Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.5. 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Vikan hófst með uppnámi þegar í ljós kom að maís væri plast sam- kvæmt skilgreiningu Umhverfis- stofnunar og Evrópusambandsins og svonefndir maíspokar því kol- ólöglegir á afgreiðslusvæðum versl- ana. Netverslanir mega víst heldur ekki nota þá, því samkvæmt hinum alvísu möppudýrum eru heimili fólks víst afgreiðslusvæði þegar inn- kaupapokar berast í forstofuna. Næst: Poppkorn er frauðplast. Gróðureldar héldu áfram að gera vart við sig í grennd við höfuðborg- ina vegna langvarandi þurrka, en slökkvilið voru á varðbergi og komu í veg fyrir að suðvesturhornið yrði skógareldum að bráð. Skortur á skógum hjálpaði mikið. Bókunum í ferðaþjónustu fjölgaði áfram og sagði Bogi Nils Bogason hjá Icelandair að Bandaríkjamark- aður hefði tekið hressilega við sér og merki víðar um að bólusettir ferða- menn væru komnir á stjá, fullir ferðahugar eftir árs útgöngubann víða í borgum útlandsins. Í Færeyjum fögnuðu menn líka ferðamönnum eftir langa ein- angrun, en þar voru vitaskuld Ís- lendingar á ferð, 50 eldri borgarar. Skagfirska efnahagssvæðinu var hins vegar lokað um hríð vegna sex smita, sem þar komu upp um liðna helgi. Þar á meðal var sjúkrahús- starfsmaður og 20 starfsmenn grunnskólans settir í sóttkví. Skírn í Sauðárkrókskirkju um helgina vakti athygli, en faðir barnsins mátti fylgjast með henni í síma úr sóttkví. Aftur á móti var ögn slakað á klónni í sóttvörnum þegar veitingahús máttu hafa opið til klukkan tíu á kvöldin og þurfa vertarnir ekki að henda kúnnunum út í vornóttina fyrr en klukkan ellefu. Veitinga- menn segja mikið muna um þennan klukkutíma. . . . Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherrra fékk fyrri bólusetningu á þriðjudag og notaði tækifærið til að hvetja landsmenn alla til þess að taka bólusetningu. Markmiðið væri að bólusetja alla sem allra fyrst, svo þjóðfélagið gæti losnað úr viðjum faraldursins og tekið við sér á ný. Þurrkatíðin á suðvesturhorninu hélt áfram, en Trausta Jónssyni veður- fræðingi telst svo til að í ár væri sól- ríkasta maíbyrjun frá upphafi mæl- inga. Hann segir þurrkakafla sem þennan þó ekkert einsdæmi. Þrátt fyrir að atvinnulausum hafi fækkað hægt og sígandi á síðustu mánuðum og útlit fyrir aukið vinnu- framboð fyrir aðgerðir stjórnvalda er atvinnuleysi enn mikið og út- breitt. Um 14.000 manns hafa verið atvinnulausir í hálft ár eða lengur. Ástandið er verst á Suðurnesjum. Beint flug er við það að hefjast milli Íslands og Ísraels á vegum ísraelska flugfélagsins El Al. Ísraelar eru sú þjóð sem fyrst náði að bólusetja þorra þjóðarinnar. Reykjavíkurborg þrengir mjög að Tilraunastöðinni á Keldum, en vegna fyrirhugaðrar sölu á landi í grennd hennar setja skipulags- yfirvöld þá kvöð á stöðina að ný mannvirki þurfi að fjarlægja þegar borgin krefst þess. Sigurður Ingv- arsson segir stöðina í gíslingu borg- arinnar fyrir vikið. Sumarið er komið í sinni lögregl- unnar, sem í sólskinsskapi er tekin til við að sekta eigendur bíla sem enn eru á nagladekkjum. Netverslunin með áfengi fór af stað og fékk gríðargóðar viðtökur, en þar voru vín og bjór seld til neytenda án milligöngu og smásöluálagningar ÁTVR. Lysthafendur kaupa vínið af franskri vínbúð í íslenskri eigu, en það er afhent af lager hér á landi. . . . Í nýrri skýrslu um sjávarútvegs- stefnuna kemur fram að í 28 af 29 ríkjum OECD þurfi að styrkja sjáv- arútveg með opinberum framlögum. Aðeins á Íslandi greiði greinin meira í sameiginlega sjóði en hún þiggi. Kvótakerfið hafi orðið grein- inni hvati og gefið henni forskot. Hafi einhver haldið að ÁTVR myndi kæra nýja netverslun með vín, þá gerðist það ekki. Þvert á móti, því hún kvartaði til Neytendastofu und- an notkun ÁTVR á heitinu Vínbúð- in, sem ekki samræmdist lögum og væri villandi í viðskiptaboðum. Eftir ógnarlangan umhugsunartíma ákváðu sjálfstæðismenn í Krag- anum að halda prófkjör og sögðu annað aldrei hafa komið til greina. Því ótengt óskuðu skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Secret Sol- stice eftir því að fá að halda hátíðina á eða nálægt Vífilsstaðatúni í Garðabæ. Ástæðan er sögð sú að leiðin til Garðabæjar sé styttri en boðleiðirnar í Reykjavík, sem hafi gert skipulagninguna óbærilega flókna. Fjárhagsstaða sveitarfélaga hefur versnað til muna, samkvæmt nýrri úttekt Sambands íslenskra sveitar- félaga. Af þeim tíu stærstu voru sex rekin með halla á liðnu ári og gekk þó betur en óttast hafði verið. Íslendingar eru Evrópuþjóða fyllstir grunsemda í garð appa og persónu- upplýsingafíknar framleiðenda þeirra. Aðeins 8% hafa aldrei synjað appi um persónuupplýsingar sínar. Þrátt fyrir að offituaðgerðir hafi gefið ákaflega góða raun við að lengja líf og auka lífsgæði fólks eru þær furðufátíðar í heilbrigðiskerfinu hér á landi. Æ fleiri leita því á náðir einkarekinna heilbrigðisstofnana um þær. Um þriðjungur Íslendinga er of feitur og þeim fer ört fjölgandi. Saksóknari staðfesti að fjórir yrðu ákærðir fyrir morðið í Rauðagerði um miðjan febrúar. . . . Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony J. Blink- en og Sergei Lavrov, munu sækja ráðherrafund Norðurskautsráðsins um næstu helgi, en þá tekur Rúss- land við formennsku af Íslandi. Landhelgisgæslan hefur nú þrjár þyrlur til taks en flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli rúmar þær ekki allar. Reykjavíkurborg hefur ekki svarað erindi gæslunnar frá 2018 um staðsetningu þyrlusveitarinnar. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) kynntu vegvísi til ársins 2025 um bætt starfsumhverfi greinarinnar, svo hún næði að eiga þann þátt í efnahagslegri viðspyrnu eftir kór- ónukreppuna sem ráðgert er. Jafn- framt var sett upp mælaborð á vefnum, sem sýnir töluleg markmið í þeim efnum og hvernig miðar. Menningarmálaráðuneytið samdi við Akureyrarbæ um 230 milljón króna árlegan stuðning við menn- ingarstarf nyrðra. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar segir markmiðið að byggja up at- vinnustarfsemi í listum á Akureyri. Tæplega 350 manns fóru í sóttkví í Skagafirði en vonast er til að aflétta megi sérstökum sóttvarnaaðgerðum eftir helgi. Bæjarstjórar Kópavogs og Reykja- víkur hittust á miðri brú á hlutlausa beltinu í Fossvogi og undirrituðu samkomulag um að grafa þar sam- eiginlega sundlaug til þess að inn- sigla friðarferlið. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing- maður vinstrigrænna, dró framboð sitt í forvali flokksins í Reykjavík til baka og sagði ástæðuna þá að hann hefði lofað konum meira en hann hefði svo staðið við. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður hans, sagði þetta rétta ákvörðun hjá Kolbeini, sem best sæist á því að hún hefði komið sér á óvart. . . . Á þriðja hundrað Íslendingar flugu suður á bóginn til Alicante, en auk- innar ferðaþrár gætir eftir því sem bólusetningu vindur fram og áfanga- staðir opnast. Kynnt var að Hjallastefnan yrði að flytja tvo skóla úr Öskjuhlíð eftir næsta skólaár, þar sem viðræður við Reykjavíkurborg um húsnæði undir þá hefðu ekki borið árangur. Stóreflis plastkassaverksmiðja á að rísa á Djúpavogi öðru hvorum megin áramóta. Þar á að framleiða frauð- plastskassa fyrir laxeldi eystra, þó ekki úr maísstönglum. Tíu ár voru liðin frá því Harpa, tón- listarhöll alþýðunnar, var opnuð á minningarreitnum um bankahrunið. Af því tilefni gáfu bæði ríki og borg henni veglegar gjafir, eins og raunar öll önnur ár. Misjafnlega er haldið upp á upps- tigningardag í heiminum, en við Perluna var það fremur gert með því að renna sér niður en að stíga upp. Þar var uppblásinn stærsti hoppu- kastali í heimi, en vegna sóttvarna- takmarkana komust þó færri að en vildu. Rétt eins og í Himnaríki. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var bólusett við kórónuveirunni í vikunni, en mikill árangur hefur náðst í þeim efnum upp á síðkastið. Er svo komið að viðkvæmustu hóparnir og heilbrigðiskerfið verða komin í var fyrir mánaðarlok. Morgunblaðið/Árni Sæberg 9.5.-14.5. Andrés Magnússon andres@mbl.is Bólusetning & uppstigning

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.