Fréttablaðið - 07.10.2021, Page 40
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Ég er kominn á þá skoðun að
40 stunda vinnuvika sé svik við
manneskjuna, það er brjálæði að
vinna átta tíma á dag, fimm daga
vikunnar og sitja uppi með tvo
daga þar sem við erum krafin um
að hlúa að okkur, sinna áhuga-
málum, rækta sambönd, hvílast,
heimsækja ömmu, fara í bústað,
kíkja á tónleika eða í leikhús, sitja á
kaffihúsi, drekka okkur full, borða
þynnkumat og horfa á Squid Game
eins og það leggur sig til þess að
vera umræðuhæf á kaffistofunni.
Síðan þarf líka að horfa á Silfrið,
mótmæla spillingu, fara í kaffi
til mömmu og pabba þar sem er
bannað að tala um pólitík af því að
við (lesist ég, Stefán Ingvar) erum
svo ósammála bróður okkar. Fara
fínt út að borða með Hófí kærust-
unni okkar (ok, þetta er kannski
minna almennt en ég sá fyrir mér),
skipuleggja ferðir til útlanda, ræða
barneignir og endurfjármögnun
og uppgreiðslugjald og James Bond
myndina og heimsækja tengdó
vestur í Súgandafjörð.
Skúra, skrúbba og bóna, þvo
þvott, elda mat, velja hillu inn í
stofu, setja hilluna saman, fá lánuð
verkfæri frá Alberti, drekka kaffi
með honum og Gígju, djóka eitt-
hvað í börnunum þeirra, reyna að
hengja hilluna upp, fá Albert til
þess af því að við erum svo óverkleg
og fá lánaðan bíl til þess að fara
með gömlu hilluna í Góða hirðinn.
Í vinnunni minni þarf ég að
senda tölvupósta, búa til kostnað-
aráætlun – kannski mánaðarlega,
skrifa brandara og segja brandara.
Í vinnunni er ég með fimm verkliði
en í einkalífinu eru þeir allavega
þrjátíu. Eðlilegt fyrirkomulag væri
að vinna tvo daga og sinna sjálfum
okkur í fimm. Hvernig útfærum við
það? Ekki. Hugmynd. Það kemur
mér ekki við en ég er viss um að
hagfræðingar Samtaka atvinnu-
lífsins og verkalýðsfélaganna gætu
komist að einhverri málamiðlun. n
Halda áfram
nova.is
Forskráning
í fullum gangi!
Sjö, níu, þrettán
Vertu með þeim fyrstu sem næla sér í iPhone 13, smelltu þér á
forskráningarlista á nova.is og við látum þig vita þegar græjan
lendir hjá Nova!