Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 Snertifletir sem draga úr smitum Kynntu þér nanoSeptic á hreint.is www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Elsa Jónsdóttir og fleiri aðilar sem standa að baki nýrri sköpunarmið- stöð í Gufunesi, sem ber nafnið Fúsk, ætla í sumar að byggja gufu- bað við ströndina í Gufunesi. Borg- arráð Reykjavíkur samþykkti í síð- ustu viku að veita Elsu styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 vegna verk- efnisins. „Það er að rísa svolítið skemmti- leg skapandi byggð þarna í Gufunes- inu,“ segir Elsa og bætir við að fyrst um sinn ætli þau að fá fólk á svæðinu til að hjálpa til við að byggja gufu- baðið og síðan verði þetta staður fyrir þá sem standi að þeim fjöl- mörgu skapandi verkefnum sem eru á svæðinu til þess að kynnast. Snertiflötur fyrir skapandi verkefni „Þannig að það verði í rauninni einhver snertiflötur þarna. Því það eru alveg tugir verkefna þarna núna og allir eru svolítið hver í sínu horni, þannig að þarna hefur þetta fólk tækifæri til að koma saman,“ segir Elsa og bætir við að þegar sköp- unarmiðstöðin verður komin vel á veg þá sé ætlunin að halda þar bæði viðburði og sýningar. Á sama tíma verði gufubaðið opið. „Þá hefur fólk ríkari ástæðu til að koma upp eftir og þá er í rauninni bara meiri dýpt í því sem er að gerast.“ Elsa segir að fyrst um sinn verði byrjað á gufunni en þau séu þó opin fyrir því að gera síðan meira úr svæðinu. Elsa bendir á að Bambahús séu einnig staðsett í Gufunesinu og þau hafi smíðað heita potta úr bömb- um en það eru plastker sem er hent eftir að þau koma til landsins með varning. Elsa segir það þá hugmynd að búa til heita potta úr slíkum bömbum fyrir svæðið til viðbótar við gufuböðin. gunnhildursif@mbl.is Gufunesið fær gufubað í sumar - Verkefnið fékk milljón króna styrk Gufunes Á þessum slóðum verður byggt nýtt gufubað í sumar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Salan á afmælistónleikana var til- tölulega róleg framan af. Við höfð- um þó allan tímann þá trú að þetta myndi koma í lokin og það reynd- ist rétt. Það var alger sprengja í sölu síðustu dagana og á tónleika- daginn sjálfan,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, tónleikahaldari hjá Senu. Sala á 70 ára afmælistónleika Björgvins Hall- dórssonar á dög- unum fór fram úr björtustu von- um tónleikahald- aranna. Tónleik- arnir voru sendir út í streymi og „pay per view“ frá Borgarleik- húsinu og alls seldust um 9.500 miðar á þá. Ætla má að margfalt fleiri hafi horft á tónleikana þar sem aðeins þurfti að kaupa einn miða fyrir hvert heim- ili. Ótrúleg sala síðustu mánuði Eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á með tilheyrandi sam- komutakmörkunum hefur reynst erfitt að bjóða upp á hefðbundnar skemmtanir. Einn af þeim glugg- um sem hafa þó opnast er að selja á stóra tónleika í beinu streymi og óhætt er að segja að þar hafi Ís- leifi og hans fólki tekist vel upp. Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi var tónninn gefinn með ótrú- legri sölu á Jólagesti Björgvins og síðan hafa fleiri fylgt í kjölfarið. Alls hefur Sena selt um 42 þúsund miða á fimm tónleika síðustu mán- uði. Það jafnast á við um það bil 30 stappfullar Eldborgar-hallir og er þá ótalið að fjölmargir áhorfendur geta verið að baki hverjum miða. Einhverju hefur þetta líka skilað í kassann. Samkvæmt lauslegum út- reikningum Morgunblaðsins má ætla að tónleikarnir fimm hafi skil- að um 130 milljónum króna í miða- sölu. Hér er um að ræða beina inn- spýtingu í tónlistargeirann sem hefur verið svo til lamaður í eitt ár og ótal störf sköpuð. Ísleifur segir í samtali við Morg- unblaðið að þróunin hafi verið mögnuð síðustu mánuði. „Það má segja að allt hafi breyst um versl- unarmannahelgina á síðasta ári. Þá voru settar nýjar hömlur á með engum fyrirvara. Fram að því höfðum við líklega, eins og aðrir, verið of bjartsýn, biðum of mikið eftir að ástandið lagaðist og færð- um viðburði of stutt fram. Þarna sáum við að við yrðum að finna nýjar leiðir til að halda viðburði í Covid-inu, þrátt fyrir takmarkanir og við þyrftum í raun að hugsa eins og þær væru komnar til að vera, að minnsta kosti um fyrir- sjáanlega framtíð. Upp úr því bjuggum við til konsept í kringum fjarhátíðir og virtual-ráðstefnur. Úr þessari vinnu fæddist einnig Live from Reykjavík, streym- ishátíð sem kom í stað Iceland Air- waves á síðasta ári og gekk vel. Í framhaldinu fórum við að skoða að halda Jólagesti og senda þá út í streymi.“ Þorsti í alvöruviðburði Hann segir að vilji hafi strax staðið til þess að gera hlutina al- mennilega, nóg hafi verið um að stórstjörnur væru með útsendingar úr eldhúsinu heima hjá sér á nær- buxunum. „Við veðjuðum á að það væri svo mikill þorsti hjá fólki í al- vöru viðburði að þetta gæti gengið. Við veðjuðum líka á að það væri mikið hungur hjá fyrirtækjum að gera eitthvað fyrir starfsfólk sitt. Við vissum auðvitað ekkert hvað myndi gerast en hvort tveggja reyndist rétt.“ Óvissan var mikil. Þó mikil reynsla sé af viðburðahaldi hjá Ís- leifi og hans fólki bendir hann á að sala á einstaka dagskrárliði (Pay Per View) hafi aldrei náð flugi á Íslandi. „Tæknin var til staðar en það vantaði bara rétta viðburðinn eða rétta efnið. Að einhver væri til í að veðja á það að fólk væri til í að borga fyrir alvörutónleika heima í stofu. Við höfðum trú á því að Jólagestir væri kjörinn viðburður í þetta konsept og þá varð viðfangs- efnið að láta þetta ganga upp fjár- hagslega og takmarka áhættuna. Við vildum halda Jólagesti í fullri stærð en miðinn mátti ekki vera of dýr. Salan þurfti því að vera þeim mun meiri en auk þess leituðum við eftir samstarfsaðilum og buðum listamönnum og starfsfólki árang- urstengda samninga, sem allir stukku á og komu á endanum vel út fyrir alla. Miðasalan gekk strax mjög vel, ekki síst hjá fyrirtækjum sem vildu gleðja starfsmenn sína eftir erfitt ár. Ég hugsa að hátt í þriðjungur miðanna hafi verið seld- ur til fyrirtækja og starfsmanna- félaga.“ Margir að baki hverjum miða Ísleifur kveðst telja að það hafi verið ótrúlegt afrek að selja 15 þúsund miða á Jólagesti og er mjög þakklátur fyrir viðtökurnar. Hann er þó sannfærður um að margfalt fleiri en það hafi horft á tónleikana. „Það voru tíu manna samkomuhömlur á þessum tíma en fjölskyldur söfnuðust saman og gerðu sér glaðan dag. Ég myndi áætla að meðalfjöldi áhorfenda að baki hverjum miða hafi verið 4-6. Það gæti þýtt að einhvers staðar á bilinu 60-90 þúsund manns hafi horft á tónleikana. Það er eitthvað alveg nýtt á Íslandi. Til að setja það í samhengi höfum við til þessa verið ánægð með að selja 6-8 þús- und miða á Jólagesti Björgvins.“ Streymið komið til að vera Aðspurður segir Ísleifur að streymistónleikar séu komnir til að vera. Jafnvel þegar samkomutak- mörkunum sleppi verði gott að geta boðið fólki upp á þann val- möguleika. „Það er aldrei uppselt í streymið og þetta verður ný vídd héðan í frá. Ef við fáum einhverju ráðið þá verður boðið upp á streymi auk venjulegrar miðasölu. Það kann að vera flókið varðandi réttindamál þegar kemur að tón- leikum erlendra stórstjarna en við munum að líkindum aldrei halda tónleika á borð við Jólagesti og Dívur aftur án þess að bjóða þá líka í streymi.“ Sneru taflinu við með streymi - Um 42 þúsund miðar hafa selst á fimm tónleika sem Sena Live hefur selt í streymi síðustu mánuði - Fjölmargir áhorfendur að baki hverjum miða - Fólk þyrsti í viðburði eftir samkomutakmarkanir ey Jólagestir Björgvins 15.000 Þorláksmessutónleikar Bubba 11.000 Jólatónleikar Jóhönnu Guðrúnar 2.000 Valentínusartónleikar Bubba 4.000 Afmælistónleikar Björgvins 9.500 42.000 miðar seldir sem jafnast ávið 30 uppselda tónleika í Eldborgarsal Hörpu og hefur miðasalan skilað um 130.000.000 kr. í kassann Miðar hafa selst í 25 löndum Tónleikahaldarar áætla að 60-90 þúsundmanns hafi horft á Jólagesti Björgvins Ísleifur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.