Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 18
unarnám hófst svo þegar hún byrj- aði í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Þaðan lá leið hennar í Listaháskóla Íslands og fyrir tveimur árum hóf hún meistaranám í Central Saint Martins þar sem hún sérhæfði sig í kvenfatahönnun. Áður en Sólveig hóf nám í London fór hún í starfsnám í tískuborginni. „Ég vann hjá tveimur fyrirtækjum. Ég vann fyrst fyrir írskan fatahönn- uð sem var með lítið stúdíó. Svo fór ég á aðeins stærri stað sem var bæði hönnunarstúdíó en líka þar sem var hannað fyrir stærri merki á borð við Calvin Klein og Marc Jacobs. Það var ótrúlega áhugavert að vinna þar. Ég ákvað að sækja um þennan master en var ekki endilega að búast við að komast inn. Það er mjög mikil sam- keppni. Það eru svo ótrúlega margir S ólveig deilir um þessar mundir litlu stúdíói á Eiðistorgi. „Ég er að svara tölvupóstum um stílistalán út um allan heim. Svara þeim sem biðja um að kaupa einhverjar flíkur og svo er ég að vinna í tveimur sýningum fyrir HönnunarMars,“ segir Sólveig spurð að því hvað hún sé að fást við þessa dagana. Hún segir yndislegt að finna fyrir þeim áhuga sem fólk sýni fötunum hennar. Á meðal þeirra sem hafa sýnt fatalínunni áhuga eru tískutímarit og miðlar á borð við Vogue og Dazed. „Ég átti saumavél og var alltaf að sauma og hanna. Ég vissi alltaf að ég vildi verða hönnuður en ekki endi- lega fatahönnuður,“ segir Sólveig sem er 26 ára. Formlegt fatahönn- sem sækja um, 600 á hverju ári en bara 30 eða 40 sem komast inn.“ Skapandi hönnunarferli Sólveig byrjar ekki á því að hanna peysu eða buxur heldur nálgast hönnun sína út frá ákveðinni hug- myndafræði. Lokaútkoman minnir síðan jafnvel á listaverk frekar en það sem má sjá á slám tískufata- verslana. „Ég vinn út frá hug- myndafræði sem ég skapa. Ég bý til einhverja hugmyndafræði og vinn allt út frá því en ekki út frá því að ég sé að hanna jakka. Ég er eiginlega aldrei að spá í að hanna einhverja ákveðna flík. Ég bý til ramma sem ég vinn í. Þá kemur oft eitthvað ferskt út. Ég er ekki að hanna prent á kjól,“ segir Sólveig. Hún bendir á að hún gæti ekki Eftirsótt í tískuheiminum Sólveig Dóra Hansdóttir hannar föt sem dansa á línu fatahönnunar og myndlistar. Í vor fékk hún aðalverðlaun útskriftarnema Central Saint Martins í London þaðan sem hún er að útskrifast með meistaragráðu. Sólveig er á fullu þessar vikurnar að svara fólki erlendis sem hefur áhuga á að nota föt hennar í til dæmis myndatökur fyrir þekkt tískutímarit. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Skissur og myndir á vinnustofunni. Útskriftarlína Sólveigar er listræn og öðruvísi. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.5. 2021 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.