Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 1

Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. A P R Í L 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 94. tölublað . 109. árgangur . SONO LUMINUS GEFUR ÚT VERK GUNNARS ALDREI JAFN MIKIÐ AÐ GERA TEMUR OG ÞJÁLFAR HESTA Í FRÍTÍMA SÍNUM ÞRÖSTUR LEÓ 24 LAUFEY RÚN SVEINSDÓTTIR 6MOONBOW 28 Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T e v a 0 2 8 0 6 2 Vatnsleikfimin í Kópavogslaug er vinsæl. Þangað koma ekki síst heldri konur sem leyfa sér að sprella með stjórnandanum og fagna sumrinu en karlmennirnir sprikla til hliðar og eru hlédrægari. Lögð er áhersla á aukið þol, styrk og liðleika en gleðin er þó alltaf í fyrirrúmi. Kostur við æfingar í vatni er að allir geta stundað þær, fólk þarf að byrja rólega, finna það álag sem hentar og hlusta á líkamann. Margir fastagestir sundlauganna söknuðu daglegrar hreyfingar og pottaspjalls á meðan laugarnar voru lokaðar vegna samkomutakmarkana og sóttvarna. Fólkið hefur nú tekið gleði sína á ný. Sundlaug- ar á höfuðborgarsvæðinu og um land allt eru ávallt vel sóttar enda sundið allra meina bót. Morgunblaðið/Ásdís Sumrinu fagnað með sprelli í vatnsleikfimi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Reikna má með því að ný reglugerð um hertar aðgerðir á landamærum vegna kórónuveirunnar taki gildi eftir fáeina daga. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var í gær að skrifa minnisblað til ráðherra með tillögum um fyrirkomulag, til dæmis um það hvaða lönd teljist hááhættusvæði. Fólk sem kemur frá þeim svæðum verður skikkað í sóttvarnahús ríkis- ins. Ekki fékkst uppgefið í gærkvöldi hvort minnisblaðið væri farið. Samkvæmt nýju lögunum er sótt- varnalækni heimilt að veita undan- þágu frá dvöl í sóttvarnahúsi ef fólk getur uppfyllt skilyrði sóttkvíar eða einangrunar á eigin vegum. Þarf að sækja um undanþágu með tveggja sólarhringa fyrirvara. Þess vegna er líklegt að reglugerðin taki ekki gildi fyrr en í fyrsta lagi á mánudag. Eftir lagabreytingarnar sem sam- þykktar voru á Alþingi í fyrrinótt er dómsmálaráðherra heimilt, að feng- inni tilllögu sóttvarnalæknis, að banna útlendingum frá hááhættu- svæðum að koma til landsins. Lögregla og starfsfólk á Keflavík- urflugvelli telja sig ágætlega í stakk búin til að taka á móti farþegum og flokka frá það fólk sem þarf að fara í sóttvarnahús. Nýtist þar reynslan frá fyrstu dögum aprílmánaðar þeg- ar komið var upp vinnulagi sem virk- aði. Sömu sögu er að segja um starfsfólk sóttvarnahúsa sem getur búist við að fá fleiri gesti til að ann- ast. Þótt hótelið við Þórunnartún hafi verið að fyllast í gær verða engin vandræði því Sjúkratryggingar Ís- lands útvega fleiri hótel sem hægt verður að nota þegar þörf gerist. »4 Strangari reglur í smíðum - Sóttvarnalæknir skrifar minnisblað til ráðherra um hvaða lönd teljist hááhættu- svæði með tilliti til kórónuveirunnar - Von á reglugerð einhvern næstu daga Morgunblaðið/Sigurður Unnar Sóttvarnir Búast má við fjölgun gesta sóttvarnahúsa á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.