Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021
Ef þessu sjónarhorni er sleppt vantar
mikilvægt púsl í heildarmyndina.“
Kristín var friðargæsluliði Samein-
uðu þjóðanna í Kosovó 2000-2001 og
stundaði kynjarannsóknir 2002-2007.
Síðan var hún framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu 2007-2017. „Ég var
bara búin að vera í eitt ár hjá Jafn-
réttisstofu þegar hrunið skall á. Það
voru sett ný jafnréttislög 2008, þar
sem hlutverk Jafnréttisstofu var auk-
ið en á sama tíma var mikill nið-
urskurður.“ Ísland var með for-
mennskuna í norrænu ráðherra-
nefndinni bæði 2009 og 2014 og mikið
að gera.
„Maður sér á hverjum degi hvernig
menntasókn kvenna sem hófst upp úr
1970 er að skila sér út í þjóðfélagið.
Einnig vil ég minna á jákvæð áhrif
aukins fæðingarorlofs. Hins vegar
eru enn stór baráttumál sem þarf að
taka á eins og launamisrétti og ekki
síst ofbeldi gegn konum, sem búið er
að afhjúpa rækilega með metoo-
umræðunni. Djúpstæð kvenfyrirlitn-
ing birtist í ofbeldi og klámi og svo
má minna á samræður þingmann-
anna á Klausturbarnum sem var
óþægilega lýsandi fyrir viðhorfið.“
Í dag er Kristín sjálfstætt starf-
andi fræðikona, en hún hefur skrifað
fjölda pólitískra og fræðilegra greina.
„Ég reyni að fara út að ganga á hverj-
um degi og svo hittumst við gamlar
Kvennalistakonur vikulega á Jóm-
frúnni og eigum hressilegar samræð-
ur. Ég sé ekki eftir neinu í lífinu, en ef
það er eitthvað væri það að hafa ekki
lært meiri tónlist.“
Fjölskylda
Systkini Kristínar eru Gunnlaugur
Ástgeirsson, framhaldsskólakennari
á Seltjarnarnesi, f. 23.4. 1949, Eyjólf-
ur Ástgeirsson, f. 16.5. 1957, d. 20.5.
1984, og Ólafur Ástgeirsson, bygg-
ingatæknifræðingur í Reykjavík, f.
19.9. 1960.
Foreldrar Kristínar eru hjónin
Friðmey Eyjólfsdóttir, f. 14.11. 1923,
d. 20.10. 2016, hjúkrunarfræðingur
og Ástgeir Kristinn Ólafsson, f. 27.2.
1914, d. 1.5. 1985, sjómaður, rithöf-
undur, bæjarritari o.fl. Þau bjuggu í
Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Kristín
Ástgeirsdóttir
Ástgeir Guðmundsson
bátasmiður og sjómaður í Vestmannaeyjum
Kristín Magnúsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Ólafur Ástgeirsson
bátasmiður og sjómaður í Vestmannaeyjum
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Ástgeir Kristinn Ólafsson
sjómaður og rithöfundur í
Vestmannaeyjum
Jón Guðmundsson
vinnumaður í V-Skaft.
og járnsmiður í Vm.
Sigurlaug Þorleifsdóttir
vinnukona í V-Skaft.
Kristinn R. Ólafsson rithöfundur í
Rvk., fv. fréttaritari í Madrid á Spáni
Björn Kaprasíusson
bóndi í Kjósinni.
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Kjósinni
Eyjólfur Björnsson
vélstjóri og bóndi í Laxnesi
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja í Laxnesi, Mosfellssveit
Guðmundur Árnason
útvegsbóndi á Akranesi
Sigurrós Gunnlaugsdóttir
húsfreyja á Akranesi, f. í Hrútafirði
Úr frændgarði Kristínar Ástgeirsdóttur
Friðmey Eyjólfsdóttir
húsfreyja og hjúkrunarfræðingur
í Vestmannaeyjum og Reykjavík
„Í SÍÐASTA STARFI MÍNU VAR ÆTLAST
TIL AÐ ÉG YXI Í STARFI EN ÉG
FITNAÐI BARA.“
„LÁNAÐU MÉR VÍSAKORTIÐ ÞITT. ÉG ÆTLA
AÐ GEFA ÞÉR ÞESSAR Í AFMÆLISGJÖF.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda í
minningarnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU
HUNDINN…“
„ER ÞAÐ SATT AÐ SVÍN SÉU
GÁFAÐRI EN HUNDAR?“
OG ER ÞETTA
BEIKONSAMLOKA?
JÆJA, EFTIR HVERJU ERUÐ ÞIÐ AÐ BÍÐA?
NÝ
MÁLAÐ
STARFSMANNAHALD
NÆRFÖ
T
Grétar Haraldsson sendi mérþetta ljóðabréf til Þórðar
Tómassonar, sem varð 100 ára
miðvikudaginn 28. apríl. Er mér
bæði ljúft og skylt að birt það hér í
Vísnahorni:
Í byrjun var þér vafi í sinni
en vísdóm fylgdi þrá,
að gamlir munir yrðu í minni
sem margir vildu sjá.
Nú hreinir stroknir munir standa
þar streymir fólkið að.
Það sér það nýtur hollra handa,
og heimur veit um það.
Eftir segja einum rómi
sem eiga hingað ferð.
Safnið þar er þjóðarsómi
og Þórðar einstök gerð.
Doktor frændi og fræða sjór
framsýnn verkamaður,
um aldir verk þín verða stór
og vinsæll Skógastaður.
Lausn á vísnagátunni í síðustu
viku lét Helgi R. Einrsson fylgja
stökur með þessari athugasemd:
„Var að hlusta á fréttirnar og fór
svo út í garð að dunda mér, þá
varð þetta til.“
Í augsýn
Vandamálin virðast hér
vera ýmiss konar,
miður sín því margur er,
milli ótta og vonar.
En fuglar syngja dirrindí
og dæmalaus er blíðan.
Fárið senn mun fyrir bí
með fordómana og kvíðann.
Friðrik Steingrímsson orti fyrir
rúmri viku:
Þoka’og él á stöku stað
stækkar kuldagjáin,
sól og rigning sitt á hvað,
svona’er veðurspáin.
Þórarinn M. Baldursson tók undir:
Okkar lán svo ósköp valt
er á þessu skeri.
Svona er veðrið út um allt;
alltaf vindur, blautt og kalt.
Það er annað hljóð í Brodda B.
Bjarnasyni:
Til að létta mína lund,
ljúft er þetta svarið:
Göngutúr er gæðastund,
glæðir heilsufarið.
Helgi R. Einarsson skrifar mér:
„Nú er hætt við að berjarunnaf-
araldur brjótist út í henni Reykjavík
frá Vogabyggðinni og þá gæti komið
til „Nafnbreyting““:
Af boðum og bönnum rík
er borgarpólitík.
Við -fjörðinn Skerja
finnst brátt „Berja-
runnareykjavík“.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur til Þórðar Tómassonar