Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 Í fyrri grein minni um þetta efni var fjallað um tekjuþróun og tekjusamsetningu þeirra landsmanna sem orðnir eru 67 ára. Þar kom m.a. fram að landsmenn eru nú að afla sér meiri lífeyr- isréttinda en þeir sem eldri eru og að það mun hafa áhrif á tekjuþróun til fram- tíðar. Fram kom að þeim sem ein- ungis njóta lífeyris úr lífeyr- issjóðum hefur fjölgað meðan þeim sem einungis þurfa að treysta á líf- eyri frá Tryggingastofnun hefur fækkað. Enn þá er stærsti hóp- urinn þeir sem fá lífeyri bæði frá lífeyrissjóði og Tryggingastofnun en fjöldinn hefur nær staðið í stað á undanförnum árum. En hvar standa eldri borgarar á Íslandi gagnvart öðrum lands- mönnum í tekjulegu tilliti? Skatt- urinn birtir tölur um dreifingu ein- staklinga niður á tekjutíundir. Tekjur landsmanna eru að sjálf- sögðu mjög mismunandi, þótt tekjudreifing Íslendinga sé minni en í flestum öðrum löndum. Mælt með Gini-stuðli, sem er einn mest notaði staki mælikvarði á ójöfnuð tekna, var Ísland í fjórða sæti OECD-landa árið 20171. Tekjur eru mismunandi eftir aldri og gögn Skattsins ná til allra framteljenda frá 16 ára aldri. Það hefur áhrif á tekjudreifinguna að 85% af 16 ára framteljendum og yfir 8.000 fram- teljendur 18 ára og yngri eru í neðstu tekjutíundinni, margir með litlar sem engar tekjur. Þetta verð- ur að hafa í huga við mat á þeim tölum sem hér eru til umræðu. Væri tekjudreifing landsmanna jöfn eftir aldri ættu 30% allra ald- urshópa að vera með tekjur í neðstu þremur tíundunum, 30% í þremur efstu og 40% þar á milli. Skilin á milli eru sýnd með bláum strikum á mynd 1. Af eldra fólki er það einungis í hópi 85 ára og eldri þar sem hlutfall í neðstu þremur tíund- unum er hærra en 30%. Aftur á móti er einungis tíundi hluti allra eldri en 75 ára í efstu þremur tíund- unum. Af þessum töl- um má sjá að mikill meirihluti sjötugra og eldri eru með tekjur sem raða þeim um miðbik tekjudreif- ingar allra lands- manna. Ef neðsta tekjutí- undin er athuguð sérstaklega þá er mikill meirihluti þeirra sem þar eru ungir að árum eins og áður er komið fram. Innan við 2.300 manns sem eldri eru en 70 ára teljast vera í neðstu tíund, 7,3% af þeim sem þar eru og 5,8% af framtelj- endum sem eru eldri en 70 ára. Það er einungis í elsta hópnum, 85 ára og eldri, þar sem hlutfall fólks í neðstu tíund er umtalsvert hærra en hjá meginþorra landsmanna. Tæplega 12% 85 ára og eldri telj- ast í neðstu tíund, sama hlutfall og gildir um þá sem eru 25-29 ára og mun lægra en það er hjá þeim sem eru yngri en það. Á mynd 2 sést að nokkur munur er á milli kynjanna þótt heild- armyndin sé keimlík. Hærra hlut- fall kvenna en karla í neðstu þrem- ur tíundunum endurspeglar lægri tekjur og atvinnuþátttöku kvenna en karla meðan þær voru á vinnu- aldri. Þessar upplýsingar sýna að tekjudreifing eldri borgara á Ís- landi er ekki ýkjafrábrugðin því sem gildir um aðra fullorðna íbúa landsins ef þeir sem eldri eru en 85 ára eru undanskildir. Hjá þeim hópi fer saman að söfnun lífeyr- isréttinda þeirra var ekki sam- bærileg yfir stærri hluta ávinnslu- tíma lífeyris en gildir hjá þeim sem á eftir komu og svo hitt að at- vinnuþátttaka kvenna var lægri en hún síðar varð. Fróðlegt er að bera kjör eldri borgara hér á landi saman við jafnaldra þeirra í nágrannalönd- unum2. Þegar þeir eru skoðaðir sem eru 75 ára og eldri er sérstaða Ís- lands augljós. Viðmiðið er 60% af miðgildi tekna á einstakling að teknu tilliti til millifærslutekna. Þeir sem hafa minni tekjur en það eru taldir vera í áhættu varðandi fátækt. Hlutfallið var lægst á Ís- landi, 2,6%. Til samanburðar var það 12,7% í Noregi, 15,8% í Dan- mörku, 19,9% í Svíþjóð og 21,4% í Finnlandi. Þróun tekna eldri landsmanna sýnir svo ekki verður um villst hvernig söfnunarfyrirkomulag og raunávöxtun lífeyrissparnaðar er að breyta tekjumynd þeirra sem hætt- ir eru að afla sér tekna á vinnu- markaði. Hlutverk Tryggingastofn- unar sem öryggisnet fyrir þá sem ekki hafa aflað sér lífeyris þar fer sífellt minnkandi. Þannig var þetta fyrirkomulag hugsað. Þrátt fyrir það er því stundum haldið fram að mikið óréttlæti sé fólgið í því að ellilífeyrisgreiðslur frá Trygg- ingastofnun ríkisins skerðist af öðr- um tekjum hjá þeim sem hafa náð þeim aldri að eiga hugsanlega rétt á þeim. Þær upplýsingar sem hér hafa verið settar fram sýna að ef verða ætti við kröfum um að ellilífeyrir frá Tryggingastofnun ætti ekki að skerðast af öðrum lífeyristekjum mundi það verða til þess að í ein- hverjum tilvikum færi tilfærsla til lífeyrisþega frá þeim sem er með lægri tekjur til þess sem væri með hærri tekjur fyrir. Það væri glap- ræði að gera breytingar á því fyr- irkomulagi um skerðingu ellilífeyris frá Tryggingastofnun sem nú gild- ir, nema ef til vill fyrir þá sem nú eru eldri en 80-85 ára og þá sem tímabundna ráðstöfun vegna þess að þeir einstaklingar hafa búið við lakari uppsöfnun lífeyrisréttinda en þeir sem á eftir þeim koma. Séreignarsparnaður hefur farið vaxandi á undanförnum árum og hann mun einnig breyta tekjum líf- eyrisþega framtíðarinnar þótt hann hafi að hluta verið notaður til að takast á við tímabundin áföll og til að færa frjálsan lífeyrissparnað yfir í eignamyndun í íbúðarhúsnæði. Þá má ekki gleyma því að starfslok munu að öllum líkindum verða sveigjanlegri á næstu árum og þá þannig að starfsaldurinn lengist, m.a. vegna bættrar heilsu og lengri ævilengdar en ekki síst vegna vilja fólks til að gera gagn lengur en nú- verandi reglur miðast við. 1 OECD (2021), Income inequality (indica- tor). doi: 10.1787/459aa7f1-en (Sótt 29. mars 2021). Einungis Slóvenía, Slóvakía og Tékkland eru með lægri Gini-stuðul en Ísland. 2 Heimild: Eurostat, EU-SILC, lífs- kjarakönnun ESB. Nýjustu tölur um Ís- land eru fyrir árið 2018. Kröpp kjör? – Tekjuleg staða eldri borgara miðað við aðra aldurshópa Eftir Sigurður Guðmundsson » Þessar upplýsingar sýna að tekjudreif- ing eldri borgara á Ís- landi er ekki ýkjafrá- brugðin því sem gildir um aðra fullorðna íbúa landsins. Sigurður Guðmundsson Höfundur er skipulagsfræðingur BES M Phil. Heimild: Skatturinn Gunnar stóðst ekki mátið að gera smá grín í einum kaffitímanum í vinnunni að áhugamáli Jónu númer tvö, eins og þau gjarnan spauguðu með. Strákarnir hristu bara hausinn. „Hvað! Er þetta það sem við eigum von á?“ Gunnar sagði þeim: „Já, nema þið hoppið á vagninn með Gráa hernum og styrkið þá í málsókn- inni um að afnema allar skerðingar elli- lífeyris og að dómur falli þeim í vil.“ Svo hélt Gunnar áfram: „Ég var nú búinn að reikna með að lækka eitthvað í tekjum þegar ég hætti að vinna og sæki um ellilífeyrinn hjá TR, svona um áttrætt ef Guð lofar. Gerði ráð fyrir að hafa um 80% af núverandi tekjum. Jóna mín, sem er búin að skoða þetta vel og er töluglögg, sagði að ég myndi enda með 60%. Lækka um 40% þeg- ar ég færi á ellilaun. Þetta er tær snilld hjá þeim. Fyrir hverjar 100 þúsund krónur sem ég hef í lífeyr- istekjur lækka þeir ellilífeyrinn til mín um 45 þúsund krónur. Jóna segir að hjá mér muni þeir lækka ellilaunin um 135 þúsund á mánuði, það er um rúmlega helming.“ Strákarnir hristu hausinn áfram. „Hvað er í gangi?“ „Ég má reyndar vinna mér inn 100 þúsund krónur á mánuði. Í lögunum er það kallað sér- stakt frítekjumark atvinnutekna og er fyrir þá sem hafa vinnu, fá eftirlaun frá fyrirtæki eða stofnun og fyrir þá ellilífeyrisþega sem fá atvinnuleys- isbætur frá Vinnu- málastofnun. Jónas mætti sem sagt borga mér þessa upphæð og kalla eft- irlaun, það er í lagi, en ég verð utangátta með lífeyrissjóðstekjurnar.“ Gunnar leit augnablik til Jónasar, yppti öxl- um og brosti. Jónas forstjóri, sem gjarnan sat með þeim í kaffitímum, er lausnamiðaður maður og tölug- löggur eins og Jóna. Hann hafði sig ekki í frammi í umræðunum, var hugsi, en brosti góðlátlega að tillögu Gunnars. Tómas Láruson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Sérstakt frítekjumark atvinnutekna Tómas Láruson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.