Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 1
Eins og svart og hvítt
Fjögur
lönd
Bræðurnir og poppararnir Jón Jónsson og
Friðrik Dór hafa ætíð verið mestu mátar. Þeir
eiga tónlistina sameiginlega en eru ólíkir í útliti
og fasi. Bræðurnir segja sögur hvor af öðrum;
eins og þegar Friðrik stóð nakinn á sviði og
þegar Jón átti fótum sínum fjör að launa undan
litla bróður sem elti hann með belti á lofti. 14
23. MAÍ 2021SUNNUDAGUR
Á toppnum
Netapótek LyfjaversFrí heimsendingum land allt!*
Ungmenni fráfjórum löndum íNorður-Atlants-hafi eru saman íbekk. 20
Alltaf ígóðu skapi
Hin níræða Hulda Emils-dóttir hefur lifað tímanatvenna. Hún var ritariSveins Björnssonar forsetaog söngkona sem söng íeinkaklúbbum í Texas. 8
Þrjátíu ár liðin frá fræknum jeppa-
leiðangri á Hvannadalshnjúk. 18
L A U G A R D A G U R 2 2. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 120. tölublað . 109. árgangur .
Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLAPantaðu tíma á www.hekla.is/timabokanir Viðurkenndur þjónustuaðili
Þjónustuskoðun HEKLU
Tryggir betri endingu og viðheldur ábyrgð!
ARNAR EGGERT
SPÁIR Í SPILIN
FYRIR ÚRSLITIN
RANNSÓKNIR
Á LOÐNUELDI
HJÁ HAFRÓ
VERÐMÆTI 14EUROVISION Í KVÖLD 42
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óvíst er hvort ferðaþjónustan muni
skila jafn mörgum störfum og áður
þegar kórónuveirufaraldurinn er að
baki. Sama má segja um verslunina.
Gæti þetta haft töluverð áhrif á
þróun atvinnuleysis og þrýst á til-
færslu starfa milli atvinnugreina svo
atvinnustig nái fyrri hæðum.
Viðmælandi Morgunblaðsins í
ferðaþjónustu kvaðst hafa fækkað
starfsfólki úr 30 í 20 með innleiðingu
snjalllausna og sjálfsafgreiðslu.
Ólafur Torfason, stjórnarformað-
ur Íslandshótela, segir fyrirtækið
hafa skoðað slíka tækni. Hann segir
aðspurður að hár rekstrarkostnaður
þrýsti á slíka hagræðingu. „Hlutfall
launa af tekjum er orðið hátt og þá
þurfa menn að leita leiða til að svara
því. Þetta er ein af þeim leiðum.“
Sjálfsafgreiðsla og snjallmenni
CenterHótel Grandi verður opnað
á Seljavegi í sumar. Kristófer Oli-
versson, eigandi CenterHótelanna,
segir snjalllausnir verða innleiddar á
nýja hótelinu. Meðal annars muni
gestir geta innritað sig sjálfir.
Þá hafi fyrirtækið tekið í notkun
snjallmenni til að svara tölvupósti og
aðstoða viðskiptavini við bókanir. Nú
þegar séu CenterHótelin að nota
gervigreind við greiningu á mark-
aðsaðstæðum, framboði og eftir-
spurn og allri verðstýringu. Einnig
sé mikill meirihluti bókana nú þegar
sjálfvirkur. Jafnframt sé fyrirtækið
að skoða möguleika á notkun þjarka.
Til dæmis til að flytja þvott og fleira
bæði innanhúss og milli hótela.
Aukinn launakostnaður þrýsti
mjög á hagræðingu í ferðaþjónustu.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SVÞ, segir „rándýra
kjarasamninga“ eiga þátt í fækkun
verslunarstarfa.
Atvinnulausum gæti fækkað í 14
þúsund í sumar ef ráðningarátak
skilar væntum árangri.
Óvissa um fjölda starfa
- Ný tækni gæti fækkað störfum í verslun og ferðaþjónustu
- Fyrir vikið gæti atvinnuleysi orðið meira eftir faraldurinn
MAtvinnumál »2 og 20
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Miðflokksins og
fyrrverandi ráðherra, hefur ákveðið
að sækjast ekki eftir kjöri á Alþingi í
komandi þingkosningum í haust.
Frá þessu greinir hann í viðtali í
Morgunblaðinu í dag.
Gunnar Bragi segist kveðja
stjórnmálin sáttur, þetta hafi verið
ákaflega lærdómsríkur og áhuga-
verður tími, en hann var fyrst kjör-
inn á Alþingi árið 2009 og hefur því
setið á þingi í 12 ár. Það þykir hon-
um mjög mátulegur tími.
Í viðtalinu kemur fram að honum
þykir ekki nógu mikið traust vera á
þingi og í þjóðmálaumræðu, sem
nauðsynlegt sé að endurvekja. Það
geti hins vegar verið örðugt, eins og
hann þekki eftir viðskilnað við
Framsóknarflokkinn. Þar á milli lifi
enn særindi og minning um óheilindi
sem erfitt sé að líta fram hjá. »18
Morgunblaðið/Eggert
Hættir Gunnar Bragi Sveinsson ætl-
ar að snúa sér að öðru í haust.
Gunnar Bragi hættir
á þingi í haust
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála felldi úr gildi rekstrarleyfi
Laxa eignarhaldsfélags ehf. fyrir
kynslóðaskiptu sjókvíaeldi á laxi
með 10 þúsund tonna hámarks-
lífmassa í Reyðarfirði.
Kærandi veitingar leyfisins var
fyrst Landssamband veiðifélaga, en
síðar bættust við kærur frá Nátt-
úruverndarsamtökum Íslands, Nátt-
úruverndarsamtökunum Laxinn lifi
og veiðifélögum Breiðdælinga, Hofs-
ár, Sunnandalsár, Selár og Vestur-
dalsár.
Úrskurðaði nefndin að Matvæla-
stofnun hefði ekki lagt álit Skipu-
lagsstofnunar um mat á umhverfis-
áhrifum til grundvallar leyfinu þar
sem Matvælastofnun skilyrti leyfið
við lágmarksstærð seiða um 56
grömm í stað 200 gramma.
„Kannaði Matvælastofnun ekki
með fullnægjandi hætti hvort sú
breyting gæti haft áhrif, en það var
forsenda þess að stofnunin gæti tek-
ið ákvörðun um að víkja frá eða
breyta því skilyrði sem lagt var til af
hálfu Skipulagsstofnunar,“ segir í
úrskurði nefndarinnar. Þrír nefnd-
armenn skrifa undir úrskurðinn en
tveir nefndarmenn skiluðu séráliti.
karitas@mbl.is
Felldu leyfi
Laxa ehf.
úr gildi
Margrét Tekla Arnfríðardóttir (t.v.) og Inga
Lind Jóhannsdóttir (t.h.) léku listir sínar í gær á
klifurvegg á Klambratúni. Á klifurveggnum eru
grip fyrir hendur og fætur sem stelpurnar nýttu
sér til þess að komast alla leið upp vegginn.
Veðrið var gott og tilvalið til að nýta til útivistar.
Veður verður sömuleiðis milt á höfuðborgar-
svæðinu í dag þó ekki sé útlit fyrir að það verði
jafn sólríkt og í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Klifrað á Klambratúni