Morgunblaðið - 17.05.2021, Page 32
• Sérferð fyrir eldri borgara og einkaflug
til Húsavíkur með Flugfélaginu Ernir
• Samgöngusafnið Ystafelli
• Mývatn
• Sjóböðin
• Hvalaskoðun
• Dettifoss
• Ásbyrgi
• Gist á Fosshótel Húsavík 4*
morgun- og kvöldverður innifalið
• Vönduð fararstjórn og mikil upplifun
Sumarferð
eldri borgara
Húsavík, Mývatn
og Þingeyjarsýsla
28.-29. júní • 2 dagar / 1 nótt
Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
eða í símum 783-9300/01
Allar nánari upplýsingar á
www.ferdaskrifstofaeldriborga.is
Verð
89.900
mann í tvíbýli*
*aukagjald fyrir einbýlikr. 9.900
MÁNUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Tyler Sabin reyndist hetja KR þegar liðið heimsótti Val í
fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmóts
karla í körfuknattleik í Origo-höllina á Hlíðarenda í gær.
Sabin tryggði KR-ingum sigur með þriggja stiga
körfu þegar níu sekúndur voru eftir af leiknum en fram-
lengja þurfti á Hlíðarenda til þess að skera úr um sigur-
vegara. Í hinum leikjum átta liða úrslitanna vann Kefla-
vík sigur gegn Tindastóli í Keflavík, Stjarnan lagði
Grindavík í Garðabæ og Þór frá Þorlákshöfn lagði nafna
sinn Þór frá Akureyri í Þorlákshöfn. »26
Dramatískur sigur KR gegn Val
ÍÞRÓTTIR MENNING
Bibliotek Nordica nefnist norræn bókverkasýning sem
opnuð verður í dag í Þjóðarbókhlöðunni. Þar sýna saman
84 norrænir listamenn bókverk sín í A6-broti og þar af
tólf íslenskir listamenn. Sýning þessi hefur verið sett
upp í sex löndum á síðustu tveimur árum og er sýning-
arstjórn verkefnisins í höndum Codex Polaris, þeirra Imi
Maufe, Megan Adie og Bents Kvisgaards. „Markmiðið
með Bibliotek Nordica er að búa til safn norrænna bók-
verka sem auðvelt er að nálgast og hægt er að nota til
viðmiðunar í bókmenntasögu samtímans og skapa um
leið tengslanet milli Norðurlandanna,“ segir í tilkynningu
og að sýningin muni standa yfir til 22. ágúst. Opið er
virka daga frá kl. 9 til 17 og kl. 10-14 á laugardögum.
Norræn bókverkasýning opnuð
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Þetta er framúrskarandi verkefni
þegar horft er á kennslufræðina,
nemendur finna hjá sér nýja hvöt til
að sjá heilt hús verða til og finnst
mikið til um vinnu sína þegar upp er
staðið,“ segir Helgi Valur Harðar-
son, brautarstjóri byggingadeildar
Verkmenntaskólans á Akureyri.
Nemar eru nú að ljúka við smíði á
fullbúnu sumarhúsi og er það til sölu.
Að auki eru þeir einnig að klára smíði
á tveimur 15 fm smáhýsum.
Nemar í byggingadeild VMA hafa
um árabil spreytt sig á því verkefni
að byggja frístundahús. Húsið sem
klárast nú í vor er hið 21. í röðinni
sem þeir hafa smíðað um árin, en
fyrsta húsið var byggt veturinn 1991
til 1992. Þegar það hús seldist á árinu
1993 var gerður samningur við BHM
um smíði þriggja sams konar húsa og
voru þau öll flutt í Aðaldalshraun.
„Þetta er ólíkt öllu öðru sem nem-
arnir hafa tekið sér fyrir hendur
fram til þessa, stórt og mikið verk-
efni sem krefst stöðugrar eftirfylgni
kennara og yfirsýnar, en endar svo á
að verða alveg magnað þegar upp er
staðið,“ segir Helgi Valur.
Hann segir að samstarf sé við
hönnuði, byggingafulltrúa og bygg-
ingastjóra hjá verktaka úti í bæ sem
og við aðrar deildir innan skólans.
„Ef vel tekst til kynnast nemendur
öllu ferlinu gagnvart hinu opinbera,
byggingarkostnaði og efnisvali fyrir
heilt frístundahús, þeir eiga að verki
loknu að hafa snert á öllum verkþátt-
um frá upphafi til enda.“
Helgi Valur segir verkefnið um-
hverfisvænt, lítið sé gert af því að
kaupa efni til æfingastykkja sem
hent er að notkun lokinni. „Okkur
tekst yfirleitt að nýta meirihluta efn-
is til uppbyggingar hússins og það
nýtist svo um ókomna tíð,“ segir
hann en nú er verið að stíga fyrstu
sporin í því að kynnast umhverfis-
vænum byggingarefnum og stendur
til að nota þau í ríkari mæli í framtíð-
inni.
„Verkefnið er mikil áskorun fyrir
kennara og nemendur; segja má að
kennarar sem taka þátt í því séu
vaknir og sofnir yfir því. Það þarf að
halda vel á spöðunum til að allt efni
sé til staðar og hægt sé að raða
vinnunni upp eftir hentisemi veður-
guðanna, þannig að allir nemendur
nái að spreyta sig á öllum verkþátt-
um,“ segir Helgi Valur.
Byggingadeildin að vaxa
Fram að hruni, eða í kringum ár-
ið 2007, naut byggingadeild VMA
þess að geta endurnýjað vélakost og
búnað fyrir framlegð af sölu húss-
ins. Heldur hefur það dalað í seinni
tíð að sögn brautarstjórans. „En
horfir til betri tíðar með batnandi
fjárhag skólans,“ segir hann.
Byggingadeildin hefur vaxið að um-
fangi hin síðari ár og er að sprengja
utan af sér húsnæði og aðstöðu.
„Kennurum fer fjölgandi en að-
staðan er hin sama og áður, og
löngu orðin of lítil,“ segir Helgi Val-
ur að endingu.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Smíði Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar VMA, ásamt nokkrum nemum í deildinni við smíði á
frístundahúsi sem þeir hafa verið að smíða á liðnum vetri. Húsið er til sölu, sem og tvö 15 fermetra smáhýsi.
Nemendur VMA með
sumarhús og smáhýsi
- Vel þurfti að halda á spöðunum til að allt gengi upp