Morgunblaðið - 03.05.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 3. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 103. tölublað . 109. árgangur .
HEFUR HELGAÐ
SIG JAFNRÉTTIS-
BARÁTTUNNI
ÞÆGILEG
FJARA
LAUGAVEGUR-
INN ER
EINSTÖK LEIÐ
HÆSTÁNÆGÐIR MEÐ
NÝJU PLÖTUNA 29 ÁRBÓK FERÐAFÉLAGSINS 11KRISTÍN SJÖTUG Í DAG 24
„Stundum þegar þessi hegðun kem-
ur fram er það merki um að fari að
líða að goslokum en við höfum ekki
þessa reynslu af hraungosum áður,“
segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræð-
ingur og prófessor emeritus.
Um miðnætti aðfaranótt sunnu-
dags urðu eðlisbreytingar í gosinu í
Geldingadölum að sögn Páls. Eðlis-
breytingarnar lýsa sér í því að stutt
hlé koma í gosið og þá dettur alveg
niður bæði gasstreymi og kvik-
ustreymi. Aðspurður segir Páll hléin
í gær hafa staðið í allt frá einni mín-
útu og upp í nokkrar mínútur. Í kjöl-
farið komi síðan hrinur sem standa í
allt að 15 mínútur en Páll bendir á að
hrinurnar hafi styst með deginum.
Þannig lengjast goshléin meðan gos-
hrinurnar styttast.
Páll segir að ekki sé beint hægt að
skýra hvað sé í gangi, það sé margt
sem geti leitt til þessa ástands og allt
of snemmt sé að segja til um hvað
það sé nákvæmlega sem valdi þess-
ari eðlisbreytingu.
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur sagði einnig í
samtali við mbl.is í gær að þessi
breytta hegðun gæti verið vísbend-
ing um að farið sé að draga úr gos-
virkninni en benti á að einnig gæti
verið að gosið væri að leita sér að
öðrum stað til að koma upp á yfir-
borðið.
Þá sendu vísindamenn á Veður-
stofunni frá sér tillögu í gær um að
hættusvæðið við gosstöðvarnar
yrði endurmetið vegna breytinga á
gosvirkni. Viðbragðsaðilar á gos-
svæðinu munu funda klukkan níu í
dag vegna þessa.
gunnhildursif@mbl.is »4
Gæti verið merki um að líði að goslokum
- Eðlisbreytingar í Geldingadölum
- Goshlé lengjast og hrinur styttast
Ljósmynd/Sólný Pálsdóttir
Eldgos Gosið í Geldingadölum sýndi sínar fallegustu hliðar aðfaranótt
sunnudags en gosvirknin breyttist mikið um helgina. Stutt hlé koma í gosið.
Elsti sjómaðurinn á Þórshöfn, Óli Þorsteinsson, og yngsti sjómaðurinn, Arnar
Aðalbjörnsson, voru spenntir að komast á haf út. Strandveiðar hófust á mið-
nætti og má áætla að um 700 manns hefji veiðar fyrri hluta maímánaðar. Róa
má fjóra daga vikunnar, alls 12 daga innan hvers mánaðar, frá maí og út ágúst.
Spenntir fyrir fyrsta róðri
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Strandveiðar sumarsins 2021 eru hafnar
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Vél Delta Air Lines lenti á
Keflavíkurflugvelli í gær en það
var fyrsta áætlunarflug félagsins
til Íslands í sumar. Ferðamenn
hafa mikinn áhuga á að koma til
Íslands í sumar og hafa bókanir
tekið að hrúgast inn. Óvenju-
mikil umferð var á Keflavíkur-
flugvelli í gær. Níu vélar komu
til landsins, frá níu mismunandi
löndum.
Erling Aspelund, eigandi Ice-
land Encounter, segir að spreng-
ing hafi orðið í bókunum þegar
ríkisstjórnin tilkynnti að landa-
mærin yrðu opin fyrir bólusett-
um farþegum frá ríkjum utan
Schengen.
Hann segir áhugann meiri en
þau áttu von á í upphafi og hann
hafi strax greint annan tón í
fólki í Bandaríkjunum. Erling
hefur ekki greint mikinn áhuga
frá Evrópu og Asíu enn, en býst
við því að þeir markaðir muni
taka við sér þótt það verði
seinna. Bandaríkin eru komin
einna lengst á veg í bólusetn-
ingum á heimsvísu og virðist það
hafa haft jákvæð áhrif á ferða-
vilja fólks.
Aðspurður hvort eldgosið hafi
haft áhrif á á eftirspurnina segir
Erling að það sé erfitt að greina
það. Eldgosið hafi án efa vakið
meiri athygli á landinu en það sé
meira eins og viðbót við allt það
sem Ísland hefur upp á að bjóða.
„Mér finnst fólk almennt vera
ánægt með hversu vel Íslend-
ingar hafa staðið sig í Covid.
Þær fréttir hafa skilað sér.
Þannig að fólk veit að þetta er
öruggur áfangastaður og góður
staður til að vera á úti í nátt-
úrunni,“ segir Erling.
Frá og með 20. maí mun
Delta fljúga daglega frá Boston
og frá og með 27. maí mun fé-
lagið fljúga daglega frá Minnea-
polis.
Sprenging í
bókunum frá
Bandaríkjunum
- Fyrsta áætlunarflug Delta Air Lines
kom í gær - Stór hluti bólusettur
MEins og skrúfað væri... »4, 14
_ Um þessar
mundir eru að-
eins um 800 íbúð-
ir auglýstar til
sölu á höf-
uðborgarsvæð-
inu og er það um
60% minna en á
sama tímabili í
fyrra.
Halldór Kári
Sigurðarson hag-
fræðingur segir takmarkað fram-
boð, lága vexti, og breytingar á
neyslu í kórónuveirufaraldrinum
skýra mjög stuttan sölutíma íbúða.
Frá því mælingar hófust hefur það
aðeins gerst einu sinni að hærra
hlutfall fasteigna selst yfir ásettu
verði.
Halldór spáir að hækkun fast-
eignaverðs á ársgrundvelli fari upp
í 12-14% en hægi á þróuninni með
haustinu. »12
Markaðurinn leikur
við seljendur
Halldór Kári
Sigurðarson
_ Um 42 þúsund miðar hafa selst á
fimm tónleika sem Sena Live hefur
selt í streymi síðustu mánuði. Það
jafnast á við um það bil 30 stapp-
fullar Eldborgar-hallir. Alls hafa
þessir tónleikar skilað 130 millj-
ónum króna í kassann hjá Senu
Live.
Sala á einstaka dagskrárliði, Pay
Per View, hefur til þessa ekki náð
flugi á Íslandi en kórónuveiru-
faraldurinn og samkomutakmark-
anir breyttu landslaginu. „Við veðj-
uðum á að það væri svo mikill
þorsti hjá fólki í alvöruviðburði að
þetta gæti gengið,“ segir Ísleifur B.
Þórhallsson, framkvæmdastjóri
Senu Live. »6
Miðasalan skilaði
130 milljónum
Vinsæll Björgvin á streymistónleikum.
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri er
bjartsýnn gagnvart því að fyrri hluti sumars
verði góður. Bókanir séu farnar að taka við sér
snemma sumars og það sé merki um bata. Hann
segir fullbratt að segja að ferðasumarið sé hafið
en maímánuður líti vel út. Það er mun fyrr en
flestir gerðu ráð fyrir. „Þetta er alveg klárlega
mjög gott og vonandi að þetta hjálpi Icelandair
að komast af stað með sitt Ameríkuflug,“ segir
Skarphéðinn.
Merki um bata
VÍSBENDINGAR UM GOTT SUMAR
Skarphéðinn Berg
Steinarsson