Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
ári, en þá voru alls 677 bátar með
leyfi sem var aukning um 48 leyfi
milli ára. Flestir voru bátarnir 759
sumarið 2012.
Heimilt er að veiða á tímabilinu
maí, júní, júlí og ágúst á handfæri
allt að 10 þúsund tonn af þorski, þús-
und tonn af ufsa og 100 tonn af gull-
karfa eða samtals 11.100 lestir af ós-
lægðum botnfiski.
Þá er heimilt að veiða 12 daga inn-
an hvers mánaðar, 14 klukkustundir
á sólarhring, en óheimilt er að róa á
strandveiðum föstudaga, laugardaga
og sunnudaga.
kemur fram á vorið. Það hefur ekk-
ert breyst,“ segir Óli. „Já, það kem-
ur alltaf spenna þegar maður er að
byrja,“ segir Arnar.
Arnar hefur verið í kringum sjó-
mennina á bryggjunni frá því hann
var polli. Þetta er hans annað ár á
strandveiðum en hann gerir út á
bátnum Sæúlfi NS 38. Hann hefur
einnig verið á grásleppuveiðum og
verið á sjó hjá Samskipum.
Arnar gerir ráð fyrir að fleiri
muni stunda strandveiðar í sumar
vegna heimsfaraldursins. Svipað
hafi verið uppi á teningnum á síðasta
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Sjómennirnir Óli Þorsteinsson og
Arnar Aðalbjörnsson voru að gera
allt klárt fyrir strandveiðina þegar
fréttaritara Morgunblaðsins, Lín-
eyju Sigurðardóttur, bar að bryggju
á Þórshöfn í gær. Óli er sá elsti sem
gerir út frá Þórshöfn og Arnar sá
yngsti. Óli verður áttræður á árinu
en Arnar varð 25 ára í mars.
Strandveiðar hófust á miðnætti og
er gert ráð fyrir að um 700 manns
hefji veiðar fyrri hluta maímánaðar.
Sex bátar áttu að sigla frá Þórshöfn
á miðnætti, en gerðu þeir Óli og
Arnar ráð fyrir að fleiri myndu bæt-
ast í hópinn þegar líður á mánuðinn.
Óli hefur stundað sjóinn frá því
hann var fjórtán ára gamall og er því
með þó nokkra áratugi undir belt-
inu. Hann gerir út á bátnum Loka
ÞH 52. Þeim sögum fer af Óla að ef
hann finnur ekki fisk, þá sé alls eng-
inn fiskur í sjónum.
„Í fyrra þegar enginn fékk neitt
þá sigldi hann fram hjá mönnum bú-
inn að taka skammtinn og á leiðinni
heim. Og hann er ekkert að nota
tölvur eða neitt. Það er bara tólf míl-
ur frá Fonti og einhver svona land-
mið,“ segir Arnar.
Óli og Arnar voru báðir spenntir
fyrir fyrsta róðrinum. „Það er svo-
lítil spenna sem hleðst upp þegar
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Upphaf Óli Þorsteinsson og Arnar Aðalbjörnsson voru að gera allt klárt við bryggjuna á Þórshöfn í gær.
Sá elsti og sá yngsti
láta úr höfn í dag
- Strandveiðar hófust á miðnætti - 700 manns til veiða
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Sjómenn á Húsavík voru einnig að gera allt klárt fyrir fyrsta dag
strandveiða í gær. Veiðar eru heimilar út ágústmánuð á virkum dögum.
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
„Það skein alveg sérstakur kraft-
ur í gegn hjá öllum og á andlitum
allra þátttakenda svo þetta var al-
veg ógleymanleg stund,“ sagði
Auður Kjartansdóttir en hún
leiddi í gær hóp 126 kvenna sem
gengu til styrktar Lífskrafti á
Hvannadalshnúk eða Kvennadals-
hnúk eins og konurnar kalla hann
af þessu tilefni.
Aldrei áður hafa jafn margar
konur gengið upp á þennan hæsta
tind landsins samtímis, en allar
126 konurnar sem lögðu af stað á
tindinn komust alla leið á toppinn
og gekk gangan að sögn Auðar
mjög vel. Þá mun hafa verið ansi
kalt á toppnum en að sama skapi
segir Auður að veðrið hafi verið
dásamlega bjart og fallegt. Kon-
urnar lögðu af stað um 20 mín-
útur yfir 11 á laugardagskvöldið
og voru komnar á toppinn um sjö-
leytið í gærmorgun.
Auður hefur mikla reynslu af
þessum tindi en í gær fór hún í 79.
skiptið upp á tindinn. „Ég veit
ekki til þess að önnur kona hafi
jafn oft og ég farið á þetta fjall,“
sagði Auður.
Tilefni göngunnar var söfnun
til styrktar nýrri krabbameins-
deild Landspítalans. Soffía Sig-
geirsdóttir leiðangursstjóri segir
söfnunina hafa gengið vel en það
mun koma í ljós í vikunni hversu
miklu konurnar söfnuðu. „Við er-
um bara að vonast eftir krafta-
verki, að við náum að safna góðri
fjárhæð þannig að við náum að
klára þessa uppbyggingu varð-
andi að bæta aðstæðurnar á þess-
ari nýju krabbameinsdeild,“ sagði
Soffía.
Ógleymanleg
stund á Kvenna-
dalshnúk í gær
- 126 konur gengu til styrktar nýrri
krabbameinsdeild Landspítalans
Ljósmynd/Lífskraftur
Kvennadalshnúkur Vaskur hópur
kvenna á Hvannadalshnúk í gær.
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Útlit er fyrir að skemmdarverk hafi
verið framið á Brautryðjandanum,
verki Einars Jónssonar myndhöggv-
ara, að sögn Ölmu Dísar Kristinsdótt-
ur, safnstjóra Listasafns Einars
Jónssonar. Lágmyndin sem hefur
staðið á Austurvelli síðan 1931 situr á
fótstalli styttunnar af Jóni Sigurðs-
syni á Austurvelli og er nú orðin gull-
lituð. Líklega er um sprey að ræða en
að sögn Ölmu Dísar verður að skoða
það betur með aðstoð forvarða. „Hér
er að minnsta kosti ekki um eðlilegt
viðhald á listaverki að ræða og hvorki
Listasafn Einars Jónssonar né um-
sjónaraðilar listaverka í borgarlands-
lagi hafa stofnað til þessarar ásýndar
á verkinu en verið er að vinna í að
leysa málið.“
Listasafn Einars Jónssonar hefur
ekki umsjón með listaverkinu. „Þessi
umsjón með útilistaverkum í borginni
virðist stundum lenda á milli skips og
bryggju hvað ábyrgð varðar,“ sagði
Alma. „Þetta verk er á forræði rík-
isins og það skiptir gríðarlega miklu
máli að fjármagn sé veitt til þess að
sinna eðlilegu viðhaldi á útilistaverk-
um yfirleitt og að brugðist sé við á
þann hátt að listaverk verði ekki fyrir
varanlegum skemmdum.“
„Það væri óskandi að fólk hefði
annan stað en útilistaverk til að fá út-
rás fyrir sköpunarþörfina – líklega er
það sameiginlegt úrlausnarefni ríkis
og borgar,“ sagði Alma Dís. Upp-
runalegu útgáfuna af Brautryðjand-
anum má sjá í Listasafni Einars Jóns-
sonar á Skólavörðuholti.
Skemmdarverk á Austurvelli
- Málað yfir Brautryðjandann - Safnstjóri Listasafns Ein-
ars Jónssonar ósáttur og segir að unnið sé að lausn á málinu
Morgunblaðið/sisi
Brautryðjandinn Lágmyndin var mótuð af Einari á árunum 1902-1911.