Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni
Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Elsku afi Magn-
ús.
Mikið á ég eftir að
sakna heimsókna
þinna til okkar fjöl-
skyldunnar á Háteigsveginum og
til mín í vinnuna. Þú komst til mín
bara rúmri viku áður en þú kvadd-
ir. Þú þurftir smá aðstoð með sím-
ann. Þú hafðir verið duglegur að
heimsækja mig þangað á síðustu
mánuðum og þá með ýmsar fyr-
irspurnir varðandi símann. Þú
virtist svo hress og hraustur og
varst eldklár eins og alltaf.
Afi, þú varst svo fróður um
margt, allt fram á síðasta dag. Ég
gat alltaf leitað til þín og fengið
ráð um hvernig ég gæti leyst af
hendi hin ýmsu verkefni.
Alltaf varst þú afskaplega góð-
ur og gjafmildur. Þú gerðir það
sem þú gast til að hjálpa þeim sem
á stuðningi þurftu að halda og
lagðir mikið upp úr því að vera
sanngjarn. Mér hlýnaði um
hjartaræturnar í desember þegar
ég heyrði hvað þú hafðir gert fyrir
leigjendur að íbúð sem þú átt í
Reykjavík. Leigjendurnir sem
höfðu reynst þér vel og alltaf
greitt á réttum tíma. Ekki fannst
þér sanngjarnt að fjölskyldan
þyrfti að þola hávaða og ónæði
vegna viðgerða á húsinu hluta af
leigutímanum. Þess vegna
Magnús
Sigurðsson
✝
Magnús Sig-
urðsson, fædd-
ist 17. desember
1947. Hann lést 25.
apríl 2021. Útför
Magnúsar fór fram
20. maí 2021.
ákvaðstu að færa
þeim óvænta jóla-
gjöf, sem var eins
mánaðar leiga. Fjöl-
skyldan var svo af-
skaplega þakklát og
tók á móti þér opn-
um örmum og bauð
þér að taka þátt í
jólahaldi með þeim.
Þú mættir síðan
heim á Háteigsveg-
inn með jólaköku frá
þeim.
Ég vildi að ég gæti sagt þér
hversu stoltur ég er af að hafa átt
þig fyrir afa.
Megir þú hvíla í friði elsku afi.
Þinn
Gunnar Ágúst Thoroddsen.
Það var sárt að heyra af andláti
elsku fyrrverandi mágs míns sem
varð bráðkvaddur á heimili sínu
langt um aldur fram. Margar voru
þær ánægjustundirnar sem ég
varði í gegnum árin með Magga
mági mínum, Öggu (Rakel) systur
minni og elsku Ásu og Sigga.
Fyrst hitti ég Magga þegar hann
kom ungur og öflugur með systur
minni vestur á Núp. Þegar þau
bjuggu í Austurbrún, þá var ferm-
ingarferðin mín heimsókn til
þeirra. Ég saknaði þeirra mikið
þegar þau fluttu til Kaliforníu og
ásetti mér að komast til þeirra
eins fljótt og ég gæti. Ég tók frí
frá námi í Verzlunarskólanum í
einn vetur svo ég gæti heimsótt
Magga, Öggu og Ásu. Það þurfti
að undirbúa þessa ferð vel, því þá
þurfti vegabréfsáritun til Amer-
íku, takmarkað mátti taka með af
gjaldeyri og engin voru banka-
kortin. Maggi skipulagði ferðir í
Disneyland, Universal Studio,
ströndina á Santa Barbara, bíltúr
um Beverly Hills, heimsókn í
UCLA, bíóferðir, og aðrar
skemmtiferðir um helgar. Ég
lærði að borða mat sem þá var
framandi fyrir íslenska sveita-
stelpu, taco, nachos, hamborgara
og pizzu, mat sem borinn var fram
án hnífapara á veitingastað. Ekki
má gleyma „donuts“ sem við
Maggi laumuðumst oft til að
kaupa okkur. Í Kaliforníu var séð
um mig og dekrað við mig og
margar áttum við skemmtistund-
irnar saman í námi og leik. Ég var
sett á enskunámskeið og tennis-
námskeið. Það voru gleðitíðindi
þegar fjölskyldan flutti aftur til Ís-
lands. Heimsóknirnar í Garða-
bæinn voru mér mikils virði þar
sem egg og beikon að hætti
Magga, á sunnudagsmorgnum,
varð fastur liður í tilverunni. Alla
tíð mætti Maggi mér og mínum
með einstakri hlýju, hugulsemi og
hjálpsemi. Þegar dóttir mín var
skírð kom ekki annað til greina en
að Maggi yrði hennar annar skírn-
arvottur. Ég minnist Magga með
hlýhug og þakklæti fyrir að hafa
fengið að verja dýrmætum tíma
með fjölskyldunni á táningsárun-
um.
Elsku Ása, Siggi, Gunnar
Ágúst og öll fjölskyldan, mínar
innilegustu samúðarkveðjur til
ykkar. Blessuð sé minning elsku
mágs míns.
Viktoría Valdimarsdóttir.
Það er sárt að þurfa að kveðja
góðan vin til nærri sex áratuga svo
skyndilega. Það er sárt að gamlir
draumar sem við áttum sameig-
inlega og voru innan sjónmáls
verða ekki að veruleika. Það er
sárt að missa það akkeri að geta
alltaf leitað ráða hjá vininum góða,
þegar mikið liggur við. Hans ráð
brugðust mér aldrei. Sárast er þó
að hann skyldi ekki fá notið fleiri
elliára með fjölskyldu og vinum.
Það hvarflaði ekki að mér, þeg-
ar Maggi hringdi í mig að kvöldi
sumardagsins fyrsta, að það væri í
síðasta skipti sem ég heyrði í hon-
um. Dagana áður höfðum við hist
oft. Fórum m.a. tvisvar í sumarbú-
stað hans og Kristrúnar til að und-
irbúa afhendingu vegna sölu. Þá
gafst tóm til að spjalla um gamla
tímann og liðnar stundir. Margt
skemmtilegt skrafað og Maggi lék
á als oddi. Hann rifjaði upp lax-
veiðiferðir, snókerkvöld með
tengdapabba og margt fleira.
Maggi var snjall veiðimaður.
Hann var mjög hófsamur og bar
mikla virðingu fyrir náttúrunni.
Hans metnaður í veiðinni var ekki
að fá sem flesta fiska, heldur að
njóta útiverunnar, náttúrunnar og
félagsskaparins. Ég get fullyrt að
hann gladdist meir yfir fiskum
veiðifélaganna en eigin fiskum
enda var hann fullur hjálpsemi og
ráðlegginga til að veiðifélaginn
veiddi ekki minna en hann. Ég veit
mörg dæmi þess að Maggi opnaði
eitt af fluguboxum sínum og valdi
flugu sem hann rétti síðan veiði-
manni með orðunum: „Prófaðu
þessa.“ Oftar en ekki gaf flugan
lax. Til er skemmtileg frásögn af
slíku atviki sem Dennis nokkur
Taylor, amerískur blaðamaður,
sem hitti okkur Magga við Norð-
urá, segir frá í laxveiðibók sinni.
Mér er í fersku minni þegar ég
hitti Magga vin minn fyrst. Ég var
á fyrsta vetri í MR og vinur hans,
sem var með mér í bekk, kynnti
okkur. Þar með var stofnað til ára-
tuga vináttu. Sumarið eftir kynnt-
ist ein systra minna, Rakel, hon-
um og varð síðar eiginkona hans.
Eðlilega urðu samskipti okkar
Magga meiri eftir að hann varð
mágur minn. Hann kom vestur að
Núpi með fjölskylduna þegar Ása
var á öðru ári og dvaldi sumar-
langt. Við stunduðum þá hand-
færaveiðar lungann úr sumrinu.
Hann talaði oft um að þetta sumar
væri eitt það skemmtilegasta sem
hann hefði lifað. Veturinn eftir
sátum við mörg kvöld og skoðuð-
um skipaskrána í sjómannaalm-
anakinu og hlustuðum á Claus
Wunderlich Hammond-leikara af
hljómplötum.
Síðan kom að því að Maggi fór
til BNA í nám í hagfræði. Við
hjónin, ásamt vinahjónum okkar,
heimsóttum fjölskylduna í Kali-
forníu 1978. Hann var þá búinn að
skipuleggja mikið prógramm til
að við mættum njóta dvalarinnar
sem best. Hann var óþreytandi að
aka með okkur um allt og sýna
okkur m.a. Universal Studios,
Disneyland, Las Vegas og margt
fleira og ekki má gleyma ferð til
Mexíkó.
Að leiðarlokum þökkum við Ína
Magga fyrir ævarandi tryggð og
vináttu. Elsku Kristrún, Ása,
Sacha, Siggi, Regína, Gunnar
Ágúst og Marlena, innilegar sam-
úðarkveðjur sendum við ykkur.
Kristinn Valdimarsson.
Í dag kveðjum við skólabróður
okkar úr Menntaskólanum í
Reykjavík, Magnús Sigurðsson
hagfræðing. Við hittumst haustið
1965 í fyrsta sinn sem hópur í
Þrúðvangi, sem var hjáleiga MR
við Laufásveginn, merkileg bygg-
ing með sögu, sem hafði áhrif á
okkur óharðnaða unglingana sem
þó töldu sig menn með mönnum,
sumir meira að segja í jakkafötum
og vatnsgreiddir.
Við vorum rúmlega tveir tugir
menntaskólastráka, vorum að
hefja nám á öðru ári og komum úr
nokkrum bekkjum og ólíkum átt-
um og þekktumst þess vegna til-
tölulega lítið. Lífið var rétt að
byrja og vinabönd að myndast.
Þessi þrjú ár sem við vorum sam-
an í MR höfðu mikil áhrif á okkur
alla.
Magnús var einn af okkur.
Magnús var afar jákvæður og
nærgætinn í allri sinni framgöngu
með góðlátlegan húmor og eftir-
minnilegan hlátur. Hann varð
strax mikilvægur hlekkur í hópn-
um. Hann hafði nokkra sérstöðu
því hann hafði aðgang að amerísk-
um kagga, sem nýttist okkur
stundum til ferða, m.a. á sveitaböll
fyrir austan fjall. Maggi var
öruggur og ábúðarfullur bílstjóri
sem ekki leyfði neina vitleysu.
Þrúðvangur varð aðsetur okkar
í tvö ár, þetta fallega hús sem heit-
ir eftir híbýlum þrumuguðsins
Þórs og var bústaður skáldjöfurs-
ins Einars Benediktssonar. Þar
var þröng á þingi. Hjá sumum
okkar örlaði á því að skemmti-
legra hefði verið að vistast á höf-
uðbólinu sjálfu, Menntaskólahús-
inu glæsilega við Lækjargötuna
þar sem flest skólasystkinanna
voru og því fjörugast lífið. En í fá-
menninu kynntumst við vel.
Síðasta veturinn fluttum við af
Laufásveginum yfir í MR við
Lækjargötuna. En fjölmennið þar
breytti engu um þann vinskap
sem hafði myndast. Að stúdents-
prófunum loknum vorið 1968
héldu menn síðan hver í sína átt-
ina og lífið fór á fulla ferð. Tengsl-
in dofnuðu og sum rofnuðu. En
Magnús var alltaf viðkunnanlegi
skólabróðirinn sem við höfðum
verið svo lánsamir að eignast.
Við sendum fjölskyldu Magn-
úsar okkar einlægu samúðar-
kveðjur.
Bekkjarbræður úr 6-T í MR
1968,
Guðmundur Einarsson.