Morgunblaðið - 22.04.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
22. apríl 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.07
Sterlingspund 176.04
Kanadadalur 100.67
Dönsk króna 20.426
Norsk króna 15.196
Sænsk króna 14.999
Svissn. franki 137.74
Japanskt jen 1.1629
SDR 180.89
Evra 151.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.3178
Hrávöruverð
Gull 1765.5 ($/únsa)
Ál 2324.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.86 ($/fatið) Brent
« Úrvalsvísitala
aðallista Kaup-
hallar Íslands
hækkaði um 1,59%
í gær. Langmest
hækkun varð á
bréfum flugfélags-
ins Icelandair eða
12,5% í 450 millj-
óna króna við-
skiptum. Hækk-
unin kemur í
kjölfar tíðinda af því að ríkisstjórnin
stefnir að því að aflétta öllum tak-
mörkunum vegna kórónuveirufarald-
ursins innanlands fyrir 1. júlí nk. Gengi
bréfa félagsins er nú 1,57 krónur hver
hlutur.
Næstmesta hækkun gærdagsins
varð á bréfum fasteignafélagsins Reita
eða 3,54% í 174 milljóna króna við-
skiptum. Lokagengi félagsins í gær var
70,2. Annað fasteignafélag, Reginn,
hækkaði talsvert sömuleiðis eða um
3,41% í 76 milljóna króna viðskiptum.
Verð bréfa í félaginu er nú 25,8 krónur
hver hlutur.
Gengi fjögurra félaga stóð í stað í
gær, eða VÍS, Skeljungs, Sjóvár og Ice-
land Seafood, en eitt félag lækkaði í
verði, sjávarútvegsfyrirtækið Brim, í 83
milljóna króna viðskiptum. Lokagengi
Brims í gær var 54 krónur á hvern hlut.
Gengi bréfa Icelandair
hækkaði um 12,5%
Hækkun Icelandair
tók flugið.
STUTT
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þórarinn Ævarsson, forstjóri og eig-
andi pizzafyrirtækisins Spaðans, spá-
ir því að Domino’s verði orðið gjald-
þrota á næstu fimm árum. Hann er
gestur í Dagmálum í dag, þætti sem
aðgengilegur er öllum áskrifendum
Morgunblaðsins á mbl.is.
Spurður út í hvers vegna hann
felli þennan þunga dóm yfir fyrir-
tækinu segir Þórarinn að ekki þurfi
að skyggnast lengi yfir markaðinn til
að átta sig á hvert hann sé að
þróast. Kostnaður við yfirbyggingu
Domino’s sé gríðarlegur, ekki síst í
tengslum við fjárfestingu í mörgum
útsölustöðum. Nýlega lýsti Birgir
Bieltvedt, nýr eigandi Domino’s á Ís-
landi, því yfir að frekar yrði gefið í
en hitt og hann sæi fyrir sér að
fjölga mætti stöðum fyrirtækisins
um þrjá á komandi misserum. Verði
þær áætlanir að veruleika mun fyrir-
tækið halda úti 30 stöðum vítt og
breitt um landið.
Þrefaldist á skömmum tíma
Í dag er Spaðinn með tvo út-
sölustaði, við Dalveg í Kópavogi og
í Hafnarfirði. Þórarinn segir að á
næstu 2-3 árum sé stefnan sett á að
fjölga stöðunum um fjóra til fimm.
Fjárfestingin miði að því að hver
staður geti annað miklum fjölda
viðskiptavina og að þeir séu hver og
einn á mjög góðum stöðum í borg-
arlandinu. Hins vegar muni verð-
lagningin skipta máli.
„Ég er með innviðina í lagi. Það
hefur enginn náð að leggja Dom-
ino’s. Við Birgir vorum litli karlinn
þegar við byrjuðum, við náðum að
leggja þá einn af öðrum og lögðum
þá alla. Það var vegna þess að
Domino’s byrjaði með innviðina í
lagi. Með vinnslu til að framleiða
allt þetta deig og skera niður græn-
metið [...] ég get því verið að fram-
leiða vörur fyrir mikið lægri pen-
inga en flestir ef ekki allir
samkeppnisaðilar Domino’s. Þeir
eru að gera það og ég er að gera
það. Þeir geta hins vegar ekki mætt
mér á þeim verðum sem ég er að
bjóða með þá yfirbyggingu sem
þeir eru með.“
Segir hann að Domino’s hafi farið
á taugum þegar fréttist af stofnun
Spaðans, fyrirtækið hafi farið ham-
förum í afsláttum ýmiss konar.
Hagnaður síðasta árs hafi verið
hverfandi og að fyrirtækið hafið
verið selt nýverið á 23-faldri
EBITDA.
„Það er engin afkoma af þessu
félagi. Þar er mikil fjárfestingar-
þörf [...] það verður erfitt að mæta
mér í verðum.“
Þórarinn gerði tilraun til þess að
kaupa Domino’s í ferlinu sem end-
aði með því að Birgir Bieltvedt og
hópur fjárfesta keyptu fyrirtækið.
Spurður út í hvað hann hafi verið
að hugsa með því að reyna að
kaupa Domino’s segir Þórarinn að
hugmyndin hafi verið að taka hug-
myndafræði Spaðans inn í starf-
semi Domino’s og auka með því
arðsemina af starfseminni. Það
hefði flýtt fyrir uppbyggingu fyrir-
tækisins, en hafi ekki verið lífs-
nauðsynlegur hluti af því ferli.
Hyggst setja Domino’s á
hausinn á næstu fimm árum
Davíð og Golíat Þórarinn Ævarsson hjá Spaðanum sparar ekki stóru orðin og skorar risann á markaðnum á hólm.
Spaðinn eins árs
» Í maí í fyrra opnaði Spaðinn
á Dalvegi í Kópavogi.
» Síðar tók fyrirtækið við
húsnæði í Hafnarfirði sem
Domino’s var í áður.
» Á næstu árum mun stöð-
unum fjölga og verða allt að
7 talsins.
» Keyrir ekki á neinum
tilboðum.
- Þórarinn Ævarsson segir litla yfirbyggingu og fáa stóra staði lykilinn að árangri
Bandaríska ríkið og eftirlaunasjóður
ríkisstarfsmanna þar í landi (e. Fede-
ral Retirement Thrift Investment
Board (FRTIB)) hafa höfðað mál á
hendur stærsta banka Danmerkur,
Danske Bank, og fyrrverandi for-
stjóra bankans, en frá þessu var fyrst
sagt í danska viðskiptablaðinu Bør-
sen.
Hlutir í fyrirtækinu lækkuðu um
átta prósent eftir að fréttin birtist.
Kæran tengist þátttöku bankans í
meiri háttar peningaþvættismáli.
Upphaflega var farið fram á bætur
að upphæð á 10 milljónir danskra
króna, eða ríflega 200 milljónir ís-
lenskra króna. Talið er að sú upphæð
geti orðið mun hærri, eða nokkur
hundruð milljónir danskra króna.
Á árunum milli 2007 og 2015 fóru
samkvæmt fréttinni 235 milljarðar
dala, eða ríflega 29,5 þúsund milljarð-
ar íslenskra króna, í gegnum lítið
útibú bankans í Eistlandi, en Danske
Bank hefur sagt að margar af þeim
færslum séu grunsamlegar.
FRTIB, sem er með 600 milljarða
dala í stýringu, tapaði fé eftir að hafa
keypt hluti í Danske Bank, að því er
segir í frétt Reuters af málinu.
Thomas Donatzky, lögmaður
kröfuhafa, staðfesti lögsóknina í sam-
tali við fréttastofu Reuters, en vildi
ekki tjá sig um málið frekar. Tals-
menn bandaríska dómsmálaráðu-
neytisins og FRTIB hafa heldur ekki
tjáð sig.
Peter Schradieck, lögmaður
Thomas Borgen, fyrrverandi for-
stjóra Danske Bank, neitaði að tjá sig
við Reuters þegar eftir því var leitað.
Borgen hætti hjá bankanum árið
2018 þegar málið komst í hámæli.
Þvætti Færslur í útibúi bankans í
Eistlandi þykja grunsamlegar.
Bandaríkin kæra
Danske Bank
- Snýst um
peningaþvætti í
eistnesku útibúi