Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 48
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Ungfónía, flytur Pulcinellu, svítu fyrir hljómsveit eftir Igor Stravinskíj, í Langholtskirkju í dag, laugardag, kl. 16. Hljómsveitin mun einnig leika sinfóníu nr. 5 í B-dúr eftir Franz Schu- bert og tvö verk fyrir flautu og hljómsveit eftir Franz Doppler og Charles Griffes. Einleikari verður Kristín Ýr Jónsdóttir flautuleikari sem lýkur námi við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn í vor. Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð árið 2004 og er skipuð 13-25 ára nemum úr Listaháskóla Íslands, tónlistarskólum af höf- uðborgarsvæðinu og við tónlistarháskóla erlendis. Ungfónía leikur í Langholtskirkju LAUGARDAGUR 22. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi Max-deildar karla í fótbolta eftir að fimm leikir fóru fram í deildinni í gær- kvöld. Víkingar lögðu KA 1:0 í toppslag á Dalvík og Vals- menn unnu nýliða Leiknis naumlega 1:0 á Hlíðarenda með marki frá Patrick Pedersen. Breiðablik fór illa með Stjörnuna, 4:0, og bæði Skagamenn og Fylkir unnu fyrsta leik sinn á tímabilinu. »40 Víkingur og Valur eru á toppnum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Myndlistarsýningin „Ó blessuð vertu sumarsól“ verður formlega opnuð í Skálholti klukkan 15 laugardaginn 29. maí næstkomandi. Búið er að koma verkum myndlistarmann- anna fyrir og geta gestir skoðað sýninguna á sama tíma og veitingahús Skálholts er opið, en aðgangur er ókeypis. „Tilgangurinn er að sameina ólíka listamenn, jafnt fag- lærða sem sjálfmenntaða, og gefa almenningi kost á að njóta fjölbreyttrar listar í fallegu umhverfi,“ segir Ósk Laufdal, forsprakki sýningarinnar, en Víðir Mýrmann er sýningar- stjóri. Hugmynd Óskar um samsýningu margra ólíkra íslenskra myndlistarmanna víðs vegar að heima og erlendis varð að veruleika í fyrra. „Ég hóaði saman ólíkum listamönnum, fjölbreytt sýning 12 myndlistarmanna vakti mikla athygli og stefnan er að þetta verði árlegur viðburður,“ segir Ósk, sem er félagi í Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja. „Það voru engar fjöldatakmarkanir í fyrrasumar og mér sýnist allt stefna í að svo verði líka í sumar.“ Biðlisti fyrir 2022 Ósk segir skemmtilegt og spennandi að tengja fólk saman og sýnendur, sem búi meðal annars í Svíþjóð, Danmörku, Austurríki og Bandaríkjunum og séu með misjafnan bak- grunn. Sigurfinnur Sigurfinnsson, Finni, hafi til dæmis verið kennari sinn í Vestmannaeyjum og minningin um góðan myndlistarkennara hafi orðið til þess að hún hafi fengið hann til þess að vera með. „Ég vissi að hann væri að mála, en hafði ekki séð hann í 50 ár, þegar við hittumst í fyrra,“ rifjar hún upp og bætir við að suma listamennina hafi hún aldrei séð. „Við erum öll misjöfn en myndum saman eina heild og draumur minn er að tengja listaþræði héðan og þaðan saman.“ Sýningin, sem verður opin til 15. ágúst, er í stórum sýn- ingarsal, veitingasalnum og gangi á milli. Þar sýna 15 mynd- listarmenn verk sín. Þeir eru Ása Jóhannsdóttir, Elínborg Ostermann, Erla Halldórsdóttir, Finnur – Sigurfinnur Sigurfinnsson, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Guðlaugur Arason, Halldóra Sigurðardóttir, Hólmfríður Dóra Sigurð- ardóttir, Jóhannes K. Kristjánsson, Jóný – Jónína Björk Hjörleifsdóttir, Kristjana Unnur Valdimarsdóttir, Konný – Laufey Konný Guðjónsdóttir, Ósk Laufdal, Sigga Dís og Sólrún Björk. Þema sýningarinnar 2022 er „Börn að leik“ og hafa 20 myndlistarmenn skráð sig til leiks, þar á meðal Mark Sepala, teiknari frá Disney World á Flórída. „Ég er komin með biðlista, en vonandi fá allir sem vilja að vera með,“ segir Ósk. Listamenn Kristjana Unnur Valdimarsdóttir, Ósk Laufdal, Halldóra Sigurðardóttir og Hólmfríður Dóra Sigurðar- dóttir á sýningunni í Skálholti í fyrra. Þær eiga líka verk á sýningunni í sumar. Tengir ólíka listaþræði - Stefnt að árlegri samsýningu myndlistarmanna í Skálholti Sýning Verkin eru mismunandi eins og listamennirnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.