Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 6
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths
þarf aðstoð Facebook til að
kaupa bensín í London og
kaupir í matinn á netinu. Ný
könnun YouGov sýnir að yfir
helmingur Breta er óánægður
með hvernig Brexit hefur
gengið.
thorvardur@frettabladid.is
BRETLAND Meirihluti Breta telur
að útganga Bretlands úr Evrópu-
sambandinu um áramótin hafi
ekki tekist vel. Þetta kemur fram í
nýrri könnun YouGov en kosið var
um útgönguna sumarið 2016. Þótti
einungis 18 prósentum svarenda
Brexit hafa gengið vel eða afar vel.
Samkvæmt könnun YouGov í júní
voru 38 prósent svarenda sátt.
Frá júní hefur þeim sem ósátt
eru við stöðuna eftir Brexit fjölgað
um 15 prósent. Nú segja 53 prósent
Brexit hafa tekist illa, þar af segja 32
prósent að hún hafi tekist afar illa.
Þá telja 21 prósent að útgangan hafi
hvorki gengið vel né illa og átta pró-
sent vissu það ekki.
Undanfarið hefur gætt vöru-
skorts á Englandi, einkum á elds-
neyti í London og í suðausturhluta
landsins. Breski herinn hefur verið
kallaður til og aðstoðað við elds-
neytisf lutninga. Sömuleiðis hafa
viðskiptavinir oft gengið fram á
tómlegar hillur í verslunum.
Skortur er á vörubílstjórum í Bret-
landi, en er landið var enn í sam-
bandinu sinntu bílstjórar frá megin-
landinu einkum slíkum störfum.
Nú þurfa þeir vegabréfs áritun til
þess, en stjórnvöld hafa tilkynnt að
5.500 erlendir bílstjórar fái tíma-
bundið starfsleyfi í Bretlandi.
Í nýrri könnun Byline Times
sögðu 74 prósent svarenda að
Brexit væri ástæða skorts á vörubíl-
stjórum. Einungis 13 prósent töldu
að fyrir því væru aðrar ástæður.
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, tón-
listarkona og kennari við Guildhall
School of Music & Drama, er búsett
í suðausturhluta London ásamt
eiginmanni sínum og börnum. Hún
segir að ástandið hafi ekki fram hjá
sér, einkum þar sem þau búi í næstu
götu við bensínstöð. Þau reyni að
nota fjölskyldubílinn sem minnst.
„Bensínskor tur inn er mjög
áberandi. Við heyrum kór af bíl-
flautum, við vitum alltaf þegar það
er til bensín þar því þá kemur bíl-
flautukórinn í hverfið. Það myndast
röð upp alla götuna og fólk situr þar.
Ferlið við það að kaupa bensín er
þannig að fyrst setur maður póst
inn á Facebook-hóp fyrir það svæði
sem maður býr og spyr samfélagið
hvort einhver viti hvar sé bensín.
Þá fær maður skilaboð um hvar það
sé fáanlegt og hve löng bið sé eftir
bensíni. Svo fer maður af stað.“
Sigrún hefur minna orðið vör
við vöruskort í matvöruverslunum
í hverfinu. Fjölskyldan kaupi aðal-
lega inn í gegnum netið en listinn
yfir þær vörur sem ekki eru í boði
þar hafi lengst mikið að undan-
förnu. Hlutir sem voru áður hefð-
bundinn hluti af innkaupum hafi
oft og tíðum ekki verið fáanlegir svo
vikum skiptir.
„Þetta er búið að vera hægfara
bílslys síðan 2016,“ segir Sigrún um
ástandið. Sú staða sem nú sé uppi sé
nákvæmlega sú staða sem andstæð-
ingar hafi varað við í aðdraganda
Brexit-kosninganna 2016. „Brexit-
liðar eru að segja að þetta sé ekki
það Brexit sem við kusum. Það sem
hinir segja er að ykkar Brexit var
aldrei til, það var fantasía. Það var
aldrei raunveruleikinn, þið voruð
aldrei að fara að fá það.“ n
Óánægja með Brexit fer enn vaxandi
Óvirkar eldsneytisdælur á bensínstöð í London enda ekkert eldsneyti að hafa þar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
græn matvælaframleiðsla
Orka, tækni og
dass af snjallræði
Með hátæknilausnum getum við framleitt matvæli
á umhversvænan hátt, skapað spennandi störf
og nýtt orkuna okkar betur en nokkru sinni fyrr.
landsvirkjun.is/framtidin
Notendur Twitch voru berskjaldaðir.
hjorvaro@frettabladid.is
TÆKNI Gríðarlegt magn gagna lak
frá streymisþjónustunni Twitch og
tölvuþrjótar komust yfir trúnaðar-
upplýsingar fyrirtækja og fjárhags-
upplýsingar notenda þjónustunar.
Meira en 100 gígabæt af gögnum
notenda Twitch birtust á vefnum.
Þar segir að þeir sem nota Twitch
mest hafi þénað milljónir dollara
síðustu tvö ár, á því að nota veituna.
Fortnite-spilarar staðfestu við
BBC að upplýsingar sem fram komu
um þá í lekanum væru réttar. Í yfir-
lýsingu Twitch sem birt var á Twitt-
er staðfesti fyrirtækið lekann. n
Mikill gagnaleki
varð hjá Twitch
Við heyrum kór af
bílflautum, við vitum
alltaf þegar það er til
bensín þar því þá
kemur bílflautukórinn
í hverfið.
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths
hjorvaro@frettabladid.is
FÆREYJAR Frumvarp hefur verið
lagt fram á færeyska þinginu sem
takmarkar eignarhald erlendra ein-
staklinga og aðila á fasteignum.
Verði lögin samþykkt þurfa ein-
staklingar, búsettir utan Færeyja,
leyfi ráðherra til fasteignakaupa.
Lögin munu ekki ná til þeirra sem
hafa búið í Færeyjum eða ann-
ars staðar í Danaveldi í fimm ár. Í
greinargerð segir að Íslendingar
muni áfram njóta sömu réttinda og
Færeyingar við fasteignakaup. n
Spyrna fótum við
kaupum að utan
hjorvaro@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL M i k i lvæg u r
áfangi hefur náðst í baráttunni við
hinn illvíga sjúkdóm malaríu, sem
leggst aðallega á börn og ungbörn.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, hefur veitt samþykki fyrir
notkun bóluefnis gegn malaríu smiti
á stærra svæði í Afríku en áður hefur
verið gert.
Sýnt var fram á virkni bólu-
efnisins RTS, S gegn malaríusmiti
á rannsóknarstofu fyrir sex árum
síðan, en það var breska fyrirtækið
GlaxoSmith sem þróaði það og
framleiddi. Bóluefnið hefur verið
prófað undanfarin ár á um það bil
800.000 börnum í Gana, Kenýa og
Malaví. WHO hefur nú veitt sam-
þykki fyrir því að að bólusetja börn
sunnan Sahara og á öðrum svæðum
Afríku.
Doktor Tedros Adhanom Ghe-
breyesus, framkvæmdastjóri WHO,
segir þetta sögulega og langþráða
stund og bólusetning gegn malaríu
fyrir börn sé bylting fyrir læknavís-
indin og heilsu barna. „Bólusetning
með þessu bóluefni getur bjargað
tugum þúsunda barna á hverju ári,“
segir hann.
Bóluefnið virðist veita 39 pró-
senta vörn gegn malaríusmiti og
29 prósenta vörn gegn alvarlegum
malaríueinkennum hjá börnum.
Þá sé vörnin umtalsvert meiri sé
bóluefnið notað samhliða öðrum
malaríu lyfjum. n
Sögulegur áfangi hefur náðst í baráttunni við malaríu
TIl stendur að bólusetja gegn malar-
íu um alla Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bólusetning með þessu
bóluefni getur bjargað
tugum þúsunda barna
á hverju ári.
Doktor Tedros Adhanom
Ghebreyeos, framkvæmdastjóri
WHO
6 Fréttir 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ