Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 33
Við kveðjum í dag Þuríði Gísladóttur frænku mína frá Lindakirkju í Kópa- vogi. Hún var vafa- laust hvíldinni fegin eftir langvarandi veikindi sem gengu nærri henni. Hin síðari ár voru samtöl okkar í önnum dag- anna færri en áður svo sem vill verða. En vináttan var til staðar allt frá barnæskuárum. Til viðbótar veikindum hennar hamlaði Covid- faraldurinn öllum samskiptum en hún naut hjúkrunar á Landakoti þar sem hún átti sína síðustu daga. Þegar Jóna Unnur Ágústsdóttir móðir Þuríðar varð einstæð móðir í Reykjavík með hana kornunga nutu þær þess að fjölskyldan var samhent. Þær fluttu fljótlega vest- ur í Mávahlíð í Fróðárhreppi til for- eldra Jónu, þeirra Þuríðar Þor- steinsdóttur og Ágústs Ólasonar, sem bjuggu miklu myndarbúi með sonum sínum. Í Mávahlíð vildi Þur- Þuríður Gísladóttir ✝ Þuríður Gísla- dóttir fæddist 28. ágúst 1946. Hún lést 5. maí 2021. Út- för Þuríðar fór fram 20. maí 2021. íður vera og þar var móðir hennar viss um að væri hennar besta skjól á meðan hún hóf aftur vinnu í Reykjavík. Á þeim árum var ekki auð- velt fyrir einstæðar mæður að framfleyta sér í höfuðborginni. Því þótti fjölskyld- unni eðlilegt að Þur- íður væri áfram í Mávahlíð þar sem hún steig sín fyrstu skref inn í lífið við bestu að- stæður hjá afa sínum, ömmu og móðursystkinum. Við systkinin á Borg í Ólafsvík vorum tíðir gestir í Mávahlíð og nutum þess að vera með Þuríði frænku okkar. Öll þau samskipti í sveitinni leiddu til vin- áttu frændsystkinanna. Eftir að móðir Þuríðar flutti til Hellissands með seinni eiginmanni sínum, Rögnvaldi Ólafssyni, forstjóra Hraðfrystihúss Hellissands, eign- aðist Þuríður nýtt heimili þar og gekk í skóla á Hellissandi. Hún var samt mikið í Mávahlíð hjá ömmu og afa sem voru hennar stoð og stytta alla tíð. Þuríður var góð frænka og vinur vina sinna og sérlega námfús og hafði góð áhrif á okkur strákana frændur sína sem hún umgekkst og voru á svipuðum aldri. Á hennar uppvaxtarárum var ekki mikið námsframboð fyrir unglinga á Snæfellsnesi. Enginn framhalds- skóli var á Hellissandi og raunar ekki á Snæfellsnesi fyrr en Mið- skólinn var stofnaður í Stykkis- hólmi og þangað fór hún til náms og dvaldi í heimavistinni í Stykk- ishólmi og lauk landsprófi þar með góðum árangri. Þuríður hafði ríka þjónustulund og því átti það vel við hana að stunda verslunarstörf sem hún gerði lengst af. Hún vann m.a. í Nóatúnsversluninni og Melabúð- inni þar sem öflugir Sandarar réðu ríkjum sem eigendur þeirra versl- ana. Við Þuríður áttum það sam- eiginlegt eftir að við fórum að vera í Reykjavík að eiga gott skjól hjá móðursystur okkar henni Hólm- fríði Ágústsdóttur og þar var ekki í kot vísað hvort sem það var á Grettisgötunni eða á Grýtubakka og ég veit að samband þeirra Þur- íðar og Hólmfríðar var náið alla tíð. Þuríður og eiginmaður hennar Jón Magnússon voru einstaklega hepp- in með börnin sín þrjú sem nú hafa séð á eftir báðum foreldrum sínum. Með þessum línum vil ég minnast frænku minnar með þakklæti og votta börnum hennar og fjölskyld- um þeirra samúð okkar Hallgerð- ar. Sturla Böðvarsson. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 ✝ Hannes Ágústsson fæddist á Patreks- firði 21. september 1928. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Pat- reksfirði, 10. maí 2021. Foreldrar hans voru Ágúst Jónsson, f. 1904, d. 1989, og Anna Sig- ríður Jóhann- esdóttir, f. 1903, d. 1993. Hannes ólst upp á Patreksfirði hjá móður sinni og móð- ursystrum, Elínu og Ólafíu Þórnýju. Systkini hans eru: Agnes Ágústsdóttir, f. 1926, d. 1998; Jóhannes Árnason, f. 1935, d. 1989, maki Sigrún Sigurjónsdóttir, f. 1938; Herdís Heiðdal, f. 1939, maki Magnús Ólafsson, f. 1942, d. 2003; Haukur Heiðdal, f. 1941, maki María Haraldsdóttir, f. 1939; Elín Heiðdal, f. 1942, d. 2019. Einnig ólst upp á heimilinu dóttir Agnesar, Elín Herdís Þorkelsdóttir, f. 1946, maki Ólafur Pétursson, f. 1945. Hannes kvæntist Jóhönnu Guðbjörgu Pétursdóttur frá Skriðnafelli, f. 26. mars 1929, eftir að Jóhanna lést langt um aldur fram 1991. . Skólaganga Hannesar var með hefðbundnum hætti þess tíma og eftir að henni lauk þá varð hans fyrsta launaða starf sem sendill í Vatneyrarbúð á Patreksfirði. Fljótlega leitaði hugur hans til sjómennsku og var hann nokkur ár á „Freyj- unni“ hjá Gísla Snæbjörnssyni og síðar á togaranum Gylfa frá Patreksfirði. Um miðjan 6. áratuginn hætti hann sjó- mennsku og fór til starfa í landi og réð hann sig til Hrað- frystihúss Patreksjarðar og var þar í „tækjunum“. Upp úr 1970 var hann svo ráðinn gjaldkeri frystihússins, sem síðar varð Oddi hf., og var þar til starfsloka kringum aldamót. Hannes var félagslyndur og ötull í starfi félags aldraðra í Vesturbyggð og var þar í stjórn félagsins sem gjaldkeri á meðan heilsan leyfði. Hann fór í allar ferðir félagsins, hér- lendis og erlendis. Útför Hannesar fer fram frá Patreksfjarðarkirkju laug- ardaginn 22. maí kl. 14 og verður athöfninni streymt á: http://bit.ly/patreks- fjardarkirkja Hlekk á streymið má einnig finna á: https://www.mbl.is/andlat d. 17. feb. 1991, 11. júní 1960. For- eldrar hennar voru Valgerður Jónsdóttir og Pét- ur Bjarnason. Börn þeirra: 1) Valgerður Lára, f. 8. október 1959, hún var í sambúð með Rolf Tenden. Börn þeirra: a) Hanna Tenden, f. 1991, maki Jasper Jansen. b) Torleif Tenden, f. 1993, maki Ingrid Maurset. 2) Sigurður Pétur Hannesson, f. 3. mars 1961, maki Guðrún Eggerts- dóttir, f. 1959. Börn Sigurðar Péturs og fv. maka, Hjördísar Báru Gestsdóttur, f. 1970: a) Rebekka Þurý Pétursdóttir, f. 1998, maki Kári Þór Arn- arsson. b) Hannes Már Pét- ursson, f. 2004. Hannes og Jóhanna hófu bú- skap í „Grýtu“ við Mikladals- veg á Patreksfirði og bjuggu þar í sambýli við móður Hann- esar og móðursystur fram til 1973, er þau keyptu sér íbúð í nýbyggðu fjölbýlishúsi að Böl- um 4 þar sem þau bjuggu alla tíð. Hannes hélt heimili einn Elsku afi. Þú sem gafst okkur besta faðmlag í heimi og notaðir alltaf axlabönd. Þú varst okkur frábær fyrirmynd og kenndir okkur að gera það besta úr öllum aðstæðum. Þú varst alltaf til staðar, jafnvel þótt við byggjum í Noregi, þú varst bara eitt símtal í burtu. Alltaf fengum við send ís- lensk páskaegg fyrir páskana, þú passaðir upp á að finna afmæl- isgjafir við hæfi og svo fylgdi allt- af „smá“ innlegg á bankareikn- ingana okkar á afmælisdaginn. Hanna keypti sinn fyrsta bíl fyrir þessar uppsöfnuðu afmælisgjafir. Við hittumst alltaf á hverju sumri, annaðhvort komst þú til okkar í Stryn eða við komum í heimsókn til Íslands. Við eigum yndislegar minningar um þessar heimsóknir á báða bóga. Þú hafð- ir gaman af því að spila og kennd- ir okkur mörg spil sem við spilum ennþá í dag, þú kenndir okkur líka mannganginn. Þú tókst þátt í leikjunum, sast þolinmóður bundinn við stólinn þegar Torleif hafði handtekið þig í „löggu og bófa“ og barst heim með þér allar skeljarnar sem Hanna tíndi á ströndinni. Þrátt fyrir að þú hafir ekki tal- að norsku og við takmarkaða ís- lensku var aldrei vandamál að eiga samskipti okkar á milli. Við skildum hvert annað. Við minn- umst þess ekki að hafa séð þig skipta skapi, jafnvel þótt eitt eða tvö pútt hafi farið forgörðum. Okkur þótti vænt um allar hefðirnar sem við áttum saman, t.d. þegar þú fórst með okkur í „Patróborgara“ og Egils-appels- ín á bensínstöðinni á Patró þegar við komum í heimsókn. Takk fyr- ir allt. Hvíl í friði, afi. Hanna og Torleif. Elsku afi okkar á Patró var alltaf rólegasti, kurteisasti og þrjóskasti maðurinn á svæðinu. Enginn hlustaði betur á babblið í okkur systkinunum og sýndi okk- ur eins mikla þolinmæði. Við afi spiluðum í hvert einasta sinn sem við hittumst, enda var hann klók- ur spilakall og kenndi okkur flest þau spil sem við kunnum í dag. Við fórum vestur til afa yfir sjó- mannadagshelgina á hverju ári alla okkar æsku, og var oft haldið upp á afmælisdag Rebekku þar, enda fædd á sjómannadeginum góða. Við fengum oftar en ekki að verja heilu sumrinu í sveitasæl- unni hjá afa á Patró. Þegar afi kom í bæinn til okkar var mikil gleði heima. Við fengum nefni- lega ekki að hitta afann okkar eins oft og við vildum, það voru vissulega allnokkrir kílómetrarn- ir á milli okkar, en alltaf var það eins og maður hafði séð hann daginn áður. Hann var svo hlýr og góður og var sko ekki lengi að taka upp spilastokkinn. Afi kenndi okkur líka að pútta en hann var alls ekki slæmur púttari þegar hann var upp á sitt besta. Við munum minnast afa míns með hlýjum hug og sakna hans mikið. Hann var einstakur maður sem kenndi okkur ekki bara að spila og pútta heldur var hann okkur fyrirmynd og kenndi okkur meðal annars þakklæti, hófsemi og góðvild. Við hittumst aftur einn daginn elsku afi okkar og við biðjum vel að heilsa ömmu. Þín afabörn Rebekka Þurý og Hannes. Þá er komið að kveðjustund, elsku Hanni okkar. Þær urðu margar Patróferðirnar og eftir- minnilegar, bæði ferðalagið sem tók heila eilífð að okkur fannst – hvað voru þessir firðir eiginlega margir? - og svo himnaríkið sem tók við hjá ykkur Hönnu þegar við hlupum upp tröppurnar á Böl- unum, rykug upp fyrir haus eftir 400 km+ á malarvegum. Bílferð- in var fljót að gleymast, heima- bökuð vínarbrauð og kleinur á boðstólum og setið fram undir kvöld við spjall og spilamennsku, og svo var auðvitað boðið upp á kvöldkaffi svo enginn færi svang- ur í háttinn. Fjöllin og fjörðurinn voru rauð, bleik og appelsínugul í sólsetrinu, allt í senn, þegar síð- asta vínarbrauðið rann niður hjá okkur krökkunum. Yndislegar minningar, andrúmsloftið hlýlegt og hin einstaklega notalega nær- vera þeirra hjóna var næstum áþreifanleg. Þarna fengu borgar- börnin að kynnast Patró og um- hverfi, máttu leika sér eins og þau mest máttu en þó var mjög vel passað upp á að enginn yrði svangur. Það var Hanna mikið áfall að missa Hönnu rétt rúmlega sex- tuga að aldri og hélt hann einn heimili upp frá því. Hann viðhélt heimilishaldinu í þeim anda sem þau hjón höfðu gert, myndar- skapur, gestrisni og hlýleg nær- vera í fyrirrúmi og alltaf var svo gott að koma í heimsókn til hans. Hann tók m.a. upp á því að fara að prjóna lopapeysur og nutum við systkini, makar og fleiri ætt- ingjar og vinir góðs af því áhuga- máli. Hanni var mjög félagslynd- ur og var virkur í félagsstarfinu í bænum. Sérstaklega hafði hann gaman af spilamennsku og var lunkinn við hana. Það var líka gaman að spila við hann, þrátt fyrir að maður tapaði nú oftast, því oftar en ekki stóð hann uppi sem sigurvegari þrátt fyrir að hafa fengið verri spil í upphafi. Við vottum Völlu, Sigga Pétri og fjölskyldum innilega samúð. Minningin lifir um góðan dreng. Ingibjörg Magnúsdóttir og Ólafur Magnússon. Hannes Ágústsson Elsku mamma, góða og fallega kona. Nú ertu farin frá okkur, skilin við. Hvert ferðu? Hvert ætlarðu að fara? Nú er 10. maí 2021, Día og Natalie komu til landsins alla leið frá Bretlandi til að óska þér góðrar ferðar. Hvert ferðu mamma? Mamma, þú ert besta vinkona mín. Ég ætlaði að gefa þér inni- skóna en þá var það of seint. Ég veit ekki af hverju ég græt, ég græt þig mamma. Það var engin logn- Jóna Kjartansdóttir ✝ Jóna Kjart- ansdóttir fædd- ist í Reykjavík 7. júní 1935. Hún lést á Vífilsstöðum 25. apríl 2021. Útförin var gerð 10. maí 2021. molla í kringum þig mamma. Þú hefur yf- irgefið okkur og farið í ferðalag til fyrir- heitna landsins, lands okkar allra. Við sökn- um mikið – hittumst síðar besta mamma í heimi. Mamma, ertu vakandi mamma mín? Mamma, ég vil koma til þín. Ó mamma, gaman væri að vera stór. Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og kór. Mamma, þú ert elskuleg mamma mín, mér finnst gott að koma til þín. En mamma, áðan dreymdi mig draumum þig. En datt þá fram úr og það truflaði mig. Þú varst drottning í hárri höll. Hljómsveitin! Álfar, menn og tröll, lék þér og söng í senn, hún var svo stór- fengleg. Tröllin þau börðu á bumburnar. Blómálfar léku á flauturnar. Fiðlurnar mennskir menn, á mandolín ég. Allir mændum við upp til þín. Eins og blóm þegar sólin skín. En þínum faðmi frá, gjafir flugu um allt. Flestum gekk vel að grípa sitt. Glaður náði ég fjótt í mitt. En stóll er steig ég á, stóð tæpt svo hann valt. Mamma, þú ert elskuleg mamma mín, mér finnst gott að koma til þín. En mamma, gaman væri að vera stór. Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og kór. Mamma er farin, hún er lögð af stað. Þín dóttir, Hrafnhildur. Við vorum að flytja inn í nýtt hús í þorpinu – verða hluti af Holtsgötugenginu. Það sem þótti meira eftirsóknar- vert: húsið var við hliðina á Döggu og Gauja. Slíkum nágrönum fylgir ekki bara góð rútína, hljóð og ná- grannavarsla – heldur hrein lífs- gæði í formi gleði, kærleika og hlýju. Væntumþykju. Ekkert lýsir henni betur en innflutningsgjöfin frá þeim: snúrur í snúrustaurana – uppsettar með hundruð marglitra þvottaklemma. Gaui setti upp. Fjölskyldan kemur heim og heim- urinn hlýnar – lítið kærleiksverk. Svo mildilega lesið í aðstæður. Fal- leg, nýtileg og fullkomin gjöf. Það eru litlu hversdagssögurnar sem segja hver við erum: í mínum huga lýsir þessi saga Gauja og Döggu. Kannski þarf ekki að segja meira. Gaui vermdi veröldina. Sjá, dagarnir líða, í leiðslu vér hlustum á laufið, sem hrynur um aldanna skóg og leggst yfir stofnana sterku, sem stormur og dauði til jarðar sló. Guðjón M. Kjartansson ✝ Guðjón Mar- teinn Kjart- ansson fæddist 21. apríl 1954. Hann lést 6. maí 2021. Útför Guðjóns fór fram 15. maí 2021. En þó að þeim visni hvert bjarkarblað þá blómgast oss önnur í þeirra stað. Því áfram skal haldið og aldrei þagnar hin eilífa hrynjandi lífs- ins, sem ymur um aldanna skóg. Ég gæti sagt sög- una af hetjunni sem gekk út í hamfarir sem eru óskiljanlegar – út í veð- urofsa og fannfergisflóð sem þurrkar út líf. Helvítisástand sem eyðir fjölskyldum og skilur eftir sig holur í hjartanu. Byrjaði að grafa eftir lífi – í aðstæðum sem þurrka út allt líf fór Gaui út og leitaði að lífi, til að verma. Ég gæti sagt sögu af einu af mörgum samtölum okkar á skrif- stofunni. Gaui kom aldrei til að biðja um eitthvað – þoka einhverj- um persónulegum málum áfram. Hann kom til að ræða þorpið – fjórðunginn, landið og heiminn. Þarna ræddum við snjóflóðið. Ég hafði ekki séð heljarmenni gráta áður. Kannski þýðir ekkert að reyna að botna í svona atburði – heldur taka nýrri veröld af auð- mýkt og áhuga. Finna sér stað, hlutverk og verkefni í heimi sem er allur annar. Þessu samtali gleymi ég aldrei. Ég grét sjálfur þegar ég sagði síðar upp vinnunni minni – þarna á sömu skrifstofu. Hvíldi ögn rólegri í sjálfum mér þar sem ég hafði séð fyrirmynd gera það. Gaui vermdi mína veröld. Sjá, laufið hrynur, en lífið er eilíft. Lát lindirnar hníga í dimman sjó. Því eitt sinn vor kynslíð skal eignast í aldanna skóg sitt bergmál þó. Ó, megi það hljóma sem heilagt ljóð, er himninum blessar vort land og þjóð og nýrri og fegurri veröld vísar á veg hinna eilífu stjarna, er skín yfir aldanna skóg. Ég gæti sagt söguna af því þeg- ar við Milla, þá nýflutt í þorpið, ung með barn á leiðinni – spennt en óör- ugg á nýjum stað, tókum fyrst á móti hjartahlýju og birtu þeirra hjóna. Drengurinn okkar fæddist, við komum heim og það var bankað létt á dyrnar. Þar stóðu þau með fána til að draga að húni fyrir fram- tíðinni og litlu fjölskyldunni okkar. Íslenskur fáni til að draga að húni þegar verma þarf veröldina. Allt í einu áttum við hlýtt heimili. Fáni sem fylgdi okkur suður. Fáni sem fylgir okkur veg fjölskyldunnar. Það eru hversdagssögurnar sem segja til um hver við erum. Gaui vermdi veröldina með sínum sög- um. Alla daga. Hefur þá ekki einn maður lifað til fulls? Dagga, Ester, Sölvi og litla Hrefna, heimurinn er enn aftur all- ur annar. Okkar er ykkar. Guð geymi Gauja á vegi hinna ei- lífu stjarna – vegi allra vega um aldanna skóg. Sjá, laufið hrynur, en lífið er eilíft. (Tómas Guðmundsson) Pétur, Milla og börnin. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGI ÁSBJÖRN BJARNASON mjólkurfræðingur, Garðavegi 15, Hvammstanga, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 13. maí. Útförin mun fara fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana óskum við eftir því að þeir sem hyggjast mæta sendi tölvupóst á netfangið eyruni@heima.is. Streymt verður frá útförinni á slóðinni: promynd.is/Ingi. Hlekk má nálgast á mbl.is/andlat. Sigríður Karlsdóttir Ragnar Karl Ingason Emilía Petra Jóhannsdóttir Eygló Ingadóttir Gunnsteinn Ólafsson Eyrún Ingadóttir Árni Björn Valdimarsson Þórhildur Ingadóttir Okezie Nzeakor barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.