Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 10
Hugsi Hannes Hlífar Stefánsson, margfaldur Íslandsmeistari, lenti í vand-
ræðum gegn Hjörvari Steini Grétarssyni, stigahæsta manni mótsins.
Fjörlega var teflt í fyrstu umferð í
landsliðsflokki á Íslandsmótinu í
skák sem hófst í gær. Hjörvar Steinn
Grétarsson, stigahæsti maður móts-
ins, sem nýlega vann Íslandsbikarinn
og ávann sér keppnisrétt á Heims-
bikarmótinu í skák, sigraði Hannes
Hlífar Stefánsson, þrettánfaldan Ís-
landsmeistara. Hjörvar stýrði svörtu
mönnunum í vel tefldri skák.
Guðmundur Kjartansson sem ný-
lega varð fimmtándi stórmeistari Ís-
lendinga hafði titil að verja en tapaði
fyrir Helga Áss Grétarssyni, Íslands-
meistaranum frá 2018. Jóhann
Hjartarson nýtti sér reynsluna til
fulls þegar hann vann hinn 18 ára
gamla Vigni Vatnar Stefánsson.
Bræðurnir Bragi og Björn Þorfinns-
synir unnu báðir sínar skákir, Bragi
lagði Alexander Oliver Mai að velli
og Björn sigraði Sigurbjörn Björns-
son.
Íslandsmótið er haldið í húsnæði
Siglingafélagsins Ýmis á Kársnesi í
Kópavogi og stendur til 30. apríl. Það
er samvinnuverkefni Skáksambands
Íslands og skákdeildar Breiðabliks.
Mótið er er eitt allra sterkasta Ís-
landsmót sögunnar því sex stór-
meistarar taka þátt í landsliðsflokki.
Önnur umferð fer fram í dag. Þá
mætast Jóhann og Hjörvar.
Vegna sóttvarnareglna geta áhorf-
endur ekki mætt á skákstað en upp-
lýsingar má finna á skak.is.
Hjörvar Steinn
vann Hannes Hlífar
- Íslandsmótið í skák haldið í Kópavogi
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Barátta Reynslan nýttist hinum gamalreynda stórmeistara Jóhanni Hjart-
arsyni vel í viðureigninni við hinn átján ára gamla Vigni Vatnar Stefánsson.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
Gæði í
verði
& verki
Fáðu tilboð sérsniðið að þínum þörfum
Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is
Starfsmenn bækistöðvar Faxaflóa-
hafna unnu að því síðasta vetrardag
að setja upp eimreiðina Minør á Mið-
bakka við Gömlu höfnina í Reykja-
vík.
Þegar eimreiðin er sett upp við
höfnina boðar það komu sumarsins.
Hún er yfirleitt sett upp nálægt sum-
ardeginum fyrsta og tekin niður í
kringum fyrsta vetrardag. Eimreiðin
vekur ætíð mikinn áhuga, ekki síst
hjá börnunum.
Nú eru 104 ár liðin síðan eimreið-
arnar Minør og Pioner luku verki
sínu við gerð Gömlu hafnarinnar,
sem var geysimikil framkvæmd á
sínum tíma.
Eimreiðin Minør hefur ávallt verið
í vörslu Faxaflóahafna yfir vetrar-
tímann á meðan eimreiðin Pioner
hefur verið varðveitt allt árið um
kring á Árbæjarsafni.
Eimreiðarnar voru keyptar hingað
til lands vegna hafnargerðarinnar.
Járnbraut var lögð frá Öskjuhlíð að
Reykjavíkurhöfn og síðar einnig frá
Skólavörðuholtinu. Þar var tekið
grjót sem sett var á vagna sem eim-
reiðarnar drógu niður að höfn.
sisi@mbl.is
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Miðbakki Unnið í fyrradag að því að koma eimreiðinni fyrir á sínum stað.
Eimreiðin á sinn
stað á Miðbakka
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að stíga nú inn á svið landsmálanna
finnst mér vera rökrétt framhald í
pólitísku starfi mínu, eftir að hafa
setið í bæjarstjórn hér á Akranesi
síðastliðin sjö ár,“ segir Valgarður
Lyngdal Jónsson sem skipa mun
efsta sætið á lista Samfylkingar í
Norðvesturkjördæmi í alþingiskosn-
ingum í haust. „Jafnaðarstefnan á
fullt erindi við fólk þessu kjördæmi.
Í byggðamálum þarf að jafna aðgang
fólks að gögnum og gæðum sam-
félagsins og allri opinberri þjónustu.
Þetta má kalla virka velferð.“
Árangur í bæjarmálum
Valgarður, sem er frá bænum
Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarsveit, á
allar sínar rætur í Norðvest-
urkjördæmi. Föðurleggurinn er af
Akranesi, úr Borgarfirði og norðan
úr Miðfirði, en móðurættin er úr Ár-
neshreppi á Ströndum. Eftir stúd-
entspróf fór hann í kennaranám og
var fyrst eftir það grunnskólakenn-
ari á Patreksfirði, en hefur nú um
langt skeið verið umsjónarkennari í
efri bekkjum Grundaskóla á Skag-
anum. Margir gætu svo munað eftir
Valgarði í sterku liði Akurnesinga
sem komst í lokaeinvígi Útsvars, á
RÚV, fyrir nokkrum árum.
„Verkefni í bæjarstjórn síðustu
árin hafa verið spennandi og góður
gangur í málum,“ segir Valgarður. Á
líðandi kjörtímabili hafi verið unnið
að mörgum mikilsverðum málum,
svo sem stækkun íþróttamiðstöðv-
arinnar á Jaðarsbökkum og fim-
leikahús var tekið í notkun nýlega.
Framkvæmdir við byggingu nýs
leikskóla séu að hefjast og átak í
byggingu minni íbúða sé félagslegt
verkefni sem margir komi að. Halda
þurfi vel á spöðunum því bæjarbúum
fjölgi jafnt og þétt og séu nú um
7.700.
„Bæjarfulltrúar allra flokka vinna
vel saman og flest mál í bæjarstjórn
eru afgreidd í víðtækri sátt. Slík
stjórnmál eru alltaf árangursríkust,“
segir Valgarður.
Norðvesturkjördæmi nær frá
Hvalfirði og norður í Fljót. Að-
stæður og atvinnuhættir eru ólíkir
milli staða og svæða. Iðnaður, sjáv-
arútvegur, fiskeldi og landbúnaður –
þetta er uppistaðan og greinar sem
tryggja þarf góð og sanngjörn
starfsskilyrði. Eitt af því, sem
reyndar nýtist öllum, eru samgöngu-
málin. Þar bendir Valgarður á að
langar leiðir í kjördæminu séu að-
eins ófullburða vegir sem þurfi að
byggja upp og bæta. Þar megi nefna
Skógarströnd, sunnanverða Vest-
firði og sveitavegi t.d. í Borgarfirði
og á Norðurlandi vestra. Dreifbýlið
verði að styrkja, enda hafi aðstæður
af völdum veirunnar síðasta árið
opnað augu margra fyrir kostum bú-
setu þar. Ein af birtingarmyndum
þess sé að fjarkennsla er nú orðin í
aðalhlutverki í mörgum skólum.
Allt of mikill kvóti á fáar hendur
Stjórn og fyrirkomulag fiskveiða
er alltaf stórmál í Norðvest-
urkjördæmi og jafnvel það sem póli-
tíkin hverfist um. „Vandinn í fisk-
veiðistjórnunarkerfinu er að allt of
mikill kvóti hefur safnast á fáar
hendur. Að einstaka útgerðarmenn
geti flutt starfsemi sína, tekið kvót-
ann með og skilið íbúa eftir í raun
varnarlausa er afleit staða. Miðin
skammt undan landi en ekki má róa
til fiskjar. Þarna get ég nefnt staði
eins og Þingeyri, Flateyri, Ísafjörð
og Akranes. Þessu verður að breyta
og þar bendi ég til dæmis á fyrning-
arleiðina, sem ég tel vera einfalda og
sanngjarna útfærslu á því að inn-
kalla fiskveiðiheimildirnar með sem
minnstu raski fyrir greinina og út-
deila þeim aftur af sanngirni.“
Ekki Sjálfstæðisflokkinn
Línur fyrir alþingiskosningar í
haust eru smám saman að koma
fram. Í þeirri umræðu hefur Logi
Einarsson formaður Samfylkingar
sagt skýrt að samstarf síns flokks við
Miðflokk og Sjálfstæðisflokk komi
ekki til greina. Flokkarnir séu of
fjarlægir hver öðrum í hugmyndum
og áherslum til að þeir eigi samleið.
„Andstæðurnar eru skarpar og ég
er sammála formanninum. Í sjáv-
arútvegsmálum og álitamálum þess
hvernig skipta eigi því sem þjóðin á
sameiginlega eru Samfylking og
Sjálfstæðisflokkur á öndverðum
meiði. Við ætlum ekki að vera fé-
lagshyggjuflokkurinn sem leiðir
Sjálfstæðisflokkinn til valda. Í lands-
málunum liggja skýrar línur,“ segir
Valgarður að síðustu.
Skarpar andstæður
- Valgarður efstur á lista Samfylkingar í Norðvesturkjör-
dæmi - Vegir og velferð - Vill fyrningarleið í sjávarútvegi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Á Akranesi Jafna þarf aðgang fólks að gögnum og gæðum samfélagsins,
segir Valgarður Lyngdal Jónsson um viðhorfin í Norðvesturkjördæmi.