Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þjóðin hefur lært mikið af Covid.
Í raun er ég nokkuð viss um að
engan hefði órað fyrir öllu því sem
við höfum náð að breyta og bæta í
heilbrigðisþjónustu við okkar
skjólstæðinga,“ segir Guðbjörg
Pálsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga. „Við
sáum hvernig starfsumhverfi og
vinnuskipulagi var gjörbylt innan
heilbrigðisgeirans, menntakerfinu
og á fleiri stöðum. Hindranir viku
og lögðust allir, óháð stétt og
stöðu, á eitt við að leysa verkefni.
Þetta sáum við glöggt í bylgjum
faraldursins. Við förum eflaust
aldrei að fullu til baka til fyrri lífs-
hátta og vonandi getum við tekið
lærdóminn með okkur áfram inn í
framtíðina og nýtt það besta sem
við höfum lært til áframhaldandi
uppbyggingar.“
Engum má ofgera með álagi
Á miðvikudag í síðustu viku,
12. maí, var alþjóðlegur dagur
hjúkrunarfræðinga, sem svo er
kallaður. Það var á nefndum degi
sem Florence Nightingale fæddist
á því herrans ári 1820. Hún var
bresk hjúkrunarkona og tölfræð-
ingur, sem sinnti særðum her-
mönnum í Krímstríðinu. Gekk
milli manna að næturlagi með ljós-
ker í hendi og fékk með því nafnið
„konan með lampann“. Hún stofn-
aði árið 1860 í Lundúnum fyrsta
eiginlega hjúkrunarskóla í heimi
og kom mörgu því til leiðar í heil-
brigðisþjónustu sem enn gildir.
„Við hjúkrunarfræðingar nú-
tímans þekkjum sögu Nightingale.
Í táknrænni merkingu leyfum við
ljósinu á lampanum alltaf að loga.
Slíkt er í raun eðli starfs okkar,“
segir Guðbjörg Pálsdóttir. Hún
segir þó mikilvægt að hjúkrunar-
fræðingar og aðrir sem starfa í
heilbrigðismálum fái svigrúm til
að ætla sér af. Engum megi ofgera
með vinnuálagi umfram þeirra
starfsskyldu á sama tíma og talað
sé fyrir aðgreiningu milli vinnu og
einkalífs, hvað þá styttingu vinnu-
vikunnar. Dæmi séu að utan um að
álagið í Covid-19 hafi leitt til meiri
veikindatíðni, kulnunar og flótta
úr störfum, hjá til dæmis hjúkr-
unarfræðingum.
Rétt að láta fagfólkið ráða
„Íslensk yfirvöld gerðu rétt
með því að láta fagfólkið og sér-
fræðingana sjá um að stýra við-
brögðum við Covid, þótt ábyrgðin
verði aldrei tekin af stjórnvöldum
sem slík. Einmitt þess vegna hefur
okkur Íslendingum, að mínu mati,
gengið mun betur í baráttunni við
veiruna en til dæmis öðrum Norð-
urlandaþjóðum og fleirum, þar
sem stjórnmálamenn hafa ráðið
för,“ segir Guðbjörg. Hún nefnir
einnig að Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin (WHO) hafi tileinkað
hjúkrunarfræðingum og ljós-
mæðrum árið 2020 og því hafi átt
að fagna með ýmsum viðburðum.
Vegna heimsfaraldursins hafi allt
slíkt farið út um þúfur. Samt hafi
úr öllu orðið sannarlega ár hjúkr-
unarfræðinga, þótt með öðrum
hætti væri en til stóð.
„Hjúkrunarfræðingar eru án
nokkurs vafa hryggjarstykkið í
heilbrigðiskerfinu. Í faraldrinum
hefur hlutverk stéttarinnar verið
mjög mikilvægt á öllum stigum
kerfisins í annars góðu samstarfi
við aðrar fagstéttir. Hjúkrunar-
fræðingar hafa sinnt sýkinga-
vörnum, svarað fyrirspurnum á
Heilsuveru og á heilsugæslu-
stöðvum og taka ákvarðanir um
sýnatöku. Smitrakningarhópur al-
mannavarna er að mestu skipaður
hjúkrunarfræðingum. Nýjasta
verkefnið er bólusetningar.“
Þurfum fleiri
hjúkrunarfræðinga
Í dag eru hjúkrunarfræðingar
á landinu rúmlega 3.600. Alltaf
vantar fleiri, að sögn Guðbjargar,
til dæmis nú vegna styttingar
vinnuvikunnar. Háskólinn á Akur-
eyri og Háskóli Íslands veiti
menntun í hjúkrunarfræði sem sé
mjög góð og víðtæk. Í dag taki
skólarnir inn 185 nýja nemendur á
hverju ári, sem sé ekki nóg. Slíkt
verði að haldast í hendur við fjölg-
un námsplássa á heilbrigðisstofn-
unum og fleira.
„Meðalaldur starfandi hjúkr-
unarfræðinga í dag er um 46 ár.
Einn af hverjum fimm fer til ann-
arra starfa aðeins fimm árum eftir
fjölgun eldra fólks sýnir að þörf er
á breyttri nálgun í þjónustu við
þann hóp og fólk fer sífellt fyrr
heim af sjúkrahúsum eftir aðgerð-
ir. Tímarnir eru að breytast og
starfsumhverfið þar með, sem fel-
ur í sér áskoranir.
„Menntun hjúkrunarfræðinga
á Íslandi er framúrskarandi góð
og fjölbreytt. Með slíku eiga
hjúkrunarfræðingar auðvelt með
að aðlagast nýjum aðstæðum,“
segir Guðbjörg. „Aukin dag- og
göngudeildarþjónusta er sívax-
andi þáttur í starfi hjúkrunarfræð-
inga en með slíku má veita skil-
virka og hagkvæma þjónustu.
Fjarhjúkrun yfir netið og í síma er
orðin mun stærri þáttur en áður.
Mjög áhugaverðar niðurstöður
þess efnis eru í nýrri rannsókn um
reynslu hjúkrunarfræðinga af því
að hjúkra covid-sjúklingum í
göngudeild. Einnig hafa hjúkr-
unarfræðingar verið að rannsaka
líðan sjúklinga í kjölfar covid og
kulnun á meðal hjúkrunarnema í
þeim undarlegu aðstæðum sem við
höfum lifað við síðasta árið. Því
eru mörg áhugaverð rannsóknar-
tækifæri núna á þessum fordæma-
lausu tímum sem leiða til nýrrar
þekkingar og framþróunar í heil-
brigðisþjónustu á Íslandi.“
útskrift úr háskólanum. Þetta er
mikið áhyggjuefni þar sem við
verðum að halda í hjúkrunarfræð-
inga í starfi og fá þá sem þegar
hafa hætt störfum inn til vinnu á
ný. Um 20% hafa nú þegar rétt á
að hefja töku lífeyris og hætta
störfum og við höfum ekki tiltækt
nýtt fólk sem nemur þeim fjölda.“
Breytingar og áskoranir
Nú er göngudeildarþjónusta í
heilbrigðiskerfinu í mikilli sókn,
Þekking og tækifæri til framþróunar í heilbrigðisþjónustu, segir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Formaður Menntun hjúkrunarfræðinga á Íslandi er framúrskarandi. Með
slíku er auðvelt að aðlagast aðstæðum segir Guðbjörg Pálsdóttir.
Ljósið logar
- Guðbjörg Pálsdóttir fædd-
ist 1966. Ólst upp í Reykjavík
og er stúdent frá Versl-
unarskóla Íslands. Útskrif-
aðist úr hjúkrunarfræði frá
HÍ árið 1990 og með meist-
aragráðu í bráðahjúkrun frá
Maryland-háskólanum í
Baltimore í Bandaríkjunum
1997.
- Sérfræðingur í bráða-
hjúkrun og starfaði lengi á
því sviði á Landspítalanum.
Hefur auk þess víðtæka
kennslu- og stjórnunar-
reynslu. Formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga
frá 2016, en hefur átt sæti í
stjórn félagsins allt frá árinu
2008.
Hver er hún?
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Hjúkrunarfræðingar hafa gert margt í covid; annast smit-
rakningu og ákvarðað sóttkví og einangrun. Það nýjasta er bólusetningar.
Víkingaklúbburinn tryggði sér Ís-
landsmeistaratitil skákfélaga þrátt
fyrir að hafa tapað gegn Skákfélag-
inu Hugin í níundu umferð mótsins,
sem kláraðist seinnipartinn í gær.
Víkingaklúbburinn endaði með 53
vinninga en í öðru sæti hafnaði Skák-
félag Selfoss og nágrennis (SSON)
með 48 vinninga. Huginn er í þriðja
sæti með 46 og hálfan vinning.
Mótið gekk ekki tíðindalaust fyrir
sig fyrir vonarstjörnur skákarinnar
hér á landi en Vignir Vatnar Stef-
ánsson vann Jóhann H. Ragnarsson í
gær og tryggði sér alþjóðlegan
meistaratitil þegar hann náði þriðja
og síðasta áfanganum. Þá skreið
Hjörvar Steinn Grétarsson yfir 2.600
stiga múrinn og hefur þar með
stimplað sig inn í hóp svokallaðra
ofurstórmeistara. Þá urðu nokkuð
óvænt úrslit í áttundu umferð í við-
ureign Jóhanns Hjartarsonar stór-
meistara og Guðlaugar Þorsteins-
dóttur, sem gerðu jafntefli.
KR sigraði í 2. deild
Skákfélag SSON, sem hafnaði í
öðru sæti, státar af þremur stiga-
hæstu skákmönnum mótsins, þeim
Alexander Donchenko (2.660),
Mikhail Al. Antipov (2.609) og Anton
DemChenko (2.599). Því má segja að
sigur Víkingaklúbbsins hafi komið á
óvart.
Skákdeild KR bar sigur úr býtum í
2. deild Íslandsmótsins eftir 3-3-
jafntefli gegn Taflfélagi Vest-
mannaeyja. Skákdeild KR endaði
með 30 vinninga en Taflfélag Vest-
mannaeyja með 28 og hálfan vinning.
B-sveit Skákfélags Akureyrar hafn-
aði í þriðja sæti með 27 og hálfan
vinning, eftir 4-2-sigur gegn Hrókum
alls fagnaðar.
Þriðju og fjórðu deild Íslandsmóts
skákfélaga var aflýst vegna farald-
ursins.
Víkingaklúbbur-
inn sigraði í gær
- Íslandsmeistarar eftir sigur gegn
Hugin - SSON hafnaði í öðru sæti
Ljósmynd/Aðsend
Sigurvegarar Víkingaklúbburinn
fór með sigur af hólmi á mótinu.