Morgunblaðið - 23.04.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 23.04.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Kortafyrirtækið Valitor hefur fengið fjölda tilkynninga vegna svika sem korthafar hafa lent í undanfarið. Þá hafa korthafar fengið smáskilaboð eða tölvupósta í nafni DHL og Pósts- ins þar sem þeim er tjáð að pakki sé á leiðinni til þeirra. Skilaboðunum fylgir hlekkur og ef ýtt er á þann hlekk er notandi beðinn um að færa inn kortaupplýsingar. Þær upplýs- ingar eru síðan misnotaðar og geta einstaklingar staðið uppi með tölu- vert fjárhagslegt tjón. Jónína Ingvadóttir, deildarstjóri í markaðsdeild Valitors, segir ein- földu skilaboðin til fólks vera að smella ekki á hlekkina, sérstaklega ef það á ekki von á pósti. Ekki eigi undir nokkrum kringumstæðum að gefa upp korta- eða persónuupplýs- ingar á síðunni sem hlekkurinn teng- ist. Enn fremur er mikilvægt að gefa ekki upp öryggiskóða sem berst með smáskilaboðum til að ljúka við greiðsluna. Ef fólk eigi von á pakka þá sé gríðarlega mikilvægt að lesa skilaboðin vel, bera saman upphæðir og gjaldmiðla til að ganga úr skugga um að skilaboðin séu raunveruleg. DHL á Íslandi sendir reikning á heimabanka og notast við íslenska mynt. Þá tekur Pósturinn við greiðslu á staðnum og notar einnig íslenska mynt. Dæmi eru um að fólk hafi tapað háum fjárhæðum vegna svika af þessum toga. Hafi fólk brugðist við skilaboðum og gefið upp öryggis- kóða eigi það að hafa samband við viðskiptabanka sinn eða Valitor og einnig tilkynna svikin til lögreglunn- ar. Vandi lögreglu er margþættur vegna slíkra brota, sér í lagi þar sem glæpamennirnir eru ekki á Íslandi og búa stöðugt til nýjar slóðir til að framkvæma svindlið. sonja@mbl.is Háar fjárhæðir tapast AFP Svik Margar tilkynningar um kortasvik hafa borist undanfarið. - Brýnt að bera saman upphæðir ef pakki er á leiðinni Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Húsvíkingar bíða nú spenntir eftir því að sjá bæinn sinn sýndan á Ósk- arsverðlaunahátíðinni sem fer fram aðfaranótt mánudags. Mikil stemn- ing hefur myndast í bænum og munu ljós lýsa í mörgum gluggum fram eftir nóttu. Lagið Húsavík – My Home Town úr Eurovision- mynd Will Ferrells er tilnefnt til verðlaunanna og var myndband við lagið tekið upp á Húsavík um liðna helgi. Silja Jóhannesdóttir situr í stjórn Húsavíkurstofu og segist finna fyrir mikilli stemningu í bænum og til- hlökkun. „Bæjarbúar fyllast ein- hverri jákvæðni þegar eitthvað svona skemmtilegt gerist. Það eru allir að taka sig saman og taka þátt í gleðinni,“ segir Silja. Hún segir fólk vera vongott fyrir verðlaunahátíðina en allir séu þó búnir að stilla væntingum í hóf. „Það er mikill sigur fyrir okkur hérna á Húsavík að fá lagið tilnefnt,“ segir Silja. Hún segir að um liðna helgi hafi bærinn fyllst af lífi þegar mynd- bandið var tekið upp og söngkonan Molly Sandén hafi veitt þeim mikinn innblástur. Á mánudag var rauði dregillinn, sem málaður hefur verið á Garðarsbraut, opnaður með við- höfn. Veitingastaðir og fyrirtæki taka þátt í gleðinni en verslunin Benna- búð bauð upp á veglega afslætti í vikunni og Veitingahúsið Salka kynnti sérstakan Óskarsverðlauna- matseðil. Matseðillinn er að sjálf- sögðu með amerísku yfirbragði og þar má finna til dæmis „Hollywood hotwings“, Óskarsrif og L.A.- kjúklingaopnu. „Við erum bara að taka þátt í þessu verkefni og hvetj- um alla til að gera slíkt hið sama,“ segir Guðrún Þórhildur Emilsdóttir, eigandi veitingahússins. Salka stendur einmitt við rauða dregilinn á Garðarsbrautinni og stefna þau einnig á að setja upp rauðan dregil hjá sér fyrir helgina. „Fjartí“ á mánudagsnótt Vegna gildandi sóttvarnareglna verður ekki hægt að halda eitt helj- arinnar Óskarspartí í bænum en Hjálmar Bogi Hafliðason, deild- arstjóri í Borgarhólsskóla, segir að hugmynd hafi komið upp um að halda partí á netinu, svokallað „fjartí“. Hjálmar var þó í óða önn að skipuleggja partí í grunnskólanum á mánudag þar sem myndbandið verð- ur sýnt í heild sinni. Nemendur Borgarhólsskóla lögðu hönd á plóg í verkefninu en stúlkur í 5. bekk sungu ásamt Sandén í myndband- inu. „Það er gríðarleg stemning í skól- anum. Fólk að blístra lagið, hlusta á lagið og þetta eflir sjálfsvitundina svo mikið. Þetta efldi skólabraginn þótt auðvitað hefðu fleiri nemendur viljað taka þátt í myndbandinu,“ segir Hjálmar. Undanfarnar vikur hafa verið söngsalir í skólanum og þar var meðal annars tekið upp fyrir þýska sjónvarpsstöð og íslenskar sjónvarpsstöðvar. Því hafa allir krakkarnir fengið að taka þátt í allri Óskarsgleðinni á einn eða annan hátt. Hjálmar finnur fyrir mikilli spennu í bænum og hlakkar til að sjá myndbandið á sunnudag. „Húsavík verður númer eitt á Íslandi, í Evr- ópu og heiminum á sunnudagskvöld. Bær sem fólk veit ekki einu sinni að er til,“ segir Hjálmar. Húsavík númer eitt í heiminum - Mikil stemning í bænum - Sigur fyrir Húsavík að fá lagið tilnefnt AFP Stemning Líf og fjör hefur verið í bænum á Húsavík síðastliðna viku. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta eru stór verðlaun sem heiður er að fá. Ég átti ekki von á að hljóta þau. Margir góðir knapar eru í hópn- um en mér gekk mjög vel,“ segir Laufey Rún Sveinsdóttir frá Sauð- árkróki sem var efst í keppni um Morgunblaðsskeifuna sem er ein helstu verðlaunin á Skeifudegi nem- enda Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Hestamannafélag nemenda, Grani, efnir á hverju ári til keppni á sumardaginn fyrsta og er keppt um ýmis verðlaun. Fyrirkomulagið var annað en venjulega að þessu sinni þar sem áhorfendur gátu ekki komið í reiðhöllina á Mið-Fossum og var at- burðinum því streymt á netinu. Margir verðlaunaðir Morgunblaðsskeifan er veitt þeim nemanda sem nær hæstu meðal- einkunn úr verklegum reiðmennsku- prófum. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1957. Ellefu nem- endur tóku þátt í keppninni í ár. Laufey Rún fékk 9,1 í einkunn, Steindóra Ólöf Haraldsdóttir varð í öðru sæti og Helga Rún Jóhanns- dóttir í því þriðja. Helga Rún varð efst í keppni um Gunnarsbikarinn en hann er veittur þeim nemanda sem hlýtur hæstu einkunn í fjórgangi. Elínborg Árnadóttir fékk Eiðfaxabikarinn en hann er veittur þeim nemanda sem hlýtur bestu ein- kunn í bóklegum áfanga. Steindóra Ólöf fékk ásetuverðlaun Félags tamningamanna. Björn Ingi Ólafs- son fékk Framfarabikar Reynis en hann er veittur þeim nemanda sem sýnt hefur mestan áhuga, ástundun og tekið hvað mestum framförum í reiðmennsku. Skemmtilegur tími Laufey Rún segist hafa stundað hestamennsku frá því hún muni eftir sér. Fjölskylda hennar er með hest- hús á Sauðárkróki. Hún er á bú- fræðibraut á Hvanneyri og lýkur námi í vor. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími, svolítið öðruvísi út af ástandinu en það hefur ekki truflað okkur mikið,“ segir Laufey. Hún verður að vinna í Steinullar- verksmiðjunni í sumar en hefur hug á að temja og þjálfa hesta í frítíma sínum. Hún segist vel geta hugsað sér að vinna við hesta í framtíðinni, alla vega sé áhuginn nægur. Ljósmynd/Rósa Björk Jónsdóttir Knapar og hestar Þau unnu til verðlauna á Skeifudaginn á Hvanneyri, Björn Ingi Ólafsson, Elínborg Árnadóttir, Helga Rún Jóhannsdóttir, Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Laufey Rún Sveinsdóttir. Temur og þjálfar hesta í frítíma sínum - Laufey Rún Sveinsdóttir vann Morgunblaðsskeifuna Skeifuhafinn Laufey Rún Sveinsdóttir var vel ríðandi á Skeifudegi hestamannafélagsins Grana sem fram fór í reiðhöllinni á Mið-Fossum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.