Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 10

Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 10
Hugsi Hannes Hlífar Stefánsson, margfaldur Íslandsmeistari, lenti í vand- ræðum gegn Hjörvari Steini Grétarssyni, stigahæsta manni mótsins. Fjörlega var teflt í fyrstu umferð í landsliðsflokki á Íslandsmótinu í skák sem hófst í gær. Hjörvar Steinn Grétarsson, stigahæsti maður móts- ins, sem nýlega vann Íslandsbikarinn og ávann sér keppnisrétt á Heims- bikarmótinu í skák, sigraði Hannes Hlífar Stefánsson, þrettánfaldan Ís- landsmeistara. Hjörvar stýrði svörtu mönnunum í vel tefldri skák. Guðmundur Kjartansson sem ný- lega varð fimmtándi stórmeistari Ís- lendinga hafði titil að verja en tapaði fyrir Helga Áss Grétarssyni, Íslands- meistaranum frá 2018. Jóhann Hjartarson nýtti sér reynsluna til fulls þegar hann vann hinn 18 ára gamla Vigni Vatnar Stefánsson. Bræðurnir Bragi og Björn Þorfinns- synir unnu báðir sínar skákir, Bragi lagði Alexander Oliver Mai að velli og Björn sigraði Sigurbjörn Björns- son. Íslandsmótið er haldið í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis á Kársnesi í Kópavogi og stendur til 30. apríl. Það er samvinnuverkefni Skáksambands Íslands og skákdeildar Breiðabliks. Mótið er er eitt allra sterkasta Ís- landsmót sögunnar því sex stór- meistarar taka þátt í landsliðsflokki. Önnur umferð fer fram í dag. Þá mætast Jóhann og Hjörvar. Vegna sóttvarnareglna geta áhorf- endur ekki mætt á skákstað en upp- lýsingar má finna á skak.is. Hjörvar Steinn vann Hannes Hlífar - Íslandsmótið í skák haldið í Kópavogi Morgunblaðið/Sigurður Unnar Barátta Reynslan nýttist hinum gamalreynda stórmeistara Jóhanni Hjart- arsyni vel í viðureigninni við hinn átján ára gamla Vigni Vatnar Stefánsson. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Gæði í verði & verki Fáðu tilboð sérsniðið að þínum þörfum Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is Starfsmenn bækistöðvar Faxaflóa- hafna unnu að því síðasta vetrardag að setja upp eimreiðina Minør á Mið- bakka við Gömlu höfnina í Reykja- vík. Þegar eimreiðin er sett upp við höfnina boðar það komu sumarsins. Hún er yfirleitt sett upp nálægt sum- ardeginum fyrsta og tekin niður í kringum fyrsta vetrardag. Eimreiðin vekur ætíð mikinn áhuga, ekki síst hjá börnunum. Nú eru 104 ár liðin síðan eimreið- arnar Minør og Pioner luku verki sínu við gerð Gömlu hafnarinnar, sem var geysimikil framkvæmd á sínum tíma. Eimreiðin Minør hefur ávallt verið í vörslu Faxaflóahafna yfir vetrar- tímann á meðan eimreiðin Pioner hefur verið varðveitt allt árið um kring á Árbæjarsafni. Eimreiðarnar voru keyptar hingað til lands vegna hafnargerðarinnar. Járnbraut var lögð frá Öskjuhlíð að Reykjavíkurhöfn og síðar einnig frá Skólavörðuholtinu. Þar var tekið grjót sem sett var á vagna sem eim- reiðarnar drógu niður að höfn. sisi@mbl.is Ljósmynd/Faxaflóahafnir Miðbakki Unnið í fyrradag að því að koma eimreiðinni fyrir á sínum stað. Eimreiðin á sinn stað á Miðbakka Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Að stíga nú inn á svið landsmálanna finnst mér vera rökrétt framhald í pólitísku starfi mínu, eftir að hafa setið í bæjarstjórn hér á Akranesi síðastliðin sjö ár,“ segir Valgarður Lyngdal Jónsson sem skipa mun efsta sætið á lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosn- ingum í haust. „Jafnaðarstefnan á fullt erindi við fólk þessu kjördæmi. Í byggðamálum þarf að jafna aðgang fólks að gögnum og gæðum sam- félagsins og allri opinberri þjónustu. Þetta má kalla virka velferð.“ Árangur í bæjarmálum Valgarður, sem er frá bænum Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarsveit, á allar sínar rætur í Norðvest- urkjördæmi. Föðurleggurinn er af Akranesi, úr Borgarfirði og norðan úr Miðfirði, en móðurættin er úr Ár- neshreppi á Ströndum. Eftir stúd- entspróf fór hann í kennaranám og var fyrst eftir það grunnskólakenn- ari á Patreksfirði, en hefur nú um langt skeið verið umsjónarkennari í efri bekkjum Grundaskóla á Skag- anum. Margir gætu svo munað eftir Valgarði í sterku liði Akurnesinga sem komst í lokaeinvígi Útsvars, á RÚV, fyrir nokkrum árum. „Verkefni í bæjarstjórn síðustu árin hafa verið spennandi og góður gangur í málum,“ segir Valgarður. Á líðandi kjörtímabili hafi verið unnið að mörgum mikilsverðum málum, svo sem stækkun íþróttamiðstöðv- arinnar á Jaðarsbökkum og fim- leikahús var tekið í notkun nýlega. Framkvæmdir við byggingu nýs leikskóla séu að hefjast og átak í byggingu minni íbúða sé félagslegt verkefni sem margir komi að. Halda þurfi vel á spöðunum því bæjarbúum fjölgi jafnt og þétt og séu nú um 7.700. „Bæjarfulltrúar allra flokka vinna vel saman og flest mál í bæjarstjórn eru afgreidd í víðtækri sátt. Slík stjórnmál eru alltaf árangursríkust,“ segir Valgarður. Norðvesturkjördæmi nær frá Hvalfirði og norður í Fljót. Að- stæður og atvinnuhættir eru ólíkir milli staða og svæða. Iðnaður, sjáv- arútvegur, fiskeldi og landbúnaður – þetta er uppistaðan og greinar sem tryggja þarf góð og sanngjörn starfsskilyrði. Eitt af því, sem reyndar nýtist öllum, eru samgöngu- málin. Þar bendir Valgarður á að langar leiðir í kjördæminu séu að- eins ófullburða vegir sem þurfi að byggja upp og bæta. Þar megi nefna Skógarströnd, sunnanverða Vest- firði og sveitavegi t.d. í Borgarfirði og á Norðurlandi vestra. Dreifbýlið verði að styrkja, enda hafi aðstæður af völdum veirunnar síðasta árið opnað augu margra fyrir kostum bú- setu þar. Ein af birtingarmyndum þess sé að fjarkennsla er nú orðin í aðalhlutverki í mörgum skólum. Allt of mikill kvóti á fáar hendur Stjórn og fyrirkomulag fiskveiða er alltaf stórmál í Norðvest- urkjördæmi og jafnvel það sem póli- tíkin hverfist um. „Vandinn í fisk- veiðistjórnunarkerfinu er að allt of mikill kvóti hefur safnast á fáar hendur. Að einstaka útgerðarmenn geti flutt starfsemi sína, tekið kvót- ann með og skilið íbúa eftir í raun varnarlausa er afleit staða. Miðin skammt undan landi en ekki má róa til fiskjar. Þarna get ég nefnt staði eins og Þingeyri, Flateyri, Ísafjörð og Akranes. Þessu verður að breyta og þar bendi ég til dæmis á fyrning- arleiðina, sem ég tel vera einfalda og sanngjarna útfærslu á því að inn- kalla fiskveiðiheimildirnar með sem minnstu raski fyrir greinina og út- deila þeim aftur af sanngirni.“ Ekki Sjálfstæðisflokkinn Línur fyrir alþingiskosningar í haust eru smám saman að koma fram. Í þeirri umræðu hefur Logi Einarsson formaður Samfylkingar sagt skýrt að samstarf síns flokks við Miðflokk og Sjálfstæðisflokk komi ekki til greina. Flokkarnir séu of fjarlægir hver öðrum í hugmyndum og áherslum til að þeir eigi samleið. „Andstæðurnar eru skarpar og ég er sammála formanninum. Í sjáv- arútvegsmálum og álitamálum þess hvernig skipta eigi því sem þjóðin á sameiginlega eru Samfylking og Sjálfstæðisflokkur á öndverðum meiði. Við ætlum ekki að vera fé- lagshyggjuflokkurinn sem leiðir Sjálfstæðisflokkinn til valda. Í lands- málunum liggja skýrar línur,“ segir Valgarður að síðustu. Skarpar andstæður - Valgarður efstur á lista Samfylkingar í Norðvesturkjör- dæmi - Vegir og velferð - Vill fyrningarleið í sjávarútvegi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Á Akranesi Jafna þarf aðgang fólks að gögnum og gæðum samfélagsins, segir Valgarður Lyngdal Jónsson um viðhorfin í Norðvesturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.