Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
„ÉG ÞARF AÐ OPNA SKURÐINN AFTUR.
ÞESSI HÉR KOSTA 10.000 KRÓNUR
PARIÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... eina rétta mataræðið.
NÝI ÖRBYLGJUOFNINN
ER FRÁBÆR!
ÉG GET ELDAÐ PYLSU Á
35 SEKÚNDUM!
JEMINN
ÉG GET ÉTIÐ HANA
HELMINGI HRAÐAR
HÆTTU
ÞESSU!
OG ÉG SEM HÉLT AÐ ÞÉR ÞÆTTI
GOTT AÐ LÁTA KYSSA ÞIG Á
KINNINA!
ALLTAF SAMA BRANDARAKERLINGIN, HELGA?!
ÚTSALA
GARÐYRKJUSTÖÐ
„ÞAU ERU Á ÞESSU ASNALEGA
UNGLINGASTIGI.“
Páll stundar sund og göngur og
les mjög mikið. „Áður fyrr ferð-
uðumst við hjónin víða, við sækjum
tónleika og erum búin að vera
áskrifendur að Sinfóníunni í meira
en 30 ár.“
Fjölskylda
Eiginkona Páls er Lára Kristín
Ingólfsdóttir, f. 25.5. 1939, fv. sölu-
fulltrúi hjá Flugleiðum. Þau eru bú-
sett í Kópavogi. Foreldrar Láru
voru hjónin Margrét Magnúsdóttir,
verkakona, f. 14.9. 1899,d. 27.9. 1989,
og Ingólfur Árnason, verkamaður, f.
1.3. 1904, d. 21.12. 1995. Þau voru
lengst af búsett á Akureyri. Fyrr-
verandi kona Páls er Hólmfríður
Rósinkranz Árnadóttir, fv. fram-
kvæmdastjóri, f. 15.2. 1939.
Synir Páls og Hólmfríðar eru 1)
Árni Geir viðskiptafræðingur, f. 3.3.
1963, býr í Reykjavík, kvæntur
Soffíu Árnadóttur Waag stjórn-
sýslufræðingi, f. 22.1. 1965; 2) Kári,
fv. framkvæmdastjóri, býr í Reykja-
vík, f. 25.12. 1964, kvæntur Guðrúnu
Maríu Ólafsdóttur Mortens,
MBA.B.EB, kennara, f. 21.10. 1968.
Börn Páls og Láru eru 3) Fríða Ingi-
björg, öldrunarhjúkrunarfræðingur
í Atlanta, Bandaríkjunum, f. 30.6.
1972, gift Helga Gunnari Helgasyni,
félagsfræðingi, sem vinnur við
svefnrannsóknir í Atlanta, f. 19.11.
1971; 4) Ingólfur, einkaleyfa-
sérfræðingur, f. 27.9. 1973, býr í
Kaupmannahöfn, sambýliskona er
Camilla Ehlers sérfræðingur, f. 15.8.
1972 , fv. eiginkona er Alda Æg-
isdóttir markaðsfræðingur, f. 24.9.
1980. Barnabörn og barnabarnabörn
eru 12 alls og ein stjúpdóttir.
Bróðir Páls er Eggert Ólafur Ás-
geirsson f. 6.8. 1929, fv. skrifstofu-
stjóri, og kona hans er Sigríður Dag-
bjartsdóttir, f. 8.6. 1937, fv. skrif-
stofustjóri.
Foreldrar Páls voru hjónin Ásgeir
Guðmundsson málflutningsmaður, f.
31.8. 1899, d. 8.11. 1935, og Friede
Pálsdóttir Briem, forstjóri fjölrit-
unarstofu, f. 7.10. 1900, d. 12.9. 1997.
Þau voru búsett í Reykjavík.
Páll Þórir Ásgeirsson
Valgerður Gunnlaugsdóttir
húsfreyja
Ólafur Þórðarson
útvegsbóndi í Nesi við Seltjörn
Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja
Guðmundur Einarsson
útvegsbóndi í Nesi við Seltjörn
Ásgeir Guðmundsson
málflutningsmaður í Reykjavík
Anna Jónsdóttir
húsfreyja
Einar Hjörtsson
útvegsbóndi í Bollagörðum á Seltjarnarnesi
Þórhildur Tómasdóttir
húsfreyja
Helgi Hálfdánarson
sálmaskáld og forstöðumaður
Prestaskólans
Álfheiður Helgadóttir Briem
húsfreyja
Páll Jakob Briem
amtmaður á Akureyri
Ingibjörg Eiríksdóttir Briem
húsfreyja
Eggert Ólafur Gunnlaugsson Briem
sýslumaður í Eyjafirði og Skagafirði
Úr frændgarði Páls Ásgeirssonar
Friede Pálsdóttir Briem
forstjóri fjölritunarstofu í Reykjavík
Fyrsti sumardagur 1891“ erfallegt ljóð eftir Matthías
Jochumsson og er þetta fyrsta er-
indið:
Kom heitur til míns hjarta, blærinn
blíði!
Kom blessaður í dásemd þinnar
prýði!
Kom lífsins engill nýr og náðarfagur
í nafni Drottins, fyrsti sumardagur.
Og þessu kvæði lýkur Matthías
sjálfum sér líkur!
Ég fagna þó, ég þekki, hvað er merk-
ast
og þykist sjá, hvað drjúgast er og
sterkast,
að það sem vinnur, það er ást og
blíða.
Haf þökk míns hjarta, sumargyðjan
fríða!
„Vorveðrátta“ er yfirskrift
þessa erindis eftir Stefán Ólafs-
son:
Góð veðrátta gengur,
geri eg mér ljóð af því;
þetta er fagur fengur,
fjölga grösin ný;
fiskur er kominn í fjörð,
færir mörgum vörð:
kýrnar taka að trítla út,
troðjúgra er hjörð;
skepnur allar skarta
við skinið sólar bjarta.
Öllum þykir okkur vænt um
vísu Páls Ólafssonar, sem hann
orti til sólskríkjunnar á Neshálsi í
ágúst 1898:
Sólskríkjan mín situr þarna á
sama steini
og hlær við sínum hjartans vini
honum Páli Ólafssyni.
„Sólaruppkoma“ er ljóð eftir
Pál. Það byrjar svo:
Upp á himins bláa braut
blessuð sólin gengur.
Ekki hylur hennar skraut
haf né fjöllin lengur.
Fuglar kvaka fegins-róm
fagna að gott er veður.
Tárfellandi brosa blóm,
brim við sandinn kveður.
Og lýkur svo:
Í dag er auðséð –, drottinn minn,
dýrð þín gæskuríka.
Maður heyrir málróm þinn,
maður sér þig líka.
Á vormorgni yrkir Páll:
Grætur fönn á fjallabrúnum,
fossar kveða gleðilag.
Blómin gul á grænum túnum
gróa, þróast nótt og dag.
Kveddu spói kvæðin þín,
kveddu blessuð lóan mín.
Þið hafið fyrri sungið saman,
syngið lengur, þetta er gaman.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á sumardaginn fyrsta