Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 15

Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Kynngimagnað Gosið í Geldingadölum heillar alla sem leið sína leggja að gosinu, sama hversu oft þeir hafa séð það. Einar Falur Það er erfitt að ímynda sér hvernig sagan hefði orðið ef hún hefði farið á annan veg. Sjálfur hef ég tekið öllum ör- lögum og tekið öllu sem óum- flýjanlegu. Mennirnir vilja en guð ræður. Þannig er duglaus stjórn mikil blessun, því þá fer öllu fram á sem eðlilegastan máta. Stríð hefur sinn gang, með drápi og eyðileggingu. Þegar stríði lýkur skrifar sig- urvegarinn söguna, sína sögu! Sá sem tapar er gjarnan hengdur. Þannig get- ur sá sem tapar aldrei sagt sína sögu. Síðari heimsstyrjöldin Í íslensku máli er talað um hina fyrri og hina síðari heimsstyrjöld. Sennilega er það af þrá til þess að ekki verði hin þriðja! Heims- styrjöldum skuli lokið. Endalok fyrri heimsstyrjaldarinnar urðu með friðarsamningum en hinni síðari lauk með skilyrðislausri uppgjöf. Friðarsamningar og stríðsskaðabætur, sem um var samið, urðu aldrei annað en pappír. Stoltur Þjóðverji réð landa sinn, Matthias Erzberger, af dögum fyr- ir að undirrita uppgjafarsamninga við Frakka. Að loknum réttarhöldum í Nürnberg voru þeir sem gáfust upp fyrir hönd Þjóðverja hengdir. Það voru Alfred Jodl og Wilhelm Keitel. Sá er tók við uppgjafaryfirlýsingunni varð síðar Bandaríkjaforseti. Japanskeisari var látinn koma um borð í bandarískt herskip til að undirrita uppgjaf- arskjal, en til að sameina japönsku þjóðina hélt hann keisaradómi sínum og afkomendur hans síðar. Japanir höfðu þolað þau hörmulegustu ör- lög sem nokkur þjóð getur hlotið, með tveimur kjarnorkusprengjum. Örlög Evrópu Þegar síðari heimsstyrjöldinni lauk var álf- an í rúst. Framleiðslugeta í verksmiðjum var lítil og kaupgeta á matvælum á sama veg. Bandaríkin höfðu þvælst inn í styrjöldina með hervernd á Íslandi og síðar af öllu afli þegar japanskar flugvélar réðust á Perluhöfn á Havaí. Með þessum tveimur atburðum, her- verndarsamningi á Íslandi og óvinaárás á Havaí, var Monroe-kenningunni varpað fyrir róða að hálfu leyti. Bandaríkin hófu íhlutun í öðrum heimsálfum, í Evrópu og í Kyrrahafslöndum. Viðbrögðin eftir stríð voru öll önnur en eftir fyrri stríð. Nú skyldi sigurvegarinn hjálpa löndunum sem áttu í stríði við að byggja upp framleiðslugetu sína til að tryggja að öfgaöfl kommúnista, nasista og fasista næðu ekki fótfestu aftur. Ræða George C. Marshalls hershöfðingja í hlutverki utanríkisráðherra Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ræða sú er utanríkisráðherr- ann hélt í Harvard-háskóla hinn 5. júní hafi verið óvænt, hvort gamli fimm stjörnu hershöfðinginn hafi kynnt áform sín um endurreisn Evrópu. Eða hvers var að vænta í þakkarræðu gamla hershöfðingjans fyrir heiður sem háskólinn veitti honum? Af hverju flutti utanríkisráðherrann ræð- una en ekki Harry S. Truman forseti? Í Morgunblaðinu segir daginn eftir ræðuna: „Bandaríkin vilja aðstoða Evrópulönd“ og „Marshall fer fram á samvinnu nauðstaddra ríkja“. „Hver sú ríkisstjórn, sem er fús til að að- stoða í endurreisnarstarfinu, mun mæta al- gerri samvinnu Bandaríkjastjórnar. En hver sú stjórn, sem gerir tilraun til að hindra við- reisn annarra landa, getur ekki vænst hjálpar okkar.“ Daginn sem sagt er frá ræðu Marshalls segir Morgunblaðið: „Sama dag staðfesti öld- ungadeild Bandaríkjaþings friðarsamninga við Ítalíu, Rúmeníu, Búlgaríu og Ungverja- land. Einn öldungadeildarþingmaður varaði sérstaklega við því að ef friðarsamningur við Ítalíu yrði ekki staðfestur „myndi það hafa í för með sér algera upplausn þar í landi, en slíkt aftur opna leiðina til valdatöku komm- únista“. Morgunblaðið segir einnig: „Í ræðu sinni benti Marshall einnig á, að þörf Evrópu fyrir matvæli og aðrar nauðsynjar næstu þrjú til fjögur árin væri svo mun meiri en núverandi greiðslugeta álfunnar, að hún yrði að fá aukna hjálp, eða ella horfast í augu við alvarlega efnahags- og stjórnmálakreppu. Það væri því ekki nema eðlilegt, að Bandaríkin gerðu allt, sem þau gætu, til að aðstoða við að koma á eðlilegu efnahagsheilbrigði veraldarinnar, enda væri friðurinn að öðrum kosti ekki tryggður.“ Ef tengja á Marshall-áætlunina við stefnu í efnahagsmálum yrði áætl- unin tengd við Keynes, án þess að nokkur hafi nokkru sinni botnað í Keynes. Hershöfðinginn og friður Hershöfðinginn hefur skynjað það að hefð- bundnar lausnir sigurveg- ara tryggðu ekki frið. Í raun var enginn samnings- aðili til í Þýskalandi. Landið var hernumið og skipt í hernámssvæði. Hvernig hefði Evrópa litið út ef ekki hefði komið til Marshall-aðstoðar? Hershöfðinginn taldi nauðsynlegt að árang- ur uppbyggingarinnar yrði mældur með sam- ræmdum hætti. Til þess yrði að mæla árangur og færa samræmda þjóðhagsreikninga. Efna- hagssamvinnustofnun var falið það hlutverk. Sú stofnun heitir nú Efnahags- og framfara- stofnunin, OECD. Með því að byggja upp iðnað, innviði og at- vinnulíf var komið í veg fyrir að öfgaöfl næðu fótfestu í hinu hersetna landi. Sambandsráð og sambandslýðveldi er stofnað 1949, tveimur árum eftir ræðu Marshalls. Adenauer og Er- hardt unnu úr framlagi Marshall-áætlunar- innar og sköpuðu þýska efnahagsundrið. Endanlegar sættir Þýskalands og Frakk- lands komu með Élysée-sáttmála Adenauers og de Gaulles 1963. Marshall og Ísland Íslenskir innviðir biðu ekki tjón af hern- aðarátökum. En íslenskir sjómenn fórust í siglingum, oft vegna hernaðarátaka. Íslenskir framleiðsluatvinnuvegir voru ekki í merkilegu standi fyrir stríð. Eftir stríð áttu Íslendingar eignir í erlendum bönkum og áttu þeir að fara í „nýsköpun“. Sú „nýsköpun“ var að mestu fólgin í endurnýjun á togaraflota landsmanna, með gufuvélum þegar díselvélar voru að halda innreið sína. Gjaldeyriseign þjóðarinnar hvarf á tveimur árum! Fyrsta þátttaka íslenskra stjórnvalda í Marshall-aðstoðinni var að reyna að selja fisk til hinna stríðshrjáðu landa. Áður en langt um leið var landið komið í þá stöðu að vera í þörf fyrir aðstoð til uppbyggingar innviða. Sú uppbygging beindist að raforkuverum, áburðarverksmiðju og sementsverksmiðju. En það var einnig nokkur hluti aðstoðarinnar sem fór til að viðhalda óbreyttu ástandi í sveit- um, þótt landbúnaður hafi á engan hátt staðist sjávarútveginum snúning. Deila má um það hvort hlutur Íslendinga í Marshall-aðstoðinni hafi verið of rausnarlegur í ljósi þess að herseta Breta og Bandaríkja- manna hafði afar góð áhrif á efnahagslífið og margir töluðu um „blessað stríðið“ í gamni og alvöru. Hvað sem því líður þá var hér um mik- ið fé að ræða. Í hlut Íslands komu um 0,2% heildarfjárhæðarinnar eða 29,3 milljónir doll- ara sem lætur nærri að hafi verið 10-12% af árlegri landsframleiðslu á árunum eftir stríð. Miðað við núverandi verðlag og stærð hag- kerfisins gæti þessi fjárhæð verið yfir 300 milljarðar íslenskra króna. Síldarverksmiðja og listamiðstöð Ein síldarverksmiðja var byggð fyrir Mars- hall-fé. Sú var í Reykjavík, kölluð Faxaverk- smiðjan, í Effersey. Mjölvinnsla varð minni en að var stefnt. Verksmiðjuhúsið stendur enn sem minnisvarði um Marshall-aðstoðina, hornstein hagsældar í Evrópu. Húsið er lista- miðstöð. Það er öruggt mál að hershöfðinginn og utanríkisráðherrann sá ekki fyrir að hús í hans nafni stæði við Vesturhöfnina í Reykja- vík og efldi listir. Eftir stendur að George C. Marshall var sennilega einn áhrifamesti einstaklingur síð- ustu aldar. Hann er eini hershöfðinginn sem hlotið hefur friðarverðlaun Nóbels. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Eftir stendur að George C. Marshall var sennilega einn áhrifamesti einstaklingur síðustu aldar. Vilhjálmur Bjarnason George C. Marshall, ef og hefði-saga! Höfundur var þingmaður og verður það aftur. Marshall-húsið. George C. Marshall Ljósmynd/VB Alþingi hefur nú sett lög til breyt- ingar á sótt- varnalögum. Með lögunum er ráð- herra veitt meira vald en áður til að skylda ferðamenn til dvalar í sóttvarna- húsi meðan þeir sæta einangrun. Ekki er ástæða til að gera at- hugasemdir við að ráðherra sé tímabundið veitt aukið vald í þess- um efnum, þar sem beita þarf nauðsynlegum úrræðum til að fást við veiruskrattann sem hefur gert okkur lífið leitt að undanförnu. Það er hins vegar dálítið und- arlegt að sjá gagnrýni á lögin beinast að því að óeðlilegt sé að veita ráðherra þetta vald. Þekktir vísindamenn hafa birt skoðanir af þessu tagi. Nær væri að sótt- varnalæknir hefði það beint sjálf- ur. Og það sjónarmið sést jafnvel skjóta upp kollinum að stjórn- málamenn séu til bölvunar, þegar beita þarf lagavaldi til skerðingar á frelsi borgara, þeim sjálfum til verndar. Hér virðast einhverjir hafa gleymt meginreglum sem sam- félag okkar vinnur eftir. Í fyrsta lagi kjósum við stjórnmálamenn til að beita ríkisvaldi þegar við á. Tilgangurinn með því að kjósa þá er að fela þeim slíkt vald í hendur, enda bera þeir stjórnskipulega ábyrgð á meðferð þess, m.a. með því að vera kosnir til ákveð- ins takmarkaðs tíma. Ætla verður að gagnrýni af þessu tagi eigi rót sína að rekja til misskilnings á því hvernig lýðræð- islegu valdi er fyrir komið í því samfélagi sem við byggjum. Veirufróðir vís- indamenn ættu því að einskorða orðræðu sína við það sem þeir hafa vit á en leiða hjá sér at- hugasemdir um að aðrir en lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar eigi að ráða vegferð annarra manna í sóttarvörnunum. Misskilningur veirufróðra Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » Og það sjónarmið sést jafnvel skjóta upp kollinum að stjórnmálamenn séu til bölvunar, þegar beita þarf lagavaldi til skerðingar á frelsi borgara, þeim sjálfum til verndar. Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.