Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 16
SMARTLANDSBLAÐIÐ
kemur út 5. maí
–– Meira fyrir lesendur
Tískan 2021 í förðun,
snyrtingu, útliti og
fatnaði auk umhirðu
húðarinnar, heilsu,
og margt fleira.
Tryggðu þér sýnileika í þessu
glæsilega Smartlandsblaði
Auglýsendur athugið að pöntun
auglýsinga er til 29. apríl.
Katrín Theódórsdóttir
S. 569 1105 – kata@mbl.is
Smartland
10 ára
Heimild: Skatturinn
Kjör svokallaðra eldri borgara
koma oft og tíðum til umræðu. Þessi
grein fjallar um tekjur þeirra sem
náð hafa þeim aldri að eiga rétt á
ellilífeyri1. Ég hef áður2 fjallað um
fjölgun þeirra sem komnir eru af
léttasta skeiði þar sem kom fram að
stór hluti „aldraðra“ er mjög virkur,
bæði í atvinnu- og einkalífi, og býr
við góða heilsu. Jafnframt var á það
minnt að hlutfall aldraðra á Íslandi
er mjög lágt í samanburði við ná-
grannalönd okkar og mun verða það
um langa hríð enn.
Það er ekki hægt að setja alla
eldri borgara undir einn hatt því
tekjur eru misjafnar og þær breyt-
ast eftir því sem fólk er eldra. Jafn-
framt er uppsöfnun lífeyrisréttinda
að breyta tekjumynd einstaklinga
sem fara á lífeyri. Ef teknar eru
saman heildartekjur allra sem töldu
fram til skatts á Íslandi fyrir tekju-
árið 2019 og voru orðnir 67 ára, en
það voru 15,8% allra framteljenda,
alls tæplega 50.000 einstaklingar,
þá námu þær 293 milljörðum króna,
14,9% af heildartekjum allra lands-
manna.
Á mynd 1 má sjá hvernig heildar-
tekjur voru að meðaltali árið 2019
hjá þeim sem eru 67 ára og eldri.
Upplýsingarnar eru fyrir hvern ald-
ursflokk í heild. Þær fara lækkandi
með aldri. Rétt er að vekja athygli á
því að innan hvers aldursflokks eru
tekjur einstaklinga að sjálfsögðu
mjög mismunandi.
Á myndinni eru einnig sýndar
ráðstöfunartekjur á hvern ein-
stakling og bilið á milli línanna eru
skattgreiðslurnar. Þær námu alls
66,5 milljörðum króna þetta ár.
Skatthlutfallið fer heldur lækkandi
með aldri en er þó fimmtungur af
tekjum fyrir þá sem eldri eru en 85
ára meðan það er fjórðungur hjá 67
ára, álíka og hjá landsmönnum öll-
um eldri en 45 ára. Á hægri ás
myndarinnar er sýndur fjöldi fram-
teljenda í hverjum aldursflokki en
þeir sem eru 85 ára og eldri eru í
einum flokki.
En hvernig er sam-
setning teknanna hjá
þeim sem komnir eru af
léttasta skeiði?
Á þessari mynd má sjá
að við 67 ára aldur eru
launatekjur veigamesta
tekjulindin en atvinnu-
þátttaka eldri Íslendinga
er sú langmesta í V-
Evrópu3. Að meðaltali
voru launatekjur á hvern
67 ára framteljanda 6,7
milljónir árið 2019. Um
er að ræða heildarlauna-
tekjur aldursflokksins, deilt með
fjöldanum. Sumir í honum hafa launa-
tekjur og aðrir ekki en ég hef ekki að-
gang að tölum þar sem hægt er að
flokka framteljendur eftir því hvort
þeir hafa tekjur í tilteknum tekju-
flokki eða ekki. Þetta sama gildir um
aðra tekjuflokka og er sérstaklega
mikilvægt þegar um er að ræða líf-
eyristekjur og tryggingagreiðslur
vegna þess að lífeyrisgreiðslur (og
launatekjur einnig) hafa áhrif á
tryggingagreiðslur.
Meðallaunatekjur falla hratt eftir
því sem fólk nálgast sjötugt, vænt-
anlega vegna þess að á þessum árum
er það að hverfa af vinnumarkaði. Að
meðaltali voru launatekjur þeirra
sem voru 71 árs orðnar innan við 1
milljón árið 2019, vegna þess að sum-
ir í hópnum eru alveg horfnir af
vinnumarkaði, aðrir hafa dregið úr
atvinnuþátttöku en einhverjir taka
enn fullan þátt. Það dregur enn úr
launatekjumeðaltalinu eftir þetta
þótt hægar sé.
Öðru máli gegnir
um lífeyristekjur sem
strax við 69 ára aldur
eru orðnar þær tekjur
sem þyngst vega. Líf-
eyristekjur eru hæstar
hjá 71 árs framtelj-
endum og voru að
meðaltali 2,9 m.kr. árið
2019. Þær fara síðan
lækkandi með aldri og
voru tæpar 2,6 m.kr.
hjá áttræðum en
lækka örar eftir aldri
þeirra sem eldri eru en
það. Sú mynd sem þarna teiknast upp
sýnir að þeir sem eru að fara af
vinnumarkaði nú eru með betri lífeyr-
isréttindi en þeir sem eldri eru. Þetta
er veigamikið atriði þegar fjallað er
um það hvernig búast má við að
tekjur eldri borgara þróist á næstu
árum. Þeim fjölgar sífellt sem fara á
lífeyri með góð réttindi og þarna eru
vaxandi atvinnuþátttaka kvenna á
undanförnum áratugum, ásamt sjóðs-
söfnun lífeyriskerfisins og tilheyrandi
réttindaöflun, mikilvægir skýring-
arþættir.
Tryggingagreiðslur ná ekki að
verða stærsti tekjustofninn í neinum
aldursflokki en mynd 2 sýnir greini-
lega hvernig greiðslur Trygg-
ingastofnunar fara hækkandi eftir
aldursárum alveg fram að elsta
flokknum (sem er reyndar sá fjöl-
mennasti eins og sjá mátti á mynd 1).
Þarna fara saman minni lífeyrisrétt-
indi þeirra sem eldri eru og að ein-
hverju leyti meiri greiðslur til þeirra
sem búa einir sem fjölgar eftir aldri
Eftir Sigurð
Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson
Heimild: Skatturinn
Kröpp kjör? –
Tekjur aldraðra
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
Mikið er það góð til-
finning að upplifa það
að fá að vera með vor-
ið vistað í sálinni og
finna allt springa út
frá degi til dags. Jafnt
sálartetrið, mannlífið
og gróðurinn. Lífið er
eins og það er og það
fer sínu fram. Það
streymir endalaust
áfram og ekkert fær
það stöðvað þótt við náum kannski
ekki alltaf að höndla það til fulls eins
og við hefðum mögulega viðjað.
Samt heldur það endalaust áfram og
nærir okkur og blessar, þrátt fyrir
allt, nánast sama hver staðan er.
Gefum lífinu tækifæri og njótum
þess að vera með. Að njóta stund-
arinnar í þakklæti fyrir sigur lífsins
og fyrir höfund og fullkomnara lífs-
ins sem til þess sá og gefur okkur
daglega endalausa von og tak-
markalausa elsku sína, fyrirgefn-
ingu og náð í öllum aðstæðum. Af
því hann elskar okkur út af lífinu.
Þess vegna þökkum
við þér fyrir lífið
Þess vegna þökkum við þér, mis-
kunnsami og elskuríki Guð, fyrir líf-
ið, fyrir vorið í sál okkar og um-
hverfi með tilhlökkun og
eftirvæntingu vegna sumarsins sem
koma skal og kemur alltaf aftur og
aftur.
Við þökkum þér fyrir að vaka yfir
okkur í vetur og sleppa ekki hendi
þinni af okkur. Haltu áfram að
blessa líf okkar og varðveita það í
þér sem ert lífið sjálft.
Blessaðu fólkið okkar allt og
gefðu okkur að fá að upplifa æv-
intýri og fegurð sumarsins og sam-
skiptanna hvert við annað. Að fá að
njóta daganna og björtu náttanna.
Veittu þinni eilífu sum-
arsins sælu, birtu og yl
inn í sál okkar og líf og
uppörvaðu okkur með
anda þínum. Hjálpaðu
okkur að nærast af
nærveru þinni og þínu
lífgefandi, kærleiksríka
og friðgefandi orði.
Leyfðu okkur ávallt að
fá að dvelja í faðmi þín-
um og fylgdu okkur eft-
ir og leiddu í gegnum
daginn hvern, hverja
áskorun. Jafnt í gleði og raunum.
Haltu áfram að þroska okkur og
gera okkur þakklátari og heilli í þér.
Forðaðu okkur frá slysum og
hættum og hvers kyns sjúkdómum
og óáran, illindum og leiðindum.
Hjálpaðu okkur að létta lundina svo
brúnin lyftist svo brosið hlýja og
bjarta komist að. Brosið sem bræðir
hjörtun. Gef að það mætti svo smit-
ast frá hjarta til hjarta og við ná að
upplifa fegurð og tilgang lífsins.
Gef okkur að lifa alla daga allan
ársins hring með vorið vistað í sál-
inni, sólina og eilíft sumar í hjarta.
Því hamingjan felst í því að vera
með himininn í hjartanu.
Guð gefi ykkur öllum gleðilegt
sumar.
Með kærleiks-, samstöðu- og frið-
arkveðju.
– Lifi lífið!
Með vorið
vistað í sálinni
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Guð gefi okkur að
lifa alla daga allan
ársins hring með vorið
vistað í sálinni, sólina og
eilíft sumar í hjarta.
Gleðilegt sumar.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla
útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig
eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er val-
inn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi
hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð
til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100
frá kl. 8-18.
Atvinna