Morgunblaðið - 03.05.2021, Page 10

Morgunblaðið - 03.05.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Ísey útflutnings þar sem rætt er við Ara Edwald forstjóra ummikinn vöxt í umsvifum Ísey útflutnings. Auk þess er rætt við Dr. Björn S. Gunnarsson vöruþróunarstjóra og Ernu Erlendsdóttur markaðsstjóra um sögu skyrs og sölu á erlendummörkuðum. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ Á dagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 Stóraukin umsvif í skyrsölu erlendis Heimsókn til Ísey útflutnings ehf. í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld • MS stofnaði dótturfélag árið 2018 sem tók til starfa sem sjálfstætt starfandi fyrirtæki á síðasta ári • Framleiðsla og útflutningur á skyri víðs vegar um heim • Skyrið er vinsæl vara og hefur náð að skjóta rótum sem vinsæl neysluvara í nágrannalöndum og víðar • Skyrland opnar á Selfossi í sumar þar sem Skyrsafnið verður til húsa Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, var meðal gesta á samkomu í tilefni af 100 ára afmæli Þórðar Tómassonar í Skógum í síðustu viku. Samkoman í Skógasafni var fámenn enda þurfti að gæta að sóttvörnum og passa að ekki kæmu fleiri saman en tuttugu manns. Ingvar Pétur Guðbjörnsson, for- maður stjórnar Skógasafns, bauð gesti velkomna og færði Þórði vatns- litamálað heiðursskjal fyrir ævistarf hans í þágu safnsins og varðveislu ís- lenskrar þjóðmenningar. Heið- ursskjalið var unnið af Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey, ríkulega myndskreytt af munum safnsins þar sem áttæringurinn Pétursey er í öndvegi. Því næst tók Ágúst Sigurðsson formaður Oddafélagsins til máls og flutti Þórði heillaóskir félagsmanna og sæmdi hann fyrsta gullmerki fé- lagsins í heiðurs- og þakklætisskyni fyrir störf sín við söfnun, varðveislu og miðlun menningarminja. Þá flutti Guðni Th. Jóhannesson forseti Ís- lands Þórði fagrar kveðjur fyrir störf hans og færði honum þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Blóm frá forsætisráðherra Margrét Hallgrímsdóttir þjóð- minjavörður færði Þórði blómvönd frá forsætisráðherra og safninu veg- lega bókagjöf í tilefni af afmælinu og kveðjur frá starfsfólki Þjóðminja- safnsins. Þórður tók að lokum sjálfur til máls og fjallaði um köllun sína í líf- inu til að láta á sér kræla við björgun fornrar menningar frá eyðingu og ævistarf sitt í þágu íslensku þjóð- arinnar. Að því loknu afhenti Þórður forsetanum áritað eintak af nýjustu bók sinni um Stóruborg undir Eyja- fjöllum og gestum var boðið að þiggja kaffiveitingar í Samgöngu- safninu. Þar tók Þór Magnússon fyrrum þjóðminjavörður til máls og sagði frá kynnum sínum af Þórði og vináttu þeirra í gegnum áratugina. Tímamót Í ræðu sinni á samkomunni fjallaði Þórður um köllun sína í lífinu til að láta á sér kræla við björgun fornrar menningar frá eyðingu. Þakkir Guðni Th. Jóhannesson færði Þórði þakkir frá íslensku þjóðinni. Þórður afhenti Guðna í kjölfarið áritað eintak af nýjustu bók sinni. Heiður Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður færði Þórði blómvönd frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra auk veglegrar bókagjafar. Forsetinn færði Þórði fagra kveðju - Samkoma í tilefni 100 ára afmælis Kolbrún Bald- ursdóttir, borg- arfulltrúi Flokks fólksins, leggur til að borgin bjóði foreldrum barna og starfs- fólks Reykjavík- urborgar sál- fræðiaðstoð vegna Covid-19- smita í leik- skólum. Er sálfræðiaðstoðin hugs- uð fyrir foreldra þeirra barna sem hafa smitast en einnig er lagt til að hugað verði sérstaklega að þeim börnum sem smitast hafa af Co- vid-19 og þeim sé boðin sálfræðiað- stoð telji foreldrar þörf á. Í tillög- unni, sem lögð verður fram í borgarstjórn á morgun, segir að foreldrar barna sem hafa greinst hafi án efa fengið áfall og fundið fyrir miklum ótta en sama má ætla að gerist hjá starfsfólki. „Það er brýnt að foreldrum og starfsfólki standi til boða sálfræðiaðstoð,“ seg- ir hún. Leggur til sálfræði- aðstoð vegna smita Kolbrún Baldursdóttir Sala nýrra fólksbíla í apríl jókst um tæp 110% miðað við apríl í fyrra. Nýir fólksbílar á skrá voru 781 en á síðasta ári voru 372 bílar skráðir í sama mánuði. Í ár hafa 2.870 nýir fólksbílar selst, samanborið við 2.853 á síð- asta ári. Sala á fyrstu fjórum mán- uðum ársins hefur aukist um 0,6% milli ára. Nýorkubílar eru 65,6% allra seldra nýrra fólksbíla á árinu en þetta hlutfall var 61% í fyrra. Í apríl var mest selda tegundin KIA, með 149 selda fólksbíla. Sala bíla jókst um 110% í apríl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.