Morgunblaðið - 22.04.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Jazzhátíð Garðabæjar hefst í dag
og stendur yfir til 24. apríl. Vegna
farsóttar og fjöldatakmarkana
verður hátíðin
með öðru sniði
en vanalega og
fernir streymis-
tónleikar haldnir
í sal Tónlistar-
skólans í Garða-
bæ án áheyr-
enda. Listrænn
stjórnandi hátíð-
arinnar er sem
fyrr Sigurður
Flosason og er
hann einnig meðal þeirra tónlistar-
manna sem koma fram á tón-
leikum.
Með tengsl við bæinn
Sigurður er spurður að því
hvernig sé fyrir tónlistarmenn að
halda tónleika án áheyrenda og
segir hann það sérstakt. „En það
er bara skemmtilegt og við bara
gerum það besta sem við getum úr
aðstæðum,“ segir hann. Hátíðin
hafi fallið niður í fyrra en nú fái
tónlistin að hljóma.
Sigurður segist reyna að hafa
dagskrána sem fjölbreyttasta á
hverri hátíð og bjóða upp á ólíkar
tegundir djasstónlistar. „Við höfum
alltaf reynt í Garðabænum að vera
með svolítið af fólki sem tengist
Garðabæ, fólki sem er annað hvort
fætt og uppalið þar, býr þar eða
bjó þar lengi. Ansi margir úr ís-
lenskum djassspilarahópi tikka í
einhver af þessum boxum,“ segir
Sigurður. Þá hafi líka verið boðið
upp á tónleika fyrir eldri borgara,
sem sé ekki hægt að þessu sinni
og hljómsveitir úr tónlistarskól-
anum sem sjái um upphitun.
Vegna kófsins falli þessir liðir nið-
ur en fjórar hljómsveitir muni
koma fram.
ADHD á lokatónleikum
Sigurður er beðinn um að nefna
hin ólíku stílbrigði djassins á hátíð-
inni og nefnir hann tónlist sem sé
undir áhrifum frá heimstónlist og
blústengda djasstónlist. „Djass er
vítt hugtak og svo blandast hann
oft ýmsu öðru og við horfum svo-
lítið á það róf. Þetta er stór og víð-
ur og fjölbreyttur heimur.“
Fyrstu tónleikar hátíðarinnar
fara fram í kvöld kl. 20 en þá kem-
ur hljómsveitin Sálgæslan fram.
Andrea Gylfadóttir, KK, Jógvan
Hansen og Rebekka Blöndal
syngja með sveitinni. Blús, djass
og sálartónlist verða á efnisskránni
og eru lög og textar eftir Sigurð
sem komu út á plötu Sálgæslunnar
í fyrra.
Á morgun, föstudag, kl. 20 kem-
ur fram Kvintett Jóels Pálssonar
og fagnar tíu ára afmæli plötunnar
Horn sem hefur að geyma lög eftir
Jóel. Laugardaginn 24. apríl kl. 20
treður upp hljómsveitin ADHD
sem á fjölda platna að baki en fyrr
um daginn, kl. 15, verða haldnir
tónleikarnir Meridian Metaphor og
mun hljómsveit leidd af kontra-
bassaleikaranum Sigmari
Matthíassyni flytja lög af nýút-
kominni plötu hans með því nafni.
Tónleikana má finna sem við-
burði á Facebook með því að slá
inn í leitarglugga „Jazzhátíð
Garðabæjar“.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Djassað ADHD á tónleikunum í Múlanum í Hörpu. Sveitin leikur á lokatónleikum Jazzhátíðar Garðabæjar.
„Djass er vítt hugtak“
- Jazzhátíð Garðabæjar fer fram í streymi á Facebook
- Fernir tónleikar og hin ýmsu stílbrigði djassins
Sigurður
Flosason
Í sýningarrými Glettu í hafnarhús-
inu nýja á Borgarfirði eystri hefur
verið opnuð sýning þriggja lista-
manna undir heitinu Endaleysa.
Sýnendur eru þær Elísabet Bryn-
hildardóttir, Eygló Harðardóttir og
Guðrún Benónýsdóttir og hafa þær
sett í rýminu upp bæði ný og eldri
verk út frá samtali þeirra á milli.
Endaleysa er fyrsta sýningin af
þremur í vor og sumar í sýninga-
röðinni Superstructure í sýningar-
rými Glettu.
Í tilkynningu um sýninguna segir
að listamennirnir þrír finni gjarnan
tengingar í verkum sínum og hug-
myndum í gegnum vangaveltur um
tímaupplifanir. Listamennirnir eru
„gjarnan undir áhrifum frá ólíkum
nálgunum á hefðbundnu list-
handverki eða listformum eins og
teikningu, vefnaði, bókverkagerð
eða litun og þeir rannsaka brautir
listformanna sem grunnstef í efnis-
legri sköpun sinni“. Sýningunni
lýkur 18. maí.
Margslungin Eygló Harðardóttir er ein
sýnenda í hafnarhúsinu á Borgarfirði.
Sýna verk sín á
Borgarfirði eystri
Lagahöfund-
urinn Jim Stein-
man, sem er
hvað þekktastur
fyrir að hafa
samið lögin á
plötu Meatloaf
Bat Out of Hell,
er látinn, 73 ára
að aldri. Platan
sú, frá árinu
1977, er enn í dag ein vinsælasta
plata sögunnar.
Steinman samdi lög fyrir marga
á ferlinum, þeirra á meðal smell
Bonnie Tyler „Total Eclipse of the
Heart“, og samdi hann einnig texta
fyrir söngleik Andrews Lloyds
Webbers, Whistle Down the Wind.
Af öðrum smellum sem Steinman
orti má nefna „It’s All Coming
Back to Me Now“ sem Celine Dion
flutti árið 1996 og náði miklum vin-
sældum. Verkefnin voru mörg sem
Steinman kom að og fjölbreytt, til
dæmis grínsöngleikurinn Tanz der
Vampire sem henti gaman að kvik-
mynd Romans Polanskis The Fear-
less Vampire Killers frá árinu
1967.
Jim Steinman
Lagahöfundur Bat Out of Hell látinn
„Þá fæ ég að vita hvers vegna ég er
ég og þú ert þú“ er heiti sýningar
sem Salbjörg Rita Jónsdóttir hefur
opnað í Gallery Grásteini á Skóla-
vörðustíg 4. Sýningunni lýkur á
sunnudag.
Hugarheimur barna, sjálfstæð
hugsun og tilvera er rauði þráð-
urinn í sýningunni þar sem vefjast
saman svarthvítar ljósmyndir, sem
Salbjörg tók á árunum 2009-2017
úr hvunndegi sona sinna, við tilvitn-
anir og stutt samtöl. Í tilkynningu
segir að frjálsleg framsetning sýn-
ingarinnar taki mið af efnistök-
unum en beri einnig merki bak-
grunns Salbjargar sem grafísks
hönnuðar en efni sýningarinnar er
sett fram á ólíkum efnum s.s. aug-
lýsingadúk og lyfseðilspappír,
ásamt ljósmyndavinnslu.
Salbjörg Rita lærði vöruhönnun í
Iðnskólanum í Hafnarfirði og
margmiðlunarhönnun í Bauhaus-
listaháskólanum í Weimar.
Sonur Ein ljósmynda Salbjargar Ritu.
Salbjörg Rita sýnir
í Gallery Grásteini