Morgunblaðið - 17.05.2021, Page 20

Morgunblaðið - 17.05.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 ✝ Ólöf Hulda Sig- fúsdóttir fædd- ist í Háfi í Rang- árvallasýslu 11. desember 1932. Hún lést á Hrafnistu við Brúnaveg 4. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- fús Ágúst Guðnason frá Skarði í Land- sveit, f. 1.8. 1895, d. 9.12. 1965, og Jóna Sigríður Jónsdóttir frá Þverlæk, Holta- hreppi, f. 21.8. 1897, d. 4.4. 1998. Ólöf ólst upp í Háfi til sjö ára aldurs og síðan í Blönduhlíð í Reykjavík þar sem foreldrar hennar ráku bú. Ólöf var næstyngst systkina sinna, en þau eru: Guðný, f. 1919, d. 1998. Hörður, f. 1919, d. 1974. Gerður, f. 1921, d. 2019. Helgi, f. 1922, d. 2002. Hjalti, f. 1923, d. 2016. Hulda, f. 1925, d. 1932. Gyða, f. 1926, d. 1927. Guðni, f. 1928. Gyða Sigríður, f. 1929. Gyða, f. 6.9. 1956. Maki Sigurður Lárus Stefánsson. Börn þeirra eru Kristinn Þröstur, f. 1978, sambýliskona hans er Ingibjörg Björgvinsdóttir, og Eva, f. 1983, maki Bjarni Þórisson, börn þeirra eru Júlían Ernir, Emilía og Viktoría. 3) Kristinn, f. 24.12. 1963. Maki Birna Andrésdóttir. Dætur þeirra eru Oddný María, f. 1993, sambýlismaður Almar Ögmundsson, og Hjördís, f. 1999. 4) Bryndís Hulda, f. 5.4. 1965. Maki Snorri Guðmundsson. Börn þeirra eru Snædís, f. 1988, dætur hennar eru Ísold Orka og Sóldís Skjaldmey, Sturla Snær, f. 1994, og Vordís Sól, f. 1997, unnusti hennar er Jóhann Vignir. Ólöf og Kristinn hófu búskap á Lindargötu 22a í húsi foreldra Kristins. Árið 1957 fluttu þau á Laugarnesveg 102 og bjuggu þar til ársins 1971, þegar þau fluttu í Vesturberg í Breiðholti. Þau færðu sig nýlega um set og keyptu sér íbúð í Hólabergi 84. Ólöf var húsmóðir mestan hluta ævi sinnar en vann einnig í mörg ár verslunarstörf í verslun Rauða krossins á Landspít- alanum. Útför Ólafar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 17. maí 2021, klukkan 13.00. Halldór Þráinn, f. 1937. Eiginmaður Ólaf- ar er Kristinn Eyj- ólfsson múrari, f. 28.3. 1932. For- eldrar hans voru hjónin Eyjólfur Guðmundsson, f. 5.4. 1894 í Móakoti í Ölfusi, og Sigríður Magnúsdóttir, f. 9.1. 1896 á Lágum í Ölf- usi. Börn Ólafar og Kristins eru: 1) Jóna Sigríður, f. 19.10. 1951. Maki Ragnar Breiðfjörð. Börn þeirra eru: Ólöf Hulda, f. 1970, maki Gunnar Guðbjörnsson. Syn- ir þeirra eru Ívar Glói, maki Álf- rún Pálmadóttir og dóttir þeirra er Míó, Jökull Sindri og Ragnar Númi. Sigfús Ágúst, f. 1975, maki Florencia Vetcher, dóttir þeirra er Anna. Kristín Vala, f. 1983, maki Bragi Már Matthíasson, dætur þeirra eru Hekla Himin- björg og Katla Bergþóra. 2) Laugardaginn áður en amma féll frá opnaði ég litla skúffu sem ég hafði ekki opnað lengi. Við mér blasti handskrifað bréf frá ömmu sem byrjaði á orðunum: Elsku Olla mín! Þetta bréf kveikti alls konar góðar minn- ingar um ömmu; við amma að hjóla til jóla í morgunleikfimi út- varpsins, við amma í barna- brekkunni á skíðum, amma að stússa í almenningnum á Tang- anum og síðar í Hálsakotinu þeirra afa. Amma var bara 38 ára þegar ég fæddist og það á afmælisdeginum hennar. Fyrsta árið mitt bjuggum við mamma hjá ömmu og afa og þegar ég svo flutti með foreldrum mínum á eigið heimili var það bara í næsta húsi við heimili ömmu og afa í Vesturberginu. Ég var því með annan fótinn hjá ömmu og afa, fór með þeim í sveitina og á skíði. Ég var alltaf meira en vel- komin til þeirra og þegar ég þurfti frið í lokaprófum í grunn- skóla bjó amma notalega um mig á sólbekk í einu horni stofunnar. Þegar ég flutti með mínum góða kærasta til útlanda 17 ára gömul kom það líklega af sjálfu sér að við amma skrifuðumst á í hverri viku. Hún sýndi lífi mínu mikinn áhuga og leyfði mér í gegnum handskrifuð bréf sín að fylgjast með lífinu heima; hvað afi var að bardúsa í bílskúrnum og hvernig langamma hefði það en amma var ekki bara umhyggjusöm amma heldur líka dóttir. Í hverj- um mánuði bættist við bréfin moggapakki en amma safnaði saman blöðum og sendi okkur Gunnari til Berlínar og síðar til London og Wiesbaden. Við Gunnar elskuðum að fá þessar sendingar, sátum þá lengi við lestur. Ég veit ekki hvort amma vissi nokkurn tímann hvað við kunnum vel að meta þessa um- hyggju en í hvert sinn sem blaðapakkinn barst var hátíð. Ári áður en við fluttum aftur heim til Íslands komu amma og afi í heimsókn til Berlínar og það er dýrmætt að þau skyldu fá innsýn inn í líf okkar Gunnars og langömmustrákanna Glóa, Jök- uls og Ragnars Núma. Göngu- ferð í hitabylgju um stöðuvatnið í hverfinu, að sækja strákana í skóla, skoða í búðir og borða saman á arabískum veitingastað bættust í minningabunkann um ömmu. Amma varð langalangamma þegar Míó dóttir Glóa og Álf- rúnar fæddist á síðasta ári, litla fjölskyldan sendir langalanga- fanum innilegar samúðarkveðj- ur. Takk fyrir allt elsku amma, þín Ólöf Hulda (Olla litla). Þarfabrauð 4 bollar hveiti 2 bollar sykur 150 grömm smjörlíki 2 stk egg 4 tsk ger Krydd í brúnt: 1 tsk kanill 1 tsk negull 3 msk kakó Komin heim með sultardropa í nösunum, búin að ösla snjó sem náði mér upp í mitti. Var snjór- inn dýpri á níunda áratug síð- ustu aldar, eða var ég svona lítil? Amma var heima í Logafoldinni að passa okkur Fúsa, og hún var að baka þarfabrauð. Af hverju það kallaðist þarfabrauð veit ég ekki, kannski af því það kom í góðar þarfir þegar maður kom heim úr skólanum í snjóblautum gammósíum. Amma hnoðaði saman í tvær sortir af þarfabrauði; eitt hvítt með skrautsykri, annað brúnt með venjulegum sykri. Hvíta þótti mér best, kannski út af marglitum skrautsykrinum. Flestar minningar mínar um ömmu tengjast mat. Skrítið hvernig það vill oft verða með ömmur. Ristað brauð með marmelaði og osti fyrir austan, sérríterta á jólunum, tyggjókaka í afmælum. Ávextir úr dós með rjóma (við Eva rifumst um kirsuberin, sem voru í alltof litlu hlutfalli við perubitana) í Vestur- berginu yfir spólunni með Nonna og Manna. Svo þegar ég vann í símaveri Dominos meðfram menntaskól- anum heyrðist stundum galað í miðri megaviku „Kristín! Amma þín er í símanum!“ Amma vildi þá ná sambandi við mig, því hún hafði lært það af pottavinkonu í sundinu, að hægt væri að panta pítsu og óska eftir því að hún yrði tekin út úr ofninum hálfa leið í gegn. Til að setja í fryst- inn. Þá gæti hún alltaf boðið afa upp á pitsu (hennar framburð- ur), líka þegar það væri ekki megavika. Ágætis sparnaðarráð frá eldriborgurum í Breiðholt- inu! Nú þarf ég að fara að baka þarfabrauð handa stelpunum mínum sem eignast svo vonandi sín eigin börn í framtíðinni, sem fá þá líka þarfabrauð. Takk fyrir allar góðu stundirnar á Tang- anum og í Vesturberginu, og fyrir að fóðra mig svona vel. Kristín Vala Breiðfjörð. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þessa bæn var amma mín vön að fara með fyrir mig rétt áður en ég lognaðist út af þegar ég gisti í Vesturberginu. Í Vesturberginu hjá ömmu og afa var alltaf líf og fjör. Yfirleitt alltaf fleiri en eitt barnabarn þar í pössun. Enda amma sérstak- lega barngóð. Það skemmtilegasta var að fá alltaf að fara í sund þegar maður fékk að gista í Vesturberginu þar sem amma og afi voru miklir sundgarpar. Allar ferðirnar á skíði upp í Bláfjöll og austur í sumarbústað sem voru farnar er ljúf minning. Skíðakunnátta mín er alfarið ömmu og afa að þakka því þau voru svo dugleg að bjóða mér með sér á skíði. Á leiðinni austur var alltaf stoppað á Selfossi til að kaupa ís. Samkvæmt ömmu var ísinn á Ol- ís sá allra besti í bænum enda stoppum við alltaf þar. Svo vaknaði maður upp á morgnana í sveitinni við góðan ilm úr eldhúsinu og þegar maður leit niður af háaloftinu var amma þar á fullu að útbúa morgunmat. Ristað brauð með marmelaði og osti var alltaf í boði í sveitinni hjá ömmu. Maður kom svo sann- arlega ekki svangur heim úr sveitinni, því hún amma var allt- af með eitthvað gómsætt á boð- stólum. Elsku amma, allar minning- arnar um þig eru mér mjög kær- ar og munu verða rifjaðar upp um ókomna daga og ár. Hvíl í friði elsku amma mín og takk fyrir allt. Kveðja, Eva Sigurðardóttir. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þessa bæn var amma mín vön að fara með fyrir mig rétt áður en ég lognaðist út af þegar ég gisti í Vesturberginu. Í Vesturberginu hjá ömmu og afa var alltaf líf og fjör. Yfirleitt alltaf fleiri en eitt barnabarn þar í pössun. Enda amma sérstak- lega barngóð. Það skemmtilegasta var að fá alltaf að fara í sund þegar maður fékk að gista í Vesturberginu þar sem amma og afi voru miklir sundgarpar. Allar ferðirnar á skíði upp í Bláfjöll og austur í sumarbústað sem voru farnar er ljúf minning. Skíðakunnátta mín er alfarið ömmu og afa að þakka því þau voru svo dugleg að bjóða mér með sér á skíði. Á leiðinni austur var alltaf stoppað á Selfossi til að kaupa ís. Samkvæmt ömmu var ísinn á Ol- ís sá allra besti í bænum enda stoppum við alltaf þar. Svo vaknaði maður upp á morgnana í sveitinni við góðan ilm úr eldhúsinu og þegar maður leit niður af háaloftinu var amma þar á fullu að útbúa morgunmat. Ristað brauð með marmelaði og osti var alltaf í boði í sveitinni hjá ömmu. Maður kom svo sann- arlega ekki svangur heim úr sveitinni, því hún amma var allt- af með eitthvað gómsætt á boð- stólum. Elsku amma, allar minning- arnar um þig eru mér mjög kær- ar og munu verða rifjaðar upp um ókomna daga og ár. Hvíl í friði elsku amma mín og takk fyrir allt. Kveðja, Eva Sigurðardóttir. Ólöf Hulda Sigfúsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, systir og mágkona, HUGRÚN HÖGNADÓTTIR, Grænukinn 5, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 4. maí. Útförin fer fram þriðjudaginn 18. maí klukkan 13 frá Hafnarfjarðarkirkju. Útförinni verður streymt á https://www.youtube.com/watch?v=-zDmyMyn_80 Víkingur A. Erlendsson Viðar Örn Víkingsson Brynjar Víkingsson Elfar Högnason Sigurlaug Valdís Jóhannsd. Helena Högnadóttir Ólafur Árni Torfason Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, A. RÚNAR GUNNARSSON, Spjóti, vélstjóri, lést í faðmi fjölskyldunnar á SAk fimmtudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 21. maí klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðu kirkjunnar. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Rúnars er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls Rúnars. Dana Ruth H. Aðalsteinsd. Andri Rúnarsson Karen Ruth H. Aðalsteinsd. Ragnar Már Heinesen Telma Eir Aðalsteinsdóttir Eyþór Mar Halldórsson Lena Phillips Aðalsteinsd. Snorri Phillips Júlía, Bjarki, Valur, Rannveig og Elmar Gunnar Valdemarsson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVALA VALDEMARSDÓTTIR, Arkarholti 14, Mosfellsbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir hinn 15. maí. Útför verður auglýst síðar. Gunnar Rafn Jóhannesson Helga Gunnarsdóttir Sigurður H. Ásgeirsson Sigurður Rafn Gunnarsson Nicola Winterson Thelma Gunnarsdóttir Georg Vilhjálmsson Vala Gunnarsdóttir Gísli Finnsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BALDUR KRISTJÁNSSON sálfræðingur, Valshlíð 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 9. maí í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu á Sléttuvegi. Útför hans fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 19. maí kl. 13. Í ljósi aðstæðna verður athöfnin með nánustu aðstandendum og vinum, en þeim sem vilja koma er bent á að senda tölvupóst á netfangið sib30@hi.is. Athöfninni verður einnig streymt á mbl.is/andlat. Svala Björgvinsdóttir Björgvin R. Baldursson Erla Þórisdóttir Sigríður Baldursdóttir Abblay Sanneh Sif Baldursdóttir Guðmundur Björnsson barnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, systir og amma, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR, Bjarnhólastíg 18, lést á kvennadeild Landspítalans föstudaginn 14. maí. Aðstandendur vilja koma fram þökkum til starfsfólks kvennadeildar Landspítala, sem annaðist hana af einstakri alúð. Útför fer fram föstudaginn 21. maí kl. 13 í Digraneskirkju. Einar Arason Arnar Ingi Einarsson Signý Stefánsdóttir Björn Garðarsson systkini og barnabörn Elsku amma! Ég verð alltaf jafn stolt þegar fólk bendir á hvað við erum líkar, þótt það hafi kannski mest með beinskeytn- ina og frekjuna í okkur báðum Jóna Kjartansdóttir ✝ Jóna Kjart- ansdóttir fædd- ist í Reykjavík 7. júní 1935. Hún lést á Vífilsstöðum 25. apríl 2021. Útförin var gerð 10. maí 2021. að gera! En elsku amma, þú varst með hjarta úr gulli og við komumst upp með margt, öll börnin þín! Ég og Stella frænka að leika með alla rán- dýru augnskugg- ana þína og varalit- ina, eða að við fengum að klæða okkur upp í á hæl- ana þína og fínu kápurnar. En það var helst þegar við fengum að klæða okkur upp á í randa- flugupeysuna að okkur fannst við vera alveg eins og amma. Ég er svo þakklát fyrir að hafa komið heim fyrr frá Kan- ada, að hafa getað verið hjá þér eftir að afi dó, að við gátum passað hvor aðra! Við höfum alltaf verið svoddan samlokur þú og ég, frá því ég gat labbað niður Langholtsveginn í plast- hælunum mínum, ég var komin hálfa leið þegar mamma hætti að heyra klikk-klakk í skónum og þú byrjaðir að heyra það. Það erfiðasta í öllu þessu er að seinustu árin hef ég búið í Noregi og ekki getað skroppið í ömmuspjall þegar mig vantar! Þegar ég sagði þér frá að ég væri ólétt að Lúkasi og ætlaði að gera þetta ein varstu ekki lengi að segja mér að ef einhver gæti gert það þá væri það ég, sterka drottningin þín! Þú hafðir alltaf trú á okkur öllum og studdir okkur öll í flestum af okkar hug- dettum og uppátækjum. Nú er komið að því að segja bless, elsku amma mín, ég mun alltaf sakna þín en ég veit að þú lifir áfram. Þú lifir áfram í Lúkasi, því hann er jafn mikill grallari, þrjóskur, fyndinn, duglegur og hjartahlýr og þú. Ég elska þig, amma mín! Sofðu rótt í alla nótt og megi guðs englar vaka yfir þér. Þín Nína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.