Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 28

Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Moonbow, önnur plata tónskálds- ins Gunnars Andreasar Kristins- sonar, kemur út í dag á vegum hinnar virtu bandarísku útgáfu Sono Luminus. Er það jafnframt fyrsta platan með verkum Gunnars sem fyrirtækið gefur út á heims- vísu en Naxos sér um dreifingu hennar. Fyrri plata Gunnars, Patt- erns, kom út fyr- ir átta árum og hlaut Kraums- verðlaunin árið 2013. Gunnar segir Moonbow mun umfangsmeiri í sniðum og þá bæði hvað varðar stærð verka og fjölda hljóðfæra- leikara. Fimm verk eru á plötunni og flutt af kammerhópunum Caput, Strokkvartettinum Sigga og Duo Harpverki. Íslandstenging Gunnar er spurður að því hvort ekki sé eftirsótt hjá tónskáldum að fá plötu útgefna af Sono Luminus og telur hann svo vera. „Það hefur verið einhver Íslandstenging hjá fyrirtækinu sem hefur spottað spennandi tónlistarsenu hérna á Íslandi og komið íslenskum tón- skáldum og tónlistarhópum á kort- ið erlendis,“ segir hann. Fyrirtæk- ið sé lítið en hafi byggst hratt upp og njóti vaxandi virðingar. Platan kemur út stafrænt og einnig á tvöföldum diski, bæði venjulegum stereódiski og Blue- ray en þann síðarnefnda er hægt að spila í fjölóma hátalarakerfi. Gunnar segir ákveðna upptöku- tækni einkennismerki Sono Lum- inus. „Hún snýst um að dreifa vel úr hljóðfæraleikurum í hring með marga míkrófóna. Þá hljómar upp- takan eins og maður sitji sjálfur í miðjunni,“ útskýrir Gunnar. Hann segir upptökum fyrir plöt- una hafa verið nýlokið þegar fyrsta Covid-19-smitið greindist hér á landi, í febrúar í fyrra. „Daginn eftir að upptökurnar kláruðust kom fyrsta smitið upp á Íslandi,“ segir Gunnar. Skemmtileg breidd – Átta ár eru liðin frá því Patt- erns kom út. Hefur nýja platan að geyma úrval verka sem þú hefur samið á þeim tíma? „Já, flest verkin eru einmitt samin á síðustu átta árum og ég valdi þau í samráði við Sono Lum- inus. Þau gefa góða mynd af því sem ég hef verið að gera, verkin eru stærri í sniðum og fleiri hljóð- færaleikarar, lengri verk,“ svarar Gunnar. – Eru þetta innbyrðis ólík verk? „Það eru kannski einhverjar tengingar, tvö verk sem hafa teng- ingar sín á milli í formi og stíl en svo er til dæmis eitt verk sem á sér lengri sögu. Frumútgáfan var sam- in 2004 og svo endurútsetti ég það og það var flutt aftur 2016. Þannig að það er í gjörólíkum stíl en býður upp á skemmtilega breidd,“ svarar Gunnar. Heillaður af ýmsum náttúrufyrirbærum Titlar verkanna eru athyglis- verðir, til dæmis heitir eitt „Sisy- fos“ og er þar sótt í grísku goða- fræðina, „Patterns IIb“ er byggt á íslenska þjóðlaginu „Fagurt er í Fjörðum“ og „Moonbow“ vísar til tunglboga. Svo virðist sem Gunnar sæki innblástur víða og þá m.a. í náttúrufyrirbæri og goðsagnir. „Innblásturinn er margslunginn, í rauninni er ég heillaður af náttúru- fyrirbærum núna,“ segir Gunnar og nefnir líka grísku goðafræðina sem fleiri tónskáld hafi byggt verk sín á. Í henni má finna söguna um Sísýfos, konunginn sem var hnepptur af Seifi í þann þrældóm að rúlla stórum og níðþungum steini upp hæð en steinninn rúllaði alltaf niður aftur á byrjunarreit, eins og frægt er. Táknrænt fyrir þrautseigju mannsins og strit sem stundum virðist bæði enda- og til- gangslaust. Gunnar er spurður að því hvern- ig tónverk hann hafi samið út frá sögunni. „Form verksins er svolítið þannig að það byrjar á einhverjum lágpunkti, síðan magnast upp spenna og svo kemur maður aftur á núllpunktinn,“ svarar Gunnar og bendir á tengingu milli sögunnar af Sísýfosi og kófsins. „Ég var að hugsa til baka um daginn, um þetta skrítna ár sem er eiginlega búið að vera eins og refsing. Ég hef verið að undirbúa einhver verk og gera fullt af skissum og svo bara fellur allt niður eða því er frestað,“ segir Gunnar og hlær að baslinu. Opnar vonandi leiðir – Heldurðu að útgáfa Sono Lum- inus á plötunni þinni muni leiða til þess að þú fáir fleiri verkefni sem tónskáld? „Maður vonar það náttúrulega að þetta opni einhverjar leiðir, núna verður þessi tónlist aðgengi- leg um allan heim og maður rennir alveg blint í sjóinn með viðbrögðin. Það verða einhver viðbrögð og það er bara rosa gaman,“ svarar Gunn- ar. Hvað útgáfutónleika varðar segist hann sjá fyrir sér að halda eina slíka eða útgáfufögnuð í haust, þegar allt verður vonandi orðið eðlilegt aftur hvað varðar fjölda- takmarkanir og sóttvarnir. Náttúra Tónskáldið Gunnar Andreas Kristinsson sækir innblástur víða og þá meðal annars í náttúrufyrirbæri. „Innblásturinn er margslunginn“ - Sono Luminus gefur út plötu með fimm verkum eftir tónskáldið Gunnar Andreas Kristinsson - Naxos dreifir á heimsvísu - Upptökur kláruðust degi áður en fyrsta Covid-smitið greindist Ljósmynd/Heimir Freyr Hlöðversson Sýning Jóns Sigurðar Thoroddsen, „Nokkur verk“, verður opnuð í Lýðræðisbúllunni að Bergstaða- stræti 25b í dag, föstudag. Opnunin verður frá kl. 15 til 19 og stendur sýningin til 9. maí. Í tilkynningu segir að frá unga aldri hafi Jón Sigurður teiknað og málað. Myndlist, tónlist og bók- menntir hafa verið hans ær og kýr. Á þrítugsaldri veiktist Jón og hef- ur það litað ævi hans. Segja má að myndir Jóns séu andardráttur hans, þær eru eins og slóð hans og ekki allar málaðar í varanlegt efni en flestar þó. Margt hefur farið forgörðum á ýmsum tímum en miklu hefur þó verið bjargað.“ Á sýningunni má sjá sýnishorn af verkum Jóns frá yngri árum. Þau sýna að hann er vel heima í myndlistasögunni og sér þess merki hvort sem er í vísunum eða stílbrigðum. Ef myndirnar eru skoðaðar í heild sjást greinileg af- mörkuð skeið og ör þróun í mynd- heimi hans. „Jón hefur alltaf pælt í valdinu,“ segir í tilkynningunni. „Eldri myndir hans eru pólitískar, en hann óx frá beinni pólitík og tók að mála goðsöguleg minni í margs konar samhengi, snéri sér líka að kynlífsgrunni menningarinnar og þannig mætti lengi telja. Vísanir í bókmenntir og tónlist lita öll skeið- in. Nýtt innihald kallar yfirleitt á nýjan stíl. En hvað sem innihaldi líður, má alltaf treysta á hans leik- andi línu, næma litaskyn og öruggu myndbyggingu.“ Um myndirnar segir Jón sjálfur: „Ég mála það sem mér finnst fal- legt handa mér. Ef verk mitt er röng spurning, þá það. Ég hlýt að spyrja. Ef spurning mín er rétt vinn ég verk fyrir alla, ef hún er röng vinn ég líka fyrir alla. Hvort sem spurningin er rétt eða röng, fæst rétt svar.“ Samhliða sýningunni kemur út bók með myndum Jóns Sigurðar og ber hún heitið Jón Sigurður Thor- oddsen - 105 verk. Pælingar Eitt af verkum Jóns Sig- urðar á sýningunni í Lýðræðisbúllunni. Sýning á verkum eftir Jón Sigurð Thoroddsen í Lýðræðisbúllunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.