Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 8

Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600 Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin. Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi. Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi. Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn. NÝ TÆKNI! NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI Ríkisútvarpið sendi frá sérfréttatilkynningu eftir aðal- fund félagsins í fyrradag. Þar kom fram að afkoman hefði verið nei- kvæð í fyrsta sinn frá árinu 2014 og að það væri vegna kór- ónuveir- unnar. Tapið hafi numið 209 millj- ónum króna og auglýs- ingatekjur hafi lækkað um tæplega 200 milljónir. - - - Í tilkynningunni var skautað framhjá þeirri staðreynd að tekjur voru nánast óbreyttar á milli ára. Þær námu 6.861 milljón og lækk- uðu aðeins um 12 milljónir, eða um 0,17%. Það er ekki slæmt í miðjum kórónuveirufaraldri og skýrist vitaskuld af því að farið var enn dýpra í vasa almennings en áður. - - - Staðreyndin er sú að fréttir af af-komu Ríkisútvarpsins og ann- arra slíkra stofnana hafa litla þýð- ingu. Ríkisútvarpið var í raun rekið með um fimm milljarða króna halla, en þann halla bera skatt- greiðendur. - - - Þessu til viðbótar bera keppi-nautar Ríkisútvarpsins á aug- lýsingamarkaði, aðrir fjölmiðlar, hallann af samkeppninni þar, en Ríkisútvarpið tekur til sín um tvo milljarða af þeim markaði. Engin leið er að fullyrða með vissu hvert það fé færi að öðrum kosti, en öll- um má ljóst vera að stór hluti þess færi til annarra innlendra fjöl- miðla. - - - Því má ekki gleyma að Ríkis-útvarpið fær gríðarlegt fé frá almenningi, það missti engar tekjur í kórónuveirufaraldrinum, og að þar væri hægt að spara mikið, væri til þess einhver vilji. Veirufrítt Ríkisútvarp STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Það þótti við hæfi að heiðlóan skyldi vera valin „Fugl ársins“ í samkeppni sem Fuglavernd efndi til því útnefn- ingin var tilkynnt á sumardaginn fyrsta. Lóan er gjarnan kölluð vor- boðinn ljúfi og skipar sérstakan sess í hugum landsmanna sem tákn vor- komunnar. Kosning um fugl ársins er nýjung í starfi Fuglaverndar og er stefnt að því að hún verði árlegur viðburður. Tilgangurinn er að vekja athygli á fuglum og þeim ógnum sem að þeim steðja, þar á meðal röskun búsvæða og loftslagsbreytingar. Tilnefndir voru tuttugu fuglar og tók fólk úr röðum fuglaáhugafólks að sér að vera kosningastjórar fyrir sína uppáhaldstegund. Stofnaðar voru fésbókarsíður, gerð myndbönd til kynningar og jafnvel opnaðar kosningaskrifstofur í einhverri mynd. Sigur heiðlóunnar var afgerandi, hún fékk flest atkvæði sem fyrsta val þátttakenda og einnig flest atkvæði í 1.-5. val. Það var helst himbriminn sem veitti henni keppni. Rjúpan varð í þriðja sæti, hrafn í fjórða og mar- íuerla í fimmta sæti. Staða heiðlóunnar er góð hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fuglaverndar, og eru um 400 þús- und pör í stofninum. helgi@mbl.is Vorboðinn ljúfi kosinn fugl ársins - Himbriminn veitti heiðlóunni mesta keppni í atkvæðagreiðslu Fuglaverndar Morgunblaðið/Ómar Heiðlóa Mörgum þykir vænt um lóuna enda tákn vorkomunnar. Helstu ástæður sem liggja til grund- vallar greiningu á örorku- og end- urhæfingarmati eru andleg veikindi. Undanfarin ár hefur orðið veruleg fjölgun tilfella á Norðurlandi eystra um kulnun í starfi. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri rannsókn á örorku á Norðurlandi eystra sem Rannsóknamiðstöð Há- skólans á Akureyri (RHA) fram- kvæmdi. Höfundar skýrslunnar eru Rannveig Gústafsdóttir og Hjalti Jó- hannesson en rannsóknin var styrkt úr Byggðarannsóknasjóði. Frá þessu er greint á vef Byggðastofn- unar. Markmið verkefnisins var að kort- leggja umfang og þróun örorku á Norðurlandi eystra og leita eftir tengslum við aðra samfélagsþætti. Niðurstöður sýndu það sama og fyrri rannsóknir, að þegar aukning verður á atvinnuleysi verður í kjöl- farið fjölgun á meðal nýskráðra ör- orku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Jafnframt er fjölgunin meiri meðal kvenna heldur en karla. Helstu niðurstöður eru m.a. að sveiflur hafa verið í nýskráðum til- fellum einstaklinga sem metnir eru til 75% örorku á Norðurlandi eystra frá aldamótum. Tilfellum hefur al- mennt farið fækkandi frá 2010. Flestir sem þiggja þjónustu fag- aðila og hafa örorku- eða endurhæf- ingarmat eru konur. Konur eru í meirihluta yfir nýskráð tilfelli ör- orku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Samkvæmt fagaðilum eykst kvíði og depurð einstaklings því lengur sem sá hinn sami er atvinnulaus og tekur endurhæfingin hans lengri tíma. Einstaklingar sem hafa fengið 75% örorkumat tilheyra helst eldri aldurshópunum. Aukin kulnun á Norðurlandi eystra - Andleg veikindi helsta ástæða við greiningu örorku Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Mat hefur verið lagt á fjölda öryrkja og bótaþega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.