Morgunblaðið - 17.05.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 17.05.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar var samþykktur á bæj- arstjórnarfundi 12. maí 2021. Við það tækifæri færðu bæjarfulltrúar D-lista starfsfólki Sveitarfélagsins Árborgar þakkir fyrir vel unnin störf á árinu 2020 við krefjandi aðstæður í miðjum heimsfaraldri. Þrátt fyrir breytt atvinnuástand vegna heimsfaraldurs hafa tekjur sveitarfélagsins aukist frá árinu 2019 um 638 millj. kr. Það er því dapurlegt að upplifa þá stöðu að Sveitarfélagið Árborg sé rekið með 949,4 millj.kr. tapi árið 2020, sem gerir 2,6 millj.kr. tap á dag. Ársreikningurinn endurspeglar þann alvarleika sem bæjarfulltrúar D-lista hafa bent á, sem felst í því að aðhalds er ekki gætt í rekstri og að um verulega offjárfestingu er að ræða, þar sem forgangsröðun er ekki í samræmi við skyldur sveitar- félagsins. Aukast því skuldir umtals- vert á sama tíma og hægt og illa gengur að byggja nauðsynlega innviði fyrir lögbundna starf- semi. Árið 2018 voru skuldir sveitarfélagsins 11.843 millj. kr., en 2020 voru skuldirnar orðnar 15.137 millj. kr. Líklega telst það vera Íslandsmet í skuldsetn- ingu á einungis tveimur árum sem núverandi meirihluti hefur verið við stjórn. Skulda- viðmið sveitarfélagsins fer því hækkandi, þrátt fyrir að breytingar hafi verið gerðar á út- reikningi þess og að skuldir Leigubústaða Árborgar teljist ekki lengur með í útreikningum. Frá árinu 2018 þegar núverandi meirihluti tók við stjórn sveitarfé- lagsins hafa tekjur A-hluta bæj- arsjóðs hækkað um 1.667 millj. kr., en gjöld hækkað um 2.361 millj. kr. Tekjur dugðu ekki fyrir rekstri á árinu 2020 og versnaði afkoma sveit- arfélagsins um 900 millj. kr. frá árinu 2018. Yfirlýst markmið nýs meirihluta var að „stoppa lekann“, meint- an útgjaldaleka úr bæj- arsjóði. Ljóst er að lekabyttan lekur all- hressilega. Sveitarfélagið Ár- borg getur ekki talist rekstrarhæft þar sem það þarf að taka lán fyrir rekstrinum. Sú staða er afar dapurleg þótt ekki meira sé sagt, en þrátt fyrir það fagnar bæjarstjóri því í grein- argerð sinni að sveitarfélagið sé á leið í skuldabréfaútboð, sem veru- legar líkur eru á að skili hærri vöxt- um en Lánasjóður sveitarfélaga get- ur boðið þeim sveitarfélögum sem uppfylla skilyrði til að vera þar í við- skiptum. Staðan er alvarleg og er ekki útlit fyrir að hún batni á yfir- standandi ári. Útskýringar bæjarstjóra og meiri- hluta bæjarstjórnar þar sem Co- vid-19-faraldrinum er kennt um bága stöðu standast ekki, en eru til þess fallnar að rugla íbúa. Til saman- burðar má skoða nágrannasveitar- félagið Ölfus, þar sem búa 2.400 manns og fjölgunin nam 7,2% á síð- asta ári, samanborið við 4% í Árborg. A-hluti bæjarsjóðs í Ölfusi skilaði 94 millj. kr. afgangi. Afgangurinn í Ölf- usi er því 40.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Til að árangurinn væri sá sami í Árborg á þessum sömu Covid-tímum hefði þar þurft að vera afgangur upp á 392 millj. kr. en ekki halli upp á 949 millj. kr. Sveiflan er því upp á 1.338 millj. kr. Þetta sýnir að meirihluti bæjarstjórnar í Árborg ræður ekki við verkefnið sem honum var treyst fyrir sem vörslu- mönnum fjármuna sveitarfélagsins, þ.e. að fara vel með fé og gæta hags- muna sveitarfélagsins og íbúa þess. Eftir Gunnar Egilsson » Það er dapurlegt að upplifa þá stöðu að Sveitarfélagið Árborg sé rekið með 949,4 millj. kr. tapi árið 2020, sem gerir 2,6 millj. kr. tap á dag. Gunnar Egilsson Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í Árborg. gunni@icecool.is Óráð í Árborg Á Þorláksmessu fyrir um það bil 70 árum labbaði ég með pabba frá Hlemmi niður Laugaveginn að kaupa jólagjafir. Þá voru þar allar gerðir sérversl- ana. Á heimleiðinni sagði pabbi: „Á Lauga- veginum er hægt að versla með hvað sem er, það ganga svo margir framhjá allt árið og ekki bara á Þor- láksmessu.“ Löngu seinna, fyrir opn- un Kringlunnar með allar sérversl- anir undir einu þaki, óttuðust margir að nú væri Laugavegurinn búinn að vera en hann stóð það allt af sér. Það er kaldhæðnislegt að núna sé Laugavegurinn í andarslitrunum eft- ir að honum var lokað og breytt í göngugötu. Íslendingar koma ekki eða komast ekki á Laugaveginn. Hann er aðallega fyrir túrista sem búa í hótelum við hann eða í mið- bænum. Svo er líka kominn nýr mið- bær með verslunum á stað sem kall- ast Hafnartorg þótt ekkert sé þar torgið. Eftir lokunina hefur sérverslunum við Laugaveginn fækkað ár frá ári. Fjöldi svokallaðra lundabúða er kom- inn að selja alls konar túristaglingur, sem Íslendingar kaupa ekki. Í mörg ár hefur verið erfitt að komast í þær fáu verslanir sem á þrjóskunni hafa haldið út duttlunga og ofríki borg- arskipulagsins, eins og t.d. Brynju og Verslun Guðsteins. Báðar hafa verið við Laugaveginn í 100 ár. Staðan í dag er þannig að borgar- skipulagið vill að Laugavegurinn sé göngugata og hefur í þeim tilgangi gert ýms- ar tilraunir án samráðs við kaupmenn. Ákvörð- un um afgreiðslutíma að vetri er fyrirvaralaust breytt í lokun allt árið. Nú seinast var opnaður smábútur með breyttri akstursstefnu upp Laugaveginn. Kannski í þeim tilgangi að þá nýt- ist bílastæðin ekki eins vel. Svo virðist sem borgarskipulagið skipti engu máli, að rekstrargrundvelli sé kippt undan þeim sem eru með versl- anir við Laugaveginn. Það er óskilj- anlegt. Kaupmenn vilja opna Lauga- veginn og fá fólk til að koma til sín að versla. Það er skiljanlegt. Þannig mætast stálin stinn og ekk- ert rætt saman um mögulegar lausn- ir. Deilurnar hafa stigmagnast og maður hefur spáð í hugsanlega lausn. Eitt er víst: Laugavegurinn verður ekki sú göngugata sem hann var finn- ist ekki lausn sem báðir aðilar geta verið sáttir við. Hugsanleg lausn gæti verið litlir rafknúnir vagnar sem færu frá Hlemmi niður Laugaveginn. Annar hver vagn myndi beygja til vinstri upp Skólavörðustíg að Hallgríms- kirkju og þaðan niður Frakkastíg á Njálsgötu og af Njálsgötu eftir Rauð- arárstíg á Hlemm. Hinn vagninn myndi beygja til hægri við Lækjar- torg í átt að Hörpu og síðan upp Ing- ólfsstræti og eftir Hverfisgötu á Hlemm. Þetta eru álíka langir hringir og því helmingi styttra á milli vagna nið- ur Laugaveginn þar sem álagið er mest. Ekki verða neinar fastar stoppistöðvar. Vagn stoppar einfald- lega rétti einhver fótgangandi út höndina. Á sama hátt stoppar hann og hleypir út farþega sem ýtir á bjölluhnapp. Í vagninum verða örfá sæti fyrir aldraða, en allflestir standa. Svona vagna hefi ég oft séð á vöru- sýningum í Þýskalandi þar sem sýn- ingarskálum er dreift um stórt svæði. Vagnarnir fara fastan rúnt á útisvæð- inu, þar sem er mikill mannfjöldi. Leiðina mætti kalla miðborgarlínu. Auðvelt er að komast með strætó á hana við Hlemm og Lækjartorg og víðar, t.d. á Skólavörðuholti, þar sem eru mörg bílastæði. Umferð niður Laugaveg yrði að sjálfsögðu leyfð. Rafbílavæðingin mun á örfáum árum útrýma mengun frá bílum. Einnig væri hægt að opna fyrst eingöngu fyrir rafbílum. Bílageymslur eru efst á Laugavegi, þar sem Stjörnubíó var, og á Hverfisgötu á móts við Þjóðleik- húsið. Svo er stór bílageymsla í Hörpu. Hugmyndin er sett svona fram fyr- ir borgarskipulag með vilja til að blása lífi í Laugaveginn. Endurlífgun Laugavegarins Eftir Sigurð Oddsson » Það er kaldhæðn- islegt að núna sé Laugavegurinn í and- arslitrunum eftir að honum var lokað og breytt í göngugötu. Íslendingar komast ekki á Laugaveginn. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Fyrir nokkrum ár- um hlotnaðist und- irrituðum sá einstaki heiður og mikla ánægja að vera valinn af listvinafélagi Hall- grímskirkju til að leið- segja, taka á móti og vera innan handar hinum heimsfræga kór King’s Choir og stjórnanda hans, sir Stephen Cleobury. Afsprengi úr kórnum eru svo sönggaldrakarl- arnir The King’s Singers. Daginn eftir hingaðkomu til landsins var svo hádegisverður í Skálholti og eftir máltíðina sungu þeir sína menn í kirkjunni; John Dowland og Thomas Tallis. Á nótna- borði orgelsins var svo Himnasmið- urinn eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Þeir fóru í gegnum þá tónsmíð án þess að hafa séð þann magnaða sálm áður. Cleobury sagði: „Þetta er stórkostlegt, algjörlega stórkost- legt, og ég mun setja þetta á efnis- skrá okkar.“ Og við það stóð hann. Strákarnir í kórnum sögðu mér að hann réði og stjórnaði jóla- dagskrá breska ríkisútvarpsins, BBC. Með öðrum orð- um: Heimsdreifing á öldum ljósvakans. Næstu dagar voru að mestu í Hallgríms- kirkju undir skipulagn- ingu og stjórn þeirra frábæru tónlistarhjóna Ingu Rósar Ingtólfs- dóttur og Harðar Ás- kelssonar. Cleobury og hans menn, sem ferðast hafa um hálfan hnöttinn, voru berg- numdir af söng Mótettukórsins og Schola Cantorum. Skipulagning Ingu Rósar og kórstjórn Harðar hafa í gegnum tíðina verið með slík- um ágætum að þau hafa gert Ísland stærra. Af kærleik og tónlist Eftir Börk Karlsson Börkur Karlsson »Cleobury sagði: „Þetta er stórkost- legt, algjörlega stórkost- legt, og ég mun setja þetta á efnisskrá okkar.“ Og við það stóð hann. Höfundur er kennari og leiðsögumaður. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.