Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 26
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Víkingar úr Reykjavík tylltu sér á
toppinn í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni, þegar
liðið fékk Breiðablik í heimsókn á
Víkingsvöll í Fossvogi í 4. umferð
deildarinnar í gær.
Víkingar byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti og Pablo Punyed kom
þeim yfir strax á 14. mínútu og eftir
það dró af Kópavogsliðinu.
„Sjálfstraust Blika virtist hverfa,
þeir urðu óöruggir og Víkingar
gengu á lagið, urðu grimmari og
sóttu af öryggi,“ skrifaði Stefán
Stefánsson m.a. í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Víkingar eru ósigraðir með 10 stig
í efsta sæti deildarinnar en Blikar,
sem margir spáðu Íslandsmeistara-
titilinum fyrir tímabilið, eru með
fjögur stig í sjöunda sætinu og hafa
aðeins unnið einn leik í sumar.
_ Pablo Punyed skoraði sitt fyrsta
mark fyrir félagið eftir að hafa geng-
ið til liðs við Víkinga frá KR síðasta
haust. Þetta var hans átjánda mark í
efstu deild en hann hefur nú skorað
fyrir Víkinga, KR, ÍBV, Stjörnuna
og Fylki í úrvalsdeildinni.
Leiknismenn skoruðu þrjú
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði
Leiknis úr Reykjavík, var í miklu
stuði þegar liðið tók á móti Fylki á
Domusnovavellinum í Breiðholti.
Sævar skoraði tvö mörk fyrir
Leiknismenn sem unnu 3:0-sigur en
þetta var fyrsti sigur nýliðanna í
deildinni í sumar.
„Fylkir fann fá færi á vörn Leikn-
is í leiknum. Brynjar Hlöðversson
og Bjarki Aðalsteinsson héldu
sóknarmönnum Fylkis niðri í allt
kvöld og varamaðurinn Daði Guð-
mundsson fékk eina góða færi Fylk-
is í leiknum en hann nýtti það illa,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson
m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is.
Leiknismenn eru með fimm stig í
fimmta sæti deildarinnar og hafa
komið á óvart með spilamennsku
sinni í sumar. Fylkir bíður ennþá
eftir sínum fyrsta sigri í deildinni og
er með tvö stig í tíunda sætinu.
Víkingar tylltu
sér á toppinn
- Fyrsti sigur Leiknis kom gegn Fylki
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Pablo Punyed fagnar fyrsta marki sínu fyrir Víkinga í gær.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
Leiknir R. – Fylkir ................................... 3:0
Víkingur R. – Breiðablik.......................... 3:0
Staðan:
Víkingur R. 4 3 1 0 8:3 10
FH 3 2 1 0 8:2 7
KA 3 2 1 0 6:1 7
Valur 3 2 1 0 6:3 7
Leiknir R. 4 1 2 1 6:6 5
KR 3 1 1 1 4:4 4
Breiðablik 4 1 1 2 7:8 4
Keflavík 3 1 0 2 2:5 3
HK 3 0 2 1 4:5 2
Fylkir 4 0 2 2 3:8 2
Stjarnan 3 0 1 2 2:5 1
ÍA 3 0 1 2 2:8 1
Pepsi Max-deild kvenna
Tindastóll – ÍBV ....................................... 2:1
Keflavík – Þróttur R ................................ 2:2
Valur – Fylkir ........................................... 1:0
Breiðablik – Þór/KA................................. 3:1
Selfoss – Stjarnan .................................... 3:1
Staðan:
Selfoss 3 3 0 0 8:1 9
Valur 3 2 1 0 3:1 7
Breiðablik 3 2 0 1 14:5 6
Tindastóll 2 1 1 0 3:2 4
ÍBV 3 1 0 2 6:6 3
Þróttur R. 3 0 3 0 3:3 3
Þór/KA 3 1 0 2 3:6 3
Keflavík 3 0 2 1 2:5 2
Stjarnan 3 0 1 2 2:5 1
Fylkir 2 0 0 2 0:10 0
Lengjudeild karla
Þróttur R. – Vestri ................................... 1:3
2. deild karla
Leiknir F. – Haukar................................. 2:5
Magni – Njarðvík ..................................... 2:2
Þróttur V. – Fjarðabyggð........................ 1:1
Völsungur – ÍR ......................................... 1:2
Reynir S. – KF.......................................... 0:2
3. deild karla
Einherji – KFG......................................... 0:2
ÍH – Dalvík/Reynir .................................. 3:3
Víðir – KFS ............................................... 3:2
Sindri – Elliði ............................................ 2:3
Mjólkurbikar kvenna
3. umferð:
KR – Augnablik ........................................ 3:1
Afturelding – Grótta ................................ 1:1
_ Afturelding áfram eftir vítakeppni.
Sindri – Fjarðab/Höttur/Leiknir ............ 0:2
England
Everton – Sheffield United .................... 0:1
- Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem
varamaður hjá Everton í hálfleik.
Burnley – Leeds....................................... 0:4
- Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
sem varamaður hjá Burnley á 70. mínútu.
Southampton – Fulham ........................... 3:1
Brighton – West Ham.............................. 1:1
Crystal Palace – Aston Villa.................... 3:2
Tottenham – Wolves ................................ 2:0
WBA – Liverpool...................................... 1:2
Staða efstu liða:
Manch. City 36 26 5 5 76:29 83
Manch. United 36 20 10 6 70:42 70
Leicester 36 20 6 10 65:44 66
Chelsea 36 18 10 8 55:33 64
Liverpool 36 18 9 9 63:42 63
Tottenham 36 17 8 11 63:41 59
West Ham 36 17 8 11 56:46 59
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Manchester City – West Ham................. 5:1
- Dagný Brynjarsdóttir lék fyrri hálfleik-
inn með West Ham.
Rússland
Dinamo Moskva – CSKA Moskva .......... 3:2
- Arnór Sigurðsson kom inn á sem vara-
maður á 61. mínútu hjá CSKA sem endaði í
6. sæti.
Holland
AZ Alkmaar – Heracles .......................... 5:0
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 63 mín-
úturnar með AZ sem endaði í 3. sæti.
Rúmenía
Universitatea Craiova – CFR Cluj......... 1:3
- Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 66
mínúturnar með CFR Cluj.
Pólland
Lech Poznan – Górnik Zabrze ............... 1:1
- Aron Jóhannsson lék fyrstu 87 mínút-
urnar með Lech sem endaði í 6. sæti.
Danmörk
AGF – Nordsjælland ............................... 3:1
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 88
mínúturnar með AGF og skoraði eitt
marka liðsins.
Bandaríkin
New York City – Toronto....................... 1:1
- Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 79
mínúturnar með New York City.
Svíþjóð
Piteå – Örebro.......................................... 0:1
- Hlín Eiríksdóttir lék ekki með Piteå
vegna meiðsla.
- Berglind Rós Ágústsdóttir fór af velli í
uppbótartíma hjá Örebro. Cecilía Rán Rún-
arsdóttir var ónotaður varamaður.
B-deild:
Brage – Norrby........................................ 1:2
- Bjarni Mark Antonsson lék fyrstu 61
mínútuna með Brage og skoraði.
50$99(/:+0$
_ Viðar Örn Kjartansson skoraði
hundraðasta mark sitt í deildakeppni
erlendis þegar hann minnkaði muninn í
1:2 fyrir lið sitt Vålerenga gegn Kristi-
ansund í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Viðar hóf atvinnumanns-
feril sinn með Vålerenga árið 2014 en
hann hefur einnig leikið með Jiangsu
Sainty í Kína, Malmö í Svíþjóð, Maccabi
Tel Aviv í Ísrael, Rostov í Rússlandi,
Hammarby í Svíþjóð, Rubin Kazan í
Rússlandi, Yeni Malatyaspor í Tyrklandi
og loks aftur með Vålerenga frá miðju
síðasta tímabili.
Hann hefur nú
skorað 35 mörk í
Noregi, níu í Kína,
21 í Svíþjóð, 32 í
Ísrael, eitt í Rúss-
landi og tvö í Tyrk-
landi. Öll þessi
mörk hefur Viðar
skorað í efstu
deild viðkomandi landa. Áður en Viðar
gerðist atvinnumaður skoraði hann 53
deildamörk á Íslandi fyrir Selfoss, ÍBV
og Fylki, þar af 25 í úrvalsdeildinni.
Deildamörkin hans í heild eru því orðin
153 talsins í 350 leikjum á ferlinum.
_ Guðni Valur Guðnason hlaut gull-
verðlaun á frjálsíþróttamóti í Zagreb í
Króatíu á laugardaginn þegar hann
keppti í kringlukasti. Guðni Valur
þeytti kringlunni 62,25 metra og
nægði það til sigurs á mótinu. Hann
átti fimm gild köst sem öll voru yfir 60
metra. Næst á dagskrá hjá Guðna Val
er mót í Svíþjóð um næstu helgi. Hann
er í keppni um að ná ólympíu-
lágmarkinu sem er 66 metrar sléttir.
_ Guðlaug Edda Hannesdóttir hafn-
aði í 35. sæti á alþjóðlegu þríþrautar-
móti í Yokohama í Japan á laugardag-
inn. Keppendur á mótinu voru 56 en
barist var um stig sem veita keppnis-
rétt í greininni á Ólympíuleikunum í
Tókýó í sumar. Guðlaug Edda kom í
mark á einni klukkustund, 59,25 mín-
útum en hún var í 23. sæti eftir sundið
sem er fyrsta
greinin af þremur.
Hinar eru hjólreið-
ar og hlaup.
_ Barcelona er
Evrópumeistari í
knattspyrnu eftir
stórsigur gegn
Chelsea í úrslita-
leik Meistaradeildar kvenna á Ullevi-
leikvanginum í Gautaborg í gær. Leikn-
um lauk með 4:0-sigri Barcelona en öll
mörk leiksins komu í fyrri hálfleik.
Melanie Leupolz varð fyrir því óláni að
skora sjálfsmark strax á 1. mínútu og
Alexia Putellas tvöfaldaði forystu
Barcelona á 14. mínútu. Aitana Bin-
mati bætti við þriðja marki Barcelona
Eitt
ogannað
LEIKNIR R. – FYLKIR 3:0
1:0 Sævar Atli Magnússon 45.
2:0 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 87.
3:0 Sævar Atli Magnússon 90.(v)
MM
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
M
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Sævar Atli Magnússon (Leikni)
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leikni)
Emil Berger (Leikni)
Dagur Dan Þórhallsson (Fylki)
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: Á að giska 300.
VÍKINGUR – BREIÐABLIK 3:0
1:0 Pablo Punyed 14.
2:0 Júlíus Magnússon 86.
3:0 Kwame Quee 90.
M
Kári Árnason (Víkingi)
Þórður Ingason (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Halldór J.S. Þórðarson (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Alexander H. Sigurðarson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Thomas Mikkelsen (Breiðabliki)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinss. – 8.
Áhorfendur: 444.
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Tyler Sabin reyndist hetja KR þeg-
ar liðið heimsótti Val í fyrsta leik lið-
anna í átta liða úrslitum Íslandsmóts
karla í körfuknattleik í Origo-
höllinni á Hlíðarenda í gær.
Sabin tryggði KR-ingum sigur
með þriggja stiga körfu þegar níu
sekúndur voru eftir af leiknum en
framlengja þurfti á Hlíðarenda til
þess að skera úr um sigurvegara.
Jón Arnór Stefánsson fékk tvö
tækifæri til þess að tryggja Vals-
mönnum sigur í venjulegum leiktíma
en boltinn vildi ekki í körfuna.
Pavel Ermolinskij fékk svo annað
tækifæri til þess að tryggja Vals-
mönnum sigur þegar tvær sekúndur
voru eftir af framlengingunni en
honum brást bogalistin fyrir utan
þriggja stiga línuna og KR-ingar
fögnuðu sigri.
„Leikurinn var æsispennandi frá
upphafi til enda og að stærstu leyti
frábærlega spilaður,“ skrifaði Krist-
ján Jónsson m.a í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
KR-ingar leiða 1:0 í einvíginu en
liðin mætast á nýjan leik á miðviku-
daginn í DHL-höllinni í Vesturbæ.
_ Larry Thomas var stigahæstur
Þórsara frá Þorlákshöfn þegar liðið
fékk Þór frá Akureyri í heimsókn í
fyrsta leik liðanna í átta liða úrslit-
um Íslandsmóts karla í körfuknatt-
leik í Icelandic Glacial-höllinni í Þor-
lákshöfn í gær.
Leiknum lauk með 95:76-sigri
Þórsara en Thomas skoraði 21 stig í
leiknum og tók sex fráköst.
Þórsarar frá Þorlákshöfn voru
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og
leiddu með þrettán stigum í hálfleik,
47:34. Þeir juku forskot sitt hægt og
rólega í þriðja leikhluta og var mun-
urinn á liðunum átján stig fyrir
fjórða leikhluta, 71:53.
Emil Karel Einarsson skoraði 15
stig fyrir Þór frá Þorlákshöfn en
Ivan Aurrecoechea var stigahæstur
Akureyringa með 17 stig og fimm
fráköst.
Þór frá Þorlákshöfn leiðir 1:0 í
einvíginu en liðin mætast á nýjan
leik á Akureyri á miðvikudaginn
kemur.
_ Dominykas Milka átti enn einn
stórleikinn fyrir Keflavík þegar liðið
fékk Tindastól í heimsókn í Blue-
höllina í Keflavík á laugardaginn.
Leiknum lauk með 79:71-sigri
Keflavíkur en Milka skoraði 33 stig,
ásamt því að taka átta fráköst.
„Tindastólsmenn sýndu að þeir
geta með fínu móti átt við Keflvík-
inga en hins vegar mega þeir ekki
gleyma sér eitt augnablik því deild-
armeistararnir eru fljótir að refsa,“
skrifaði Skúli B. Sigurðsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Liðin mætast í öðrum leik átta liða
úrslitanna á Sauðárkróki á morgun
en Keflavík leiðir 1:0 í einvíginu.
_ Ægir Þór Steinarsson átti góð-
an leik fyrir Stjörnuna þegar liðið
fékk Grindavík í heimsókn í Mathús
Garðabæjar-höllina í Garðabæ á
laugardaginn. Ægir Þór skoraði 15
stig og gaf ellefu stoðsendingar en
leiknum lauk með átján stiga sigri
Stjörnunnar, 90:72.
Sigur Garðbæinga var aldrei í
hættu en þeir tóku frumkvæðið
strax í fyrsta leikhluta og leiddu með
sex stigum í hálfleik, 44:38.
Stjarnan leiðir því 1:0 í einvíginu
en liðin mætast á nýjan leik í
Grindavík á morgun.
Dramatík í
Reykjavíkurslag
Morgunblaðið/Eggert
Hetja Tyler Sabin skoraði 28 stig fyrir KR-inga á Hlíðarenda í gær.
- Keflavík í vandræðum gegn Tindastól