Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Page 17
öðrum lögmálum, er margfalt betur settur en ella.
Það er stjórnmálamanni mikilvægt að koma sínu
tali skiljanlega frá sér. Þegar Ævar Kvaran var að
kenna bréfritara ungum þá kúnst og þótti sem nem-
anum lægi of mikið á, sagði hann sem svo: „Davíð
minn, ekki gleyma því að gamla konan uppi á öðrum
svölum borgaði sig líka inn.“ Stundum síðar, þegar
spennan var nokkur og fast tekið á og bréfritari
taldi sig hafa farið fram úr sjálfum sér, muldraði
hann í barminn: „Hún borgaði sig líka inn.“ Og það
sló samstundis á. En það er ekki aðeins framsögn
leikarans sem skiptir máli. Stjórnmálamenn halda
sumir að velgengni velti á því, að þeir, en ekki hinir,
séu sem oftast með míkrafóninn uppi í sér.
Dæmin eru þó fleiri þekkt þar sem menn hafa tal-
að sig í óverjandi stöðu og hafa glutrað niður þögn-
inni sem hefði bjargað þeim.
De Gaulle sagði þögnina skeinuhætt vopn væri
henni réttilega beitt.
En leikræn tilþrif eru með sama hætti hættuleg
stjórnmálamanni og leikara sem ofleikur. Sé stjórn-
málamaðurinn grunaður um að vera kominn í rullu
leikarans er ekki víst að hann eigi afturkvæmt upp á
sitt eiginlega svið. Hann er þá staddur eins og leik-
ari sem misst hefur röddina. En leikarinn sem hefur
þögnina á valdi sínu og hefur samspil hennar og
textans í hendi sér er kominn langleiðina að mark-
inu. Hjón, sem hafa gert þögnina að þægilegum fé-
laga, sem mildar samfélag þeirra, þurfa engu að
kvíða. Stjórnmálamenn eiga erfiðast allra með að
láta þögnina njóta sýn.
Spennandi tilraun
Kosið verður í september. Vonir standa til að veiran
verði þá á bak og burt. Sé eitthvað eftir af henni þá
gæti það dugað best að láta eins og menn taki ekki
eftir henni. Hún virðist athyglissjúk.
Ef vel tekst til þá verður skammur aðdragandi að
kjördegi að þessu sinni. Það er fagnaðarefni. Sum-
arið er hvergi betra en hér á landi, hvort sem það er
„gott“ eða „vont“ sumar. Það er allt svo miklu að-
gengilegra þegar birtan er með manni í liði. Fýlu-
pokar og frekjuhundar eiga erfiðast með að hrifsa til
sín dagskrárvaldið á sumrin. „Skammdegismálin til-
heyra skammdeginu. Það segir sig eiginlega sjálft,“
sagði kerlingin og karlinn tók undir eða öfugt. (Þetta
hlýtur að dekka það). Þess vegna má binda vonir við
að umræðan í aðdraganda kosninga nú verði mál-
efnalegri en stundum endranær og það gæti haft já-
kvæð áhrif á úrslit og eftir atvikum á tilraunir til
stjórnarmyndunar.
Breyttar forsendur
Fyrir fáeinum vikum ræddu þeir Stefán Pálsson og
Friðjón Friðjónsson um mánuðina fram undan í
Dagmáli Morgunblaðsins og leiddi Andrés Magn-
ússon umræðuna. Virtust álitsgjafar meta stöðuna
svo að góður vinnufriður væri innan núverandi rík-
isstjórnar og þægileg tengsl á milli manna. Virtist
þeim sem ekki væru nein óveðursský að safnast á
þeirra himni sem torvelda myndu áframhaldandi
stjórnarsamstarf. Það má vera rétt.
Ekkert var hins vegar um það fjallað hver ætti að
leiða slíkt samstarf. Það er eðlileg meginregla, þótt
hún sé ekki ófrávíkjanleg, að sá flokkur sem hefur
mestan þingstyrk sé leiðandi í samsteypustjórn. Í
sumum löndum, eins og til að mynda Finnlandi, þá
er jafnan gengið út frá því að stærsti þingflokkurinn
leiði ríkisstjórn og breytir engu þótt mjög lítið bil sé
á milli flokka. Sjálfstæðisflokkurinn hafði mestan
þingstyrk þegar gengið var til þessa samstarfs og
munaði þar allmiklu, ekki síst þar sem formaður VG
náði ekki að tryggja að allur þingflokkurinn styddi
stjórnina.
Formaður Sjálfstæðisflokksins stóð óneitanlega
veikt þar sem að ríkisstjórn hans hafði sprungið eins
og upp úr þurru um miðnæturbil, eftir aðeins fáeina
mánuði og af ástæðum sem náðu ekki máli.
Kannanir hafa virst sýna að fylgi Sjálfstæð-
isflokksins hafi farið vaxandi og hljóta fyrrnefnd rök
og slík þróun að opna á að spurningum um forystu
stjórnarinnar verði svarað með hliðsjón af því.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
Það er eðlileg meginregla, þótt hún
sé ekki ófrávíkjanleg, að sá flokkur
sem hefur mestan þingstyrk sé leiðandi
í samsteypustjórn.
16.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17