Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 2
Fyrirmenni trufluðu ekki hádegisverðinn
Það var margt um manninn við vígslu viðbyggingar Gamla garðs, elsta stúdentagarðs Félagsstofnunar stúdenta. Rektor Háskóla Íslands og borgarstjóri létu
sig ekki vanta, þá mætti einnig ráðherrann fyrrverandi Björn Bjarnason, sem var forseti SHÍ þegar Félagsstofnun stúdenta var stofnuð. Gestirnir gengu um
bygginguna til að skoða hana vandlega að innan, en stúdentinn sem var að snæða hádegisverðinn sinn, lét það ekki hafa áhrif á sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Inflúensubólusetning
á Heilsugæslunni Lágmúla
Bólusett verður milli kl. 15.00 og 17.00 alla virka daga nema föstudaga
Forgangshópar ganga fyrir fyrstu 2 vikurnar
Hægt er að bóka tíma á www.heilsuvera.is og í síma 595 1300
Vinsamlega komið tilbúin í stuttermabol
Nánari upplýsingar á www.hglagmuli.is
Uppbygging hjúkrunarrýma
við Borgarholtsskóla er harð-
lega gagnrýnd. Skólameistari
hyggst leggjast fyrir framan
gröfurnar. Borgarstjóri segir
stefnumörkun á forræði
menntamálaráðherra.
helenaros@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Skólameistari Borgar-
holtsskóla, íbúasamtök Grafarvogs
og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gagnrýna harðlega fyrir-
hugaða uppbyggingu hjúkrunar-
rýma við lóð Borgarholtsskóla.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra og Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri undirrituðu samning
um byggingu hjúkrunarheimilis
fyrir 144 íbúa í maí síðastliðnum.
„Bygging hjúkrunarheimilis á
þessum stað er vægast sagt glap-
ræði,“ segir Ársæll Guðmundsson,
skólameistari Borgarholtsskóla.
Hann hafi reynt að fá svör um lóð-
ina í áraraðir en það hafi ekki verið
fyrr en eftir undirritun samnings-
ins sem hann hafi fengið svör frá
borgarstjóra.
Dagur segir að fullt samráð hafi
verið við fulltrúa ríkisins í viðræð-
unum. „Lóðin sem um ræðir var
áður hugsuð sem lóð fyrir íþrótta-
hús Borgarholtsskóla en fyrir
nokkrum árum náðust samningar
um að íþróttir í skólanum yrðu í
Egilshöll í Grafarvogi. Þar með var
ekki þörf fyrir íþróttahús á þessum
stað,“ segir hann.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisf lokksins í borgarstjórn,
segir að á fundi borgarstjórnar á
þriðjudag verði lögð fram tillaga
um að falla frá uppbyggingunni við
skólann og hjúkrunarheimilinu
fundinn nýr staður. „Nú er mikið
talað um fjórðu iðnbyltinguna og
mikilvægi tæknináms, þess vegna
þarf skólinn þróunarsvæði, með
þessu er verið að slátra því,“ segir
Eyþór. „Það er nógu slæmt að missa
Tækniskólann án þess að þrengja að
Borgarholtsskóla. Þetta er klassískt
samráðsleysi, það er ekki talað við
skólameistara eða íbúa.“
Ársæll segir að gert hafi verið
samkomulag árið 1995 um að lóðin
skyldi vera til umráða fyrir Borgar-
holtsskóla til frambúðar. Til stóð
að hefja framkvæmdir fyrr á þessu
ári en þær eru ekki hafnar. „Ég mun
leggjast flatur fyrir framan gröfurn-
ar,“ segir Ársæll.
Dagur segir að í samskiptum við
Borgarholtsskóla hafi komið fram
óánægja með áherslur og forgangs-
röðun í húsnæðismálum. Í samræmi
við stefnu mennta- og menningar-
málaráðherra sé uppbygging í for-
gangi við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti, þá hafi einnig verið viðraðar
hugmyndir um nýja byggingu fyrir
Tækniskólann. „Reykjavíkurborg
vill ekki dragast inn í þessar deilur
og lítur svo á að stefnumörkun á
sviði framhaldsskóla sé á höndum
menntamálaráðuneytisins og hefur
vísað skólameistara á ráðuneytið
hvað varðar umræðu um þá hluti,“
segir Dagur.
Borgin hafi tekið sérstaklega
fram við ráðuneytið og Borgarholts-
skóla að það mætti vinna að hug-
myndum um list- og verknám, til
dæmis í tengslum við uppbyggingu
kvikmyndafyrirtækja í Gufunesi.
„Reykjavíkurborg vill hins vegar
ekki blandast inn í hugsanlegar
deilur um forgangsröðun í uppbygg-
ingu húsnæðismála framhaldsskóla
heldur leggur áherslu á gott sam-
starf við menntamálaráðuneytið og
þá framhaldsskóla sem ráðuneytið
leggur áherslu á varðandi uppbygg-
ingu.“ ■
Skólameistari mun liggja
flatur fyrir framan gröfuna
Ársæll Guðmundsson skólameistari á lóðinni sem hann segir að hafi verið
lofuð skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Dagur B.
Eggertsson,
borgarstjóri
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Skrifstofa velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar tók leigubíla
fyrir rúmar sex milljónir króna á
tveimur árum. Kostnaður borgar-
innar vegna leigubíla nam 431
milljón króna á síðustu átta árum.
Kostnaðurinn hefur aukist ár frá
ári síðan 2011 og var 69 milljónir á
árinu 2018. Þetta kom fram í svari
fjármála- og áhættustýringarsviðs,
við fyrirspurn Kolbrúnar Baldurs-
dóttur, oddvita Flokks fólksins.
Alls á Reykjavíkurborg 105 bíla,
þar af 56 fólksbíla. Í bókun Kol-
brúnar segir að hún hafi séð starfs-
menn borgarinnar koma á viðburð
í leigubíl, í eitt skipti hafi verið einn
starfsmaður í bílnum.
Í bókun borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins er vakin athygli á að
Reykjavíkurborg hafi greitt starfs-
mönnum tvo milljarða króna fyrir
akstur á eigin bifreiðum frá árinu
2011. „Samtals um milljón á dag.
Loks hefur borgin keypt f lugmiða
fyrir tæpar þrjú hundruð milljónir
á síðustu átta árum.“ Þá hafi ekki
verið farið í útboð í þessum málum
þó að fjárhæðirnar séu langt yfir
viðmiðunarfjárhæðum. ■
Reykjavíkurborg greitt um milljón á
dag í aksturspeninga undanfarin tíu ár
Kolbrún
Baldursdóttir,
oddviti Flokks
fólksins í
borgarstjórn
Þórólfur Guðna-
son, sóttvarna-
læknir
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Undanfarna viku hafa 282
einstaklingar greinst með Covid-19
hér á landi.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir telur að í ljósi góðrar stöðu á
Landspítalanum sé tilefni til að létta
á sóttvarnaaðgerðum. Núverandi
takmarkanir gilda fram á miðviku-
dag.■
Tilefni til að létta
takmörkunum
mhj@frettabladid.is
DÓMSMÁL Lands réttur þyngdi
fangelsis dóm yfir karl manni fyrir
nauðgun og kyn ferðis brot gegn
stjúp barna barni sínu á árunum
2018 og 2019.
Maður inn hlaut tveggja ára og sex
mánaða dóm í Héraðsdómi Reykja-
ness, Landsréttur þyngdi dóminn í
þrjú ár. ■
Þrjú ár fyrir
kynferðisbrot
2 Fréttir 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ