Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
First
11.995.- / St. 19-26
Vnr.: E-754381
SP1 Lite
10.995.- / St. 19-26
Vnr.: E-724121 / 4 litir
ECCO UNGBARNASKÓR
GÆÐI FYRIR FYRSTU SKREFIN
SP1 Lite
11.995.- / St. 19-26
Vnr.: E-724101
SP1 Lite
10.995.- / St. 19-26
Vnr.: E-724111 / 3 litir
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Kjólar • Pils • Vesti • Blússur
Bolir • Peysur • Buxur
Verið velkomin
Nýjar
sumarvörur
Vinsælu
Velúrgallarnir
Alltaf til í mörgum litum
og í stærðum S-4XL
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Yfirhöfnina
færðu í Laxdal
Allt um sjávarútveg
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Ísland nálgast það að eiga heims-
met í umfangi tekjutenginga með til-
heyrandi tekjuskerðingum í opin-
bera almannatryggingakerfinu,
ásamt Ástralíu. Hinar norrænu þjóð-
irnar beita tekjutengingum í mun
minni mæli en Íslendingar – og er
það mikilvægt frávik Íslands frá nor-
ræna velferðarlíkaninu.“ Þetta er
meðal þess sem kemur fram í nýrri
skýrslu Stefáns Ólafssonar prófess-
ors og Stefáns Andra Stefánssonar,
sem aðstoðaði við útreikninga og
gagnavinnslu. Hún var unnin fyrir
Eflingu – stéttarfélag og er sjónum
beint að kjörum lífeyrisþega og sam-
spili almannatrygginga og lífeyris-
sjóða í mótun tekna.
Margir glíma við lágtekjuvanda
Í rannsókninni kemur einnig fram
að af hverjum 50.000 kr. sem ein-
hleypir lífeyrisþegar fá aukalega úr
lífeyrissjóði renna aðeins um 13.370
kr. til lífeyrisþegans. 36.600 kr.
renna til ríkisins í gegnum skerð-
ingar og skatta þegar tekjur lífeyr-
isþega úr lífeyrissjóði eru á bilinu
100.000 til 600.000 kr. Um 70-80% af
ábatanum rennur þannig til ríkisins
en ekki í vasa lífeyrisþega.
Sýndir eru útreikningar sem leiða
m.a. í ljós að umtalsverður hluti líf-
eyrisþega er með minna í heildar-
tekjur en nemur lágmarkslaunum á
vinnumarkaði. Segja höfundar að
því sé ljóst að umtalsverður hluti líf-
eyrisþega glími við mikinn lágtekju-
vanda. 25 til 50% lífeyrisþega glíma
núna við umtalsverðan lágtekju-
vanda og er sá vandi mun meiri hjá
lífeyrisþegum sem hafa starfað að
mestu leyti á almennum markaði en
hjá opinberum starfsmönnum sem
búa við mun betri lífeyriskjör.
Bent er á að útgjaldabyrði ís-
lenska ríkisins vegna greiðslu lífeyr-
is er ein sú allra minnsta meðal vest-
rænna OECD-ríkja. Er það sögð
vera mikilvæg skýring á umtals-
verðum lágtekjuvanda meðal lífeyr-
isþega.
„Ójöfnuður í tekjudreifingu er
meiri meðal eldri borgara á Íslandi
en meðal almennings,“ segir í
skýrslunni og í samantekt kemur
fram að um 0,7% ellilífeyrisþega (67
ára og eldri) eru með meira en 2,5
milljónir á mánuði í heildartekjur.
Stór hluti þeirra tekna eru fjár-
magnstekjur og atvinnutekjur.
„Rúmlega helmingur bæði elli- og
örorkulífeyrisþega var hins vegar
með minna en 400.000 krónur í
heildartekjur á mánuði samkvæmt
skattframtölum ársins 2019 [...],“
segir þar.
Íslendingar skera sig úr
Þá er bent á að frá árinu 2012 til
2019 hafa ráðstöfunartekjur lág-
tekju-lífeyrisþega hækkað mun
minna en ráðstöfunartekjur há-
tekju-lífeyrisþega. Er meginástæða
þess sögð vera verulega aukin skatt-
byrði lágtekju-lífeyrisþega. Segja
höfundar að með óvenjuharkalegum
skerðingum skeri Íslendingar sig
talsvert frá hinum Norðurlanda-
þjóðunum.
Nálægt heimsmeti í tekjutengingum
- Fram kemur í nýrri skýrslu um kjör lífeyrisþega að af hverjum 50.000 kr. sem einhleypir lífeyrisþeg-
ar fá aukalega úr lífeyrissjóði renna aðeins um 13.370 kr. til lífeyrisþegans en 36.600 kr. renna til ríkisins
Ávinningur lífeyrisþega af hverjum auka
50 þús. kr. frá lífeyrissjóði
Hlutur ríkisins (þús.kr.) Ávinningur lífeyrisþegaeftir skerðingar og skatt (þús.kr.)
50 100 150 200 250 300 350 400 450 500 550 600 650 700
Heimild: Lífeyriskerfið – skýrsla II,
Efling-stéttarfélag/reiknivél TR 2021
27
23
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
37
13
36
14
21
29
21
29
Tekjubil greiðslna frá lífeyrissjóði (þús. kr.)