Morgunblaðið - 22.04.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.04.2021, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 Elsku afi Dalli er fallinn frá. Ég mun alltaf geyma minn- ingarnar um frá- bæra tíma saman, til dæmis þegar við Siggi frændi fórum með afa Dalla og ömmu Gyðu í sumarbústað í Munaðar- nesi. Ferðin í bústaðinn er mjög minnisstæð þar sem afi Dalli var frægur fyrir að keyra lötur- hægt, það tók yfirleitt tvöfaldan tíma að komast eitthvað með afa. Siggi var orðinn heldur þreyttur á þessu og tilkynnti afa að það væri gömul kona með staf að labba fram úr honum. Önnur ferð sem er mér of- arlega í huga er ferðin til Þýska- lands þegar ég var 14 ára með foreldrum mínum, afa og ömmu. Ég hafði verið fótbrotin og komst úr gifsinu daginn áður en við fórum. Við löbbuðum mikið og á hverju kvöldi nuddaði afi á mér fótinn vegna þess að mér var svo illt eftir daginn. Ég verð alltaf þakklát fyrir að afi kom til mín til Norður-Írlands með fjöl- skyldunni í 40 ára afmælið mitt 2018, þá 89 ára að aldri. Hann gisti hjá mér og það voru dýr- mætir tímar sem ég mun seint gleyma. Elsku afi Dalli er nú loksins hjá Gyðu sinni en verður sárt saknað af okkur sem eftir erum. Hjördís Anna Hjartardóttir Thompson. Við systkinin kveðjum elsku afa Dalla með miklum söknuði en jafnframt með miklu þakk- læti fyrir öll þau ár sem við átt- um með honum. Þegar amma Gyða dó árið 2005 talaði afi um að hann færi nú fljótt til hennar, aldrei hefði okkur órað fyrir því að við myndum fá 16 góð ár með honum til viðbótar. Afi setti sér alltaf reglulega markmið, sem voru að geta verið til staðar á mikilvægum stundum í lífi okkar allra, eins og við fermingar og útskriftir, og í hvert skipti sem fjölskyldan kom saman hélt hann ræðu og var hann ein- staklega laginn við það. Afi Dalli hefur alltaf verið mikill KR-ing- Aðalsteinn Dalmann Októsson ✝ Aðalsteinn Dal- mann Októsson fæddist 26. febrúar 1930. Hann lést 18. mars 2021. Útförin fór fram 21. apríl 2021. ur og í fjöldamörg ár fór afi niður á KR á hverjum laugardegi með Aroni til að taka þátt í getrauna- starfi til styrktar félaginu og gekk þeim mætavel í því. Hann mætti á alla heimaleiki og fylgd- ist vel rafrænt með þeim leikjum sem hann komst ekki á. Það mætti segja að eitt helsta áhugamál afa fyrir utan gamla góða KR hafi verið flugvélar en draumur hans frá unga aldri var að verða flugmaður sem gekk því miður ekki eftir. Hann starfaði sem verkstjóri í innanlandsfluginu í rúm 40 ár og fram á hans síð- asta dag hlustaði hann á kunn- uglegt hljóð flugvélanna sem flugu yfir Reykjavík og hann vissi nákvæmlega hvert ferð vél- arinnar var heitið miðað við þann tíma dags. Við rifjum upp góðar minningar þegar afi Dalli fór oft með okkur systkinin í heimsókn á Reykjavíkurflugvöll, sýndi okkur flugvélarnar og all- ar flottu græjurnar sem voru þar. Heimsóknin endaði oftar en ekki í sjoppuferð að fá okkur hamborgara bara með lauk og rauðan kóngabrjóstsykur sem var uppáhaldið hans afa. Alla tíð var afi Dalli mjög minnugur, hann vissi allt um alla sína af- komendur, hvað allir voru að læra, starfa við og fylgdist með sínu fólki af miklum áhuga. Við þökkum elsku afa fyrir allar þær góðu stundir og minningar sem við höfum átt saman en syrgjum það að stundirnar verða ekki fleiri. Við munum halda minningu hans á lofti með því að segja börnum okkar frá elsku afa Dalla og hans stór- kostlega karakter, þolinmæði og góðmennsku. Þangað til næst, elsku afi, Gunnar, Aron Eyrbekk, Sigurlaug Sara, Að- alsteinn Dalmann yngri, makar og börn. Elsku Dalli minn. Mig langar til þess að minnast þín í nokkr- um orðum. Ég var svo heppin að kynnast þér þegar ég krækti mér í Steina minn, elsta barna- barnið þitt. Það var alltaf gaman hjá okkur í desember þegar ég kom í Þórðarsveiginn og aðstoð- aði þig við jólakortaskrifin í nokkur ár. Á aðfangadag jóla fórum við Steini með þér í bíltúr ár hvert að vitja látinna ætt- ingja, mér fannst svo yndislegt þegar þú sagðir við mig að ég rataði á leiðin sem við vitjuðum í kirkjugarðinum. Ég mun seint gleyma síðustu aðfangadags- ferðinni okkar, það var smá slydda úti og þú ákvaðst að fara á inniskónum í bíltúrinn og auð- vitað var stoppað í Skalla og keypt jóla-lottó. Við höfum brallað ýmislegt síðan 2005, það eru ógleymanlegar allar yndis- legu stundirnar á KR-vellinum þar sem þú studdir þína menn til dáða. Árið 2018 var ég svo heppin að fara með þér í fyrsta skipti og allri fjölskyldunni þinni til Belfast til að fagna 40 ára af- mælinu hennar Hjördísar, þetta var alveg yndisleg ferð. Það verður skrítið að fara í veislu hjá fjölskyldunni þinni og eng- inn afi Dalli að halda ræðu. Þú varst svo skemmtilegur ræðu- maður. Við áttum yndislegt spjall viku áður en þú kvaddir okkur, þú sagðir við mig að við hefðum alltaf verið góðir vinir og það var já svo sannarlega satt og mun ég sárt sakna þín elsku Dalli minn. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Guð blessi minninguna um góð- an vin. Ég kveð þið með uppá- haldsbæninni okkar. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Ástarkveðjur, Þín Margrét Reynisdóttir. Góður maður er genginn. Þann 18. mars sl. lést öðling- urinn Aðalsteinn Dalmann Ok- tósson 91 árs að aldri. Dalla, eins og hann var alltaf kallaður, hef ég þekkt í áratugi. Ég kynntist honum í gegnum strákana hans sem ég þjálfaði í yngri flokkum KR, Ella í 2. flokki og Gylfa, núverandi for- mann KR, í 3. flokki. Báðir voru afbragðsknatt- spyrnumenn, Elli framherji og mikill markaskorari og Gylfi miðjumaður með gott auga fyrir samleik, lagði upp mikið af mörkum og skoraði einnig sjálf- ur. Elsti bróðirinn Hjörtur var hins vegar Þróttari en fjölskyld- an bjó í Laugarnesinu áður en þau fluttu í Vesturbæinn og var því fyrirgefið það. Allir náðu þeir bræður að spila með meist- araflokki sinna félaga við góðan orðstír. Þetta var á þeim árum sem ekki var algengt að foreldrar fylgdu krökkunum sínum í knattspyrnuleiki. Dalli var öðruvísi og mætti á flesta leiki og studdi við bakið á strákunum sínum og reyndar Gyða mamma þeirra einnig. Minnisstætt er að einhverju sinni í 2. flokki þurftum við að mæta Eyjamönnum úti í Eyjum í úrslitaleik á Íslandsmótinu. Eins og allir vita eru þeir erfiðir heim að sækja og Eyjamenn styðja vel við sína menn og ég átti ekki von á mörgum stuðn- ingsmönnum KR. Sú varð og raunin, en mér til undrunar sá ég einn með KR-trefil sem var greinilega okkar maður. Þetta var auðvitað Dalli og hann sneri glaður í bæinn því við unnum 1 - 0 og ef minnið svíkur ekki skor- aði Elli markið. Á þessum árum urðrum við góðir vinir og hefur aldrei borið skugga á það síðan. Dalli var fastagestur á leikj- um KR og tók einnig mikinn þátt í öðru félagslífi, var lyk- ilmaður í getraunastarfinu þeg- ar það var og hét og fór með okkur til útlanda í píluferðir. Var alltaf léttur og skemmti- legur félagi, jákvæður og hvers manns hugljúfi. Hann var ein af þessum hvunndagshetjum sem eru hverju íþróttafélagi nauðsynleg- ar. Var ekki mikið í sviðsljósinu og þurfti þess ekki. Honum nægði að vinna fyrir félagið sitt í kyrrþey. Dalli var gæfumaður í einka- lífinu, lifði langa ævi, lengst af við góða heilsu, átti góða konu hana Gyðu sem hann missti 2005 langt fyrir aldur fram, mann- vænleg börn og fjölda afkom- enda, sem nú kveðja elskulegan föður, afa og langafa. Dalli varð einnig þeirra gæfu aðnjótandi að kynnast henni Að- alheiði Bergsteinsdóttur, úrvals- konu, sem hann hefur búið með seinustu árin og reyndist honum afskaplega vel, sérstaklega þeg- ar heilsan fór að gefa sig. Þá vann hann allan sinn starfsferil, u.þ.b. 50 ár, hjá Flugfélagi Íslands og vildi veg þess ávallt sem mestan. Á kveðjustund sem þessari hrannast minningarnar upp og þær eru allar góðar og forsjón- inni þakkað fyrir að hafa fengið að vera honum samferða um stund. KR-ingar senda aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur og þakka fyrir framlag hans og vel- vild til félagsins alla tíð. Blessuð sé minnig Aðalsteins Dalmanns Októssonar. Fyrir hönd Knattspyrnu- félags Reykjavíkur. Guðmundur Pétursson. Heiðursmaðurinn og höfðing- inn Aðalsteinn Dalmann Októs- son hefur lokið lífsgöngu sinni. Dalla þekkti ég frá gamalli tíð sem hressan og skemmtilegan KR-ing, en síðustu 14 árin var hann sambýlismaður móður minnar elskulegrar, Aðalheiðar Bergsteinsdóttur. Dalli átti stóra og góða fjölskyldu og með mömmu fékk hann í fangið alla 87 afkomendur hennar, maka þeirra og fylgifiska, alls vel á annað hundrað manns. Dalla munaði ekki um að vera ætt- arhöfðingi x 2, enda með stórt hjarta sem hýst gat allan þenn- an stóra hóp. Dalli hafði það fyr- ir sið að kveðja sér hljóðs í öll- um samkomum fjölskyldunnar, hvort sem um var að ræða ferm- ingu, afmæli, útskrift eða annað og tala til þess eða þeirra sem verið var að heiðra. Hann gerði það ávallt af mikilli prýði og mamma var stolt af sínum manni. Við systkinin höfðum gaman af því þegar Dalli í slík- um tækifærisræðum þakkaði okkur fyrir þá ræktarsemi sem við sýndum móður okkar og hversu góð við værum við hana. Okkur fannst það sætt af Dalla en ekki endilega ástæða til að nefna sérstaklega það sem sjálf- sagt er. Að leiðarlokum vil ég þakka elsku Dalla fyrir einstaka umhyggjusemi gagnvart móður minni og vinsemd og ræktar- semi gagnvart mér og mínum og allri stórfjölskyldu mömmu. Börnum Dalla, tengdabörnum, barnabörnum og fjölskyldu allri sem og móður minni og stóru fjölskyldunni hennar sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur í fullvissu um að minningin um einstakan mann mun lifa með okkur öllum á meðan við drög- um andann. Hörður Hilmarsson. Það er ekki oft sem fólk finn- ur ástina á áttræðisaldri, en það gerðist einmitt þegar mamma og Dalli kynntust fyrir rúmum 14 árum. Það hefur verið ynd- islegt að fylgjast með þeim þessi ár. Þau hafa bæði þann góða eiginleika að láta afkomendur sína hvert og eitt finnast að þau skipti miklu máli og hafa tekið þátt í lífi þeirra eins mikið og þau hafa getað. Við duttum heldur betur í lukkupottinn Óðinsgötusystkinin og afkomendur okkar þegar mamma kynntist Dalla. Hann Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR, Laugarvegi 46, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar þriðjudaginn 20. apríl. Guðný Þórhildur Sölvadóttir Sverrir Jónsson Guðrún Ásgerður Sölvadóttir Ásgeir Ingvar Sölvason Erla Gunnlaugsdóttir Guðni Margeir Sölvason Júlía Birna Birgisdóttir Sölvi Sölvason Sigríður Karlsdóttir Okkar elsku besti, eiginmaður, faðir og stjúpfaðir, KRISTÓFER MÁR KRISTINSSON, lést á Landspítalanum mánudaginn 19. apríl. Valgerður Bjarnadóttir Daði, Ágústa, Gísli Kort, Gunnar Tómas Guðrún og Baldur Hrafn Móðir okkar og systir mín, ELÍN SIGMARSDÓTTIR, Asparholti 5, Álftanesi, lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Gísli S. Jensson Halldór B. Jensson Kristín Sigmarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN K. JÓNSDÓTTIR, Svarthömrum 68, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 18. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Jóna G. Ragnarsdóttir Ísak J. Ólafsson Álfhildur S. Jóhannsdóttir Þórarinn Gunnarsson Gunnar Þ. Jóhannsson Þóra Egilsdóttir Guðmundur I. Jóhannsson Kristjana Ó. Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, IÐUNN VIGFÚSDÓTTIR, lést mánudaginn 19. apríl á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin verður auglýst síðar. Ari Bergmann Einarsson Ólöf Erla Óladóttir Helga Kristín Einarsdóttir Kjartan Þórðarson Dóra Einarsdóttir Baldvin Einarsson Inga Birna Úlfarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Melaheiði 21, Kópavogi, lést á LSH, Vífilsstöðum föstudaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 26. apríl klukkan 15. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á 2. hæð á Vífilsstöðum fyrir frábæra umönnun. Vegna samkomutakmarkana eru vinir Sigrúnar beðnir að hafa samband við aðstandendur. Sigurður Rúnar Jónsson Sigurbjörg Ingvarsdóttir Bergur Mekkinó Jónsson Birna Kristín Baldursdóttir Oddný Mekkin Jónsdóttir Guðmundur Skúlason Þórarinn Helgi Jónsson Harpa Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.