestingu af þessu tagi
en nægir að nefna flugvöllinn sjálfan á Hólmsheiði sem er borgarhliðið sjálft og svo Bláa
lónið og hótelin tvö sem þar eru rekin og svo hið magnaða Edition-hótel sem senn opnar
dyr sínar fyrir gestum en fjárfesting í því nemur yfir 20 milljörðum króna. Það eru ekki að-
eins Icelandair og Play sem sjá færi í því að ferja farþega til og frá landinu eða „í gegn-
um“ það. Stór og öflug félög á borð við Wizz Air, SAS, Delta, British airways, United
munu beina vélum hingað á komandi mánuðum. Áður en kórónuveiran setti allt úr skorð-
um var jafnvel talið að félög á borð við Emirates myndu ferja fólk til landsins frá fjar-
lægum löndum. Öflugri flugvélar gera þessum félögum og öðrum kleift að opna flugleiðir
milli landa sem áður fyrr þótti fjarstæðukennt. WOW air flaug um nokkurra missera skeið
til Tel Aviv í Ísrael og í nokkrar vikur til Indlands. Slíkir markaðir eru enn innan seilingar ef
eftirspurnin kviknar á ný.
Pínulitlir fiskar í risastórri tjörn
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 7FRÉTTASKÝRING