Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 4
20
Um aldamótin reynd-
ist mittismál akur-
eyrskra kvenna 20
sentimetrum meira en
hjá hinum hafnfirsku.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU BREYTTIR RAFBÍLAR
KOMDU OG REYNSLUAKTU 40” BREYTTUM PRUFUAKSTURSBÍL
JEEP WRANGLER RUBICON PLUG-IN HYBRID
ÁRA ÁBYRGÐ
8 ÁRA ÁBYRGÐ Á
DRIFRAFHLÖÐU
PLUG-IN HYBRID
35” BREYTING 40” BREYTING
Fréttaskýring um tíðni offitu
barna á landsbyggðinni í
þættinum Kveik á RÚV fyrr í
vikunni vakti mikil viðbrögð
í samfélaginu. Fréttamaður
RÚV segir umfjöllunarefnið
viðkvæmt vegna fordóma.
bth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Holdafarsfor-
dómar eru einu fordómarnir sem
enn virðast samfélagslega viður-
kenndir, að sögn Brynju Þorgeirs-
dóttur fréttamanns hjá RÚV, sem
vann umtalaða fréttaskýringu fyrir
Kveik í fyrrakvöld. Í þættinum var
fjallað um offitu sem sjúkdóm þar
sem sláandi munur er á landsbyggð-
inni og höfuðborgarsvæðinu hvað
varðar fjölda barna í ofþyngd. Offita
hrjáir nær tíunda hvert grunnskóla-
barn utan höfuðborgarsvæðisins. Æ
fleiri börn leita á Landspítala með
alvarlega fylgikvilla eins og fitulifur,
kæfisvefn og undanfara sykursýki.
Fordómarnir skýra að hluta hve
umfjöllun um holdafar og heilsu er
viðkvæm, að sögn Brynju. „Þetta er
hópur sem hefur orðið fyrir kerfis-
bundinni smánun og fordómum frá
upphafi vega.“
Brynja segir að viðbrögð yfir-
gnæfandi meirihluta haf i að
sýningu þáttarins lokinni verið
jákvæð, enda hafi viðmælendur
þáttarins verið einlægir og tjáð sig
vel. Um neikvæðu viðbrögðin um
samband landsbyggðar og offitu og
efnahag heimila, vísar Brynja í orð
barnalæknis í þættinum um töl-
fræðilega fylgni milli menntunar,
tekna og offitu. En landsbyggðin sé
fjölbreyttari en svo að hægt sé að
setja íbúa hennar undir einn hatt.
„Þessi mál hvetja heilbrigðisyfirvöld
sveitarfélaganna til að skoða hvort
eitthvað sé í samfélagsgerðinni sem
þurfi að breyta og auka þá framboð
á aðstoð,“ segir Brynja.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
rannsóknir sýna mun á holdafari á
höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
Í október 2002 var kynnt rannsókn
á áhættuþáttum hjarta- og æða-
sjúkdóma þar sem mittismál akur-
eyrskra kvenna reyndist 20 senti-
metrum meira en hinna hafnfirsku.
Akureyrskar konur voru að meðal-
tali sex kílóum þyngri en hafnfirsk-
ar konur. Í fréttum sagði þá að konur
á Akureyri væru í meiri áhættu að
fá hjarta- og æðasjúkdóma en kyn-
systur þeirra í Hafnarfirði.
Emil Lárus Sigurðsson, yfir-
læknir heilsugæslunnar á Sólvangi
í Hafnarfirði, sagði í Morgunblaðinu
að niðurstöðurnar hefðu komið
verulega á óvart og velti upp sem
hugsanlegri skýringu hvort kon-
urnar fyrir norðan væru meiri kyrr-
setukonur en kynsystur þeirra fyrir
sunnan. Rannsóknin vakti reiði og
mikla úlfúð á Akureyri. Sama sagan
virðist hafa endurtekið sig í mörg-
um tilfellum nú, ef marka má tíst
á Twitter og Facebook-færslur um
landsbyggðar- og fátæktarfordóma.
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir,
félagsráðgjafi og formaður Sam-
taka um líkamsvirðingu, segist
hafa saknað þess að fjallað væri í
Kveiksþættinum um þyngdarhlut-
lausa nálgun. Aðeins hafi verið
fjallað um offitu út frá þyngdar-
miðaðri nálgun, einblínt hafi verið
á þyngd sem rót vandans. Betra væri
að nálgast málið út frá heilsuvenjum
og öðru en þyngd. „Þetta var ein-
hliða umfjöllun, sem var synd því
að margra mati er þyngdarhlutlaus
nálgun skaðaminni,“ segir Tara
Margrét, en segir þó að mjög margt
gott hafi komið fram í þættinum.
Tuttugu og þrjú prósent þungaðra
kvenna hafa líkamsþyngdarstuðul
30 eða hærri samkvæmt nýjum
tölum frá landlækni. Hefur hlut-
fallið hækkað frá árinu 2016 þegar
hann var 19 prósent. Embættið segir
að ef stuðullinn mælist 30 eða hærri
séu auknar líkur á ýmsum vanda-
málum á meðgöngu hjá konum, svo
sem meðgöngusykursýki, háþrýst-
ingi, meðgöngueitrun, blóðtappa,
þungbura og vaxtarseinkun í lok
meðgöngu og fósturdauða. Auk þess
séu meðfæddir sköpulagsgallar og
fósturlát algengari hjá þessum hópi
kvenna. ■
Tölfræðin svari gagnrýni á efnistök
Kveiks um offitu á landsbyggðinni
Viðkvæmt er að fjalla um offitu sem sjúkdóm og heilbrigðismál vegna for-
dóma í samfélaginu. FRÉTTALBAÐIÐ/GETTY
Brynja
Þorgeirsdóttir,
fréttamaður
hjá RÚV
ingunnlara@frettabladid.is
DÓMSMÁL Blómasalarnir Mosad
Badr Abdel Salam Mansour og
Kristín Jónsdóttir eru ákærð fyrir
að hafa veitt tollyfirvöldum rangar
og villandi upplýsingar í tengslum
við innflutning á blómum.
Háttsemi Mosad og Kristínar laut
samkvæmt ákærunni aðallega að
smygli á afskornum rósum og blönd-
uðum blómvöndum. Þau eru sögð
hafa skotið rúmum 5,7 milljónum
undan álagningu aðflutningsgjalda,
vegna fjögurra sendinga. Nánar er
fjallað um málið á frettabladid.is. ■
Saka blómasala
um undanskot
benediktboas@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Verkalýðsfélagið Hlíf
hefur sent Hafnarfjarðarbæ bréf
vegna grafalvarlegrar stöðu sem ríki
á leikskólum bæjarins. Illa gengur að
manna skólana, veikindi eru algeng
og skemmri fjarvistir eru tíðar vegna
veikinda. Mörg dæmi séu um að fólk
sem hafi unnið árum saman í Hafn-
arfirði hafi farið til starfa í öðrum
sveitafélögum. Bréfið var tekið fyrir
á fundi bæjarráðs í gær.
Í meira en ár hefur Verkalýðs-
félagið fundað með bæjarstjóra og
embættismönnum vegna f lótta
starfsmanna en á þeim fundum
hefur verið farið yfir að samanburð-
ur kjara við nágrannasveitafélögin
sé óhagstæður. Meðal annars vegna
þess að nágrannasveitarfélögin
greiði starfsmönnum fyrir að sitja
í mat með börnunum. Þetta hafi
verið í bænum áður fyrr, en verið
tekið af vegna efnahagshrunsins og
ekki breytt til baka.
Undirmönnun bitni á starfsfólki
sem þurfi sífellt að hlaupa hraðar.
Það bitni á gæðum og heilsu starfs-
fólks, segir í bréfinu. Mörg dæmi séu
um að loka þurfi deildum og senda
börn heim vegna undirmönnunar.
Fleiri dæmi eru um að átt hafi að
loka en það ekki verið gert – sem sé
alvarlegt því slíkt geti ógnað öryggi
barna og starfsfólks. Bent er á að
þolinmæði sé á þrotum. Nauðsyn-
legt sé að bregðast við strax og ekki
bíða fjárhagsáætlunar næsta árs. ■
Bréf Hlífar um leikskólamál í Hafnarfirði sýnir dökkt ástand
Alvarleg staða
er í leikskóla-
málum í Hafnar-
firði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
urduryrr@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Drífa Snæ dal, for-
seti ASÍ, segir ákvörðun Seðla-
bankans um að hækka stýrivexti
um 0,25 prósent setja kastljósið á
rót vandans í ís lensku efnahagslífi,
ó stöðugan hús næðis markað.
„Það er ekki nóg fram boð og
það þarf að koma ein hvern veginn
böndum og reglum á hús næðis-
markaðinn,“ segir Drífa. „Á meðan
það er ekki gert þá lifum við í þessu
ó stöðuga um hverfi þar sem hús-
næðis verð þenst upp.“ ■
Komi böndum á
húsnæðismarkað
Drífa Snædal,
forseti ASÍ
4 Fréttir 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ