Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 18

Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 ✝ Kristjana Vil- borg Árnadótt- ir, eða Kidda eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Grundarfirði 28. júní 1950. Hún lést á Landspítalanum 5. apríl 2021. For- eldrar Kiddu voru Árni Jóhannes Hall- grímsson, f. 1926, d. 2009 og Ásdís Ás- geirsdóttir, f. 1927. Systkini Kiddu eru Ása, Guðrún, Ásgeir, Hallgrímur, Sigurður og Dagný. Kidda flutti með foreldrum sínum frá Grundarfirði suður á Seltjarnarnes árið 1954 og síðan giftur Helenu, eiga þau þrjú börn. Friðsteinn, giftur Hildi, eiga þau tvö börn, og Sólrún Lilja, gift Jens, eiga þau 2 börn. Barnabörnin eru sjö og barna- barnabörnin fimm. Fyrir nokkrum árum byggðu hjónin sér lítið fallegt heils- árshús með hjálp barna sinna (Draumahöllina) á Hálsenda í Kjós en þangað fluttu þau fyrir rúmlega ári. Þar ætluðu þau að eyða ellinni saman. Kidda elsk- aði náttúruna og fjöruna sem var í næsta nágrenni og var búin að tína allmarga steina í safnið sitt. Kidda var hagyrðingur af guðs náð, sem ekki allir vissu af. Allt lék vel í höndum Kiddu hvort sem það voru prjónarnir, litirnir eða öll börnin og mannfólkið sem hændist að henni og hún umvafði með allri sinni hjálpsemi, ást og hjartahlýju. Útför Kiddu fór fram í kyrr- þey. á Hjallaveg 46 árið 1962. Þann 18. október 1969 giftist Kidda eftirlifandi eig- inmanni sínum, Hannesi Birni Frið- steinssyni, f. 20. október 1946 í Vest- mannaeyjum. Kidda og Hannes fluttu til Vest- mannaeyja 1969. Árið 1973 fluttu þau hjónin síðan til Grundarfjarðar og áttu þar heima til ársins 1988. Lá þá leið þeirra til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu í nær 32 ár. Börn þeirra hjóna eru Árni, Þung eru sporin, elsku Kidda mín. Með mikilli sorg og trega kveð ég þig með hjartað fullt af þakklæti. Þú varst alltaf stúlkan mín. Ó þá ljúfu, sumardaga, þá ég áður, átti með þér. Þessa daga ég vildi aftur, og þér halda í faðmi mér. Æ þegar rökkvar og húm fellur á þá leitar hugur til þín. Mér finnst ég megi þig alls staðar sjá þú varst alltaf, þú varst alltaf, stúlkan mín. Þetta sumar og sólardaga alltaf geymi í sálu mér. Sífelld gleði, bros þitt bjarta, sérhver minning er helguð þér. Hvílík rómantík, ljúfar stundir, ást í leyni. Nutum lífsins, skýjum bleikum á, langar nætur, þær liðu hjá. Svo kom haustið, sál mín brennur, síðla sumars, þú hvarfst frá mér. Mér í huga ertu ætíð, og ég aldrei mun gleyma þér. Æ þegar rökkvar og húm fellur á þá leitar hugur til þín. Mér finnst ég verði þig aftur að fá þú varst alltaf, þú varst alltaf stúlkan mín. (Már Elíson 1951) Minning þín er ljós í lífi mínu, ég sé þig aftur seinna. Þinn eiginmaður, Hannes. Útbreiddur hlýr faðmur, breitt bros, fjólubláar neglur og bolur í stíl. Þannig hef ég í hyggju að muna eftir þér elsku Kidda mín. Þú varst hjartahlýjasta mann- eskjan sem ég þekkti, ósérhlífin og viljugasta konan til að hjálpa öðrum. Ég sagði stundum að þú færir úr síðustu flíkinni þinni fyrir náungann ef þú vissir að sú flík myndi veita hlýju og skjól. Þú varst alltaf reiðubúin, sama hversu stórt eða lítið verkið var. Umvafðir alla og knúsaðir. Þú varst samt ákveðin og vissir alveg hvað þú vildir. Þú varst næstelst af okkur sjö systkinum og um það leyti sem ör- verpi foreldra þinna fæddist, það er að segja ég, varst þú sjálf orðin móðir 18 ára gömul. Fyrst um sinn voru tengslin ekki mikil enda skildu 18 ár okkur að, ekki það að þegar þið hjónin komuð suður með börnin ykkar þá fékk ég alltaf að dandalast með. Það var ekki fyrr en þú fluttir alfarið suður að við fórum að hittast meira, en þá virtist aldursbilið á milli okkar ekki skipta máli. Alltaf var gott að hitta þig því þú umvafðir mig og vildir allt fyrir mig gera. Þú elsk- aðir mannamót enda vildirðu helst hafa allt fólkið þitt nálægt þér og umvefja það. Þegar kórónufarald- urinn skall á var það frekar erfitt fyrir þig að knúsa ekki allt og alla. Þú elskaðir fjólubláa litinn meira en alla aðra liti í flórunni, enda sást það vel því þú skartaðir ávallt einhverju fjólubláu. Þú elskaðir skart, fallega skó, töskur og að hafa fallegar langar neglur, oftast í fjólubláum tón. Eftir að dóttir mín fæddist var eins og viss tengsl og skilningur væri á milli ykkar. Þú tókst henni sem einni af þínum barnabörnum, enda elsk- aðir þú börn og gafst þér alltaf tíma til að vera með þeim, hvort sem það var að perla eða lita. Þú varst flink í höndunum, saumaðir hverja flíkina á fætur annarri, bæði fyrir þig og þá sem leituðu til þín. Prjónaðir eins og enginn væri morgundagurinn. Þú varst með pínu söfnunaráráttu en þú safn- aðir merkjum, pennum, skeiðum og fallegum steinum svo eitthvað sé nefnt. Við náðum að ferðast saman þú og ég ásamt systrum okkar og mömmu, fórum til Benidorm og Noregs. Einnig ferðuðumst við innanlands með fjölskyldum okk- ar og nutum þess að vera saman í íslenskri náttúru. Síðustu þrjú ár ævi þinnar voru þér erfið þar sem alzheimer læddist að þér hægt um sinn en þetta ár varstu farin að gleyma meir en áður. Ég mun allt- af þakka fyrir það að einhverjar fallegar vættir létu mig taka upp símann og hringja í þig á dánar- deginum þínum. Ég hafði þá ekki hugmynd um að þú værir að fara að kveðja okkur. Hjarta mitt er fullt af hlýju og þakklæti yfir því að ég náði að segja þér hversu mikið ég elskaði þig og þú sagðir það sama við mig, að þú elskaðir mig. Elsku Kidda mín, ég þakka þér af alhug fyrir allt það sem þú hef- ur gert fyrir mig og kennt mér og fyrir alla þá hlýju og ást sem þú hefur sýnt mér og mínum, fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Mínar innilegustu samúðarkveðjur sendi ég fjöl- skyldu Kiddu minnar, móður minni og systkinum. Dagný. Eins og lífið getur verið gott og yndislegt þá getur það líka verið sárt og ósanngjarnt og þannig er það svo sannarlega núna. Ég á hins vegar mikið af fallegum og dýrmætum minningum um þig sem eiga eftir að ylja mér um hjartarætur alla daga. Þú vildir allt fyrir alla gera og varst með hjarta úr gulli. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið þig sem bestu tengdamömmu sem hægt var að óska sér. Til að komast í gegnum þessa sorg verð ég að trúa því að þetta hafi einhvern tilgang eins og allt annað sem við erum búin að fá að reyna. Ég veit að mamma mín tekur vel á móti þér í fallega sum- arlandinu. Ef það er líf eftir þetta líf mun ég elska þig líka þar. Þín tengdadóttir, Helena. Kristjana Vilborg Árnadóttir ✝ Steinþór Krist- jánsson fæddist 18. janúar 1931 í Geirakoti, Sandvík- urhreppi. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Fossheimum á Selfossi 13. apríl 2021. Foreldrar hans voru Guðmunda Þóra Stefánsdóttir, húsfreyja í Geira- koti, f. 1.1. 1901, d. 5.12. 1995, og Kristján Þórður Sveinsson, bóndi í Geirakoti, f. 5.9. 1891, d. 2.8. 1990. Systkini Steinþórs eru: Sveinn, og byggði síðan hús við Fossheiði 3 á Selfossi og bjó þar allt þar til hann flutti á hjúkrunarheimilið Fossheima á Selfossi árið 2014. Hann vann öll venjuleg sveita- störf og var á vertíð fyrst á Stokkseyri og síðar í Njarðvíkum og Þorlákshöfn. Eftir það eign- aðist hann vörubíl og vann sjálf- stætt sem vörubílstjóri alla starfsævina. Steinþór hafði ein- lægan áhuga á tónlist, söng í kór- um og sótti tónleika og söng- skemmtanir þegar færi gafst. Starfsfólki Fossheima á Selfossi eru færðar sérstakar þakkir fyr- ir einstaka umönnun og hlýju í hans garð. Útför hans fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 23. apríl 2021, klukkan 13.30. Streymt verður á vef Selfosskirkju: https://www.selfosskirkja.is Streymishlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/ f. 17.4. 1925, d. 21.10. 2015, maki Aðalheiður Edilons- dóttir, f. 26.9. 1933; Katrín, f. 14.5. 1926, maki Gudmund Aa- gestad, f. 7.6. 1928, d. 13.10. 2017; Stef- án, f. 27.4. 1927, d. 22.5. 1970, maki Anna Borg, f. 20.10. 1933, d. 11.11. 2018; Sigrún, f. 24.1. 1929, maki Gunnar Marel Krist- mundsson, f. 5.11. 1933; Ólafur, f. 26.2. 1949, maki María Ingibjörg Hauksdóttir, f. 16.5. 1953. Steinþór ólst upp í Geirakoti Það má segja að staða mín í systkinahópnum sé nokkuð sér- stök. Fimm eldri systkinin fædd- ust í þéttri röð, elsti bróðirinn Sveinn er fæddur 1925, síðan hin nánast árlega og Steinþór rak lest- ina 1931. Síðan liðu 18 ár þar til ég örverpið leit dagsins ljós. Þegar Steini bróðir fæddist voru foreldr- ar okkar nýfluttir ofan úr Gnúp- verjahreppi og byrjuð búskap í Geirakoti sem þá var leigujörð. Húsakynni þættu ekki beysin nú á dögum, ekkert rafmagn, enginn sími og vatn sótt í brunn. Þetta var það Ísland sem Steini fæddist inn í. Þegar ég komst á legg var þetta svo gjörbreytt. Komið var nýtt íbúðarhús og myndarlegur bústofn og Steini bróðir fyrir löngu útskrif- aður úr barnaskólanum á Selfossi. Hann fékk snemma áhuga á vélum og þegar faðir okkar keypti drátt- arvél var strákurinn auðvitað lát- inn vinna á honum og fór á milli bæja með herfi og plóg og braut land til ræktunar fyrir bændur. Steini fór ungur til sjós, fyrst á Stokkseyri og síðan hjá frændfólki okkar í Njarðvíkum. Fljótlega upp úr þessu keypti Steini sér sinn fyrsta vörubíl. Hann festi sig í sessi í bransanum og kom sér upp nýrri og stærri bíl- um. Þegar ég fékk þá hugmynd tvítugur að aldri að byrja búskap í Geirakoti og byggja upp útihús, tók Steini það að sér óbeðinn að gerast byggingarstjóri enda gerði hann sér grein fyrir því að ég væri vart marktækur sökum æsku að redda því sem með þyrfti eða að ég yfirhöfuð hefði verksvit, nýkominn úr skóla. Kórastarf var líf og yndi bróður míns. Ég komst að því að ávallt var vænlegt til að létta lund Steina þegar þungbær ellin sótti á að rifja upp ferð hans til Ísraels með Kirkjukór Keflavíkur. Þegar Steini komst á eftirlaunaaldur seldi hann vörubílinn og önnur at- vinnutæki. Hann átti að baki far- sælan feril á þjóðvegum landsins sem má kallast blessun því eknir kílómetrar eru örugglega taldir í miljónum. Steini var ekki fjöl- skyldumaður og bjó einn í húsi sínu við Fossheiði á Selfossi. Hann átti stóran frændgarð og minnast systkinabörnin hans sem frænd- ans sem oft gaf veglegar og óvænt- ar gjafir. Sérstakt samband varð snemma milli Steina og systurdótt- ur hans Guðmundu. Stelpan var snemma frökk í tilsvörum og fram- göngu og þróaðist það með tíman- um í að frænka varð sérfræðingur í að eiga samskipti við Steina á létt- um og góðum nótum. Þegar Steini missti heilsuna fyrir rúmum 10 ár- um var það Guðmunda sem studdi hann best og veitti honum fylgd gegnum heilbrigðiskerfið sem er umhverfi sem er einhleypum körl- um sem sjaldan hafa kennt sér meins frekar framandi. Síðustu ár- in var Steini á hjúkrunarheimilinu Fossheimum. Þar var hann í góð- um og öruggum höndum starfs- liðsins sem af fagmennsku gengur til þeirra vandasömu verka að gera vistmönnum dvölina sem besta. Þegar ég leit inn til Steina á Foss- heima undanfarin ár dáðist ég æv- inlega að því hvað þessar starfs- stúlkur komu fram við bróður minn af mikilli ástúð, natni og létt- leika. Hafið innilegar þakkir fyrir. Meira á www.mbl.is/andlat Ólafur Kristjánsson. Steini í Geirakoti er látinn, ní- ræður að aldri. Hann var farinn að bíða eftir kallinu, því hann sagði við mig eitt sinn: Drottinn vill mig ekki. Steini fæddist í Geirakoti og stundaði þar almenna sveitavinnu á yngri árum. Hann reri nokkrar vertíðir frá Þorlákshöfn. Eftir að faðir hans keypti öflugan traktor, International W4, vann hann að jarðabótum víða um sveitir. Snemma keypti hann sér vörubíl og varð það hans ævistarf að gera út vinnuvélar og vörubíla. Hann var mjög tónelskur og söng með ýmsum kórum á Sel- fossi. Hann hafði sínar skoðanir á hlutunum og var ekki alltaf sam- mála félögum sínum í kórastarfinu. Þegar Steini var ungur maður keypti hann sér útvarpsgrammó- fón. Plötur með klassískri tónlist og óperum, auk nýjustu íslensku tónlistarinnar. Hann hvatti okkur krakkana til að hlusta á þessa tón- list. Og lagði þar með sitt á vog- arskálarnar í uppeldi okkar. Það var oft kátt í kotinu, t.d. þegar þeir bræður Steini og Stebbi komu úr siglingu með Gull- fossi. Allir fengu gjafir og stór mackintoshdós stóð á stofuborð- inu. Þá voru sko jólin. Já, það eru svo margar góðar minningar frá þessum tíma. Þegar ég var 18 ára bað Steini mig að keyra sig og nokkra félaga sína á ball á Hótel Sögu, Bænda- höllinni. Þegar þangað var komið var biðröð langt út á götu svo bændasynirnir komust ekki inn. Og þótti súrt í broti. Það var ákveðið að fara eitthvað annað, en það var sama hvert farið var; alls staðar var fullt út úr dyrum. Þá lagði Steini til að gera bara gott úr hlutunum, fara aftur austur fyrir fjall og fannst þetta hafa verið hinn ágætasti bíltúr. Hann ferðaðist mikið bæði inn- anlands og utan. Má segja að hann hafi lifað lífinu lifandi. Blessuð sé minning Steina frænda. Stefán Sigurjónsson. Mig langar að minnast Stein- þórs Kristjánssonar en ég var svo heppin að fá Steina frænda í líf mitt þegar ég var um 7 ára eða þegar mamma og Óli stjúpi minn fóru að rugla saman reytum. Mér fannst alltaf einhver ævintýra- ljómi yfir Steina þegar ég var að alast upp. Hann bjó einn í flottu húsi sem í var arinstæði, hann átti mjög flottan silfurlitaðan Benz sem var flottasti bíll sem ég hafi séð. Svo átti hann vörubíl og pæla- tor og fór til Kanaríeyja á hverju ári sem mér þótti mjög merkilegt á þeim tíma. Það var alltaf gaman þegar Steini kom heim úr slíkum ferðum því oftast kom einhver glaðningur með handa okkur systrum í Geirakoti. Lengi átti ég blævæng sem Steini gaf mér eftir eina Kanaríferðina sem ilmaði dásamlega og var í miklu uppá- haldi. Steini var mikill kóramaður og söng í mörgum kórum. Ég man að mér þótti alltaf mjög gaman að fara á tónleika þegar Steini var að syngja og líklega á Steini stóran þátt í því hvað ég hef haft gaman af því að hlusta á kórsöng frá því ég var krakki. Það fór þó lítið fyrir kóráhuganum þegar ég var um 16 ára, en þá bauðst Steini eitt sinn til að keyra mig og vinkonu mína til Þorlákshafnar þar sem við vor- um á leið á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum. Á leiðinni fengum við að njóta einhvers stórkostlegs kórs sem Steini spilaði á hæsta styrk alla leiðina. Ég er viss um að honum hefur fundist hann mjög fyndinn þarna með gelgjurnar í bílnum en okkur þótti þessi ferð mjög löng og höfðum ekki gaman af þessu tónlistarvali Steina. En þegar ég fór sjálf að syngja með Jórukórnum á Selfossi áttum við oft skemmtilegt spjall um kóra og var hann mjög áhugasamur um lagaval kórsins og kom alltaf á tónleika á meðan ég var í kórnum. Börnin mín nutu þess líka að eiga Steina frænda að og þótti strákunum mínum mikið til hans koma og fannst alltaf mjög spenn- andi þegar Steini kom að moka snjó í sveitinni á veturna eða mætti á vorin með áburð á vöru- bílnum og voru þeir ávallt eins og gráir kettir í kringum hann og oft held ég að Steina hafi þótt nóg um. Það er gott að ylja sér við minn- ingar um Steina sem bæði gat verið sérvitur karl sem fór svo sannarlega sínar eigin leiðir en á sama tíma húmoristi og góður frændi sem þótti fátt betra en að eiga gott spjall við eldhúsborðið með góðan kaffibolla. Takk fyrir samfylgdina í gegn- um lífið og hvíldu í friði elsku frændi. Sigurbjörg Harðardóttir. Elsku Steini frændi. Eitt sinn færðir þú mér þennan sálm og nú færi ég þér hann, með ósk um góða ferð. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (121. Davíðssálmur) Guðmunda Þóra Björg Ólafsdóttir. Látinn er á Selfossi Steinþór Kristjánsson vörubílstjóri. Flestir þekktu hann sem Steina í Geir- koti, svo sterkt var hann tengdur heimahögum sínum. Steini hefur verið nærri í lífi mínu allt frá fyrstu tíð því góð vinátta var milli hans og föður míns, sem lést á síð- asta ári. Mér er ljúft að minnast góðs vinar með þessum minning- arorðum. Ungur fór ég að fylgja föður mínum í heimsóknir til Steina. Drakk í mig orð karlanna, skraf um vörubílaútgerð, vegagerð, karlakórssöng og vangaveltur um málefni líðandi stundar. Húsið á Fossheiði var ævintýraheimur. Í bílskúrnum voru olíutunnur, tól og tæki og í stofunni bunkar af grammófónplötum. Húsbóndinn sat makindalega í höfðingjastól sínum, sagði frá og kom einatt með innlegg þvert á strauminn. Talaði sér jafnvel þvert um hug til að fá fram ný sjónarmið. Þegar fjör fór að færast í umræðurnar brosti okkar maður. Tilganginum var náð. „Jamm, jahá,“ sagði Steini og brosti. Nærveran var hlý. Í um það bil áratug lögðust ég, faðir minn og Steini í landshornaflakk eina helgi á sumri hverju. Í einum leiðangri arkaði þríeykið frá Kóngsási á Gnúpverjaafrétti fram um heiðar og móa og stigið var þungt til jarð- ar. Við sáum vatnsúða stíga til himins sem vísaði leiðina fram að gljúfurbarmi Þjórsár þar sem Dynkur, hinn svipsterki foss, blasti við. Að koma á þann stað var einstök upplifun og var oft rifjað upp síðar. Einnig þegar við fórum um Jónsmessuleytið upp á Bolafjall við Djúp um miðja nótt til þess að fylgjast með sólarupp- rás í Íshafinu. Ég get líka nefnt leiðangur yfir Sprengisand og brölt í svartaþoku í eyðibyggð á Skálum á Langanesi. Allt voru þetta ferðir augnabliksins, sem nú eru mér orðnar dýrmætar minn- ingar. Draumar fólks eru oft sem endurspeglun af hugsunum þess og daglegu brasi. Þurfa ekki að tákna neitt sérstakt né hafa for- spárgildi. Draumfarir geta þó oft verið bráðfyndnar. „Ég var í vegavinnu í alla nótt,“ sagði Steini einhverju sinni í sumarferð, þegar við höfðum legið við næturlangt í gangnamannaskála á reginfjöll- um. Gamli vörubílstjórinn sem ók á X-1320 hafði víða farið, keyrt út malarhlöss hér og þar og sagði skemmtilega frá verkum sem sóttu að honum í vöku sem draumi. Steinþór Kristjánsson hefur nú lagt upp í ferð á ókunnar slóðir. Ég þakka góða samfylgd og votta aðstandendum samhug. Hann Steini í Geirakoti var góður mað- ur. Sigurður Bogi Sævarsson. Steinþór Kristjánsson - Fleiri minningargreinar um Kristjöna Vilborgu Árna- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.