Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 21

Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 21
tók okkur öllum sem sínum og við lærðum fljótt að virða hann og elska. Dalli var einstakur maður, hlýr og skemmtilegur, vel les- inn, þú komst aldrei að tómum kofunum hjá honum nánast sama hvað var verið að tala um. Hann gerði allar veislur betri, var ræðumaður fjölskyldunnar. Hann var trúaður og starfaði mikið í Guðríðarkirkju, hann bað fyrir sínum þegar bjátaði á. Hann var mikill KR-ingur. Mörg okkar eiga mjög sér- stakar og góðar minningar um Dalla. Í mínu tilfelli minnist ég þess hve Steini minn og Dalli náðu vel saman, það vel, að Dalli var svaramaður Steina þegar við giftum okkur fyrir tæpum 8 ár- um. Hann sýndi hundaræktinni okkar mikinn áhuga og ef hann hitti fólk með siberian husky- hunda þá þekkti hann oft hundana frá okkur og sagði allt- af að þeir væru langfallegastir. Mamma og Dalli komu mjög oft austur í heimsókn þegar við vor- um með hvolpa. Síðan Steini minn dó höfum við talað saman nánast á hverj- um degi. Hann hafði áhyggjur af kerlingunni mér í vondum veðr- um og vildi helst að ég hætti að búa ein á Gunnlaugsstöðum. En samt sagðist hann skilja þessa ákvörðun mína. Dalli hefur reynst mínum af- komendum afar vel, eins og besti afi, langafi og langalangafi og ég veit að hann á stóran sess í hjörtum þeirra. Ég var svo heppin að hitta á góðan dag hjá honum, þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið, viku áður en hann dó. Enn þá var hann með áhyggjur af mér, það spáði vondu veðri og ég átti flug seinni partinn og hann sár- veikur hringdi í sína menn hjá Flugfélaginu til að athuga hvort það yrði ekki örugglega allt í lagi með flugið. Ég verð ævinlega þakklát fyr- ir Dalla. Elsku mamma mín, mikill er missir þinn. Ég sendi börnum Dalla og fjölskyldum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Hjördís Hilmarsdóttir. Elsku Dalli. Þvílíkur happafengur sem þú varst fyrir Öllu ömmu og alla hennar fjölskyldu. Takk fyrir að fylla alla daga ömmu okkar gleði, nærveru og hlýleika. Að auka lífsgæði henn- ar og okkar afkomenda hennar og tengdafólks með því einu að vera hennar förunautur um all- nokkurt skeið. Það var einstak- lega hollt fyrir okkur að fá KR- ing í fjölskylduna sem allir urðu að sætta sig við að væri einstakt valmenni og ekki hægt að mis- líka við. Mikið var nú gaman að upp- lifa sífellda lífsgleði þína og áhuga fyrir okkur, öllum afkom- endum Öllu ömmu. Takk fyrir ráðgjöfina þegar að flugmálum kom, hvort sem það var ferðalag eða framtíð- arplön. Við vottum elsku Öllu ömmu, börnum, tengdabörnum og af- komendum Dalla samúð okkar. En eins og lagið Mississippi sannaði, þá mun Dalli lifa með okkur um ókomna tíð. Hilmar Gunnlaugsson, Stef- anía Valdimarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Við fráfall Dalla frænda okk- ar rifjast upp góðar minningar um hann og hans fjölskyldu. Aðalsteinn Dalmann Októsson eða Dalli eins og hann var kall- aður og móðir okkar Ingibjörg Ingólfsdóttir voru hálfsystkini sammæðra, hún níu árum eldri, alin upp í sveit hjá föður sínum en Dalli ólst upp á Akranesi til átta ára aldurs hjá móður sinni Ástrós Þorsteinsdóttur ásamt bróður sínum Guðmundi og eldri hálfsysturinni Þorbjörgu en pabba sinn höfðu þeir bræður misst ungir. Þau mamma hittust fyrst þegar hann var 7-8 ára þegar hún kom að heimsækja mömmu sína og systkini, svona voru tímarnir í þá daga, sam- göngur ekki auðveldar, ekki voru bílar almennt á heimilum og mest ferðast á hestum í sveit- inni. Árið 1938 flytur Dalli með móður sinni og systkinum til Reykjavíkur. Alla tíð voru miklir hlýleikar á milli þeirra Dalla og mömmu og þegar bæði höfðu stofnað heimili í Reykjavík varð mikill samgangur á milli æskuheimilis okkar og Dalla, Gyðu og fjöl- skyldu. Alltaf var svo skemmti- legt og gott að koma til þeirra því það var svo vel tekið á móti okkur. Eigum við margar góðar minningar frá þeim árum. Alltaf var hann aufúsugestur og þegar við systur fórum að búa var hann sjálfsagður gestur í öllum stærri viðburðum hjá okkur hvort sem það voru brúðkaup, fermingar eða afmæli. Oft hélt hann tölu af þeim tilefnum og glöddust viðkomandi yfir hlýjum orðum hans í þeirra garð. Hann var ljúfur mannvinur. Og ættrækinn var hann með afbrigðum, fylgdist alltaf með okkur og afkomendum okkar al- veg fram undir það síðasta. Hann hringdi reglulega að spyrja frétta ef honum fannst líða langt á milli samtala. Svo sagði hann fréttir af sínu fólki sem hann var ákaflega stoltur af, bæði börnum, tengda- börnum og barnabörnum. Vissi alltaf hvað þau voru að læra eða sýsla. Við þekkjum frændsystk- inin betur fyrir vikið. Ef Dalli hefði ráðið hefði hann viljað halda fleiri ættar- mót, en hann stóð að minnsta kosti fyrir tveimur. En áhugi hjá yngra fólki er ekki sá sami og var hér áður fyrr. Það var söknuður þegar Gyða frænka eins og við kölluðum hana lést á besta aldri, en okkur fannst Dalli heppinn að kynnast henni Öllu sinni og eyða ævi- kvöldinu með henni. Elsku frændi, við þökkum allt það sem þú varst okkur. Blessuð sé minning þín. Við sendum börnum, barna- börnum, tengdabörnum hans, Aðalheiði og fjölskyldum inni- legar samúðarkveðjur. Ásta, Ólöf og Gróa Eyjólfsdætur. Í dag kveðjum við hinstu kveðju góðan og kæran félaga, Aðalstein Dalmann Októsson, fyrrverandi verkstjóra í hlað- deild Flugfélags Íslands. Aðalsteinn eða „Dalli“ eins og vinir og félagar kölluðu hann var virkur félagi í Verkstjór- afélagi Reykjavíkur, nú Brú fé- lagi stjórnenda, í áratugi. Dalli varð afar virkur í félagsstörfum á seinni árum er annasömu starfi var að linna. Hann hafði ekki áhuga á stjórnarstörfum, en tók að sér fjölda nefnda og ráða, var aðalfundarstjóri í mörg ár. Hann var nútímalegri í hugsun en margir þeir sem yngri voru og var hvatamaður að þróun félagsins. M.a. er „Brú“, nafn félagsins, hugarsmíð Aðalsteins. Hann var heiðurs- félagi félagsins. Það var lærdómsríkt að vinna með Dalla í félagsstörfum. Þeg- ar hópur gamalreyndra verk- stjóra settist að fundi var eins og sjálfsagt að skilja sætið við borðsendann eftir handa Dalla. Þar tók hann yfirlætislaust við fundarstjórn og svipmikið and- litið lýsti af hlýju, góðvild og kímni en þó festu. Fundurinn hafði svo sinn gang, oftast stutt- an, því Dalli var búinn að und- irbúa sig vel. Oft lauk fundinum með því að Dalli sagði: „Þú skil- ar þessu þá á morgun Tommi minn?“ og hann var ekki að spyrja. Við Dalli vorum vinir. Ég kynntist honum þegar ég hóf að vinna sextán ára gamall hjá ESSO á Reykjavíkurflugvelli og laðaðist að þessum glaðlynda og skemmtilega manni sem að auki deildi með mér áhuga á flugi og fleiru. Næstu áratugina hittumst við furðu oft á götu. Alltaf voru það fagnaðarfundir sem maður gekk frá með hlýju í hjarta – því Dalli var þannig maður. Fyrir hönd stjórnar Brúar, félags stjórnenda, Tómas Waage. Nýr Þjóðkirkjusöfnuður fyrir íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal var stofnaður haustið 2003. Grafarholtið var þá sem óðum að byggjast og í framhaldi af því Úlfarsárdalurinn. Mál þróuðust þannig að fljótlega varð ég, und- irritaður, formaður hinnar nýju sóknar og hef gegnt því starfi síðan að fjórum árum undan- skildum. Er því nokkuð dómbær á velunnara kirkjunnar og þar var Aðalsteinn Dalmann sem hér er kvaddur, fremstur meðal jafningja. Það var margt sem hin nýja sóknarnefnd þurfti að glíma við enda söfnuðurinn og safnaðar- starfið allt í mótun. Fyrst og fremst brann á okkur að finna söfnuðinum samastað þar sem hægt væri að messa og halda aðrar kirkjulegar athafnir, ásamt því að velja okkur sókn- arprest. Hvort tveggja réðst far- sællega. Fyrsti sóknarprestur- inn, dr. Sigríður Guðmarsdóttir, var valin og skipuð i embætti innan fárra mánaða og húsnæði fékk söfnuðurinn í samkomusal í nýbyggðu fjölbýlishúsi við Þórð- arsveig í hjarta hverfisins. Að- alsteinn Dalmann og kona hans Gyða Erlingsdóttir voru í hópi þeirra íbúa hússins sem ákveðið höfðu að fá sér nýja íbúð á frið- sælum stað og njóta þar efri ár- anna. Óhikað segi ég að stór hluti þessara íbúa mynduðu kirkju, þ.e. samfélag trúaðs fólks sem hefur kosið að gera Jesúm Krist að leiðtoga lífs síns og þessi hópur varð fljótt kjarn- inn í kirkjustarfinu sem unnið var við fátæklegar aðstæður. Enginn var kórinn en það mál leystist fljótt – góðir hljóðfæra- leikarar komu og spiluðu og þessi litli söfnuður – fólkið sjálft, söng af fullum krafti, ekki síst gömlu góðu sálmana sem allir kunna. Það gerðist af sjálfu sér að Aðalsteinn varð leiðtoginn í þessum kjarna sóknarbarnanna sem myndaði bænahóp og í for- föllum sóknarprestsins leiddi Aðalsteinn hópinn. Við vígslu Guðríðarkirkju gaf bænahópur- inn kirkjunni fagurlega útskorna gestabók. Öll framkoma Aðal- steins bar með sér mikinn per- sónuleika. Greindur, íhugull og úrræðagóður og ekki spillti snyrtimennska og fáguð fram- koma; reffilegur maður sem allir hlutu að virða. Þannig hófst nú ævintýrið hjá hinum nýja söfn- uði. Þegar var farið að huga að kirkjubyggingu og Guðríðar- kirkja reis fullbúin á 17 mán- uðum. Áhugi Aðalsteins á þeirri framkvæmd leyndi sér ekki. Fljótlega hófst starf aldraðra og þar var Aðalsteinn mættur fyrstur manna og sömuleiðis tók hann að sér meðhjálparastarfið; bauð kirkjugesti velkomna og vísaði til sætis, las bænir, ritn- ingargreinar og tók þátt í flutn- ingi Passíusálmanna með öðrum sem varð fljótt föst venja kirkju- starfsins. Þá var hann aðalmað- ur í valnefnd safnaðarins. Að- alsteinn var heill í öllum sínum verkum og mannbætandi að kynnast honum og eiga að vini. Aðalsteinn missti Gyðu Erlings- dóttur eiginkonu sína 2005 og til minningar um hana gaf hann Guðríðarkirkju afar fallegan há- tíðarhökul og blómavasa. Sam- býliskona Aðalsteins síðari árin er Aðalheiður Bergsteinsdóttir sem sér nú á eftir kærum vini. Sóknarnefnd og starfsfólk Guðríðarkirkju sendir öllum ást- vinum Aðalsteins einlægar sam- úðarkveðjur. Guð blessi hann og varðveiti. Níels Árni Lund, formaður sóknarnefndar Grafarholts og Úlfarsárdals. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 Við systurnar, Níní sem var elst, Erna og ég, ólumst upp hjá foreldrum okkar í Vesturbæ Reykjavíkur og áttum góð æsku- ár. Föðuramma okkar, Ingibjörg Jónsdóttir, bjó á heimilinu á vet- urna en á vorin fór hún til ætt- ingja á Snæfellsnesi og dvaldi þar sumarlangt. Níní fékk oft að fara vestur með ömmu og hlakkaði alltaf til. Sumrin á Snæfellsnesi hafa eflaust orðið til þess að hún varð mikill dýravinur og undi sér ætíð vel í sveitinni. Enda réð hún sig síðar sem kaupakona í sveit, Stefanía Sveinbjörnsdóttir ✝ Stefanía Svein- björnsdóttir fæddist 30. apríl 1932. Hún lést 31. mars 2021. Útförin fór fram 20. apríl 2021. það var í Hlíð í Gnúpverjahreppi og myndaðist þar sterk og góð vinátta sem síðar tengdist fjöl- skylduböndum. Níní var kraft- mikill dugnaðar- forkur, hún var ein- staklega hjálpsöm og vílaði ekki fyrir sér að rétta hjápar- hönd við ýmsar að- stæður. Hún lét sér annt um sam- ferðafólk sitt og gjafmild var hún. Kom færandi hendi með heima- gerða sultu og bakkelsi. Oft færði hún mér smákökur fyrir jólin og voru þær svo sannarlega vel þegnar. Þótt árin færðust yfir vantaði ekki kraftinn. Lengi átti hún hest, stundaði gönguferðir, jóga og sund, en best undi hún sér í sveitinni hjá dóttur sinni og fjöl- skyldu hennar í Hlíð. Hún var alltaf að en þrátt fyrir vinnusem- ina gaf hún sér tíma til að lesa. Hún var fróðleiksfús og það var mjög gaman að heyra hana segja frá ýmsu sem hún hafði lesið. Ekki er hægt að sleppa að nefna handavinnuna hennar Níníar. Hún sló ekki slöku við við út- saum, prjónaskap og alls konar handverk og þar kom vandvirkni hennar vel í ljós. Hún var mynd- arleg í öllu sem hún gerði. Síðustu árin voru erfið, elli kerling sótti fast að en hún naut endalaust góðrar umhyggju barna sinna og góðs atlætis starfsfólks á Grund. Nú hefur þessi góða, duglega systir mín kvatt þessa jarðvist. Ég og börnin mín, Sveinbjörn og Fríða María, þökkum fyrir sam- fylgdina og ljúfar minningar um góða konu. Sofðu, hvíldu sætt og rótt, sumarblóm og vor þig dreymi! Gefi þér nú góða nótt guð, sem meiri’ er öllu’ í heimi. (G. Guðm.) Guð blessi minningu Stefaníu Sveinbjörnsdóttur. Karólína B. Sveinbjörnsdóttir. Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR FREYSTEINSDÓTTUR, Byggðarenda 12. Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Garðar Ingi Jónsson Ólöf Garðarsdóttir Sigríður Garðarsdóttir Romain Gales Ingunn Garðarsdóttir Rúna Björg Garðarsdóttir Sæmundur Oddsson Steinunn Garðarsdóttir Ari Rafn Sigurðsson Katla og Gulli, Guðrún Heiður og Sveinn Steinar Jón Pol og Joëlle Pia María, Kári Rafn, Styrkár og Dýrfinna Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HÓLM BJARNASON, fyrrverandi lögreglumaður, lést laugardaginn 10. apríl. Útför hans verður gerð frá Guðríðarkirkju mánudaginn 26. apríl klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni http://streyma.is/streymi/. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Kristín H. Bjarnadóttir Jónmundur Kjartansson Arnþór Heimir Bjarnason Lovísa Guðmundsdóttir Anna Hlín Bjarnadóttir Berglind H. Bjarnadóttir Þórarinn Gestsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA MAGNÚSAR INDRIÐASONAR frá Þernuvík í Ísafjarðardjúpi, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði þriðjudaginn 6. apríl. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Eyrar á Ísafirði fyrir einstaka alúð og umhyggju í hans garð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Indriði K. Gíslason Grazyna Kawa Ásgerður Þ. Gísladóttir Eyþór K. Einarsson Guðmundur S. Gíslason Sigurmar D. Gíslason Eva M. Nunez Jón H. Kocinski Gíslason Katarzyna M. Kocinska Gilla K. Smoter Gísladóttir Leszek W. Smoter barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR LÚÐVÍK BJÖRNSSON, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi laugardaginn 17. apríl. Útför fer fram í Lindakirkju mánudaginn 26. apríl klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Ragnheiður Ármey Gunnarsdóttir Hildur Birna Gunnarsdóttir Gunnar Lúðvík Gunnarsson Rebekka Ingadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, bróðir, afi og langafi, ÞORLEIFUR JÓHANNESSON, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað sunnudaginn 18. apríl, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 28. apríl klukkan 13. Aðeins nánasta fjöldskylda og vinir verða viðstödd. Hlekk á streymi verður hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Una Berglind Þorleifsdóttir Arnar Þór Þorleifsson systkini hins látna afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.