Fréttablaðið - 07.10.2021, Síða 18

Fréttablaðið - 07.10.2021, Síða 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ég var sein af stað á skáldaveginn og þorði ekki að vera listamaður fyrr en ég var komin yfir þrítugt. Mig hafði lengi langað til að skrifa og ákvað að standa með draumn- um og skráði mig í ritlistarnám. Eftir það byrjaði boltinn að rúlla. Fyrsta bókin mín, smásagnasafn- ið Keisaramörgæsir, kom út 2018. Núna kemur mín önnur eigin bók, Tanntaka, út og er það ljóðabók,“ segir Þórdís Helgadóttir. Þórdís er ein Svikaskálda, en hópinn skipa sex skáldkonur. „Við höfum gefið út þrjár ljóðabækur og kom fyrsta skáldsagan okkar, Olía, út í gær hjá Forlaginu.“ Grensan á milli Allajafna vinnur Þórdís á mörkum hins raunverulega og óraunveru- lega. „Árið 2019 var ég ráðin sem leikskáld Borgarleikhússins. Ég samdi verk sem átti að sýna í fyrra, en vegna faraldursins á það enn eftir að birtast á fjölunum. Verkið er eins konar absúrd, hryll- ingsdrama um kynslóðir, áföll, mæður, dætur og allt þar á milli. Þetta hefur verið ákveðið þema hjá mér upp á síðkastið. Ég er algerlega gagntekin af mannlegri hegðun sem stýrist af óheilbrigð- um viðbrögðum við alls kyns tilfinningum, sárum og áföllum. Ég hef gaman af þessu skrítna, að taka eitthvað skrítið, skrúfa upp í því og leika mér með það. Mér finnst gaman að vera á grensunni á milli veruleika, raunsæis og fantasíu og sýna hvernig það sem við teljum eðlilega hegðun getur verið svo absúrd og klikkað. Ég sé það hjá sjálfri mér og fólkinu í kringum mig. Við verðum fyrir áföllum og fólk virðist vera með alls konar undarlega mekanisma til þess að forðast að vinna úr hlutunum og tilfinningum. Við- brögð fólks geta verið svo skrítin og mér finnst gaman að skoða húmorinn í því hvað við erum öll skrítin og asnaleg.“ Hryllingur og fegurð Ljóðabókin Tanntaka segir Þórdís að sé pæling um þroska, um það að fullorðnast og vera í stöðugri umbreytingu og að fara á milli hlutverka. Þá skoðar hún móður- hlutverkið í áhugaverðu ljósi. „Þetta fjallar ekki bara um að vera mamma, en hlutverkið sjálft er svo djúsí. Það er eitthvað svo líkam- legt og existensíalískt og fullt af líkamshryllingi. Hlutverkið er ríkt af alls konar myndhverfingum eins og að skipta um ham, sem getur bæði verið fallegt en líka frekar ógeðslegt. Verkið er pínu hrátt og mér finnst mjög uggandi að vera ljóð- skáld. Það er eitthvað mjög per- sónulegt við að gefa út ljóðabók og öðruvísi en að gefa út sögur. Ég er mun spéhræddari við að vera ljóðskáld en smásagnahöfundur, því í ljóðunum er ekki hægt að fela sig á bak við sögurnar.“ Samunnið skáldverk Olía er sérstakt verk í íslenskri bókmenntasögu enda unnið af sex höfundum. „Svikaskáld hafa starfað frá 2017. Við höfum gefið út bækur saman, haldið nám- skeið og alls konar. Þetta er frábær félagsskapur og það er ótrúlega skemmtilegt og gefandi að glíma við það að skapa saman. Bók- menntir hafa lengi haft orð á sér að vera einmanalegt listform ef við berum þær saman við önnur listform eins og dans eða leiklist. En þær þurfa ekki að vera það. Það er í raun ekkert sem segir að bókmenntir þurfi að vera ein- manalegar. Ekkert nema hefðin kannski.“ Olía er fyrsta skáldsaga Svika- skálda og vonandi ekki sú síðasta. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria @frettabladid.is Kjólinn fann Þórdís í verslun í Haarlem í Hol- landi og jakkinn er um tíu ára gamall ullarjakki úr Zöru. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Þennan róman- tíska blómakjól keypti Þórdís í Gallerí 17 fyrir útgáfuhóf Tann- töku. „Ég ákvað að fara alla leið í rómantíkina áður en ég yrði endanlega miðaldra. Svo skellti ég lifandi orkídeu í hárið.“ „Fyrst bjuggum við til persónurn- ar og svo skrifuðum við verkið. Persónurnar eru ólíkar týpur á ólíkum aldri. Þær eiga það þó allar sameiginlegt að vera „erfiðar konur“ í togstreitu við samfélagið og hlutverkin sem þeim eru ætluð. En það er samt engin önnur leið fyrir þessar konur að vera, en að vera erfiðar, í þeim aðstæðum sem þær lenda í og í þessu karllæga samfélagi. Hver okkar skapaði eina persónu. Svo f léttast líf þeirra saman í bókinni. Við unnum verkið út frá baráttu kvennanna við sjálfar sig, hverja aðra eða jörðina.“ Ný verkfæri Þórdís hefur komið víða við í bókmenntaheiminum og vinnur í ýmsa miðla. „Mér þykir gaman að fara á milli og prófa nýja miðla. Það er ólíkt að skrifa ljóð eða skáldsögu heldur en að vinna í leikhúsinu eða annað. Auðvitað er það krefjandi að læra sífellt á ný og ný verkfæri. Þegar þú lærir á nýtt form vantar svo stóran hluta af gömlu verkfærunum, en það má ýmislegt nota á milli miðla. Svo lærir maður alltaf eitthvað nýtt og getur haft með sér á milli forma.“ Þrátt fyrir að vinna í mörgum miðlum býr Þórdís yfir einkenn- andi höfundarrödd sem hefur vakið athygli víða í bókmennta- samfélaginu. „Ég nota innsæið mjög mikið við sköpunina. Áður en ég fór í ritlist var ég mjög greinandi og sótti í heimspekina. Einn daginn á fyrstu önn- inni minni í ritlistinni þá fattaði ég hvernig ég á að skrifa. Soffía Bjarnadóttir rithöfundur kenndi okkur að kafa í drauma og dag- drauma og nota sem innblástur. Þarna fann ég tækni sem fun- keraði til þess að komast fram hjá öllum hindrunum og stíf lum. Ég nota ákveðna tækni í byrjun til þess að loka á lætin í hausnum á mér og setja í samhengi. Fyrst opna ég autt skjal í tölvunni og byrja að skrifa eitthvað út í loftið. Fyrir mig virkar það ekki að setjast niður til þess að skrifa eitthvað ákveðið. Ég verð að fara öfuga leið að skáldskapnum. Þá kemur þetta. Þetta er eina leiðin sem ég kann. Ég er samt enn undir mjög miklum áhrifum frá heimspekinni. Greinandinn í mér kemur svo aftur inn í ferlið þegar ég vinn sögurnar eða ljóðin áfram.“ Höfundarstíll og fataeinkenni Þórdís hefur gaman af því að klæða sig upp og segist vera með veikan blett í hjartanu fyrir öllu sem er rómantískt. „Mér finnst mjög gaman að klæða mig upp á og elska að hafa tilefni til þess að fara í bleika pelsinn eða fína kjólinn. Á sama tíma er ég samt oftast hrædd við að vera „overdressed“ eða of fín. Ég er alger sökker fyrir öllu sem er rómantískt, pífum, blúndum, og finnst æðislegt að vera með lif- andi blóm í hárinu. En það er ekki alltaf praktískt og rómantíkin þarf eitthvert mótvægi. Það þarf líka að vera eitthvað töff finnst mér. Ég var svo hissa þegar vinir mínir sögðu eitt sinn við mig að ég væri með svo flottan og skýran fatastíl, því ég hef alltaf öfundað fólk sem er með augljósan stíl. Svona týpur sem eru kannski alltaf í svörtum rúllukraga og ógeðslega töff. Ég ímynda mér að þetta fólk hljóti að vera með allt á hreinu og hef oft fantaserað um að nú ætli ég að verða þessi týpa. Ég klippi á mér hárið og fer í svartan rúllukraga, en svo koma bara dagar þar sem maður getur bara alls ekki verið í svörtum rúllukragabol. Ég á rosa- lega erfitt með að skuldbinda mig við einn stíl. Mér finnst þetta fólk sjúklega kúl en ég gæti bara aldrei verið svona stílhrein. En það er kannski eins með fata- stíl og höfundareinkenni? Kannski er erfitt að fatta það sjálfur að maður sé að gera eitthvað ákveðið fyrr en einhver bendir manni á það. Ég er auðvitað bara ómeðvitað að elta uppi það sem heillar mig og mér finnst fallegt og það kemur auðvitað fram hjá mér í fatastíln- um jafnt sem og í skrifunum.“ Tískuvagnar „Ég viðurkenni að ég er frekar illa að mér í tískunni. Mér finnst gaman að skoða Vogue en ég hef ekki efni á að kaupa fötin þar. Hér heima dýrka ég Yeoman- fatamerkið. En það er kannski orðið eins og Múmínbollinn fyrir ákveðinn samfélagshóp. Svo er ég mjög skotin í fatahönnuðinum Andreu í Hafnarfirði. Hún er með geggjaða kjóla og það er dálítil rómantík í henni. Ég er þó alger sökker fyrir öllu nýju. Ég fylgist ekki jafn vel með og þegar ég var yngri. Kannski þarf maður að vera ákveðið ungur til að vera með allt á hreinu í tískunni. Núna er ég tveggja barna móðir og farin að róast. Ég er samt frekar íslensk í nýjungagirninni og hoppa stundum á einhverja tískuvagna. Núna er ég til dæmis rosalega veik fyrir pastellitum og er oft í pastel alklæðnaði. Áður klæddi ég mig þó aldrei í pastel. Tískuvagnarnir passa mér misvel, og ég man alveg eftir vafasömum ákvörðunum eins og ofplokk- uðum augabrúnum og slíku. Ég held að eftir því sem maður eldist þá læri maður betur á sig.“ Sumar flíkur búa yfir galdri Þórdís segir að hún hafi nýlega tekið Marie Kondo-aðferðina á fataskápinn. „Ég er ekkert rosa- lega klár í að kaupa mér föt. Ég á alltaf nokkrar f líkur sem eru uppáhalds. Svo á ég slatta sem ég hélt að virkuðu í búðinni en nota aldrei. Núna er ég dugleg að pakka f líkunum niður sem ég nota aldrei og vera bara með geggjuðu fötin uppi. Ég á mér stundum uppá- haldsflíkur sem ég geng í þar til þær detta í sundur. Núna syrgi ég samfesting sem ég keypti í Dublin fyrir þremur árum en er nú að detta í sundur. Sumar f líkur eru með einhvern galdur, þær passa svo fullkomlega á mann og gera eitthvað fyrir mann, að það verður erfitt að láta þær frá sér.“ ■ 2 kynningarblað A L LT 7. október 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.