Morgunblaðið - 17.05.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
90 ÁRA Sigurður Guðmundsson fæddist 17. maí 1931 í Vestmannaeyjum.
Foreldrar hans voru hjónin Jónína Steinunn Sigurðardóttir frá Nýborg í
Eyjum og Guðmundur Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka.
Siggi á Háeyri, eins og hann er ávallt kallaður, hefur spilað á trommur í
meira en 75 ár, en hann var 14 ára þegar Oddgeir Kristjánsson fékk hann í
Lúðrasveit Vestmannaeyja. „Ég hef lifað og hrærst í þessu síðan. Nú hefur
ekkert verið spilað í fjórtán mánuði en við erum byrjaðir að æfa aftur í Létt-
sveit Harmonikufélags Reykjavíkur og Vitatorgsbandinu, en við spiluðum í
hverri viku fyrir Covid.“
Siggi á Háeyri var í nokkrum þekktum hljómsveitum og lék með þeim víða
um land. Þar á meðal var sextett Haraldar Guðmundssonar, hljómsveit Guð-
jóns Pálssonar og hljómsveit Árna Elvar. Hann starfaði annars sem trésmið-
ur og fiskmatsmaður og náði sér í próf sem trommuleikari hjá FÍH.
Út er komin hljóðbók með minningum Sigga á Háeyri, sem komu út á
prenti árið 2013: Undir hraun – gosið í Heimaey 1973. Hljóðbókin er hljóð-
skreytt með ýmsum hljóðum frá gostímanum.
FJÖLSKYLDA Kona Sigurðar var Elsa Guðjóna Einarsdóttir, f. 30.1. 1936,
d. 26.2. 2009. Börn þeirra eru Elísabet, Einar Hermann, Árni og Jónína.
Börn Sigurðar úr fyrri samböndum eru Ásta og Heimir.
Sigurður Guðmundsson
Morgunblaðið/Ófeigur
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nú stendur yfir undirbúningstími í
lífi þínu. Ástvinir þínir umvefja þig með
ást sem aldrei fyrr.
20. apríl - 20. maí +
Naut Reyndu ekki að þröngva fram mál-
um sem þú hefur í raun engin tök á að
fylgja eftir. Haltu þig við það sem þú
kannt og er best/ur í.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú átt að horfa fram á veg en
ekki alltaf vera að líta um öxl og láta for-
tíðina þvælast fyrir þér. Vinir þínir koma
þér á óvart.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Slæmt fordæmi getur haft meiri
áhrif en gott er. Þú færð undarlegt símtal
sem mun gera daginn spennandi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Mundu að þótt allt gangi þér í hag-
inn núna þá munu koma dagar þar sem
allt virðist ganga á afturfótunum. Haltu
samt í gleðina.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú svífur um á bleiku skýi og lang-
ar ekkert að koma niður af því. Treystu á
innsæið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Ekki er allt sem sýnist og það er þitt
verk að komast að hinu sanna. Reyndu að
komast að samningi við nágranna, deilur
eru ekki þitt uppáhald.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt þú sjálfur sért skýjum
ofar yfir afrekum þínum er ekki víst að
fjölskyldan sé á sömu skoðun. Margar
hendur vinna létt verk.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hlutirnir virðast oft flóknari
en þeir eru. Vertu alltaf á varðbergi og
leggðu á minnið það sem sagt er um
menn og málefni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú ert eitthvað annars hugar í
dag og ættir því að fara þér hægt í
ákvarðanatöku. Vertu óhrædd/ur við að
kanna nýjar leiðir og taka einhverja
áhættu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Aukið álag í vinnunni gæti
komið niður á þér seinna. Láttu ekkert
aftra þér frá því að vera sá gleðigjafi sem
þú ert. Gefðu þér tíma til þess að slaka
meira á.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Reyndu að sjá það góða í öðrum.
Ekki gefast upp þótt á móti blási. Þú færð
boð í sumarbrúðkaup.
Þau hjónin ferðuðust svolítið
seinni árin, bæði til Ameríku og svo
til suðrænna landa. „Þær ferðir voru
afskaplega skemmtilegar og hreint
ævintýri en alltaf kveið ég svolítið
fyrir þeim vegna þess að ég hef alltaf
verið flughrædd og ég reikna ekki
með að það fari af mér úr þessu.“
Covid og skilst mér að ég hafi þá ver-
ið elsta manneskja í heimi til þess.
Síðar á sama ári var ég útnefnd heið-
ursborgari Bolungavíkur og er mér
það mikill heiður, en ég hálfskamm-
ast mín samt fyrir að vekja svona á
mér athygli, bara fyrir það að vera
ég.“
H
elga Guðmundsdóttir
fæddist 17. maí 1917 á
Blesastöðum á Skeið-
um. Hún ólst upp í
stórum systkinahópi
við venjuleg sveitastörf og stundaði
barnaskólanám eins og þá gerðist á
Skeiðum. „Ég hefði svo gjarnan vilj-
að fá tækifæri til þess að vera lengur
í skóla og læra meira en þá voru tím-
arnir aðrir og ekki sömu tækifæri og
nú.“
Helga þurfti snemma að fara að
vinna fyrir sér. Fyrst fór hún á bæi í
nágrenninu og svo lengra í næstu
sveitir. Um tíma vann hún suður
með sjó og síðar við eitt og annað í
Reykjavík. „Það eftirminnilegasta
frá þeirri vist er líklega þegar ég tók
að mér fanggæslu fyrir skipshöfn
um verkfallstíma. Þá kynntist ég
honum Gunnari og stuttu síðar flutti
ég vestur. Segið svo að ekkert gott
hljótist af verkföllum.
Þannig atvikaðist að ég fluttist
vestur árið 1952. Á næstu árum
eignuðumst við börnin okkar þrjú og
eftir að þau komust á legg fór ég að
vinna á sjúkraskýlinu og vann ég þar
þangað til ég var sjálf talin vera
orðin gamalmenni.“
Sjálf þurfti Helga að glíma nokkuð
við veikindi á lífsleiðinni. „Tvisvar
fékk ég berkla og eftir að ég náði
mér af þeim veikindum hugsaði ég
lífið upp á nýtt og strengdi þess heit
að láta mér aldrei leiðast því að það
væri ekki til neins. Mér nefnilega
leiddist fyrst svo óskaplega hérna
fyrir vestan. Fjöllin voru svo brött
og svo nálægt mér að mér fannst þau
vera að hrynja yfir mig. Svo ólíkt því
sem ég þekkti af Skeiðunum. Eftir
þetta lærði ég að meta fjöllin upp á
nýtt og fannst bara notalegt að finna
þau svona nærri mér, næstum eins
og þau héldu utan um mig.
Lengst af hef ég reynt að forðast
athygli. Það hefur mér lengi tekist
nokkuð vel. Ég fékk barasta að vera
venjuleg kona í venjulegu húsi. Gat
ræktað mín blóm og sinnt mínu
starfi en svo kemur að því að maður
vekur athygli, kannski fyrir það eitt
að vera bara venjuleg kona og að lifa
lengi. Á síðasta ári komst ég í sviðs-
ljósið fyrir að lifa það af að smitast af
Fjölskylda
Eiginmaður Helgu var Gunnar
Hjörtur Halldórsson, f. 30.5. 1924, d.
28.5. 2007, sjómaður. Foreldrar hans
voru hjónin Halldór Þorgeir Jón-
asson, f. 22.5. 1877, d. 16.9. 1966, sjó-
maður og bóndi í Bolungavík, og
Helga Guðmundsdóttir, húsmóðir og fv. starfsmaður í sjúkraskýli – 104 ára
Mæðgurnar Helga ásamt dætrum sínum, Ósk Gunnarsdóttur og Kristínu Gunnarsdóttur.
Tókst að forðast athygli í 100 ár
Mæðginin Helga ásamt syni sínum, Agnari Gunnarssyni. Afmælisbarnið Helga nýbúin að sigrast á Covid í fyrra.
Til hamingju með daginn
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum