Morgunblaðið - 22.04.2021, Blaðsíða 27
_ Willum Þór Willumsson var í lykil-
hlutverki hjá BATE Borisov í gær þegar
liðið fór langt með að tryggja sér sæti
í bikarúrslitaleik Hvíta-Rússlands í
knattspyrnu. Willum skoraði fyrsta
mark BATE þegar liðið vann heima-
sigur á Torpedo Zhodino, 4:1, í fyrri
leik liðanna í undanúrslitum keppn-
innar, strax á 3. mínútu, og hann lagði
upp fjórða markið fyrir Maxim Ska-
vysh á 77. mínútu. Willum lék allan
leikinn. Seinni leikur liðanna fer fram í
Zhodino 5. maí og sigurliðið saman-
lagt kemst í bikarúrslitaleikinn.
_ Elvar Már Friðriksson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, átti enn einn
stórleikinn með Siauliai í gær þegar
lið hans vann góðan sigur á Pieno
Zvaigzdes í lithá-
ísku A-deildinni,
103:90. Elvar
skoraði hvorki
fleiri né færri en
33 stig í leiknum
og var með tvö-
falda tvennu og
átti jafnframt 12
stoðsendingar.
Auk þess stal hann boltanum sex
sinnum af andstæðingunum. Þá fékk
hann framlagstöluna 51 sem er afar
sjaldséð í körfuboltanum. Elvar lék í
31 mínútu af 40 í leiknum í gær. Lið
hans er í sjöunda sæti eftir fimm sig-
urleiki á skömmum tíma en það sat á
botni tíu liða deildarinnar í nær allan
vetur.
_ Nanna Guðmundsdóttir náði
besta árangri íslensku keppend-
anna í kvennaflokki á Evr-
ópumótinu í áhaldafimleikum en
undanúrslit mótsins fóru fram í
gær í Basel í Sviss. Nanna hafnaði í
56. sæti af 107 keppendum og fékk
47,032 stig. Guðrún Harðardóttir
varð í 61. sæti með 46,631 stig,
Hildur Maja Guðmundsdóttir varð í
69. sæti með 45,398 stig og Mar-
grét Lea Kristinsdóttir hafnaði í
70. sæti með 45,364 stig. Þetta var
besti árangur þeirra allra á þessu
ári.
Íslensku stúlkurnar hafa allar lokið
keppni en undanúrslitin í karla-
flokki fara fram í dag og þar verða
einnig fjórir íslenskir keppendur.
_ Jóna Guðlaug
Vigfúsdóttir er
Svíþjóðarmeistari
í blaki 2021 en lið
hennar Hylte/
Halmstad hafði
betur gegn Engel-
holm í öðrum leik
liðanna í úrslita-
einvígi um
sænska meistaratitilinn í Halmstad í
gærkvöld, 3:2. Engelholm komst í 1:0
en Hylte/Halmstad tókst að snúa
leiknum sér í vil og komst 2:1-yfir.
Engelholm vann fjórðu hrinu 25:15 en
í oddahrinunni reyndist Hylte/
Halmstad sterkara og vann 15:9-
sigur. Jóna Guðlaug var næst-
stigahæst í sínu liði með 16 stig.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
Mér sýnist að það hafi bara
verið ansi líflegt í knatt-
spyrnuheiminum undanfarna
daga. Erlendu fréttaskeytin
benda til þess svo notast sé við
gamalt orðalag.
„Ensku“ félögin sex sem ætl-
uðu að taka þátt í stofnun nýrr-
ar deildar hafa lýst því yfir að
þau muni hætta við þau áform.
Eigendur félaganna þoldu ekki
langa ágjöf vegna málsins þótt
þeir væru nýbúnir að skuldbinda
sig með undirritun tæplega 200
blaðsíðna samninga.
Ég efast um að viðbrögð stuðn-
ingsmanna „ensku“ liðanna hafi
komið eigendum mjög á óvart.
Viðræður, óformlegar og form-
legar, um stofnun nýrrar deildar
hafa staðið yfir í mörg ár. Der
Spiegel ljóstraði upp um samn-
ingaviðræðurnar árið 2018. Ekki
lá hins vegar alveg fyrir hvaða
félög væri um að ræða fyrir ut-
an Real Madríd og Barcelona.
Ekki hefur endilega verið búist
við að þar væru félög sem aldrei
hafa unnið Evrópukeppni meist-
araliða/Meistaradeildina.
Ég held að eigendum „ensku“
liðanna sem koma héðan og
þaðan hafi verið gerð grein fyrir
því að stuðningsmennirnir yrðu
brjálaðir. Mögulega hefur það
ekki skipt þá máli. Eigendurnir
eru hvort sem er með hugann
við sjónvarpsáhorfendur rétt
eins og þegar þeir nálgast
ensku úrvalsdeildina og Meist-
aradeildina.
Það sem hefur hins vegar að
öllum líkindum komið eigend-
unum í opna skjöldu eru harka-
leg viðbrögð Boris Johnson, for-
sætisráðherra. Eigendurnir hafa
varla séð fyrir sér að stjórn-
málamenn færu að skipta sér af
sparkinu og hóta „ensku“ félög-
unum alls kyns vegatálmum
sem myndu hafa áhrif á starfs-
semina. Hvort sem slík afskipti
teljast nú góð pólitík eða ekki.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Á ÁSVÖLLUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Kvennalandsliðið í handknattleik er
úr leik í undankeppni HM eftir tvo
umspilsleiki gegn Slóveníu en liðið
gerði mun betur í seinni leiknum í
gær heldur en í þeim fyrri. Ljóst
var að möguleikinn að komast í
lokakeppni HM í desember var svo
gott sem úr sögunni eftir fyrri leik-
inn í Ljubljana síðasta laugardag.
Slóvenía vann fyrri leikinn 24:14 og
forskot Slóvenía var því mikið. Í
gær gerðu liðin jafntefli 21:21 en lið-
in gerðu einnig jafntefli í undan-
keppni EM fyrir rúmum þremur ár-
um. Ragnheiður Júlíusdóttir jafnaði
úr vítakasti þegar leiktíminn var
runninn út og einungis vítið eftir.
Vörn Íslands var geysilega sterk
framan af og Slóvenía skoraði ekki
nema tvö mörk fyrsta korterið og
fjórða mark Slóvena kom eftir tutt-
ugu og tvær mínútur. Var það í raun
stórmerkilegt því leikmennirnir
fyrir utan hjá Slóvenum voru allar í
8-liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar með Bucuresti og Metz.
Fyrir aftan góða vörn stóð Elín
Jóna Þorsteinsdóttir sig vel en hún
er að verða mjög öflugur landsliðs-
markvörður.
Mest þriggja marka forskot
Í ljósi þess hve liðið fékk á sig fá
mörk á þessum kafla var svekkjandi
að ekki skyldi takast að saxa meira á
forskotið sem Slóvenar komu með til
landsins. Ísland var oft tveimur
mörkum yfir og náði þriggja marka
forskoti 7:4 eftir tvö mörk í röð frá
Ragnheiði. Lið Slóveníu spilaði hins
vegar einnig mjög góða vörn. Íslandi
gekk mjög erfiðlega að opna vörnina
í fyrri leiknum. Það gekk ekki of vel í
fyrri hálfleik en þó betur en í Lju-
bljana. Lovísa Thompson og Rut
Jónsdóttir eru báðir virkilega öflug-
ar í stöðunni maður á móti manni en
slóvensku varnarmönnunum tókst
oft í upphafi leiks að fara út í þær og
stöðva án þess að fá brottvísanir. Er
það meira en að segja það.
Jafntefli eru fín úrslit gegn liði
sem hefur verið á stórmótunum síð-
ustu árin. Frammistaðan var einnig á
margan hátt góð. Íslensku leikmenn-
irnir virtust njóta þess að spila á móti
öflugum andstæðingi og leikgleðin
var fyrir hendi. Tilhugsunin um HM
var smám saman úr sögunni og
spennan hætt að trufla leikmenn.
Vörnin og markvarslan í leikj-
unum lofar góðu fyrir næsta verk-
efni. Í gær var reyndar Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir í miðri vörninni en
ósennilegt er að framhald verði á því
enda skilst manni að hún hafi hlaupið
í skarðið vegna forfalla. Anna lék
virkilega vel og magnað að sjá leik-
mann sem var hættur eiga fullt er-
indi gegn toppleikmönnum.
Mun betra en í Slóveníu
- Ísland er úr leik í undankeppni HM eftir jafntefli á Ásvöllum - Forskot
Slóvena var of mikið - Þó skapaðist smuga að hleypa spennu í rimmuna
Morgunblaðið/Eggert
Ógnandi Lovísa ógnar marki Slóvena á Ásvöllum í gær. Hún skoraði 4 mörk og 9 mörk í leikjunum tveimur.
Ásvellir, umspil HM, seinni leikur,
miðvikudag 21. apríl 2021.
Gangur leiksins: 1:0, 2:1, 3:2, 5:3,
6:4, 7:5, 8:6, 8:9, 10:9, 12:10, 13:11,
14:12, 15:13, 15:17, 17:17, 18:18,
19:20, 20:20, 20:21, 21:21.
Mörk Íslands: Ragnheiður Júlíus-
dóttir 5/2, Sigríður Hauksdóttir 4,
Lovísa Thompson 4, Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 3, Rut Jónsdóttir 2,
Helena Rut Örvarsdóttir 1, Birna
Berg Haraldsdóttir 1, Thea Imani
Sturludóttir 1.
Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsd. 8.
ÍSLAND – SLÓVENÍA 21:21
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Slóveníu: Tjasa Stanko 8/2,
Tija Gomilar Zickero 4, Aneja Beg-
anovic 3, Barbara Lazovic 1, Eliza-
beth Omoregie 1, Ana Abina 1, Maja
Svetik 1, Ema Abina 1, Natasa Lje-
poja 1.
Varin skot: Amra Pandzic 13/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Andrej Smailagic og
Sandro Smailagic, Svíþjóð.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
_ Slóvenía vann 45:35 samanlagt og
leikur á HM 2021 á Spáni.
Englandsmeistaraefnin í Manchest-
er City styrktu stöðu sína á toppi
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu þegar liðið heimsótti Aston
Villa á Villa Park í Birmingham í
gær. Phil Foden og Rodri voru á
skotskónum fyrir City sem fagnaði
2:1-sigri eftir að hafa lent undir.
City er því komið aftur á beinu
brautina í deildinni eftir óvænt tap
gegn Leeds á dögunum en liðið er
með 77 stig í efsta sæti deildarinnar
og hefur ellefu stiga forskot á ná-
granna sína í Manchester United en
United á leik til góða á City.
Þá reyndist Son Heung-Min hetja
Tottenham þegar liðið lagði South-
ampton að velli 2:1 á Tottenham
Hotspur-vellinum í London en þetta
var fyrsti sigur Tottenham í deild-
inni síðan 21. mars þegar liðið vann
2:0-útisigur gegn Aston Villa. Tott-
enham er komið í sjötta sæti deild-
arinnar. Ryan Mason stýrði liðinu í
fyrsta sinn en hann tók við af José
Mourinho til bráðabirgða.
AFP
Óstöðvandi Það virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur City á Englandi.
Meistaraefnin styrktu
stöðu sína á toppnum
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
MVA-höllin: Höttur – Valur ................ 18.15
Ásvellir: Haukar – ÍR........................... 19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Þór Ak .... 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – KR.......................... 20.15
1. deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir b – Ármann ................ 20.45
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hertz-höllin: Grótta – KA......................... 16
Framhús: Fram – FH .......................... 19.30
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 1. umferð:
Reykjaneshöll: Njarðvík – KH ................ 14
ÍSHOKKÍ
Annar úrslitaleikur kvenna:
Egilshöll: Fjölnir – SA (0:1)...................... 19
Í DAG!
Dominos-deild kvenna
Breiðablik – Fjölnir.............................. 69:79
Snæfell – Haukar.................................. 72:92
Skallagrímur – Keflavík ...................... 76:64
Valur – KR .......................................... 106:52
Staðan:
Valur 16 13 3 1236:987 26
Keflavík 16 12 4 1272:1154 24
Haukar 16 12 4 1193:1065 24
Fjölnir 16 11 5 1232:1160 22
Skallagrímur 16 7 9 1100:1142 14
Breiðablik 16 5 11 1021:1079 10
Snæfell 16 2 14 1142:1296 4
KR 16 2 14 1066:1379 4
Spánn
San Pablo Burgos – Zaragoza ........... 95:98
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Zaragoza og tók 4 fráköst en hann
spilaði í 8 mínútur.
57+36!)49,