Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 48
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Ungfónía, flytur
Pulcinellu, svítu fyrir hljómsveit eftir Igor Stravinskíj, í
Langholtskirkju í dag, laugardag, kl. 16. Hljómsveitin
mun einnig leika sinfóníu nr. 5 í B-dúr eftir Franz Schu-
bert og tvö verk fyrir flautu og hljómsveit eftir Franz
Doppler og Charles Griffes. Einleikari verður Kristín Ýr
Jónsdóttir flautuleikari sem lýkur námi við Konunglega
tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn í vor. Stjórnandi
er Gunnsteinn Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins var stofnuð árið 2004 og er skipuð 13-25 ára
nemum úr Listaháskóla Íslands, tónlistarskólum af höf-
uðborgarsvæðinu og við tónlistarháskóla erlendis.
Ungfónía leikur í Langholtskirkju
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi Max-deildar karla í
fótbolta eftir að fimm leikir fóru fram í deildinni í gær-
kvöld. Víkingar lögðu KA 1:0 í toppslag á Dalvík og Vals-
menn unnu nýliða Leiknis naumlega 1:0 á Hlíðarenda
með marki frá Patrick Pedersen. Breiðablik fór illa með
Stjörnuna, 4:0, og bæði Skagamenn og Fylkir unnu
fyrsta leik sinn á tímabilinu. »40
Víkingur og Valur eru á toppnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Myndlistarsýningin „Ó blessuð vertu sumarsól“ verður
formlega opnuð í Skálholti klukkan 15 laugardaginn 29. maí
næstkomandi. Búið er að koma verkum myndlistarmann-
anna fyrir og geta gestir skoðað sýninguna á sama tíma og
veitingahús Skálholts er opið, en aðgangur er ókeypis.
„Tilgangurinn er að sameina ólíka listamenn, jafnt fag-
lærða sem sjálfmenntaða, og gefa almenningi kost á að njóta
fjölbreyttrar listar í fallegu umhverfi,“ segir Ósk Laufdal,
forsprakki sýningarinnar, en Víðir Mýrmann er sýningar-
stjóri.
Hugmynd Óskar um samsýningu margra ólíkra íslenskra
myndlistarmanna víðs vegar að heima og erlendis varð að
veruleika í fyrra. „Ég hóaði saman ólíkum listamönnum,
fjölbreytt sýning 12 myndlistarmanna vakti mikla athygli og
stefnan er að þetta verði árlegur viðburður,“ segir Ósk, sem
er félagi í Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja. „Það
voru engar fjöldatakmarkanir í fyrrasumar og mér sýnist
allt stefna í að svo verði líka í sumar.“
Biðlisti fyrir 2022
Ósk segir skemmtilegt og spennandi að tengja fólk saman
og sýnendur, sem búi meðal annars í Svíþjóð, Danmörku,
Austurríki og Bandaríkjunum og séu með misjafnan bak-
grunn. Sigurfinnur Sigurfinnsson, Finni, hafi til dæmis verið
kennari sinn í Vestmannaeyjum og minningin um góðan
myndlistarkennara hafi orðið til þess að hún hafi fengið
hann til þess að vera með. „Ég vissi að hann væri að mála,
en hafði ekki séð hann í 50 ár, þegar við hittumst í fyrra,“
rifjar hún upp og bætir við að suma listamennina hafi hún
aldrei séð. „Við erum öll misjöfn en myndum saman eina
heild og draumur minn er að tengja listaþræði héðan og
þaðan saman.“
Sýningin, sem verður opin til 15. ágúst, er í stórum sýn-
ingarsal, veitingasalnum og gangi á milli. Þar sýna 15 mynd-
listarmenn verk sín. Þeir eru Ása Jóhannsdóttir, Elínborg
Ostermann, Erla Halldórsdóttir, Finnur – Sigurfinnur
Sigurfinnsson, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Guðlaugur
Arason, Halldóra Sigurðardóttir, Hólmfríður Dóra Sigurð-
ardóttir, Jóhannes K. Kristjánsson, Jóný – Jónína Björk
Hjörleifsdóttir, Kristjana Unnur Valdimarsdóttir, Konný –
Laufey Konný Guðjónsdóttir, Ósk Laufdal, Sigga Dís og
Sólrún Björk. Þema sýningarinnar 2022 er „Börn að leik“ og
hafa 20 myndlistarmenn skráð sig til leiks, þar á meðal
Mark Sepala, teiknari frá Disney World á Flórída. „Ég er
komin með biðlista, en vonandi fá allir sem vilja að vera
með,“ segir Ósk.
Listamenn Kristjana Unnur Valdimarsdóttir, Ósk Laufdal, Halldóra Sigurðardóttir og Hólmfríður Dóra Sigurðar-
dóttir á sýningunni í Skálholti í fyrra. Þær eiga líka verk á sýningunni í sumar.
Tengir ólíka listaþræði
- Stefnt að árlegri samsýningu myndlistarmanna í Skálholti
Sýning Verkin eru mismunandi eins og listamennirnir.