Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 19
sest niður og teiknað fötin sem hún býr til. Þau verða til í ákveðnum list- rænum gjörningi. „Útskriftarlínan er unnin í myndbandsverkum þar sem ég teikna beint á jakka til dæm- is og klippi hann í sundur og úr því verður eitthvert snið. Ég gæti aldrei gert það snið með því að nota bara hausinn á mér. Þegar maður er að teikna á blað verður maður svo formfastur,“ segir Sólveig. Hún byrjar á því að lesa sér til um eitt- hvert efni og þannig þróa hug- myndaheiminn sem hún vinnur með. Í útskriftarlínunni úr Central Saint Martins vann hún út frá því hvernig maðurinn þarf alltaf að hafa stjórn á hlutunum, setja í kassa og greina. Það fylgir því ákveðin hræðsla að hafa ekki stjórn á hlutunum sem Sólveig kannaði í sköpunarferlinu. Línan heitir Þrjár kenningar um illsku en þar vitnar í Sólveig í þrjá mismunandi gjörninga á mynd- bandsverkum. Sólveig vann mynd- bandsverk með Önnu Maggý ljós- myndara auk þess sem Anna Maggý tók myndir af fyrirsætunum í fötun- um. Samvinna þeirra Önnu Maggýj- ar og Sólveigar verður til sýnis á sýningu í Gerðarsafni 19. - 23. maí sem hluti af dagskrá HönnunarMars sem fer seinna fram en vanalega. Á sýningunni í Gerðarsafni fær út- skriftarsýningin að lifna við en hún fór upphaflega fram á netinu. Fór ekki aftur út Eins og svo margir á undanförnum misserum var Sólveig föst í að- stæðum sem hún hafði ekki stjórn á. Sú staða hafði áhrif á þema útskrift- arlínunnar. „Ég kom heim í apríl í fyrra yfir páskana og festist heima. Ég átti að fara út og klára línuna mína en hafði enga stjórn og sat heima og þurfti að taka allt námið í fjarnámi,“ segir Sólveig. Hún segir að það hafi að vissu leyti verið leið- inlegt að komast ekki út aftur. Skól- inn lokaði og hún hafði ekki aðgang að öllum þeim tækjum sem hún hefði annars haft. Þegar kom að því að skólinn opn- aði ákvað hún hins vegar að fara ekki út en hún segir að sér líði mjög vel einni þegar hún er að einbeita sér. Stemningin á vinnustofu meist- aranámsnema í skólanum getur ver- ið þrúgandi. „Það eru margir að vinna, það er þröngt. Það er mikil samkeppni innan bekkjarins. Ég var bara úti á Granda að vinna þetta langt í burtu frá öll- um. Það var eigin- lega alveg yndislegt. Ég vil bara vera í friði þegar ég er að vinna.“ Tískusýningin fór fram fyrir nokkrum vikum á netinu vegna kórónu- veirufaraldurs- ins og fékk út- skriftarlína Sólveigar mikla at- hygli. Hún vann verð- launin L’Oréal Creat- ive Awards fyrir framúrskarandi fatalínu. Verðlaunin eru veitt á hverju ári og fékk Sólveig pen- ingaverðlaun. „Þetta eru aðalútskriftar- verðlaunin. Þeir sem hafa fengið þetta áður hafa oft verið áberandi útskriftarnemendur. Þótt maður sé útskrifaður úr besta fatahönnunar- skóla í heimi ertu samt í svo mikilli samkeppni þegar þú ert búinn. Krakkarnir sem hafa fengið þetta eru áberandi innan bransans. Þetta er svolítill stökkpallur. Daginn eft- ir að ég fékk þetta fékk ég enda- laust af skilaboðum og tölvu- póstum, segir Sólveig og segir tilfinninguna hafa verið yfir- þyrmandi. Í þessum tölvu- póstum var hún meðal annars beðin um að lána stílistum fötin úr lín- unni. Sólveig segir að núna sé mjög mikilvægt að fylgja velgengni út- skriftarlínunnar eftir. Í framtíðinni langar hana að halda áfram að vinna undir eigin nafni á alþjóðasviði þrátt fyrir að vera staðsett á Íslandi. Hún er bjartsýn og stefnir ekki á fjölda- framleiðslu enda frumleg og óvenjuleg föt hennar ekki stíluð inn á alla. Hún sér meðal annars fyrir sér að sækja í markaðshóp eins og söngkonur sem syngja uppi á sviði. Það þýðir færri seldar flíkur en mögulega hærri upphæðir. Morgunblaðið/Eggert Fötin hafa fengið mikla athygli í tískuheiminum. Morgunblaðið/Eggert Fötin urðu til á vinnustofu á Íslandi í heimsfaraldrinum. Sólveig er að útskrifast úr einum virtasta fata- hönnunarskóla heims. 16.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.