Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 03.05.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 ✝ Sigríður Sveinsdóttir fæddist í Reykjavík 27. nóvember 1946. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 18. apríl 2021. Foreldrar Sig- ríðar voru Þor- gerður Sveins- dóttir kennari, f. 6.3. 1907 á Kols- stöðum, Miðdölum, Dalasýslu, d. 19.7. 2005, og Sveinn Rósinkrans Jónsson bif- reiðastjóri, f. 22.9. 1907 á Hvilft við Önundarfjörð, d. 14.2. 1992. Systir Sigríðar er Helga, f. 23.1. 1940. Maður hennar er Valdi- mar Guðnason, f. 17.8. 1941. Bróðir Sigríðar er Jón R., f. 14.6. 1942. Kona hans er Guðrún Óskarsdóttir, f. 7.4. 1944. Hinn 27. nóvember 1976 gift- ist Sigríður Guðmundi Helga Guðmundssyni, rafvirkjameist- ara og síðar tæknilegum fram- kvæmdastjóra skipafélagsins Ness hf., f. 10.6. 1941, d. 25.3. 2001. Foreldrar hans voru Guð- mundur Guðmundsson, Þorkels- sonar hreppstjóra á Syðra-Velli og í Hrútsstaða-Norðurkoti í Flóa, f. 7.4. 1893 á Syðra-Velli, d. 7.8. 1983, og Helga Pálsdóttir í Vorsabæjarhóli í Flóa, f. 30.5. 1896, d. 11.6. 1941. Dætur Sig- ríðar og Guðmundar eru Krist- ín, f. 11.4. 1977, og Gerður, f. 10.6. 1979. Maður Gerðar er Jón Pétur Jónsson, f. 16.7. 1979. Dætur þeirra eru Sigríður Petra, f. 9.8. 2011, og Arngunn- ur Vala, f. 6.10. 2016. undanskildu einu ári þegar hún stundaði nám á Englandi. Sig- ríður var formaður Félags tón- listarskólakennara frá 1988 til 99 og var síðan fulltrúi félagsins til 2002. Hún lauk starfsævi sinni sem fulltrúi í Kenn- arasambandi Íslands þar sem hún hafði umsjón með félagatali KÍ frá 2002 til 2013. Sigríður vann ýmiss konar fé- lagsstörf alla tíð. Hún sat í fyrstu stjórn Félags píanókenn- ara 1970-71, í stjórn Félags tón- listarkennara 1973-76 og í vara- stjórn Félags tónlistarkennara 1977-81. Sigríður tók sæti í stjórn nýstofnaðs Félags tónlist- arskólakennara (FT) og sat í stjórn 1982-84. Hún sat í ýmsum nefndum og ráðum á vegum FT, m.a. nefnd um málefni tónlistar- skólanna á vegum mennta- málaráðherra, samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar og starfs- kjaranefnd árið 1989; nefndin starfaði samkvæmt kjarasamn- ingi frá 1987 milli FT og FÍH annars vegar og fjármálaráðu- neytisins og launanefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hins vegar. Sigríður sat í stjórn Kennarasambands Íslands 1989- 94 og var í Tónlistarráði Íslands frá 1992 til 1999. Sigríður var kjörin heiðursfélagi Félags tón- listarskólakennara árið 2012. Sigríður var félagi í Soroptim- istaklúbbi Bakka og Selja frá árinu 1988 og tók virkan þátt í starfi hans meðan heilsan leyfði. Sigríður verður jarðsungin frá Seljakirkju í dag, 3. maí 2021, klukkan 13 að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Streymt verður frá athöfn- inni: http://www.seljakirkja.is/seljasokn/ streymi/. Einnig má nálgast hlekkinn á: https://www.mbl.is/andlat/. Guðmundur eignaðist með Jónu Reimarsdóttur, f. 15.6. 1941, d. 22.1. 1999, dótturina Helgu, f. 20.7. 1967. Maður hennar er Arnþór Sigurðsson, f. 9.4. 1966. Dætur Helgu og fyrri manns hennar, Hlöðvers Ellerts- sonar, eru Hrefna, f. 6.2. 1995, og Þórdís, f. 25.2. 2001. Sigríður ólst upp í Kringlu- mýrinni í Reykjavík og gekk í Breiðagerðisskóla og Rétt- arholtsskóla. Hún hóf nám í pí- anóleik hjá Helgu Laxness og síðan í Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1956 hjá Rögn- valdi Sigurjónssyni. Sigríður lauk verzlunarskólaprófi 1965 og píanókennaraprófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík 1969. Kennarar hennar þar voru Rögnvaldur Sigurjónsson og Hermína S. Kristjánsson. Hún stundaði nám í píanóleik hjá Árna Kristjánssyni í Tónlistar- skólanum í Reykjavík 1969-71 og nám í píanómeðleik hjá pró- fessor Rex Stephens í London 1971-72. Sigríður vann skrifstofustörf á sumrin í Stjórnarráði Íslands frá 1965. Hún sinnti heima- kennslu á árunum 1966-79 og kenndi í Tónlistarskóla Hafn- arfjarðar á árunum 1967-69 og 1972-73. Hún kenndi lengst af á píanó við Tónmenntaskólann í Reykjavík, frá 1969 til 1994 að Fyrir 20 árum kvöddum við elsku pabba okkar og í dag kveðj- um við ástkæru og yndislegu mömmu okkar. Missir okkar er mikill því þau voru okkur bæði svo góð, hjartahlý, traust og skemmtileg. Við áttum mjög góða barnæsku og ólumst upp við öryggi, gleði og væntumþykju. Ótal minningar streyma fram frá stundum á æskuheimilinu í Strýtuseli 7, húsi sem mamma og pabbi byggðu sjálf, og frá fjöl- mörgum ferðalögum sem við fjöl- skyldan fórum saman í. Mamma og pabbi voru mjög dugleg að ferðast með okkur um fallega landið okkar og líka erlendis. Í bílnum var spiluð tónlist, til skiptis klassík frá mömmu og eð- alrokk frá pabba. Það var stopp- að og nesti borðað úti í móa, rennt fyrir fisk í vötnum og ám, ættingjar heimsóttir í Borgar- firði og víðar og fallegir staðir skoðaðir. Mömmu var mikið í mun að við lærðum að þekkja landið og hvatti okkur til að halda dagbækur á ferðalögum. Síðar byggðu mamma og pabbi sér sumarbústað í Grímsnesi sem hafði verið draumur mömmu lengi og við nutum þess að sjá þau eignast þann sælureit. Mamma hélt áfram að vera dugleg að ferðast eftir að pabbi dó. Þau ferðalög fór hún flest með okkur systrum og tengda- syni, Jóni Pétri, og þá var mikið hlegið og haft gaman. Hvort sem er í sól eða regni. Við systur rifj- uðum þessi ferðalög upp með mömmu síðustu daga hennar á spítalanum og áttuðum okkur vel á þeim fjársjóði sem þau eru, við eigum ótal dýrmætar minningar sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Mamma eignaðist nýjan sælureit í Úthlíð fyrir rúmum 10 árum og þar sá hún til þess að vel færi um okkur öll, nú tveimur ömmustelpum ríkari sem þurftu að fá lítið, gult hús til að leika í og heitan pott að svamla í. Það gladdi mömmu mjög þegar Gerð- ur og Jón Pétur eignuðust Sigríði Petru árið 2011 og hún naut sín í ömmuhlutverkinu sem varð enn betra þegar Arngunnur Vala fæddist árið 2016. Mamma var mjög framtaks- söm og óhrædd við breytingar, dreif í hlutunum og sagði svo: „Þá er það búið!“ Yfirleitt var hún ekki lengi að fá hugmyndir að nýjum verkefnum og hafði nóg fyrir stafni eftir að hún hætti að vinna; hún prjónaði peysur á ömmustelpurnar, fór á sinfóníu- tónleika með Kristínu og naut þess að fara í sveitina sína. Hún grúskaði lengi vel í ættfræði og var mjög frændrækin. Mamma hafði mjög góða nærveru og ein- lægan áhuga á fólkinu í kringum sig. Við mæðgur kölluðum okkur oft skytturnar þrjár eftir að pabbi fór og Jónsi var D‘Artagn- an á kantinum. Hún var alltaf til staðar og tilbúin að hjálpa, hvort sem var á erfiðum stundum eða við gleðitilefni. Það var bökuð kanilterta fyrir Kristínu á afmæl- inu hennar á hverju ári og hún sá til þess að við fögnuðum á afmæl- isdegi Gerðar og pabba, sem varð pínu ljúfsár í seinni tíð. Tónlistin var mömmu afar hugleikin og hún kenndi okkur hvað tónlistin getur veitt mikla huggun þegar reynir á. Það var ómetanlegt fyr- ir okkur að eiga mömmu að í líf- inu og hún var okkur frábær fyr- irmynd. Hún studdi okkur dyggilega í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og hefur verið okkar klettur alla tíð og svo við hennar. Síðustu tvö ár hafa verið þrautaganga en við höfum líkt veikindunum við lítinn snjóbolta sem hélt áfram að rúlla og stækka þar til hann varð mömmu um megn. Hún tók veikindunum af miklu æðruleysi og ró sem við munum aldrei gleyma og það hjálpaði okkur öllum mikið. Hún tapaði heldur aldrei húmornum sem er svo mikilvægur, enda mamma þekkt fyrir að vilja kitla, sprella og hafa gaman eins og pabbi hennar. Við systurnar erum afar þakk- látar öllu því góða fólki sem hefur sýnt okkur hlýhug og vinsemd á þessum erfiðu tímum. Minning mömmu lifir áfram í okkur systr- um og ömmustelpunum hennar. Þær sakna ömmu sinnar sárt og vildu svo gjarnan, eins og við öll, eiga meiri tíma með henni. En við hugsum hlýtt til hennar í faðmi afa Guðmundar í nýjum sælureit. Kristín og Gerður. Elsku Sigga tengdamamma, nú hefurðu kvatt okkur eftir erfið veikindi og komin aftur í faðm hans Guðmundar tengdapabba sem fór langt fyrir aldur fram fyrir tveimur áratugum. Það er vissulega margs að minnast en allt eru þetta góðar og hlýjar minningar sem ég á, sem eru afar lýsandi fyrir þá manneskju sem þú hafðir að geyma. Þau fátæk- legu orð sem ég set hér á blað eru fyrst og síðast rituð til að koma á framfæri þakklæti. Þakklæti fyr- ir þann hlýhug sem þú ávallt sýndir mér, stuðning og væntum- þykju. Sömuleiðis þakklæti fyrir öll ferðalögin í gegnum tíðina, kaffispjallið og tónlistina. Það rann fljótt upp fyrir mér að þú varst mikill húmoristi og það var ávallt stutt í brosið og hláturinn og það er mesta furða hvað þú hafðir oft gaman af vitleysunni sem ég lét iðulega út úr mér. Þakklátastur er ég þó fyrir hana Gerði þína og dætur okkar tvær, þær Siggu Petru og Arngunni Völu. Minning þín lifir svo sann- arlega í þeim og því ljóst að fram- tíðin er björt. Takk fyrir allt. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Jón Pétur Jónsson. Allt frá því að ég man fyrst eft- ir mér hefur Sigríður móðursyst- ir mín verið mjög nálæg. Það er því dálítið óraunverulegt að skrifa um hana minningarorð nú þegar við kveðjum hana hinstu kveðju. Ég á henni margt að þakka. Hún kenndi mér að spila á píanó frá sjö ára aldri og þó að sá náms- ferill yrði hvorki langur né merkilegur dugði hann til þess að ég lærði að meta fallega tónlist sem hefur fylgt mér æ síðan. Sigga móðursystir, eins og hún var gjarnan nefnd af okkur syst- kinabörnunum, var mjög fé- lagslynd og naut sín hvergi betur en þegar við fjölskyldan vorum öll samankomin. Hún var líka ræktarsöm við vini sína og ætt- ingja og var fyrst á vettvang ef eitthvað bjátaði á. Hún fylgdist vel með sínu fólki og var ákaflega trygg og umhyggjusöm mann- eskja. Hún starfaði lengi sem pí- anókennari og síðar vann hún öt- ullega að félagsmálum, bæði innan KÍ í forystu fyrir tónlistar- kennara og með Soromptimist- um. Þar gegndi hún trúnaðar- störfum og naut sín vel. Sigga var mjög athafnasöm og lítið gefin fyrir að sitja auðum höndum. Hún var gamansöm og hafði húmor sem birtist oft í góð- látlegri stríðni og sprelli. Ég held raunar að henni hafi alla tíð liðið best í hópi fólks enda voru hún og Guðmundur Helgi maður hennar frábærir gestgjafar. Það urðu kaflaskil í lífi hennar er hún missti Guðmund skyndi- lega fyrir tuttugu árum. Hún bognaði en bugaðist ekki heldur reyndist dætrum sínum stoð og stytta enda voru þær mæðgur ávallt mjög nánar. Hún naut þess einnig mikið að eignast dóttur- dætur sem ávallt áttu skjól hjá ömmu sinni. Við frænkur nutum þess síð- ustu tuttugu árin að búa í næsta húsi hvor við aðra. Ég á eftir að sakna þess að hún kíki ekki leng- ur yfir til mín í kaffi, eins og hún gerði svo oft. Síðustu tvö ár mörkuðust mik- ið af versnandi heilsu og færni. Sigga mætti veikindunum af æðruleysi og það var fallegt að sjá hve dætur hennar, Kristín og Gerður, önnuðust hana vel allt til loka. Ég kveð móðursystur mína með söknuði og þakka henni sam- fylgdina, alla hlátrana, fallegu tónlistina sem hún kenndi mér að meta, umhyggjuna og trygglynd- ið. Elsku Sigga. Takk fyrir mig. Þorgerður Valdimarsdóttir. Fyrsta minning mín um Siggu frænku, eins og hún var kölluð í minni fjölskyldu, er frá æsku- heimili hennar og þeirra systk- ina. Mikill samgangur var milli fjölskyldnanna, þar sem feður okkar voru náfrændur og miklir vinir. Húsið sem foreldrar Siggu áttu stóð eitt og sér þar sem norðurhluti Hvassaleitis er í dag, á einum svokallaðra bletta, sem voru nokkrir hektarar hver og voru þá víðs vegar um borgina. Heimilishaldið þar var svolítið spennandi og ólíkt því sem maður átti að venjast að því leyti, að þar voru ein kýr og hænsn, en svo- leiðis var á hröðu undanhaldi í Reykjavík um miðja síðustu öld. Mestu skipti þó að þar réð hlý- leikinn ríkjum og óvíða var nota- legra að koma. Frá unglingsárunum á ég sterkt minningarbrot úr laxveiði í Brennunni með Gunnari bróður, Siggu og öðlingnum Sveini föður hennar. Við lentum þarna í fyrri hluta veiðihelgarinnar miklu sem svo var lengi kölluð í Borgarfirði, þegar öll vötn fylltust af laxi á tveim dögum. Aflabrögð voru eft- ir því og Sigga dró hvern fiskinn eftir annan, en mér, ákafa- drengnum, þótti aðdáunarvert hversu æsingar- og græðgilaust hún bar sig að. Eftir að fullorðinsárunum var náð hittumst við varla í áratugi, búandi sitt hvorum megin á land- inu og sitt í hvoru landinu og við- fangsefnin ólík. Alltaf var samt fylgst með úr fjarlægð. Það var svo þegar ég kynntist manninum hennar, Guðmundi Helga, sem varð einstakur vinur minn og veiðifélagi, að samskipt- in urðu tíðari og kynnin sterkari. Og þá rann upp blómatími. Fátt var okkur Nínu meira til- hlökkunarefni en að vera með þeim samrýndu hjónum á ýmsum mannamótum sem og í veiðiferð- um sem urðu allnokkrar. Guðmundur féll frá fyrir tutt- ugu árum skyndilega og óvænt og varð það Siggu mikið áfall sem og dætrunum. Kom þá berlega í ljós úr hverju hún var gerð. Í mínum huga er Sigga hold- gervingur þess sem best má prýða í fari okkar. Hún var til- finningarík en sterk, hlý, oftast brosandi, hæglát með milt yfir- bragð, en samt föst fyrir og skap- mikil þegar því var að skipta. Hún fylgdist vel með öllu sínu fólki, ættmennum fjær og nær og vinum og samstarfsfólki og rækt- aði þau sambönd af einlægni og tryggð. Henni þótti vænt um fólk. Hún kom víða við sem píanó- leikari og kennari og í fé- lagsstarfi og allir mér kunnugir sem nutu verka hennar á þeim sviðum báru til hennar hlýhug og virðingu. Það er trú mín að henni verði vel heilsað skýrum og glöðum rómi hinum megin. Við Nína hugsum með þakk- læti til liðinna stunda með Siggu frænku. Blessuð veri minning hennar. Samúð okkar er nú hjá dætr- unum og fjölskyldunni allri. Hilmar Finnsson. Nú þegar ég kveð frábæra konu, frú Sigríði Sveinsdóttur, með nokkrum fátæklegum orðum koma upp í hugann margar góðar minningar eftir margra ára sam- fylgd. Fyrstu kynni mín af henni voru þegar uppáhaldsfrændi minn Helgi (Guðmundur Helgi) kynnti mig fyrir kærustu sinni, píanóleikaranum Sigríði. Okkar kynni þróuðust þannig að hittast þegar tækifæri gafst og þá yfir mat, kaffi og auðvitað voru heimsmálin leyst. Lífsviðhorf Siggu og líferni var til eftirbreytni. Heilbrigð, víðsýn og réttsýn. Allt voru þetta eig- inleikar í fari Siggu sem smituðu allt hennar líf og umhverfi. Byggði hús að Strýtuseli 7, sum- arhús í Grímsnesi, skoðaði staði, veiðiferðir með eiginmanni sínum og dætrum, göngu- og fræðslu- ferðir. Hún var glaðleg og jákvæð í fasi og skaraði fram úr sem pí- anóleikari og kennari. Líf Siggu var ekki alltaf auð- velt og á henni dundu áföll og erf- iðleikar. Að missa eiginmann, öð- linginn Helga, langt fyrir aldur fram var mikil þrekraun, hefði beygt mörg okkar og vissulega merktum við sárin sem hún bar. Mig langar að þakka Sigríði fyrir góða samfylgd. Þakka fyrir minninguna sem mun lifa með mér alla tíð. Megi hún hvíla í friði. Dætrunum Kristínu, Gerði, stjúpdóttur Helgu, tengdasyni og barnabörnum sendum við Andr- ea, Daníel og fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld, ég kem eftir, kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rifinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. (Bólu-Hjámar) Páll Ragnarsson. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. (Úlfur Ragnarsson) Þessi orð koma í hugann þegar við nú kveðjum kæra vinkonu, Sigríði Sveinsdóttur. Hún var fé- lagi okkar í húsinu og mætti með okkur í morgungönguna, falleg með sitt rauða hár, hlý og tillits- söm og lét sér annt um okkur all- ar. Hún var mikil fjölskyldukona og mikil amma. Hún gat enda- laust sagt okkur frá yndislegri fjölskyldu sinni, dætrunum sem voru henni svo óendanlega mikils virði og ekki síður litlu ömmu- stelpunum sem veittu henni mikla gleði. Dýrmætur var sum- arbústaðurinn og notalegur hvíldarstaður í dagsins önn. Sigga var ákaflega listræn og fyr- ir utan píanóið var hún líka lagin við að skapa önnur listaverk í höndunum. Sigga var Soroptim- isti og sem slík var hún tilbúin til góðgerðaverka. Ýmis verkefni voru unnin af klúbbnum hennar sem hún tók þátt í af áhuga og gleði. Gönguhópurinn í Espigerði 4 hefur nú gengið alla virka daga í átta ár og í byrjun mátti bóka að Sigga mætti og við gátum spjall- að og fylgst með því sem var efst á baugi innan húss og utan. En undanfarið hefur sigið á ógæfu- hliðina og kraftarnir voru á þrot- um. Við minnumst allra nota- legra samverustunda með þessari vinkonu okkar og sendum fjölskyldu hennar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sigrún Klara og og aðrar vinkonur Sigríðar úr Gönguhópnum Espigerði 4. Mig langar með nokkrum orð- um að minnast kærrar vinkonu sem ég átti samleið með í lífi og list en hefur nú kvatt okkar lit- ríku jarðvist of snemma. Sigríður Sveinsdóttir, sem var af mjög listrænu fólki komin, átti farsæl- an feril sem píanóleikari og þó fyrst og fremst sem natinn og ljúfur kennari ungra nemenda um listina að leika á það stóra hljóðfæri sem píanóið er. Leiðir okkar Siggu lágu fyrst saman í Tónlistarskólanum í Reykjavík uppi í Skipholti. Við vorum sam- an í útskriftarhópnum vorið 1969, dásamlegum hópi tónlistarfólks, sem nú hafa verið höggvin nokk- ur skörð í. Á námsárunum treysti okkar mæti skólastjóri Jón Nor- dal okkur Siggu fyrir því að fara í margra vikna tónleikaferð á miðju skólaári til Svíþjóðar á veg- um hinnar merku stofnunar Rikskonserter ásamt samnem- anda okkar, Erni Ármannssyni gítarleikara, sem þá lagði stund á sellónám í skólanum. Einar Sigríður Sveinsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamamma og amma, ESTHER UNNUR JÚLÍUSDÓTTIR frá Hrísey, Goðabraut 12a, Dalvík, lést fimmtudaginn 22. apríl á sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 4. mai klukkan 13. Jarðsett verður í Hríseyjarkirkjugarði. Streymt verður frá útförinni á facebooksíðu Akureyrarkirkju. Tryggvi Ingimarsson Alda Lovísa Tryggvadóttir Gunnar Austmann Ingimar Tryggvason Eydís Arnórsdóttir Linda Júlía Tryggvadóttir Birkir Bragason og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.